Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 270 . mál.


327. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 110/1992, um breytingu á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, sbr. lög nr. 86/1991.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



1. gr.


    Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. laganna:
    Í stað ártalsins „1993“ í a-lið kemur: 1994.
    Í stað orðanna „1. janúar 1994“ í b-lið kemur: 1. janúar 1995.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, var gert ráð fyrir að frá og með 1. janúar 1991 yrði heilsugæslustarfi í Reykjavík og starfsemi Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur þannig háttað að lög nr. 44/1955, heilsuverndarlög, sbr. lög nr. 28/1957, yrðu óþörf og féllu því úr gildi. Hins vegar vannst ekki tími til að ganga frá nauðsynlegum breytingum á heilbrigðisþjónustulögunum varðandi starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir árslok 1991 og var því með lögum nr. 86/1991 veittur eins árs frestur til viðbótar því sem upphaflega var ákveðið í lögunum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra lagði á síðasta þingi fram frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu þar sem gerðar voru tillögur um hlutverk Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, en það hlaut ekki afgreiðslu. Í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er nú unnið að endurskoðun frumvarpsins, en fyrir liggur að ekki verður unnt að afgreiða það fyrir áramót. Því er með þessu frumvarpi lagt til að bráðabirgðaákvæði laganna um heilbrigðisþjónustu verði breytt á þann veg að veittur verði eins árs frestur til viðbótar til að ganga frá lögum um framtíðarhlutverk Heilsuverndarstöðvarinnar.