Ferill 101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 101 . mál.
421. Nefndarálit
um frv. til l. um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið.
Frá 2. minni hluta allsherjarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarp til laga um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er það flutt vegna ákvæða 34. gr. samnings milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Þar er kveðið á um lögsögu EFTA-dómstólsins til þess að gefa ráðgefandi álit um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Alþingi samþykkti þann samning um leið og það samþykkti samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og því er þetta frumvarp flutt til að festa í lög heimild handa íslenskum dómstólum til að leita með framangreindum hætti ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í tengslum við rekstur dómsmála hér á landi.
Samkvæmt 34. gr. samningsins milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls á sú skylda aðeins við dómstóla eða rétti þar sem úrlausn þeirra geta ekki sætt málskoti samkvæmt landslögum. Skylda til slíkra heimilda nær því ekki til héraðsdómstóla. Í frumvarpinu er hins vegar kveðið á um að sú heimild skuli einnig ná til héraðsdómstólanna og hlýtur sú ákvörðun að orka tvímælis af ýmsum ástæðum. Hún gerir að engu þá fullyrðingu í 34. gr. að það sé á valdi dómstóls eða réttar að taka ákvörðun um það hvort álits skuli leitað. Hafi annar hvor málsaðili óskað eftir því við héraðsdómara að hann fái álit EFTA-dómstólsins en héraðsdómari kveðið upp þann úrskurð að hafna því getur málsaðili skotið því til Hæstaréttar. Hæstiréttur hefur þá samkvæmt því heimild til að skylda héraðsdómara að leita úrskurðarins þó að hann hafi talið sig hafa næga dómgreind til að kveða upp dóminn án þess að fá leiðbeiningar um það frá EFTA-dómstólnum. Þá er það ljóst að sætti báðir málsaðilar sig við dóm undirréttar án þess að dómari hafi átt þess kost að fá erlenda forskrift að honum svo að honum verður ekki áfrýjað mun aldrei til þess koma og bæði spara tíma og þjóðfélaginu ærna fjármuni.
Það kom fram í máli Þórs Vilhjálmssonar hæstaréttardómara, sem nú hefur verið skipaður fyrsti fulltrúi Íslands í EFTA-dómstólnum, að tímafrestir eru engir í ákvæðum um dómstólinn og starfsreglum hans svo að engu var hægt að svara um hversu langan tíma tæki frá því að málum er vísað til EFTA-dómstólsins þangað til hann kveður upp sitt álit. Þór sagði að gerð hefðu verið drög að þessum starfsreglum fyrir dómstólinn og þau send viðkomandi ríkjum til umsagnar. Í nefndinni kom þá fram sú ósk að hún fengi starfsreglurnar til skoðunar sérstaklega til þess að reyna að gera sér grein fyrir kostnaðarhliðinni sem ekkert er minnst á í þessu frumvarpi. Starfsreglur þessar fengust þó aðeins á ensku og var ekki veittur frestur til að fá þær þýddar. Er það vissulega slæmur fyrirboði ef Alþingi á hér eftir að þurfa að stórum hluta að vinna að málum á grundvelli gagna á erlendum tungumálum.
Í greinargerð með 1. gr. frumvarpsins segir að þó álitið eigi aðeins að vera ráðgefandi og bindi því ekki héraðsdómara við úrlausn máls verði vissulega að telja að eftir því yrði að öðru jöfnu farið að því leyti sem úrlausnin veltur á álitaefninu. Það er því ljóst af þessu að ef álits verður leitað mun sú niðurstaða, sem kveðin verður upp í EFTA-dómstólnum, verða í reynd hinn endanlegi dómur. Af þeim sökum munu málsaðilar hljóta að verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að rökstyðja sitt mál fyrir hinum fjarlæga dómstóli þar sem flestir dómarar þekkja lítt til aðstæðna hér á landi. Það kemur líka fram í 27. gr. starfsreglanna, sem fylgir hér með í fylgiskjali, að gert er ráð fyrir að málsaðilar mæti fyrir réttinum og flytji þar sitt mál. En sérstaklega er þó um það fjallað í 97. gr. starfsreglanna. Þar eru líka nefndir þeir mörgu aðilar innan EFTA og EB sem eiga að fylgjast með og hafa áhrif á meðferð málsins fyrir dómstólunum og er erfitt að gera sér grein fyrir þeim tíma og umstangi sem það hefur í för með sér. Og þó að í 72. gr. starfsreglanna séu loðin ákvæði um gjafsókn virðist valt að treysta á þau.
Það var því eðlilegt að engin svör fengust í nefndinni um hugsanlegan kostnað vegna álitsbeiðni, hvort sá kostnaður mundi nema tugum eða hundruðum þúsunda króna eða jafnvel meiru. Útlagður kostnaður vegna álitsbeiðni er í raun hluti af málskostnaði í aðalmálinu og um þann kostnað verður því dæmt í því máli. Yrði sá sem tapaði málinu dæmdur til að greiða allan málskostnað þeim sem ynni auk eigin kostnaðar, þá gæti þar orðið um ómælda upphæð að ræða.
Annar minni hluti telur því að það sé alveg fráleitt að vanmat dómara á eigin dómgreind eigi að bitna á málsaðilum. Því leggur 2. minni hluti til að sá kostnaðarauki, sem stafar af því að álits er leitað, verði greiddur af ríkissjóði nema ef annar hvor málsaðili gerir kröfu um það skuli hann bera ábyrgð á sínum kostnaði og ber fram breytingartillögu um það.
Annar minni hluti leggur einnig fram breytingartillögu um að 1. gr. frumvarpsins fjalli um heimild Hæstaréttar til álitsbeiðni en niður falli úr frumvarpinu að slík heimild nái líka til héraðsdómstóla þar sem engin ástæða sé til að ganga lengra í utanstefnum en ákvæði samningsins um EFTA-dómstólinn skylda til.
Annar minni hluti leggur til að 1. mgr. 2. gr. um félagsdóm falli brott og flytur um það breytingartillögu á þskj. 422. Annar minni hluti telur ekki rétt að ætla félagsdómi að leita eftir áliti EFTA-dómstólsins vegna sérstaks eðlis dómsins. Oft er leitað til dómsins mitt í viðkvæmum kjaradeilum og þá hefur félagsdómur jafnan brugðist við á mjög skömmum tíma. Ef félagsdómur leitar álits EFTA-dómstólsins varðandi einstök atriði, er tengjast Evrópska efnahagssvæðinu, opnast leið fyrir annan hvorn aðilann að þrýsta á að ágreiningsmál séu sett í biðstöðu, jafnvel langtímum saman, á meðan beðið er eftir áliti EFTA-dómstólsins. Þetta telur 2. minni hluti brjóta þvert gegn hlutverki félagsdóms og vinnubrögðum sem yfirleitt miða að því að mál fái skjóta afgreiðslu.
Annar minni hluti bendir á að í Danmörku er ekki talin þörf á að félagsdómur (arbejdsretten) leiti slíks álits. Þar eins og hér er félagsdómur æðsta dómstig í ýmsum ágreiningsmálum er varða vinnudeilur og vinnurétt.
Verði þessar breytingartillögur ekki samþykktar getur 2. minni hluti ekki greitt atkvæði með frumvarpinu.
Alþingi, 15. des. 1993.
Jón Helgason,
Anna Ólafsdóttir Björnsson.
Ólafur Þ. Þórðarson.
frsm.
Kristinn H. Gunnarsson.
Fylgiskjal.
Úr drögum að starfsreglum EFTA-dómstólsins, 9. nóvember 1993:
EFTA Court
Draft 9 november 1993
Rules of Procedure of the EFTA Court.
Article 27
Article 72
The application shall be accompanied by evidence of the applicant's need of assistance, and in particular by a document from the competent authority certifying his lack of means.
The application need not be made through a lawyer.
The Court shall make an order without giving reasons, and no appeal shall lie therefrom.
The Court shall adjudicate on the lawyer's disbursements and fees; the President may, on application by the lawyer, order that he receives an advance.
In its decision as to costs the Court may order the payment to the cashier of the Court of the whole or any part of amounts advanced as legal aid.
The Registrar shall take steps to obtain the recovery of these sums from the party ordered to pay them.
Article 97
However, after the submission of the statements or observations, as provided for in Article 20 of the Statute and paragraph 1 of this Article, the Court, acting on a report from the Judge-Rapporteur, after informing those who are thus entitled to submit such statements or observations, may decide otherwise, provided that none of those has asked to present oral argument.
Before the oral part of the procedure, a report from the Judge-Rapporteur shall be communicated to the Governments of the EFTA States, the EFTA Surveillance Authority, the Community, the EC Commission and the parties to the dispute. The report shall be accompanied by a translation as provided for in Article 27 (3).
In special circumstances the Court may grant, by way of legal aid, assistance for the purpose of facilitating the representation or attendance of a party. The provisions of Article 72 shall apply mutatis mutandis.