Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 279 . mál.


354. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.



1. gr.


    Á eftir orðinu „botnfisktegundar“ í 4. mgr. 10. gr. laganna koma orðin: og síldar.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Frá gildistöku laga þessara og til loka yfirstandandi veiðitímabils síldar skulu síldveiðar við það miðaðar að allur aflinn fari til manneldisvinnslu. Ráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.

Greinargerð.


    Á yfirstandandi síldarvertíð eru aflaheimildir samtals um 110 þúsund lestir. Er leyfður heildarafli á þessu fiskveiðiári 100 þúsund lestir en þar við bætast rúmlega 10 þúsund lesta aflaheimildir sem ekki nýttust af aflamarki síðasta fiskveiðiárs og flytjast því yfir á þetta ár. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu hafði 95 þúsund lestum verið landað 9. þ.m. Samtök fiskvinnslustöðva áætla að til manneldisvinnslu hafi þegar farið samtals tæplega 35 þúsund lestir sem skiptast þannig að í söltun höfðu farið 19 þúsund lestir en tæpar 16 þúsund lestir í frystingu. Einungis eru óveiddar 15 þúsund lestir af aflaheimildum yfirstandandi vertíðar en Samtök fiskvinnslustöðva ætla að rúmar 16 þúsund lestir þurfi til að standa við þegar gerða samninga um sölu á frystri og saltaðri síld en auk þess eru taldar líkur á að frekari samningar geti tekist. Af framansögðu er ljóst að í nokkurt óefni horfir varðandi manneldisvinnslu á síld á yfirstandandi vertíð verði ekki gripið til sérstakra ráðstafana.
    Með frumvarpi þessu eru lagðar til tvær breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem stuðla ættu að því að takist að standa við gerða samninga. Er annars vegar lagt til að árlega verði hverju skipi heimilað að veiða allt að 5% umfram aflamark sitt hvert fiskveiðiár af síld enda dragist það frá aflamarki næsta fiskveiðiárs. Er þetta sama regla og gildir varðandi botnfiskveiðar. Með þessu gætu aflaheimildir á yfirstandandi vertíð aukist um allt að 5 þúsund lestir. Hins vegar er lagt til að til loka yfirstandandi síldarvertíðar verði einungis heimilt að stunda síldveiðar til manneldisvinnslu. Með því móti ættu milli 15 og 20 þúsund lestir af síld að vera til ráðstöfunar til frystingar og söltunar sem er nálægt því magni sem Samtök fiskvinnslustöðva telja til þurfa.