Ferill 184. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
184
. mál.
204. Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um reglur um styrki til tannviðgerða.
Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Hvað líður setningu reglna um styrki til aðgerða hjá tannlækni vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma, sbr. 18. gr. laga nr. 1/1992?
Eftir hvaða reglum hefur verið farið við mat á þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar sem hófust eftir 15. mars 1992?