Ferill 101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 101 . mál.


564. Frumvarp til laga



um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið.

(Eftir 2. umr., 9. febr.)



1. gr.


    Nú er mál rekið fyrir héraðsdómstóli þar sem þarf að taka afstöðu til skýringar á samningi um Evrópska efnahagssvæðið, bókunum með honum, viðaukum við hann eða gerðum sem í viðaukunum er getið og getur þá dómari í samræmi við 34. gr. samnings EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls kveðið upp úrskurð um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um skýringu á því atriði málsins áður en málinu er ráðið til lykta.
    Hvort sem aðili máls krefst að álits verði leitað skv. 1. mgr. eða dómari telur þess þörf án kröfu skal dómari gefa aðilum kost á að tjá sig áður en úrskurður verður kveðinn upp.
     Kæra má úrskurð héraðsdómara skv. 1. mgr. til Hæstaréttar eftir almennum reglum laga um meðferð einkamála eða meðferð opinberra mála eftir því sem á við. Kæra frestar frekari aðgerðum samkvæmt úrskurðinum.

2. gr.


    Með sama hætti og segir í 1. og 2. mgr. 1. gr. getur Félagsdómur leitað álits EFTA-dómstólsins um atriði mála sem eru rekin þar. Úrskurður þess efnis verður ekki kærður til Hæstaréttar.

3. gr.


    Hæstiréttur getur jafnan kveðið upp úrskurð, eins og lýst er í 1. og 2. mgr. 1. gr., í máli sem fyrir honum er rekið.

4. gr.


    Lög þessi öðlast gildi um leið og samningur um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar.