Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 325 . mál.
516. Tillaga til þingsályktunar
um eflingu laxeldis.
Flm.: Guðmundur Stefánsson, Stefán Guðmundsson,
Guðni Ágústsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera ráðstafanir til að tryggja stöðu laxeldis og stuðla að eflingu greinarinnar, m.a. með eftirfarandi hætti:
Fiskeldi verði tryggt fjármagn til að bæta eldisaðstæður og tryggja betur árangur í eldinu
.
Fiskeldisstöðvar verði styrktar til kaupa á bóluefni, a
.m.k. næstu 2–3 árin.
Fiskeldisstöðvum verði heimilað að kaupa ótryggða orku
.
Tryggt verði að fiskeldisfyrirtæki njóti svipaðra afurðalána og með sambærilegum kjörum og
aðrar útflutningsgreinar.
Markaðar verði sérstakar leiðir til að auðvelda innflutning erfðaefnis í þeim tilgangi að auka
og flýta fyrir kynbótum laxfiska.
Mörkuð verði opinber heildarstefna, a
.m.k. fram til næstu aldamóta, um málefni fiskeldis.
Fjárskuldbindingar vegna stofnkostnaðar hjá þeim fiskeldisstöðvum, sem þegar hafa verið
reistar, verði endurskoðaðar og þeim aflétt, a.m.k. tímabundið.
Greinargerð.
Rannsóknaráð ríkisins gaf nýlega út skýrslu um fiskeldi þar sem birtar eru niðurstöður athugunar á stöðu fiskeldis og horfur í greininni. Í skýrslunni kemur m.a. fram að árið 1992 höfðu um 180 manns atvinnu sína af fiskeldi hér á landi. Útflutningsverðmæti fiskeldisafurða námu það ár 704 millj. kr., en heildarframleiðsluverðmæti fiskeldisafurða eru talin hafa numið um 825 millj. kr. Eftir mikla byrjunarörðugleika hefur árangur í eldinu batnað mikið og á árinu 1992 var meðalframleiðsla nokkurra stærri strandeldisstöðvanna á rúmmetra eldisrýmis 27 kg en um 20 kg árið áður, en það er bættur árangur sem nemur 35%. Í ársskýrslu fiskeldisdeildar Veiðimálastofnunar fyrir árið 1992 kemur m.a. fram að miðað við seldar afurðir á útsett seiði árin 1991 og 1992 hafi árangur í eldi batnað um 88%.
Þennan bætta árangur má fyrst og fremst rekja til meiri færni fiskeldismanna, betri árangurs í baráttu við fisksjúkdóma, bætts eldisumhverfis, meiri vaxtarhraða vegna betri stofna og bættrar fóðrunar og aukinnar nýtingar jarðvarma í hluta eldisstöðvanna. Í skýrslu Rannsóknaráðs er lögð áhersla á áframhaldandi rannsóknir og þróunarstarf í fiskeldi og fullyrt er að árangur í eldi megi enn bæta verulega frá því sem nú er.
Þótt ánægjulegar framfarir hafi orðið í fiskeldinu er rekstrarstaða flestra fiskeldisstöðva afar erfið og greinin býr hér á landi að ýmsu leyti við aðstæður sem eru með öllu óviðunandi. Ljóst er að margt er unnt að lagfæra strax ef vilji er fyrir hendi og verði það gert erum við Íslendingar að byggja upp atvinnugrein sem mun skipta afkomu þjóðarinnar miklu í framtíðinni.
Hvað viðvíkur tölusettum greinum í þingsályktunartillögunni skal eftirfarandi tekið fram:
Nauðsynlegt er að ljúka framkvæmdum í fiskeldisstöðvum þannig að þær geti í senn fullnýtt í
rekstri sínum bæði nýjustu þekkingu um eldi og náttúrulegar aðstæður sem þær eiga kost á. Í þessu sambandi hefur einkum verið litið til bættrar vatnsöflunar, aukinnar nýtingar jarðvarma og súrefnisíblöndunar í eldisvatn. Hér á landi er einungis í einni fiskeldisstöð unnt að stjórna eldishita innan kjörhita fyrir eldi á laxi. Í öðrum stöðvum hefur hitastig yfirleitt verið of lágt stærstan hluta ársins. Rannsóknaráð ríkisins hefur beitt sér fyrir rannsóknum á þessu sviði og nú hefur verulegur árangur náðst í endurnýtingu varma úr frárennsli í Miklalaxi hf. og endurnýtingu eldisvatns hjá Sveinseyrarlaxi hf. Ef tekst að auka eldishita um 2–4 gráður er ljóst að auka má framleiðslu um a.m.k. 25% á ári og lækka um leið framleiðslukostnað. Þá hefur verið unnið að athyglisverðum tilraunum með súrefnisíblöndun í Íslandslaxi hf. og víðar og vatnsnotkun minnkuð um 25–30%, en slíkt skiptir miklu máli fyrir vatnsöflun fyrirtækjanna og sparar verulega fjármuni vegna minni dælingar.
Ekki er ástæða til að ætla annað en að með áframhaldandi rannsóknum og þróunarstarfi megi enn bæta árangurinn verulega, bæði á þeim sviðum sem hér hafa verið nefnd og á öðrum sviðum. Það er því mikilvægt að nægilegt fé sé veitt til rannsókna en ekki síður að fiskeldisstöðvunum sé jafnóðum gert fjárhagslega kleift að nýta þá þekkingu sem aflað er. Eðlilegt er að litið sé á greinina sem þróunarverkefni enn um sinn og hið opinbera veiti til hennar fé þannig að nauðsynlegar framfarir verði og tryggt sé að uppbygging greinarinnar verði til frambúðar.
Áætlað er að afföll í eldislaxi hafi verið um 10% af ársframleiðslunni árið 1992 en 15% árið
1991. Þessi bætti árangur stafar fyrst og fremst af betri forvörnum og bættri meðhöndlun á sjúkum fiski, en langstærstan hluta affalla má rekja til sjúkdóma. Árið 1992 er talið að afföll vegna slysa eða bilunar í búnaði hafi hvergi numið meira en 5% og að meðaltali um 3%. Miðað við meðalútflutningsverð á laxi árið 1992 má reikna með að verðmæti afurða, sem töpuðust vegna sjúkdóma, hafi numið um 57 millj. kr. og eru þá ekki talin önnur áhrif sjúkdóma, svo sem minni vöxtur. Þar sem flestar fiskeldisstöðvar eru í rekstrarörðugleikum er nauðsynlegt að stjórnvöld styrki þær tímabundið í baráttunni við sjúkdóma, en ef stöðvarnar fengju ókeypis bóluefni gæti það leitt til lækkunar framleiðslukostnaðar um a.m.k. 4% að meðaltali.
Lengi hefur verið rætt um að lækka raforkukostnað fiskeldisstöðva án þess að það hafi komið
til framkvæmda. Raforkukostnaður í strandeldisstöðvum er talinn um 10–15% af rekstrarkostnaði og því mikilvægt að á þessum málum sé tekið. Fiskeldisstöðvar eru stórir notendur raforku og notkun þeirra er tiltölulega jöfn árið um kring. Þær eru einnig búnar varaaflsstöðvum og því í stakk búnar til að bregðast við ef straumrof verður af einhverjum orsökum. Fiskeldisstöðvar geta því hæglega nýtt sér ótryggða orku, en þær hafa ekki fengið hana þó að eftir hafi verið leitað. Ef fiskeldisstöðvar fengju keypta ótryggða orku gæti það lækkað orkukostnað þeirra um 60–70%, en það svarar til 8–11% lækkunar rekstrarkostnaðar.
Framleiðsluferill í fiskeldi er langur, 2–3 ár
. Fjárbinding og þörf fyrir rekstrarfé er því mikil. Eftir mörg erfið ár í rekstri og mikil töp má segja að viðskiptabankarnir hafi lokað á alla rekstrarfyrirgreiðslu, en slíkt jafngildir í raun dauðadómi yfir greininni og háir allri framþróun í henni. Þetta er í raun óskiljanleg ákvörðun því að eðlilegt er að bankarnir meti hvert fyrirtæki fyrir sig en afgreiði ekki heila grein með þessum hætti í einu lagi. Til að tryggja eldisstöðvunum rekstrarfjármagn hefur Ríkisábyrgðasjóður ábyrgst afurðalán til eldisstöðva, en sú fyrirgreiðsla er með öllu óviðunandi og ófullnægjandi eins og hún hefur verið framkvæmd. Til þess að fá þessi afurðalán hafa stöðvarnar þurft að tryggja allan fiskinn og þótt sjálfsábyrgð hafi verið 50% hafa iðgjöld numið 5% af tryggingarverðmæti. Vextir af afurðalánum nema 10–13% og lántökukostnaður um 3%. Stöð, sem á t.d. fisk sem metinn er á 80 millj. kr., verður því að greiða 4 millj. kr. í tryggingar til að fá afurðalán. Ef lánið nemur 20 millj. kr. er kostnaður við tryggingar því 20% af lánsfjárhæðinni auk 13–16% í vexti og kostnað. Heildarkostnaður stöðvarinnar er þannig 33–36% sem enginn löglegur atvinnurekstur í landinu fær staðið undir. Auk þess eru lánin óhagstæð vegna þess að þau eru oft til skamms tíma og leysa því lítinn vanda og aðeins tímabundið en veikja um leið möguleikana á að reksturinn geti náð sér á strik. Þessu verður að breyta og það gera ekki aðrir en stjórnvöld eða viðskiptabankarnir verði þeir skikkaðir til þess.
Nú eru í flestum eldisstöðvum betri stofnar en áður
. Þar er um að ræða norska stofna sem fluttir voru til landsins fyrir um áratug. Eldisstofnar okkar Íslendinga eru þó lakari en nágrannaþjóðanna og ljóst að leggja verður verulega áherslu á kynbætur bestu eldisstofna í framtíðinni. Kynbætur taka hins vegar langan tíma og til að vinna upp forskot samkeppnisþjóðanna er nauðsynlegt að íhuga hvort ekki sé heppilegt að flytja inn erfðaefni, t.d. djúpfryst svil, til að flýta fyrir kynbótum. Slíkan innflutning þarf að undirbúa strax og marka honum farveg þannig að hann geti gengið hindrunarlaust fyrir sig ef ákvörðun um hann verður tekin.
Engin heildarstefnumótun er til um íslenskt fiskeldi
. Á ráðstefnu um fiskeldi, sem haldin var á Akureyri í mars 1993, lýsti landbúnaðarráðherra því yfir að slíkrar stefnumörkunar væri að vænta fyrir páska 1993. Enn hefur þessi stefna ekki litið dagsins ljós en skýr og afdráttarlaus stefnumörkun er í raun forsenda þess að þeir fjármunir og sú vinna, sem lögð er í fiskeldi, nýtist vel og árangur náist.
Eins og er standa rekstrartekjur fiskeldisstöðva undir breytilegum kostnaði en þær geta ekki
greitt stofnkostnaðinn til baka hvað sem síðar verður. Mikilvægt er að horfst sé í augu við þessa staðreynd og í raun hefur þetta verið viðurkennt. Stjórnvöld verða að beita sér fyrir því að tekið sé á þessum málum og þau afgreidd með formlegum hætti enda er það ein af forsendum þess að starfsemi fiskeldisstöðva geti þróast með eðlilegum hætti og þær aflað aukins eigin fjár, t.d. með sölu hlutafjár. Sú leið að hrekja fyrirtækin í gjaldþrot skilar í raun engu en því fylgir hins vegar talsverð áhætta því að eitt af lykilatriðum árangurs í fiskeldi er þekking og reynsla og það eru einmitt þeir einstaklingar sem lengst hafa þraukað í fiskeldinu sem helst búa yfir þekkingu og reynslu.