Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 235 . mál.


264. Frumvarp til laga


um slysavarnaráð.

Flm.: Lára Margrét Ragnarsdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Gísli S. Einarsson,

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Jóhann Ársælsson,

Jón Kristjánsson, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Margrét Frímannsdóttir,

Sigríður A. Þórðardóttir, Valgerður Sverrisdóttir.


1. gr.

    Stofna skal slysavarnaráð sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Landlæknisembættið skal hafa með hendi daglega framkvæmdastjórn ráðsins.

2. gr.

    Tilgangur slysavarnaráðs er að stuðla að fækkun slysa. Þeim tilgangi skal ráðið ná með því að:
    móta reglur sem miða að því að slys séu skilmerkilega skráð og sú skráning sé samræmd, jafnframt því sem séð verði um úrvinnslu þeirra upplýsinga og útgáfu á slysatölum,
    vera ríkisstjórn, ráðherra og öðrum aðilum til ráðuneytis um allt er lýtur að slysavörnum,
    gera tillögur til heilbrigðisyfirvalda um áhersluatriði í slysavörnum á hverjum tíma,
    stuðla að rannsóknum á orsökum og afleiðingum slysa,
    hvetja til samræmingar á störfum þeirra aðila sem vinna að slysavörnum,
    fylgjast með nýjungum og reynslu annarra þjóða í slysavörnum,
    halda landsþing um slysavarnir annað hvert ár.

3. gr.

    Heilbrigðisráðherra skipar sjö fulltrúa í slysavarnaráð, tilnefnda af eftirtöldum aðilum: landlæknisembættinu, og skal sá vera formaður, læknadeild Háskóla Íslands, dómsmálaráðherra, Vinnueftirliti ríkisins, Slysavarnafélagi Íslands, Sambandi íslenskra tryggingafélaga og Tryggingastofnun ríkisins.
     Slysavarnaráð skal skipað til fjögurra ára í senn.
     Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.

4. gr.

    Samræmd slysaskrá, sbr. a-lið 2. gr., skal varðveitt hjá landlækni. Ráðið mótar reglur um framkvæmd skráningar og aðgang að upplýsingum úr skránni.

5. gr.

    Slysavarnaráði skal úthlutað fjármunum til reksturs í sérstökum lið sem fellur undir embætti landlæknis á fjárlögum.

6. gr.

    Slysavarnaráð gerir árlega áætlun um ráðstöfun á því fé sem til þess er veitt.

7. gr.

    Slysavarnaráð sendir ráðuneytinu í lok hvers árs skýrslu um störf þess.

8. gr.

    Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um störf slysavarnaráðs í reglugerð.

9. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í áætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um heilbrigði fyrir alla árið 2000 segir m.a. (11. markmið) að átak þurfi að gera gegn slysum, þ.e. að fækka dauðsföllum af þeirra völdum um 25% fyrir árið 2000.
    Áætlað er að einn af hverjum fimm Íslendingum verði fyrir slysi á ári hverju og er talið að kostnaður vegna þessara slysa fyrir þjóðfélagið sé í kringum 10 milljarðar króna á ári. Ætla má að um helmingur af þessum kostnaði sé af völdum umferðarslysa. Þannig má benda á að samkvæmt könnun, sem gerð var 1991, var heildarkostnaður vegna umferðarslysa á árinu 1989 metinn á sjötta milljarð króna á verðlagi ársins 1991. Þessi upphæð nam á þeim tíma nánast sömu upphæð og rekstrarkostnaður ríkisspítalanna það ár.
    27. febrúar 1987 skipaði þáverandi heilbrigðismálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, nefnd um varnir gegn slysum. Nefnd þessi, undir forsæti Salome Þorkelsdóttur, taldi að með samstilltu átaki þjóðarinnar væri hægt að gera 11. markmið í áætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, um 25% fækkun dauðsfalla vegna slysa fyrir árið 2000, að veruleika hér á landi. Nefndin taldi nauðsynlegt að vinna markvisst að slysavörnum í hverju byggðarlagi fyrir sig. Nefndin lagði fram ákveðnar tillögur, og var þar efst á lista brýn þörf á samræmdri slysaskráningu á landinu öllu. Nefndin taldi slíka skráningu vera grundvöll fyrir að hægt væri að vinna markvisst að slysavörnum almennt. Þá lagði nefndin til að lögfest yrði sérstakt slysavarnaráð.
    Þrátt fyrir yfirlýstan vilja og áhuga ráðherra reyndist af ýmsum ástæðum torsótt að koma fram forgangstillögu nefndarinnar um samræmda slysaskráningu á landinu. Það verkefni er því enn óleyst en afar brýnt er að koma slíkri skráningu á. Er það megintilgangur þessa frumvarps.
    Veturinn 1990–91 lagði Salome Þorkelsdóttir fram frumvarp um stofnun sérstaks slysavarnaráðs sem ekki náði fram að ganga. Þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, hafði þá þegar með bréfi sem hann gaf út árið 1991 stofnað slíkt ráð og hefur það starfað síðan samkvæmt reglum sem hann setti. Frumvarpið var lagt fram til að tryggja ráðinu lagastoð.
    Frumvarp það, sem hér er lagt fram, er að langmestu leyti byggt á framangreindu frumvarpi. Eðlilegt er að slíkt ráð byggist á settum lögum og geti þannig sett sér langtímaáætlanir í stað þess að vera sett undir hæl framkvæmdarvaldsins. Löggjafinn hefur í sambærilegum tilfellum séð ástæðu til að lögfesta slík ráð og er í því sambandi nærtækt að benda á áfengisvarnaráð sem lögfest er með VII. kafla áfengislaga, nr. 82/1969. Þá má vísa til þess að í íslensku heilbrigðisáætluninni frá 1990 er gert ráð fyrir, í markmiði 17, að lögfest verði sérstakt slysavarnaráð.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir ákveðnum breytingum á skipan slysavarnaráðs frá því sem gildir í dag. Þannig er gert ráð fyrir að Tryggingastofnun ríkisins fái fulltrúa í ráðinu í stað fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hafa allmargir umsagnaraðilar talið þetta eðlilegt þar sem Tryggingastofnun hefur þegar umfangsmikla skráningu með höndum og hefur mikla reynslu á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir, miðað við núverandi verkaskiptingu í slysaþjónustu á Reykjavíkursvæðinu, að starfandi forstöðulæknir slysadeildar Borgarspítalans hverju sinni skuli tilnefndur sem fulltrúi læknadeildar Háskóla Íslands í ráðinu.
    Þrátt fyrir að flutningsmenn leggi ríka áherslu á að renna styrkari stoðum undir starfsemi slysavarnaráðs er þess jafnframt gætt að kostnaður verði í lágmarki. Þetta er gert með því að nýta starfsfólk landlæknisembættisins til starfa í þágu ráðsins. Þá er jafnframt talið að nauðsynleg og lögfest leynd persónulegra upplýsinga sé best tryggð með því að upplýsingarnar séu varðveittar hjá landlæknisembættinu. Nauðsynlegt er að tryggt verði í reglugerð eða með öðrum hætti að þeir aðilar, sem sjá um að skrá niður upplýsingar um slys, skili þeim upplýsingum til landlæknisembættisins. Eðlilegt er að stefnt verði að því að slík skráning verði í tölvutæku formi í nánustu framtíð. Slíkt mun tryggja skilvirkni allrar úrvinnslu og stuðla að hagkvæmni. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að slysavarnaráði sé úthlutað fjármunum til rekstursins í sérstökum lið sem fellur undir embætti landlæknis í fjárlögum. Þannig verða ráðinu best tryggðir fjármunir vegna launakostnaðar og ýmiss konar rekstrarkostnaðar, svo sem af útgáfu bæklinga og dreifingu upplýsinga.
    Það skal að lokum áréttað að áfram er gert ráð fyrir slysaskráningu þeirra félagasamtaka og stofnana sem fram að þessu hafa annast slíkt í þágu sinnar starfsemi. Hin samræmda slysaskráning, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, mun að sjálfsögðu byggjast á þeirri skráningu sem fyrir er þótt hún verði með öðru móti. Víst er að samræmd skráning mun ekki síst nýtast þeim sem fram að þessu hafa annast slysaskráningu á afmörkuðum sviðum eða landsvæðum.