Ferill 374. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 374 . mál.
570. Fyrirspurn
til samgönguráðherra um sjálfvirkan sleppibúnað gúmbjörgunarbáta um borð í skipum.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
Hvað líður framkvæmd athugunar á sjálfvirkum sleppibúnaði um borð í skipum sem hefur verið til skoðunar hjá Iðntæknistofnun síðan 1988?
Hvenær er von á nýrri reglugerð um þetta brýna öryggismál sjómanna?