Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 204 . mál.
226. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988, með síðari breytingum.
Flm.: Margrét Frímannsdóttir.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna:2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Hér er gert ráð fyrir að meðal lögbundinna verkefna Fangelsismálastofnunar verði að veita aðstandendum fanga sérhæfða þjónustu, svo sem félagsráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Ákvæði þar að lútandi bætist við sem nýr 5. tölul. 2. gr. laganna. Þá er orðalagi núverandi 5. tölul. breytt til samræmis og verður hann 6. tölul.Starfsmenn Fangelsismálastofnunar hafa fram til þessa reynt eftir mætti að veita aðstandendum fanga þá sérhæfðu þjónustu sem hér er lagt til að verði eitt af lögbundnum verkefnum stofnunarinnar. Aðstandendur fanga eiga oft við svipuð andleg og félagsleg vandamál að glíma og fangarnir sjálfir og leita aðstoðar sérfræðinga Fangelsismálastofnunar. Nú starfar einn sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Hlutverk hans samkvæmt lögum er að veita föngum sérfræðiaðstoð. Jafnframt hefur það komið í hans hlut, sem og annarra starfsmanna stofnunarinnar, að sinna aðstandendum fanga. Það segir sig sjálft að einn sálfræðingur nær engan veginn að anna þeirri þörf sem fyrir hendi er í fangelsunum sjálfum fyrir þessa sérhæfðu þjónustu, hvað þá að sinna öllum þeim aðstandendum fanga sem til stofnunarinnar leita.
Með samþykkt þessa frumvarps yrði það eitt af lögbundnum verkefnum Fangelsismálastofnunar að veita þessum aðstandendum sérhæfða þjónustu, félagsráðgjöf og/eða sálfræðiþjónustu. Samþykkt þess felur í sér að heimila þarf stöðugildi starfsmanns, félagsráðgjafa eða sálfræðings, til viðbótar þeim stöðugildum sem nú er heimild fyrir. Kostnaður við það mun vera um það bil 2 millj. kr. á ári.