Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 281 . mál.
357. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 34/1991, um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar
(HÁ, VE, IBA, RG, JGS, SP, GuðjG).
1. gr.
3. gr. laganna orðast svo:
Erlendum aðilum er heimilt að fjárfesta í atvinnurekstri hér á landi með þeim takmörkunum sem í þessum lögum eða sérlögum greinir og að uppfylltum öðrum skilyrðum og fengnum tilskildum leyfum lögum samkvæmt.
2. gr.
Við a-lið 8. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Ríkisborgarar aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins eru undanþegnir ákvæðum þessa liðar.
3. gr.
Við c-lið 8. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Lögaðilar með heimili í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eru undanþegnir ákvæðum þessa liðar.
4. gr.
Í stað lokamálsliðar 8. gr. laganna komi tveir nýir málsliðir er orðast svo: Þetta gildir þó ekki um ríkisborgara aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Viðskiptaráðherra getur veitt ríkisborgurum annarra ríkja undanþágu frá þessu ákvæði.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt til að laga reglur um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hér á landi að ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði sem tekur gildi 1. janúar næstkomandi. Frumvarpið felur aðeins í sér lágmarksbreytingar á gildandi lögum. Þegar liggur fyrir efnahags- og viðskiptanefnd mun ítarlegra frumvarp um breytingar á sömu lögum. Þar sem mjög skammur tími er fram til þess að EES-samningurinn taki gildi telur nefndin farsælli leið að leggja hér fram sérstakt frumvarp og koma þannig til móts við þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til aðildarríkja í þessu efni. Þannig mun vinnast mun betri tími til að afgreiða stærstu ágreiningsefni hins frumvarpsins síðar.
Samkvæmt ákvæðum EES-samningsins skal aðilum í einu ríki innan EES vera heimilt án takmarkana að fjárfesta í atvinnurekstri í öðru ríki á svæðinu. Í XII. viðauka með samningnum er Íslandi veitt heimild til að viðhalda ótímabundið gildandi banni við fjárfestingu erlendra aðila í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. Jafnframt er stjórnvöldum samkvæmt samningnum heimilt að krefjast þess að innlend fyrirtæki losi sig við fjárfestingu í fiskveiðum eða fiskvinnslu ef þau komast að öllu leyti eða að hluta til í eigu erlendra aðila. Þá er Íslandi veittur frestur til 1. janúar 1996 til að laga gildandi reglur um fjárfestingu erlendra aðila í öðrum atvinnugreinum að ákvæðum samningsins.
Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að gagnkvæmnisskilyrðið í niðurlagi 3. gr. laganna: „enda njóti íslenskir aðilar ekki lakari réttar til fjárfestingar í heimaríki hlutaðeigandi aðila“, verði fellt brott. Ólíklegt verður að telja að fjárfesting erlends aðila á Íslandi verði nokkru sinni svo mikið hagsmunamál í heimaríki hans að stjórnvöld þar breyti eigin reglum um fjárfestingu erlendra aðila til að veita Íslendingum sama rétt þar í landi og þegnar viðkomandi ríkis njóta á Íslandi. Vandséð er að gagnkvæmnisskilyrði af þessu tagi þjóni hagsmunum íslensks atvinnulífs sem lengstum hefur búið við skort á áhættufjármagni. Þá ber þess að geta að Ísland er aðili að tveimur samþykktum OECD um aukið frelsi í gjaldeyrismálum, þar með talið fjárfestingum erlendra aðila í atvinnurekstri. Í því felst skuldbinding um að þrengja ekki gjaldeyrisreglur nema þá tímabundið þegar öryggisákvæðum er beitt. Með samþykkt laganna um fjárfestingu erlendra aðila var hins vegar lögfest almennt gagnkvæmnisákvæði. Í því fólst þrenging á gildandi reglum. Með þessu gekk Ísland gegn ákvæðum samþykkta OECD um að þrengja ekki ákvæði gjaldeyrisreglna. Tvær af sérfræðinganefndum OECD hafa bent á þetta og OECD-ráðið hefur hvatt íslensk stjórnvöld til að falla frá þessu ákvæði. Hér er lagt til að það verði gert.
Í 2. og 3. gr. frumvarpsins eru sett inn undanþáguákvæði fyrir ríkisborgara og lögaðila á Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi breyting er nauðsynleg vegna EES-samningsins, enda fellur þetta atriði ekki undir þann aðlögunarfrest sem Íslandi er gefinn varðandi breytingu á reglum um erlenda fjárfestingu. Af sömu ástæðu er í 4. gr. frumvarpsins gert ráð fyrir nýjum lokamálsliðum í 8. gr. laganna.