Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 400 . mál.
602. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 94/1976, um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)
1. gr.
3. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna fellur brott.
2. gr.
3. málsl. 7. gr. laganna fellur brott.
3. gr.
8. gr. laganna orðast svo:
Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn Fasteignamats ríkisins. Skal einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en tveir skulu skipaðir án tilnefningar. Skal stjórnin skipuð til fjögurra ára.
Stjórn Fasteignamats ríkisins mótar starf og innra skipulag stofunarinnar og hefur eftirlit með rekstri hennar. Stjórnin gerir tillögur að gjaldskrá stofnunarinnar sem síðan skal staðfest af ráðherra.
4. gr.
Við 9. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
Fasteignamat ríkisins skal hafa eftirlit með því að sveitarfélög sinni upplýsingaskyldu sinni. Í því skyni skal stofnunin halda skrár er sýni hve margar fasteiginir eru metnar í einstökum sveitarfélögum á ári hverju.
Fasteignamat ríkisins skal árlega senda skýrslu um matsstörf í einstökum sveitarfélögum til fjármálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Tilgangur frumvarpsins er að styrkja starfsemi Fasteignamats ríkisins og efla tengsl stofnunarinnar við sveitarfélög. Í því skyni verði stofnuninni sett þriggja manna stjórn sem fulltrúi sveitarfélaga eigi aðild að. Jafnframt verði fellt brott ákvæði um að stofnunin flokkist sem A-hluta stofnun. Sveitarfélög hafa verulega hagsmuni af starfi Fasteignamats ríkisins þar sem fasteignagjöld eru grundvölluð á fasteignamati, en þau eru mikilvægur tekjustofn sveitarfélaga. Í ljósi umræðu að undanförnu um matsstörf sveitarfélaga þykir einnig ástæða til að bæta við ákvæði um að Fasteignamat ríkisins skuli hafa eftirlit með því að sveitarfélög sinni þeirri lögbundnu skyldu að senda stofnuninni fullnægjandi upplýsingar um gerð og breytingar á fasteignum.
Frumvarp um skráningu og mat fasteigna var lagt fram á síðasta þingi en var ekki afgreitt. Frumvarpið er nú endurflutt með nokkrum breytingum. Í fyrra frumvarpi voru lagðar til breytingar á liðum sem tengjast gjaldtöku fyrir þjónustu en ekki nú. Þá var einnig lagt til að sett yrði inn ákvæði um að Fasteignamat ríkisins hefði heimild til að framkvæma annars konar mat en hið eiginlega fasteignamat, en það ákvæði er ekki í þessu frumvarpi þar sem ekki verður séð að slík vinna sé stofnuninni óheimil samkvæmt núgildandi lögum. Með gildistöku EES-samningsins verður öllum tryggingafélögum heimilt að sjá um brunatryggingar og því opnast sá möguleiki að Fasteignamat ríkisins taki að sér brunabótamat fasteigna gegn gjaldi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er felldur niður 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. þar sem kveðið er á um að Fasteignamat ríkisins sé A-hluta stofnun.
Um 2. gr.
Felldur er niður málsliður sem kveður á um að forstjóri ákveði innra skipulag Fasteignamats ríkisins. Samkvæmt frumvarpinu er þetta hlutverk falið stjórn Fasteignamats ríkisins, sbr. 3. gr.
Um 3. gr.
Hér er kveðið á um að skipa eigi sérstaka stjórn yfir Fasteignamati ríkisins. Hún á m.a. að móta starfsemi stofnunarinnar, hafa eftirlit með rekstrinum og gera tillögur að gjaldskrá. Gert er ráð fyrir að stjórnin vinni í nánu samstarfi við forstjóra. Hún verði skipuð þremur mönnum til fjögurra ára, þar af einum tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í staðinn falli niður núverandi ákvæði 8. gr. um ráðgefandi nefnd, en það ákvæði hefur í reynd aldrei komist í framkvæmd.
Um 4. gr.
Fasteignamati ríkisins er hér falið að hafa eftirlit með því að sveitarfélög sendi stofnuninni fullnægjandi upplýsingar um gerð og breytingar á fasteignum eins og þeim ber lögum samkvæmt. Slíkt eftirlitshlutverk stofnunarinnar var ekki lögbundið áður. Tilgangur hins nýja ákvæðis er að tryggja betur en áður að fasteignamat, sem er grunnur að álagningu fasteignagjalda, byggist jafnan á nýjustu upplýsingum. Jafnframt verði fjármálaráðuneyti og félagsmálaráðuneyti upplýst um matsstörf í einstökum sveitarfélögum og hvort stofnunin telji þeim ábótavant.
Um 5. gr.
Greinin þarnast ekki skýringar.