Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 223 . mál.

248. Fyrirspurn


til menntamálaráðherra um aðgerðir fyrir ungmenni sem hafa flosnað upp úr skóla.

Frá Guðrúnu J. Halldórsdóttur.


    Hverjar voru tillögur starfshóps um samræmdar aðgerðir fyrir ungmenni sem flosnað hafa upp úr skóla, sbr. ályktun Alþingis 12. mars 1991? Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í framhaldi af tillögum hópsins?