Ferill 169. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
169
. mál.
187. Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um sölu ríkisins á verðbréfum og spariskírteinum.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
Hverju nam heildarsala ríkisins á verðbréfum og spariskírteinum föstudaginn 29. október sl.?
Hver ber ábyrgð á því að viðskipti voru leyfð þennan dag?
Hvert má ætla að yrði söluverð sömu bréfa ef ríkisstjórnin nær markmiðum sínum í vaxtamálum? Hve háar fjárhæðir verður ríkissjóður að greiða í vexti umfram það sem orðið hefði ef bréfin hefðu selst á lægri vöxtum í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar, þ.e. 5%?
Voru bankar eða opinberir sjóðir í hópi kaupenda þennan föstudag og ef svo er, hve mikið keyptu þeir?