Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 382 . mál.


579. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um forvarnastarf á sviði áfengis og fíkniefna.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



    Hversu miklir fjármunir voru veittir á vegum ráðuneytisins til forvarnastarfs á sviði áfengis og fíkniefna árin 1990 og 1993?
    Með hvaða hætti er metinn árangur þeirra aðila sem starfa að forvarnastarfi á sviði fíkniefnamála og njóta til þess styrks úr ríkissjóði?
    Hvernig er háttað samstarfi þeirra sem sinna forvarnastarfi og þeirra sem reka meðferðarstofnanir?