Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 381 . mál.


578. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um meðferð á olíuúrgangi.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



    Hversu mikið fellur til árlega af olíuúrgangi sem ekki er nýtanlegur hér á landi:
         
    
    frá skipum,
         
    
    frá bílum,
         
    
    frá flugvélum,
         
    
    frá öðrum notendum?
    Með hvaða hætti er olíuúrgangi komið fyrir, fargað eða hann endurunninn?
    Hversu miklu af olíuúrgangi er skilað og komið fyrir á viðunandi hátt?
    Hversu mikið af olíu og olíuúrgangi er talið að falli til án þess að vera komið fyrir á fullnægjandi hátt?
    Eru uppi áform um hert eftirlit með meðferð á olíuúrgangi?