Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 323 . mál.


514. Frumvarp til laga

um flutning á verkefnum Vitastofnunar Íslands til Landhelgisgæslu Íslands.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Eyjólfur Konráð Jónsson.

I. KAFLI


Lög um vitamál, nr. 56/1981.

1. gr.


1. gr. laganna orðast svo:
Dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn vitamála.

2. gr.


Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
Í stað orðanna „Vitastofnun Íslands“ í 1
. mgr., og í stað sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum (í viðeigandi beygingarföllum), kemur: Landhelgisgæsla Íslands.
Í stað orðsins „vitamálastjóri“ í 2
. mgr., og í stað sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum (í viðeigandi beygingarfalli), kemur: forstjóri Landhelgisgæslunnar.
2
.–4. mgr. falla brott.

3. gr.


Fyrirsögn II. kafla laganna verður: Verkefni Landhelgisgæslu Íslands á sviði vitamála.

4. gr.


Í stað orðanna „Verkefni Vitastofnunar Íslands er að sjá“ í 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: Landhelgisgæsla Íslands sér.

5. gr.


Orðið „Landhelgisgæslunni“ í 3. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.

6. gr.


Í stað orðanna „við rekstur Vitastofnunar Íslands“ í 10. gr. laganna kemur: Landhelgisgæslu Íslands af vitamálum.

7. gr.


Í stað orðsins „stofnunin“ í 3. mgr. 13. gr. laganna kemur: Landhelgisgæslan.

8. gr.


Síðari málsliður 16. gr. laganna fellur brott.

II. KAFLI
Lög um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 25/1967.

9. gr.


Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
Í stað orðanna „lækna-, toll- og vitaþjónustu“ í g-lið kemur: lækna- og tollþjónustu
.
Við greinina bætist nýr stafliður, i-liður, svohljóðandi: Að fara með vitamál eftir því sem er
kveðið á um í lögum um vitamál. Í reglugerð, er ráðherra setur, skal nánar kveðið á um starfsemi þessa.

III. KAFLI
Hafnalög, nr. 69/1984.

10. gr.


Orðin „gegnir starfi vitamálastjóra og“ í fyrri málslið 2. mgr. 4. gr. laganna falla brott.

IV. KAFLI
Lög um leiðsögu skipa, nr. 48/1933.

11. gr.


Í stað orðsins „vitamálastjóra“ í síðari málslið 5. gr. laganna kemur: forstjóra Landhelgisgæslunnar.

V. KAFLI
Lög um skipströnd og vogrek, nr. 42/1926.

12. gr.


Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 30. gr. laganna:
Í stað orðsins „atvinnumálaráðherra“ í 1
. og 3. málsl. kemur: dómsmálaráðherra.
Í stað orðsins „vitamálastjórnin“ í 2
. málsl. kemur: Landhelgisgæslan.

VI. KAFLI
Gildistaka.

13. gr.


Lög þessi öðlast gildi 1. september 1994.

Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að framkvæmd vitamála verði færð frá Vitastofnun Íslands til Landhelgisgæslu Íslands. Þannig taki Landhelgisgæslan við þeirri starfsemi er Vitastofnun hefur haft með höndum, aðallega á grundvelli laga nr. 56/1981, um vitamál.
Þann 1. desember 1878 var kveikt á fyrsta vita landsins, Reykjanesvita, og var hann að heita má eini vitinn á landinu fram undir aldamót. Árið 1899 voru fyrstu lögin um vitamál sett, lög um afhendingu lóða til vitabygginga o.fl.
Árið 1910 var landverkfræðingi falin umsjón með vitum landsins en embættisheitið vitamálastjóri var fyrst tekið upp árið 1918. Það var þó ekki fyrr en árið 1933 sem kveðið var á um stofnsetningu vitamálastofnunar með lögformlegum hætti.
Samkvæmt lögum nr. 56/1981 heyrir Vitastofnun undir samgönguráðherra og fer hún með framkvæmd vitamála. Vita- og hafnamálastjóri veitir Vitastofnun forstöðu. Þá starfar svokölluð vitanefnd á grundvelli laganna og gerir frumvarpið ráð fyrir óbreyttu starfi nefndarinnar þrátt fyrir nýjan samstarfsaðila, þ.e. Landhelgisgæslu Íslands. Vitanefnd er skipuð fulltrúum farmanna, útgerðarmanna og fiskimanna og er hlutverk hennar m.a. að láta uppi álit sitt í öllum stefnumarkandi málum varðandi starfsemi Vitastofnunar, fjalla um vitagjald, nýbyggingar, endurbætur og breytingar á vitum, rekstur vitakerfisins, svo og verulegar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi.
Hlutverk Vitastofnunar á grundvelli gildandi laga er m.a. að sjá sjófarendum fyrir nauðsynlegum leiðbeiningum til öryggis siglingum við Íslandsstrendur og á fiskimiðunum í kringum landið. Þar fellur m.a. undir eftirlit með vitum og öðrum föstum merkjum á landi, fljótandi leiðarmerkjum og radíómerkjum til staðarákvörðunar. Stofnunin skal hlutast til um útgáfu upplýsinga um þau leiðbeiningarkerfi sem fyrir hendi eru og stuðla að útgáfu korta er innihaldi nauðsynlegar upplýsingar fyrir sjófarendur, annast veðurathuganir á vitastöðum og fara með framkvæmd laga og reglna um leiðsögu skipa.
Nú eru í rekstri 106 vitar, 13 ljósdufl, 7 radarvarar og mörg leiðsögumerki, auk vita, leiðsögumerkja og ljósdufla sem eru rekin af hinum ýmsu sveitarfélögum (höfnum) landsins.
Það er álit margra þeirra aðila er til þekkja að verkefni þau, er nú heyra undir Vitastofnun, falli vel að starfsemi Landhelgisgæslunnar og muni styrkja rekstur hennar. Þannig hafa Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands, Fiskifélag Íslands og fleiri félög sjómanna samþykkt ályktanir um að Landhelgisgæslan yfirtaki verkefni og tekjustofna Vitastofnunar. Sú breyting getur leitt til verulegrar hagræðingar og sparnaðar í ríkisrekstrinum jafnframt því sem öryggi sjófarenda mundi aukast á margvíslegan hátt. Samtök sjómanna hafa einnig deilt á ríkisvaldið fyrir þann samdrátt sem orðið hefur í rekstri og fyrir fækkun úthaldsdaga skipa Landhelgisgæslunnar. Er það ekki óeðlilegt þegar þess er gætt hve öryggismál sjómanna eru ríkur þáttur í starfi Landhelgisgæslunnar. Með fjölgun verkefna Landhelgisgæslunnar og þar með auknum tekjum yrði starfsemi hennar markvissari, úthaldsdagar fleiri og betri trygging fyrir öryggi sjófarenda en nú.
Frá 1. janúar 1969 sá Landhelgisgæsla Íslands, án endurgjalds og samhliða öðrum verkefnum, um að þjónusta annesja- og skerjavita og ljósdufl fyrir Vitastofnun og sparaði henni þannig veruleg útgjöld, en því samstarfi lauk 1. janúar 1993. Frá þeim tíma hefur Vitastofnun keypt þessa þjónustu frá hinum ýmsu björgunarsveitum og ferjuútgerðum. Augljóst er að slík framkvæmd skapar mikið óöryggi í rekstri vitakerfisins. Benda má á að ljósdufl, sem oft er komið fyrir vegna skerja, boða eða grynninga, sæfarendum til varnaðar, eru að jafnaði tekin upp árlega og þarf því nákvæma staðsetningu á vegum ábyrgra aðila þegar duflin eru sett út að nýju. Miðað við núverandi framkvæmd er slíkt öryggi ekki eins og best verður á kosið. Þetta eru þó ekki einu rökin fyrir að starfsemi vitamála verði flutt yfir til Landhelgisgæslunnar. Með tilliti til þeirra öryggiskrafna, sem gerðar eru til skipa á grundvelli innlendra reglna, svo og alþjóðasamþykkta sem Ísland er aðili að, er eðlilegt að löggæslumenn og öryggisverðir íslenska hafsvæðisins fari með eftirlit og viðhald vitakerfisins.
Við Landhelgisgæslu Íslands starfa sem kunnugt er siglingafróðir menn. Þar á meðal eru skipherrar og stýrimenn sem hafa lokið námi við skipstjóradeild Stýrimannaskólans í Reykjavík. Þessir einstaklingar hafa m.a. sérmenntað sig í siglingafræðum sem nýtist einkar vel til staðsetningar ljósdufla og leiðar- og siglingamerkja og mælinga ljóshorna vita og í öðru því er lýtur að siglingalegum öryggisþáttum í sjókortum sem sjófarendur við Ísland verða með fullri vissu að geta treyst. Vegna eftirlits og viðhalds raf- og vélbúnaðar vita, radíóvita og radarsvara hafa flestir vélstjórar á varðskipum lokið 4. stigi í Vélskóla Íslands og hafa því mikla þekkingu og reynslu á sviði véla og rafmagns. Einnig má nefna að innan Landhelgisgæslunnar starfa Sjómælingar Íslands sem, auk sjómælinga, sjá um útgáfu sjókorta og tilkynningar til sjófarenda. Af framansögðu má ljóst vera að sérþekking og reynsla, sem starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa öðlast, kemur vitaþjónustunni til góða og mun verða mjög til hagræðingar á öllum rekstrarsviðum vitaþjónustu við Ísland.
Stefna núverandi ríkisstjórnar er að leggja niður, hagræða eða sameina ríkisstofnanir. Er það rökrétt markmið þegar harðnar í ári. Mikilvægt er að styrkja stofnanir eins og Landhelgisgæsluna sem gegnir sérstöku hlutverki hvað varðar öryggi sjófarenda.
Við afgreiðslu Alþingis á núverandi lögum um vitamál var gert ráð fyrir allróttækum breytingum frá þeirri skipan sem verið hafði. M.a. var gert ráð fyrir þeirri breytingu að vitamál skyldu heyra undir Landhelgisgæsluna. Þessi krafa kom m.a. frá sjómannasamtökunum og einnig tilmæli um að við Vitastofnun starfaði skipstjórnarmenntaður maður.
Miklar breytingar hafa átt sér stað í íslensku efnahags- og atvinnulífi frá því að Vitastofnun var sett á fót. Viðhald og rekstur vitanna er með gjörbreyttum hætti með tilliti til nútímatækni og þeirrar framþróunar sem átt hefur sér stað. Þótt umdeilanlegt megi vera hver sparnaðurinn verði af þeirri lagabreytingu sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir er ljóst að um hagræðingu er að ræða sem jafnframt tryggir öryggi sjófarenda við Ísland betur en nú og betri nýtingu á fjármagni sem um leið leiðir af sér lengra úthald varðskipanna.
Til þess að ná því markmiði, er frumvarp þetta stefnir að, að færa verksvið Vitastofnunar yfir til Landhelgisgæslu Íslands, komu fleiri en ein leið til greina. Sú leið er valin hér að breyta lagaákvæðum sem taka til starfsemi og yfirstjórnar Vitastofnunar þannig að Landhelgisgæslan taki við þeim verkefnum er stofnuninni voru áður ætluð með lögum, enda er ljóst að Landhelgisgæslan hefur mjög góðar aðstæður, jafnt á sjó sem landi, til að sinna þeim verkefnum á sem bestan hátt.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lögð er til sú breyting frá gildandi lögum að dómsmálaráðherra taki við yfirstjórn vitamála af samgönguráðherra. Þar sem með frumvarpi þessu er lagt til að Landhelgisgæsla Íslands, sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið, taki við starfsemi Vitastofnunar Íslands er um eðlilega breytingu að ræða með tilliti til þess að yfirstjórn og framkvæmd vitamála heyri undir sama ráðuneyti.

Um 2. gr.
Greinin felur annars vegar í sér breytingar sem nauðsynlegar eru á lögum nr. 56/1981 með tilliti til þess að Landhelgisgæsla Íslands taki við hlutverki Vitastofnunar og forstjóri Landhelgisgæslunnar fari með framkvæmd vitamála í stað vitamálastjóra. Hins vegar er lagt til að 2.–4. mgr. greinarinnar falli brott þar sem Vitastofnun Íslands mun ekki starfa áfram sem slík verði frumvarp þetta að lögum.

Um 3.–12. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa.

Um 13. gr.
Lagt er til að lögin öðlist gildi 1. september 1994. Miðað við þau tímamörk er gert ráð fyrir að viðkomandi stofnanir hafi nægilegt ráðrúm til að gera nauðsynlegar breytingar sem leiðir af lögum þessum.