Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 389 . mál.
587. Frumvarp til laga
um sölu notaðra ökutækja.
(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)
I. KAFLI
Heimild til að hafa með höndum sölu á notuðum ökutækjum.
1. gr.
Lög þessi gilda um sölu notaðra skráningarskyldra ökutækja sem fram fer í atvinnuskyni. Þau gilda ekki um nauðungarsölu notaðra ökutækja.
2. gr.
Hver sá sem vill reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki skal hafa til þess sérstakt leyfi sýslumanns í viðkomandi umdæmi.
3. gr.
Leyfi skv. 2. gr. skal veitt til fimm ára í senn og verður einungis veitt einstaklingum eða lögaðilum sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
Meiri hluti stjórnarmanna lögaðila skulu fullnægja skilyrðum 1.–3. tölul. 1. mgr. Þó eru stjórnarmenn, sem búsettir eru í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, undanþegnir búsetuskilyrðum 1. tölul. Ráðherra getur veitt ríkisborgurum annarra ríkja sömu undanþágu. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins skal fullnægja skilyrðum 1.–3. og 5. tölul. 1. mgr.
4. gr.
Bifreiðasali skal afla upplýsinga, sem staðfestar skulu skriflega af seljanda, um akstur og ástand skráningarskylds ökutækis, svo og annarra þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupanna. Gögn þessi skal bifreiðasali varðveita í eitt ár frá söludegi viðkomandi ökutækis.
Þá skal fylgja vottorð úr ökutækjaskrá sem sýnir ótvírætt að seljandi sé eigandi þess ökutækis sem selt er eða hafi umboð til sölunnar. Bifreiðasali skal staðfesta að rétt ástandslýsing fylgi ökutæki ef um það er að ræða og einnig skal hann staðreyna upplýsingar um eiganda ökutækis og hvort veðbönd hvíli á ökutækinu.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að mæla fyrir um þær lágmarksupplýsingar sem lagðar skulu fram við sölu notaðra ökutækja og fram eiga að koma í kaupsamningi og afsali vegna sölu notaðra ökutækja.
II. KAFLI
Réttindi og skyldur bifreiðasala.
5. gr.
Bifreiðasali skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum. Bifreiðasali ber ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við sölu ökutækja sem hefði hann sjálfur framkvæmt þau. Bifreiðasali skal, áður en gengið er frá afsali notaðs ökutækis, greina kaupanda frá þeim rétti hans að láta óháðan aðila meta ástand ökutækisins, svo sem faggilta skoðunarstofu eða faggilt endurskoðunarverkstæði.
Hafi bifreiðasali ástæðu til að ætla að ástandi ökutækis sé ábótavant ber honum að vekja athygli kaupanda á þeim annmarka.
6. gr.
Bifreiðasali skal annast um að endanlega sé gengið frá kaupsamningi, afsali og öðrum skjölum vegna viðskipta á hans vegum og skal geta þess í skjölunum, þar á meðal í kauptilboðum, kaupsamningum, afsölum og skuldabréfum, hver samið hafi og greina nafn hans svo að eigi verði um villst.
Bifreiðasali skal ábyrgjast að tilkynning um eigendaskipti sé send ökutækjaskrá sem fyrst.
7. gr.
Hyggist bifreiðasali, fyrirtæki er hann starfar við eða aðrir starfsmenn við sölu notaðs ökutækis selja eigið ökutæki eða kaupa ökutæki sem þessum aðila hefur verið falið að annast sölu á og skal þá viðskiptamanni kynnt það sérstaklega og þess jafnframt getið í kaupsamningi. Sama gildir um maka og náin skyldmenni bifreiðasala eða starfsmanna við söluna.
8. gr.
Þeim einum er rétt að nefna sig bifreiðasala sem fengið hefur leyfi til sölu notaðra ökutækja samkvæmt lögum þessum.
III. KAFLI
Niðurfelling leyfis.
9. gr.
Leyfi samkvæmt lögum þessum fellur úr gildi ef skilyrðum laganna er ekki lengur fullnægt. Ber þá að skila leyfisbréfi til sýslumanns.
Eftirlit með starfsemi bifreiðasala er í höndum sýslumanna.
IV. KAFLI
Viðurlög og gildistaka.
10. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þeir sem við gildistöku laga þessara stunda sölu notaðra ökutækja, sem lögin taka til, skulu sækja um leyfi til sýslumanns innan sex mánaða frá gildistöku laganna. Að níu mánuðum liðnum frá gildistöku laganna er með öllu óheimilt að stunda sölu notaðra ökutækja í atvinnuskyni án leyfis þar að lútandi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á undanförnum árum hefur athygli framkvæmdar- og löggjafarvalds hér á landi sem annars staðar beinst í auknum mæli að neytendavernd. Leitast hefur verið við að setja almennan lagaramma um ýmis viðskipti þar sem viðskiptavenjur hafa ekki myndast sem tryggja nægilegt jafnræði í aðstöðu kaupanda og seljanda við viðskiptin. Sett hafa verið lög um fasteignaviðskipti, skaðsemisábyrgð, neytendalán, húsgöngu- og fjarsölu, umboðssöluviðskipti, verðbréfaviðskipti og að síðustu ný samkeppnislög.
Verslun með bifreiðar er með mikilvægari viðskiptum sem hinn almenni neytandi tekur þátt í. Einn af stærstu útgjaldaliðum heimilanna er rekstur bifreiðar og má gera ráð fyrir að 1 / 5 af ráðstöfunarfénu fari í kostnað vegna bifreiðaeignar. Við kaup á bifreið er eðlilegt að fram komi fleira en söluverð, t.d. rekstrar- og viðhaldskostnaður. Einnig verður öryggisbúnaður bifreiðarinnar að standast lágmarkskröfur. Notaðar bifreiðar af sömu gerð og árgerð sem hefur verið ekið svipaða vegalengd geta verið í afar misgóðu ástandi. Tæknilega eru bifreiðar flókin fyrirbæri og er því erfitt að meta gæði slíkra farartækja án sérfræðiþekkingar, sérstaklega eftir að þau hafa verið í notkun í lengri tíma. Kaup á notaðri bifreið eru því áhættuviðskipti fyrir stóran hóp neytenda.
Í íslenskum lögum er lítið fjallað um starfsemi þeirra er stunda viðskipti með notaðar bifreiðar. Í lögum um sölu notaðra lausafjármuna er að finna ákvæði um sölu notaðra bifreiða en þau eru mjög ófullkomin. Almenn ákvæði kaupalaga eiga að vísu við um þessi viðskipti en meginvandi kaupenda er oftast fólginn í sönnunarbyrði, t.d. hvaða upplýsingar voru veittar þegar kaupin áttu sér stað. Hefur oft verið rætt um það síðustu árin að besta lausnin á þessu máli væri að setja lög um viðskipti með bifreiðar sem gæti orðið bæði bifreiðasölum og viðskiptamönnum þeirra til hagsbóta. Ingi Björn Albertsson alþingismaður lagði tvisvar fram frumvarp um þetta efni á árunum 1988 og 1989 en þau náðu ekki fram að ganga.
Nú hefur frumvarp um þetta mál verið samið í viðskiptaráðuneytinu þar sem brýnt þykir að leysa sem fyrst þau vandamál og erfiðleika sem tengst hafa bifreiðasölu í gegnum árin. Mestu máli skiptir að gera auknar kröfur til þeirra sem vilja stunda slík viðskipti. Þeir verði því að sækja sérstakt námskeið og setja tryggingu fyrir hugsanlegum skaðabótakröfum viðskiptavina sinna. Jafnframt verði þeim settar ýmsar skyldur um upplýsingagjöf til viðskiptavina og frágang skjala.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er gildissvið laganna afmarkað. Lögin gilda eingöngu um sölu notaðra ökutækja sem fram fer í atvinnuskyni. Þau girða því ekki fyrir milliliðalausa sölu sem ekki er í atvinnuskyni, svo sem þegar einkabifreiðar eru auglýstar til sölu í dagblaðsauglýsingum. Þá þykir eðlilegt að undanskilja notuð ökutæki sem seld eru nauðungarsölu gildissviði laganna.
Um 2. gr.
Samkvæmt greininni skulu þeir sem reka vilja bifreiðasölu hafa til þess sérstakt leyfi sýslumanns. Þetta þýðir í raun að engum öðrum en þeim sem hafa til þess sérstakt leyfi sýslumanns er heimilt að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki. Markmiðið er að skapa ákveðið traust á þessum markaði með því að tryggja nauðsynlega faglega þekkingu og hæfi þeirra sem hafa milligöngu í þessum viðskiptum, sbr. skilyrðin fyrir veitingu leyfa skv. 3. gr.
Um 3. gr.
Í greininni eru talin upp þau skilyrði sem einstaklingar þurfa að uppfylla til að fá útgefið leyfi til sölu notaðra ökutækja. Er þar m.a. kveðið á um að bifreiðasala sé skylt að leggja fram tryggingu til að standa straum af skaðabótum sem honum kann að verða gert að greiða viðskiptamanni vegna starfsemi sinnar. Ákvæði þessu er ætlað að tryggja að bifreiðasali hafi ávallt nokkurt svigrúm til að greiða slíkar bætur auk þess sem ákvæðið er nokkur trygging fyrir viðskiptamann sem kann að eiga rétt til bóta. Lagt er til að nánari ákvæði um fjárhæð og fyrirkomulag trygginganna verði sett í reglugerð. Ákvæðið er hliðstætt ákvæði um tryggingar verðbréfamiðlara í lögum nr. 9/1993, um verðbréfaviðskipti.
Í 5. tölul. greinarinnar er að finna ákvæði um að einstaklingar verði að standast próf áður en þeir fá útgefið leyfi til sölu notaðra ökutækja. Nánar verður fjallað um fyrirkomulag prófsins í reglugerð sem viðskiptaráðuneytið setur en hér er aðallega verið með í huga námskeið í frágangi skjala og í öðru sem tengist verslun og viðskiptum.
Um 4. gr.
Í grein þessari er sú skylda lögð á bifreiðasala að afla þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupa á notuðu skráningarskyldu ökutæki. Ákvæðinu er hvorki ætlað að leysa seljanda undan ábyrgð vegna þeirra upplýsinga sem hann veitir né slaka á hinni svokölluðu „rannsóknarskyldu“ sem hvílir á kaupanda skv. 47. gr. laga nr. 39/1922, um lausafjárkaup. Hins vegar er ákvæðinu ætlað að skerpa skyldu bifreiðasala til að miðla ákveðnum upplýsingum er máli skipta í viðskiptum af þessu tagi. Skylda bifreiðasala til varðveislu gagna í eitt ár er í tengslum við ákvæði 54. gr. laga nr. 39/1922. Ákvæði um skriflega staðfestingu seljanda á þeim upplýsingum, sem hann veitir, tryggir sönnun málsatvika ef til ágreinings kemur vegna viðskipta með notuð ökutæki.
Nauðsynlegt þykir að vottorð frá ökutækjaskrá fylgi hverri bifreið við sölu til að koma í veg fyrir að annar en eigandi eða umboðsmaður hans geti selt viðkomandi bifreið. Í greininni er einnig kveðið á um skyldu bifreiðasalans til að sannreyna að upplýsingar varðandi ökutæki séu réttar.
Lagt er til að viðskiptaráðherra geti sett nánari reglur um hvaða upplýsingar skuli fylgja ökutæki við sölu og hversu ítarlegar upplýsingar eigi að koma fram í kaupsamningi og afsali.
Um 5. gr.
Í þessari grein felst almennt ákvæði um skyldur bifreiðasala gagnvart viðskiptamönnum sínum. Hafa ber í huga að bifreiðasali er í þjónustu beggja aðila, seljanda og kaupanda, og er honum skylt að gæta hagsmuna þeirra beggja við samningsgerð eins og kostur er. Þykir rétt að kveða á um þá skyldu bifreiðasala að upplýsa kaupanda um þann möguleika að láta hlutlausan aðila skoða bifreiðina áður en kaup fara fram. Í þessu sambandi skal sérstaklega tekið fram að ekki þykir rétt að leggja til að óháður aðili útbúi ástandslýsingu þegar notað ökutæki er tekið til sölu, sbr. 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins. Þetta er vegna þess að ökutæki er iðulega sett á skrá hjá hlutaðeigandi bifreiðasala en síðan notar eigandi ökutækisins það áfram þar til af sölu verður. Ef notaðar bifreiðar væru yfirleitt í eigu bifreiðasalanna eins og algengast er í nágrannalöndunum og því ekki í stöðugri notkun þar til þær eru seldar væri ekki óeðlilegt að gera kröfur um ástandslýsingu frá óháðum aðila.
Um 6. gr.
Í greininni er leitast við að tryggja vandaðan frágang skjala vegna bifreiðaviðskipta. Ákvæðinu er m.a. ætlað að sporna við hinum svokölluðu opnu afsölum sem lengi hafa tíðkast og oft leitt til vandræða, ekki síst vegna opinberrar skráningar bifreiða og réttaráhrifa hennar. Þá þykir eðlilegt að fram komi á afsali og öðrum skjölum hvaða bifreiðasali annaðist samningsgerð. Eðlilegt þykir að bifreiðasali tilkynni sölu ökutækis til ökutækjaskrár vegna þeirrar tryggingar sem hann þarf að leggja fram skv. 4. tölul. 3. gr. frumvarpsins. Athygli er vakin á því að ákvæði þetta er breyting á því sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 20. gr. reglugerðar nr. 523/1988 um skráningu ökutækja.
Um 7. gr.
Ákvæði 7. gr. er ætlað að koma í veg fyrir hugsanlega misnotkun bifreiðasala eða starfsmanna hans á aðstöðu sinni.
Um 8. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 9. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 10. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 11. gr.
Við gildistöku laga þessara víkja þau ákvæði laga nr. 61/1979, um sölu notaðra lausafjármuna, sem fjalla sérstaklega um bifreiðar og samrýmast ekki ákvæðum þessara yngri sérlaga að öðru leyti.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Lagt er til í 11. gr. frumvarpsins að lögin öðlist þegar gildi. Rétt þykir þó að gefa aðilum, er lögunum er ætlað að taka til, sex mánaða frest til að sækja um leyfi til sýslumanns og að níu mánuðum liðnum frá gildistöku laganna er engum heimilt að stunda sölu notaðra ökutækja sem ekki hefur til þess leyfi. Nauðsynlegt þykir að veita nokkuð rúman aðlögunarfrest þar sem bæði þarf að undirbúa og halda námskeið fyrir þá sem áhuga hafa á að afla sér leyfis.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um sölu notaðra ökutækja.
Með frumvarpi þessu er áformað að koma á betri skipan og heiðarlegri viðskiptaháttum hjá atvinnusölumönnum notaðra ökutækja. Gera má ráð fyrir að veiting leyfa og eftirlit með þeim verði til einhverrar aukningar í starfsumfangi hjá sýslumannsembættum, en kostnaðarauki af þeim sökum er talinn óverulegur.