Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 289 . mál.


368. Fyrirspurn


til forsætisráðherra um skuldbreytingar sjávarútvegsfyrirtækja.

Frá Jóhanni Ársælssyni.


    Hve mörg sjávarútvegsfyrirtæki hafa fengið skuldbreytingar á lánum sínum í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að mæta aflasamdrætti frá 27. júní í sumar og hver er heildarupphæð þeirrar fyrirgreiðslu?
    Hve margir smábátaeigendur hafa sótt um slíkar skuldbreytingar, hve margir hafa fengið úrlausn sinna mála og hver er heildarupphæð þeirrar fyrirgreiðslu?