Ferill 177. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 177 . mál.


196. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36 5. maí 1986, með áorðnum breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993.)



1. gr.

    Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða VII svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 26. gr. er ráðherra heimilt að fresta skipun í stöðu bankastjóra Seðlabankans sem laus verður 1. janúar 1994. Heimild þessi gildir þó ekki lengur en til ársloka 1994.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp til nýrra laga um Seðlabanka Íslands var lagt fram til kynningar á 115. löggjafarþingi. Á 116. löggjafarþingi var frumvarpið lagt fram á nýjan leik en náði ekki fram að ganga. Nú er unnið að breytingum á frumvarpinu og er það til umfjöllunar í ríkisstjórn. Meðal þeirra atriða sem eru til umfjöllunar eru ákvæði VII. kafla frumvarpsins um stjórnskipulag bankans, þar með talið ákvæði um bankastjórn. Eins og fram kemur í fylgiskjali með stefnuræðu forsætisráðherra og í þjóðhagsáætlun sem forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi er ætlun ríkisstjórnarinnar að leggja frumvarpið fram á ný á yfirstandandi þingi.
    Í 1. mgr. 26. gr. laga um Seðlabanka Íslands segir m.a. að í bankastjórn Seðlabankans eigi sæti þrír bankastjórar og skv. 2. mgr. 26. gr. skipar ráðherrra bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs. Jafnframt segir að bankastjórar skuli eigi skipaðir til lengri tíma en sex ára í senn.
    Í lok árs 1993 lætur einn af bankastjórum Seðlabankans af störfum fyrir aldurs sakir. Með frumvarpi þessu er lagt til að ákvæðum 1. og 2. mgr. 26. gr. verði í raun vikið tímabundið til hliðar þannig að ráðherra skipi ekki nýjan bankastjóra í Seðlabanka Íslands meðan ný lög hafa ekki verið sett um bankann. Þó gildir þessi heimild ekki lengur en til ársloka 1994.
    Á meðan heildarendurskoðun á lögum um Seðlabanka Íslands er ekki lokið þykir nauðsynlegt að gera þá breytingu á gildandi lögum um bankann sem hér er lögð til. Með því að skipa ekki í lausa stöðu bankastjóra næst fram sparnaður í rekstri bankans sem er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um aðhald í útgjöldum ríkissjóðs og ríkisstofnana. Gert er ráð fyrir að fyrir árslok 1994 verði heildarendurskoðun á lögum um Seðlabankann lokið og að ákvæði sem þetta verði þar með óþarft.