Ferill 409. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 409 . mál.


613. Skýrsla



samstarfsráðherra Norðurlanda um störf norrænu ráðherranefndarinnar 1993–94.

(Lögð fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)




1. Endurmat norræns samstarfs.



1.1. Skýrsla forsætisráðherranna.
    Í skýrslu samstarfsráðherra norrænna mála, Eiðs Guðnasonar, um störf norrænu ráðherranefndarinnar 1992–93, sem lögð var fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi þess, er fjallað allrækilega um endurmat á norrænu samstarfi, eins og það birtist í tillögum til forsætisráðherranna í skýrslum svonefndra „Iloniemi-nefndarinnar“ og „Störe-hópsins“ sem lagðar voru fram á árinu 1992.
    Skýrsla forsætisráðherranna um endurmat á norrænni samvinnu hlaut ítarlega umræðu á Alþingi Íslendinga hinn 29. október 1992. Í ræðu sinni í þeirri umræðu sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra meðal annars:
    „Það verkefni sem við stöndum frammi fyrir í norrænu samstarfi er tvíþætt.
     Í fyrsta lagi að tryggja náið samstarf Norðurlanda á þeim sviðum þar sem um sérstök sameiginleg áhugamál er að ræða sem skynsamlegt er að vinna að innan Norðurlandanna einna. Í þessu efni getum við byggt á langri reynslu.
     Í öðru lagi þurfum við að finna nýjar og hentugar samstarfsaðferðir vegna þátttöku okkar í evrópskri samvinnu.
    Að því er fyrri þáttinn varðar má nefna menningarmál, menntun og rannsóknir, umhverfismál, ýmis félagsleg réttindi fólks og samgöngur. Til viðbótar kemur hér til sögunnar samband við ríkin við Eystrasalt og í vaxandi mæli utanríkis- og öryggismál.
    Að því er seinni þáttinn varðar skiptir EES-samstarfið mestu máli á næstu árum. Síðan mun væntanleg aðild flestra Norðurlandanna að Evrópubandalaginu hafa áhrif á norrænt samstarf, en um það er enn margt í óvissu.“
    Í máli forsætisráðherra var þeim breytingum, sem fyrirhugað er að gera á norrænu samstarfi, lýst í hnotskurn:
    „Á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Maríuhöfn á Álandseyjum í nóvember á sl. ári var fjallað um norræna samvinnu í ljósi þróunarinnar í Evrópu. Þar var ákveðið að forsætisráðherrarnir skipuðu fulltrúa sína í starfshóp til að fjalla um endurmat á norrænni samvinnu út frá eftirfarandi meginatriðum:
    1. Nýjar forsendur norrænnar samvinnu vegna samruna Evrópuríkja.
    2. Samvinna Norðurlanda við nágrannaríki, einkum Eystrasaltsríkin og svæðið í kringum Eystrasalt.
    3. Þær skipulagsbreytingar sem tillögur til úrbóta miðast við, þar með talin hugsanleg breyting á Helsingfors-sáttmálanum.“
    Eiður Guðnason umhverfis- og samstarfsráðherra dró saman í ræðu sinni á Alþingi níu meginatriði sem horfðu til breytinga:
     „ Í fyrsta lagi að forsætisráðherrarnir verði oddvitar samstarfsins.
     Í öðru lagi að sama landið, þ.e. það land sem hefur forustu í norræna samstarfinu það árið, hafi með höndum formennsku í öllum ráðherra- og embættismannanefndum.
     Í þriðja lagi að náin norræn samvinna verði um þau mál sem eru á dagskrá Evrópska efnahagssvæðisins, Evrópubandalagsins og á öðrum svæðisbundnum samstarfssviðum.
     Í fjórða lagi að samvinna á sviði utanríkis- og öryggismála verði aukin.
     Í fimmta lagi að rík áhersla verði lögð á náið samstarf við Norðurlandaráð, m.a. með því að ríkisstjórnir geri ráðinu víðtæka og rækilega grein fyrir framvindu og stöðu mála sem snerta Evrópusamstarfið.
     Í sjötta lagi að framlag til menningarmála verði stóraukið með menningarmálasjóðnum.  . . .
     Í sjöunda lagi að haldið verði áfram að vinna að og efla þá málaflokka sem kalla má samnorræna í eðli sínu.
     Í áttunda lagi að stuðlað verði að enn frekari samvinnu þeirra aðila í frjálsri félagastarfsemi sem eru virkir í norrænni samvinnu og eru jafnstór og veigamikill þáttur samvinnunnar og raun ber vitni.
     Í níunda lagi að unnið verði að þeim breytingum á norræna stjórnkerfinu að það falli að þessum meginmarkmiðum skýrslunnar.“
    Tillögur þessar voru í meginatriðum samþykktar af forsætisráðherrunum á þingi Norðurlandaráðs í Árósum 9.–11. nóvember 1992 og staðfestar á 43. þingi Norðurlandaráðs í Ósló 1.–4. mars 1993.
    Samkvæmt endurmatinu skyldi starfseminni þjappað saman um sjö megináhersluflokka, en þeir eru:
    Menningarmál.
    Rannsóknir og menntun.
    Umhverfismál.
    Réttindamál þegnanna.
    Efnahagsmál.
    Sjávarútvegsmál.
    Löggjafarmál.
    Þannig skyldu fjárlög norrænu ráðherranefndarinnar í framtíðinni í aðaldráttum endurspegla þessar áherslur.
    Forsætisráðherrarnir lögðu þegar til á Árósaþinginu að fjárveitingar til tveggja fyrstu málaflokkanna yrðu auknar um 25% árið 1994 frá árinu 1993 og stefna bæri að því að 50% af fjárlögunum yrðu helguð þessum tveimur málaflokkum fyrir 1996.
    Norrænu samstarfsnefndinni (NSK), sem leysa skyldi svonefnda „staðgenglanefnd“ af hólmi, var jafnframt falið að vinna að útfærslu ofangreindra áherslusviða og annarra samstarfssviða sem greindust út frá þeim svo að alls urðu samstarfssviðin 12 talsins, þ.e.
    Menningarmál.
    Rannsóknir og menntun.
    Umhverfismál.
    Sjávarútvegsmál.
    Félags- og heilbrigðismál.
    Vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismál.
    Neytendamál.
    Orku- og iðnaðarmál.
    Byggðamál.
    Landbúnaðar- og skógræktarmál.
    Löggjafarmál.
    Jafnréttismál.
    Allir þessir málaflokkar fá fjármuni til ráðstöfunar á fjárlögum ársins 1994.
    Þá var ein af afleiðingum endurmatsins sú að samþykkt var á vorþingi Norðurlandaráðs í Ósló (1.–4. mars 1993) að Helsingfors-samningnum skyldi breytt. Breytingarnar fælu m.a. í sér að þingmenn fengju aukið vald til að hafa áhrif á fjárlagagerðina og þar með fjárveitingar. Þá yrði m.a. bætt við samninginn ákvæðum um samstarf í utanríkismálum o.fl.
    Skrifað var undir breytingarnar á Helsingfors-samningnum í Helsingfors 18. mars 1993 og tók samningurinn gildi 7. nóvember 1993. Samningurinn fylgir með þessari skýrslu sem fylgiskjal. Þá voru samdar nýjar starfsreglur fyrir ráðherranefndina og norrænu samstarfsnefndina sem fylgja einnig þessari skýrslu sem fylgiskjal.

1.2. Samstarf forsætisráðherranna.
    
Eins og að framan var getið leiddi endurmat norræns samstarfs til þess að forsætisráðherrarnir tóku að sér yfirstjórn hins norræna samstarfs. Þessi breyting tók þegar gildi á 42. þingi Norðurlandaráðs í Árósum. Forsætisráðherra Norðmanna talaði þar fyrir hönd starfsbræðra sinna á öðrum Norðurlöndum um hvernig ríkisstjórnir landanna vildu haga hinni norrænu samvinnu ríkisstjórnanna, þar á meðal um uppstokkun hins formlega samstarfs í sjö áherslusvið, og fjárlög næsta árs skyldu taka mið af þessum áherslum.
    Þá ákváðu forsætisráðherrarnir að til menningarmála, rannsóknamála og menntamála skyldi auka fjárveitingar árið 1994 um 25% frá árinu 1993 og stefna bæri að því að til þessara sömu málaflokka skyldu renna 50% af fjárveitingum fyrir árið 1996.
    Á fundi forsætisráðherranna á þingi Norðurlandaráðs í Ósló 1.–4. mars 1993 samþykktu þeir fyrrgreinda tillögu norrænu samstarfsnefndarinnar (NSK) um 12 samstarfssvið sem öllum hefur verið veitt fé á fjárlögum 1994.
    Á 43. þingi Norðurlandaráðs í Ósló lagði forsætisráðherra Svíþjóðar fram stefnuyfirlýsingu sína sem oddviti formannslandsins á komandi ári í samvinnu við forsætisráðherra hinna norrænu landanna. Í ræðu sænska forsætisráðherrans var drepið á ýmis mál sem ríkisstjórnirnar voru sammála um að vinna að. Mikilvæg væri umsókn þriggja norrænna landa um aðild að Evrópubandalaginu, enn fremur lausn á atvinnuleysi og barátta gegn útlendingahatri o.fl.
    Þá óskuðu forsætisráðherrarnir eftir athugun á möguleikum til að setja á stofn norræna sjónvarpsrás til að senda efni um gervihnött milli Norðurlandanna.
    Forsætisráðherrarnir töldu reynsluna af samvinnu Norðurlanda við Eystrasaltsríkin geta verið forsendu fyrir áþekku átaki gagnvart Norðvestur-Rússlandi.
    Hin aukna þátttaka forsætisráðherranna í Norðurlandasamstarfi birtist einnig í reglulegum fundarhöldum þeirra. Þannig hafa þeir haldið fjóra fundi á árinu, tvo í sambandi við þing Norðurlandaráðs og tvo þess á milli. Á fundum þessum hafa forsætisráðherrarnir rætt fjölmörg mál og fylgja yfirlýsingar þeirra skýrslu þessari sem fylgiskjöl.
    Á árinu kom í ljós að ríkissjónvarpsstöðvar fjögurra norrænu landanna voru því meðmæltar að standa að sjónvarpssendingum um gervihnött innan Norðurlandanna, enda kæmi ríkisaðstoð til. Forsætisráðherrarnir töldu sig ekki geta fallist á þá lausn og fólu ríkissjónvarpsstöðvunum að halda áfram könnun sinni. Auk þess ákváðu þeir að fela menningarmálaráðherrunum að vinna að aukinni útbreiðslu dagskrárefnis norrænu sjónvarpsstöðvanna milli grannlandanna.
    Forsætisráðherrarnir tóku einnig til umræðu landamærahindranir við ferðum manna milli landa, dvalarleyfi og atvinnuleyfi.
    Gerð hefur verið úttekt á viðkomandi hindrunum og hafa forsætisráðherrarnir lagt fyrir viðkomandi fagráðherra að koma með tillögur til úrbóta fyrir þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í mars nk.
    Þá var samstarfsráðherrunum falið að gera tillögur um „norræna jafnréttisreglu“ sem fella mætti inn í Helsingfors-samninginn í ljósi ákvæða EES-samningsins um sama efni.

1.3. Skrifstofa Norðurlandamála.
    Skrifstofa Norðurlandamála hefur frá stofnun hennar á miðju ári 1987 verið vistuð í utanríkisráðuneytinu. Frá og með síðustu áramótum var ákveðið að vista skrifstofuna í tengslum við forsætisráðuneytið í samræmi við hið nýja skipulag.
    Til þessa hefur framlag til skrifstofu Norðurlandamála og framlag Íslands til norrænu ráðherranefndarinnar að sama skapi verið fært hjá utanríkisráðuneyti, en í fjárlögum 1994 færast þessir gjaldaliðir til forsætisráðuneytis í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Framlag til skrifstofu Norðurlandamála hækkar úr 10,7 millj. kr. 1993 í 18 millj. kr. 1994 vegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni 1994–1995. Framlag Íslands til fjárlaga norrænu ráðherranefndarinnar að upphæð 60,7 millj. kr. færist yfir til forsætisráðuneytisins, en árið 1993 nam framlagið 57,9 millj. kr.
    Bætt verður við einu og hálfu nýju starfi til að mæta auknu umfangi í starfi skrifstofunnar vegna formennsku Íslands.
    Í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, sem tók við völdum 30. apríl 1991, var Eiður Guðnason jafnframt útnefndur samstarfsráðherra Norðurlanda. Er Eiður Guðnason hætti ráðherrastarfi útnefndi forsætisráðherra Sighvat Björgvinsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra samstarfsráðherra í hans stað frá og með 22. júní 1993.
    Á þessu starfsári héldu norrænu samstarfsráðherrarnir fundi sem hér segir:
    8. febrúar í Ósló,
    1.–4. mars í Ósló,
    5. maí í Stokkhólmi,
    4.–6. ágúst í Vasa,
    8.–10. nóvember í Maríuhöfn,
    3. desember í Kaupmannahöfn.
    Fyrir utan hefðbundin störf skrifstofu Norðurlandamála voru það sérstök verkefni skrifstofunnar og starfsliðs hennar að taka þátt í og vinna að þeim breytingum á stjórnkerfi Norðurlandasamstarfsins sem af samþykktum forsætisráðherranna leiddi og festa breytingarnar í sessi.
    Skrifstofustjóri var Jón Júlíusson sem jafnframt var fulltrúi Íslands í norrænu samstarfsnefndinni.

2. Norrænu fjárlögin 1994.



2.1. Nýmæli í fjárlagagerð.
    Í samræmi við endurmat á norrænu samstarfi og pólitíska stefnumörkun forsætisráðherra Norðurlanda hefur orðið samkomulag um nokkur grundvallaratriði sem móta eiga samstarfið í framtíðinni:
    Forsætisráðherrarnir taka sameiginlega að sér virkara hlutverk í norrænu samstarfi en verið hefur.
    Meginreglan um virka formennsku verður látin gilda á öllum stigum ríkisstjórnarsamstarfsins.
    Samstarfinu verður beint að nokkrum forgangssviðum.
    Áhrif Norðurlandaráðs á fjárlagaákvarðanir eflast verulega.
    Ráðherranefndin og embættismannanefndirnar munu framvegis vinna að framgangi mála á sjö áherslusviðum en þau eru: Menning, menntun og rannsóknir, umhverfismál, réttindi almennings, sjávarútvegsmál, efnahagsmál og lagaleg atriði (tafla 1).
    Til þess að hægt sé að spanna allt samstarfið og fella það skipulagslega og í fjárlagagerðinni undir hin mismunandi áherslusvið verða framlög einkum veitt til eftirfarandi starfssviða: Menningar, menntunar og rannsókna umhverfismála, sjávarútvegsmála, félags- og heilbrigðismála, vinnumarkaðs- og vinnuverndarmála, neytendamála, orku- og atvinnumála, byggðamála, landbúnaðar- og skógræktarmála, lagasetningar og jafnréttismála.
    Enda þótt megináhersla sé lögð á þessi tólf samstarfssvið útilokar það ekki framlög á fjárlögum eða af ráðstöfunarfé ráðherranefndarinnar til annarra samstarfssviða. Samstarfsráðherrarnir fá þannig til umráða 3 millj. d.kr. sem nota á til mikilvægra pólitískra verkefna á árinu 1994.
    Í norrænu fjárlögunum 1994 eru framlög til menningar- og menntamála aukin um 53 millj. d.kr. frá fyrra ári. Þetta er í samræmi við þá áherslu sem lögð hefur verið á að efla norræna menningu og sjálfsmynd Norðurlandabúa frammi fyrir hraðfara Evrópuþróun. Þá hafa fjárveitingar til rannsókna, umhverfismála og til grannsvæða Norðurlanda notið forgangs við fjárlagagerðina.
    Gengið hefur verið út frá þeirri forsendu við fjárlagagerðina að heildarframlög verði óbreytt að raungildi milli áranna 1993 og 1994. Þetta hefur í för með sér að niðurskurður verður á nær öllum öðrum samstarfssviðum en hér hafa þegar verið nefnd.
    Haldið verður áfram að þróa ramma- og markmiðsstjórnun í allri norrænni fjárlagastarfsemi en það mun auka möguleika á virkri pólitískri stjórnun og auðvelda innsýn og yfirlit.
    Endurskipulagning hefur átt sér stað á skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar í því skyni að gera samstarfið hagkvæmara. Markmiðið er að 1. janúar 1995 hafi stjórnunarkostnaður lækkað um 20% miðað við 1993.
    Samanlagt eru niðurstöðutölur norrænu fjárlaganna u.þ.b. 656 millj. d.kr.

2.2. Norræni lykillinn.
    Skipting framlaga landanna fer eftir „norræna lyklinum“ sem hefur verið ákveðinn í samræmi við hlutfall viðkomandi lands af brúttóþjóðartekjum (BNI) norrænu ríkjanna í heild:

Ár

1992 %

1993 %

1994 %



Danmörk      20
,6
20,4 20,8
Finnland      22
,4
22,9 21,8
Ísland           1
,0
0,9 0,9
Noregur      18
,3
18,0 18,0
Svíþjóð      37
,7
37,8 38,5



2.3. Gengi og umreikningsreglur.

    Við ákvörðun fjárlagatalna hefur ráðherranefndin notað það skiptagildi á norrænum myntum sem skráð var 9. nóvember 1993:

    100 FIM = 119 DKK
    100 ISK = 10 DKK
    100 NOK = 93 DKK
    100 SEK = 84 DKK

    Við fjárlagaákvarðanir voru í gildi eftirfarandi umreikningsreglur varðandi framlög til stofnana: Danmörk 3,0%, Finnland 2,5%, Ísland 3,0%, Noregur 1,75%, Svíþjóð 2,2%, en varðandi verkefnaframlög 2,5% árið1994.

2.4. Þróun norrænu fjárlaganna.
    Á breytilegu verðlagi hafa fjárlögin þrefaldast frá því í upphafi níunda áratugarins. Sé tekið tillit til verðlagsþróunar á Norðurlöndum hafa fjárlögin rúmlega tvöfaldast, mælt á föstu verðlagi (á verðlagi ársins 1993).







Mynd (repró).









Skipting fjárlaga eftir áherslusviðum (breytilegt verðlag).

Tafla 1.

1993

Hlutdeild

1994

Hlutdeild


Áherslusvið

þús. d. kr.

%

þús. d. kr.

%



I          Menning     
93.336
14 ,3 128.842 19 ,6
II
    Menntun/rannsóknir      177.429 27 ,3 197.981 30 ,2
III
    Umhverfismál      32.358 5 ,0 33.167 5 ,1
IV          Sjávarútvegsmál     
7.519
1 ,1 6.663 1 ,0
V          Réttindamál þegnanna     
69.106
10 ,6 59.105 9 ,0
VI          Efnahagsmál     
151.699
23 ,3 130.386 19 ,9
VII          Lagaleg atriði     
8.268
1 ,3 13.327 2 ,0
VIII     Önnur starfsemi     
110.955
17 ,1 86.415 13 ,2
SAMANLAGT     
650.670
100 ,0 655.886 100 ,0

    Fjárlögin eru þannig sett upp að undir hverju áherslusviði er gerð grein fyrir skiptingu framlaga milli verkefna og stofnana (tafla 3). Á áherslusviðunum menning og menntun/rannsóknir er verkefnafé skipt upp í verkefnaframlög annars vegar og tímabundnar áætlanir og almenn styrkjakerfi hins vegar. Síðastnefnd tegund framlaganna er mitt á milli venjulegs verkefnafjár og framlaga til stofnana. Á skýringarmyndinni er gerð grein fyrir skiptingu heildarfjárlaganna milli verkefna- og stofnanaframlaga og framlags til skrifstofu ráðherranefndarinnar.


















2.5. Ramma- og markmiðsstjórnun.
    Um þessar mundir er verið að gjörbreyta og þróa fjárlagakerfi norrænu ráðherranefndarinnar. Ramma- og markmiðsstjórnun við fjárlagagerð verður látin taka til allrar norrænnar starfsemi seinast 1995. Það á að gefa betri innsýn og yfirlit yfir starfsemina. Skiptingin í áherslusvið á einnig að auðvelda stjórnmálamönnum afskipti af fjárlagagerðinni. Eftir því sem ráðherranefndin er nákvæmari í starfsáætlun sinni (C2) ætti að vera auðveldara að ræða hvaða verkefnum er brýnast að hrinda í framkvæmd.
    Stefnt er að því að samningsbundin ramma- og markmiðsstjórnun nái til 40% þeirrar starfsemi sem norrænu fjárlögin snerta. Tilgangur umbótanna er að finna betri farveg fyrir samskipti og samvinnu milli stofnananna og ráðherranefndarinnar og leggja styrkari grunn að pólitískum ákvörðunum. Það eru fyrst og fremst tvö atriði sem einkenna nýja fjárlagakerfið.
—    Samningur sem markar eðli verkefnisins og umfang, svo og fjárhagsgrundvöll þess.
—    Skýrslugjöf sem greinir frá árangri miðað við verkefni og fjárframlög meðan á starfseminni stóð.
    Samningurinn, sem gerður er í samvinnu stofnunar og ráðherranefndar, felst í pólitískri viljayfirlýsingu sem sett er fram í formi „pöntunar“ með vissum fjárhagsrömmum fyrir viðkomandi stofnun. Hún tilgreinir í nokkurs konar „tilboði“ möguleika sína til þess að afgreiða pöntunina í samræmi við gefnar forsendur. Samningsferlið eykur möguleika stjórnmálamanna til þess að hafa áhrif á og stýra markmiðum og viðfangsefnum stofnananna. Um leið öðlast viðkomandi stofnanir aukið sjálfræði til þess að þróa af eigin rammleik aðferðir og leiðir að markmiðunum. Þær stofnanir, sem vinna í samræmi við samning til margra ára, fá þannig aukna möguleika til þess að gera langtímaáætlanir um starfsemi sína.
    Skýrsla um árangur í texta og lykiltölum er gefin út á hverju ári og send þingmönnum í nefndum Norðurlandaráðs og embættismannanefndum. Reynslan af þessari fjárlagatækni er afar góð.
—    Hægt er að leiðrétta fljótt vandamál í starfseminni.
—    Fleiri vita um og láta sig varða þau vandamál sem uppi eru.
—    Skilningur eykst á gildi og verðleikum viðkomandi stofnunar.
—    Fjárlagavinnan fyrir næsta tímabil verður auðveldari.
—    Áhersla á markmið og árangur vex innan stofnana.
—    Hæfni í afgreiðslu embættismanna eykst.
—    Pólitísk stjórnun eflist með því að þingmenn og fulltrúar ríkisstjórna fá upplýsingar og geta rækt eftirlitsskyldur sínar.

2.6. Verkefnastjórnun í starfsemi norrænu ráðherranefndarinnar.
    Fé til norrænna verkefna kemur annars vegar sem framlög á norrænu fjárlögunum eða sem verkefnafé frá norrænum samstarfsstofnunum. Eiginlegt verkefnafé norrænu ráðherranefndarinnar var 292 millj. d.kr. árið 1993.
    Verkefnastjórnun er ákaflega misjöfn eftir samstarfssviðum og allur gangur er á því hvernig afskipti eru höfð af framkvæmd og innihaldi verkefna af opinberri hálfu. Það er stundum litið á það sem vandamál hve fjöldi verkefna er mikill og valddreifing er algeng í norrænu samstarfi.
    Framkvæmd margra verkefna er talin ganga of hægt.
    Þekkingu á árangri verkefna er ekki miðlað á nógu skipulegan hátt.
    Árangri er sjaldnast fylgt eftir og hann er heldur ekki kynntur nægilega fyrir almenningi á Norðurlöndum.
    Fjárlagastjórnun á verkefnafé er ekki mikil að gæðum og það skortir á að eftirlitsaðferðir samstarfsstofnana, sem eiga að samræma starfsemina, séu nægilega þróaðar. Þess vegna er talin ástæða til þess að skerpa þær reglur og viðmiðanir sem gilda um samnorræn verkefni.
    Eftirfarandi stefnumið eiga framvegis að gilda um verkefnastarfsemina:
    Verkefni verður að hafa yfirlýstan metnað til þess að efla norræna sjálfsvitund eða fylla raunverulega þörf á norrænni samvinnu. Mikilvæg viðmiðun í þessu sambandi er að fjármunir séu nýttir á hagkvæman hátt til þess að koma í veg fyrir tvíverknað einstakra norrænna ríkja.
    Verkefni verða að vera í samræmi við þá forgangsröðun sem ákveðin hefur verið á hverju samstarfssviði.
    Verkefni á að hafa tiltekinn framkvæmdatíma og fyrir fram ákveðin verklok. Verklokin ber að ákveða með tilliti til þess hvenær árangurinn getur vakið sem mesta athygli á opinberum vettvangi.
    Verkefnum ber að sinna með ákveðnu stjórnskipulagi, innan ramma fjárhagsáætlunar og fastákveðinnar framvinduáætlunar.
    Aðalábyrgð á einstökum verkefnum ber viðkomandi fagráðuneyti.
    Ráðherranefndin mun hrinda í framkvæmd nokkrum atriðum til þess að auðvelda verkefnastjórnunina:
—    Komið hefur verið á laggirnar verkefna- og starfsemisskrá sem auðvelda á yfirlit um verkefni sem unnið er að.
—    Nýja kerfið með markmiðs- og rammastjórnun við fjárlagagerð mun ná til fleiri aðila en áður á árinu 1994, m.a. verkefna á sviði upplýsingastarfsemi, upplýsinga um vinnumarkað, byggðaverkefna, umhverfisverkefna og jafnréttisverkefna.
—    Starfsemi skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar mun æ meir beinast að því að fylgja eftir árangri og áhrifum mikilvægustu verkefna norræns samstarfs. Reynt verður að skapa umræðuvettvang og möguleika fyrir kynningu á árangri norræns samstarfs, m.a. með því að koma á fót fundum (hearings) og hugmyndasmiðjum (workshops).

2.7. Tekjuhlið fjárlaganna.
    Bein framlög frá ríkjunum standa að langmestu leyti straum af starfsemi norrænu ráðherranefndarinnar og er framlögunum jafnað niður á löndin samkvæmt „norræna lyklinum“ sem tekur mið af hlutfalli af samanlögðum brúttóþjóðartekjum (BNI) á Norðurlöndum.

Tafla 2.

Fjárlög

Fjárlög

Norr. lykillinn


Í þús. d.kr.

1993

1994

1994



Launatengd gjöld starfsmanna     
7.000
6.500
Vaxtatekjur     
20.000
20.000
Aðrar tekjur/(hugsanlegt tap)     
770
800
Framlög Norðurlandanna     
622.900
628.586
Danmörk     
127.072
130.746 20,8 %
Finnland     
142.644
137.032 21,8 %
Ísland          
5.606
5.657 0,9 %
Noregur     
112.122
113.145 18,0 %
Svíþjóð     
235.456
242.006 38,5 %
Samtals     
650.670
655.886 100 %


2.8. Gjaldahlið fjárlaganna.

Tafla 3.

Breytilegt verðlag í þús. d.kr.

1993

1994



1
Menningarsamvinna
     93.336 128.842
    Verkefnafé     
56.029
91.915
    Stofnanir     
37.307
36.927
2     Menntun/rannsóknir     
177.429
197.981
    Verkefnafé     
103.539
132.158
    Stofnanir     
73.890
65.823
3     Umhverfismál     
32.358
33.167
    Verkefnafé     
32.358
33.167
4     Sjávarútvegsmál     
7.519
6.663
    Verkefnafé     
7.519
6.663
5     Réttindi almennings     
69.106
59.105
    Verkefnafé     
30.331
26.097
    Stofnanir     
38.775
33.008
6     Efnahagsmál     
151.699
130.386
    Verkefnafé     
46.549
38.541
    Stofnanir     
105.150
91.845
7     Lagaleg atriði     
8.268
13.327
    Verkefnafé     
6.920
11.945
Stofnanir
     1.348 1.382
8
Önnur starfsemi
     110.955 86.415
    Verkefnafé     
45.414
31.952
    Stofnanir     
65.541
54.463
    Samanlagt
650.670 655.886

3. Menningarmál.



3.1. Breytt skipulag.

    Á árinu 1993 mótaðist samvinna ríkisstjórnanna á sviði menningar-, mennta- og vísindamála af þeirri stefnumörkun sem ákveðin var með yfirlýsingu forsætisráðherranna á fundi þeirra í Árósum 11. nóvember 1992 sem laut bæði að skipulagi og efnisáherslum í norrænu samstarfi.
    Ráðherranefnd menningar- og menntamála lagði fyrir 42. þing Norðurlandaráðs í Ósló 1.–4. mars 1993 ríkisstjórnatillögu um eflingu og breytt skipulag samstarfsins í menningar-, mennta- og vísindamálum. Tillagan hafði verið undirbúin í samráði við menningarmálanefnd Norðurlandaráðs. Eftir umfjöllun á þingi ráðsins, sem lauk með því að fallist var á tillöguna í megindráttum, jafnframt því að settar voru fram ábendingar um framkvæmdina í nokkrum atriðum, staðfesti ráðherranefndin þá áætlun sem í tillögunni fólst. Þar er lýst áformum um áherslusvið í samstarfinu á næstunni og hvernig nýta eigi það aukna fjármagn sem samkvæmt yfirlýsingu forsætisráðherranna er ráðgert að renni til menningar- og menntamálageira norrænu samstarfsfjárlaganna næstu árin. Þessum áformum var síðan fylgt eftir með nánari verkefnaútfærslu í tengslum við undirbúning samstarfsfjárlaganna fyrir árið 1994 og verður vikið nánar að þeim þáttum hér á eftir.
    Að loknu Norðurlandsráðsþinginu í Ósló komu til framkvæmda þær skipulagsbreytingar sem tillaga ráðherranefndarinnar gerði ráð fyrir, í samræmi við samþykkt forsætisráðherranna. Þær fólu í sér að í stað einnar ráðherranefndar á sviði menningar-, mennta- og vísindamála komu tvær, annars vegar ráðherranefnd menningarmála og hins vegar ráðherranefnd mennta- og vísindamála. Af Íslands hálfu starfar menntamálaráðherra í báðum nefndunum. Með hliðstæðum hætti komu tvær embættismannanefndir í stað einnar áður, sín fyrir hvort framangreindra sviða.
    Fyrir Norðurlandaráðsþingið í Ósló var einnig lögð ríkisstjórnartillaga frá ráðherranefnd menningar- og menntamála um hvernig staðið skyldi að breytingum á fjármögnun og skipulagi stofnana og annarra fastra verkefna sem kostuð eru af menningarmálalið norrænu samstarfsfjárlaganna. Tillagan, sem hlaut stuðning Norðurlandaráðs í meginefnum, var reist á niðurstöðum athugunar sem unnin var í þremur starfshópum á vegum ráðherranefndar menningar- og menntamála og beindist m.a. að því að kanna hvernig auka mætti sveigjanleika í ráðstöfun tiltækra fjármuna á þessu sviði. Gerð var grein fyrir meginatriðum í tillögum starfshópanna í skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda í fyrra. Samkvæmt áætlun ráðherranefndarinnar er gert ráð fyrir að breytingar í framhaldi af úttekt starfshópanna komi til framkvæmda smám saman á næstu árum. Meðal þess sem þegar hefur verið komið á er sú tilhögun á fjárveitingum til stofnana og fastra samstarfsverkefna að framlög eru ákveðin á grundvelli rammasamnings til nokkurra ára með hliðsjón af tilgreindum markmiðum að því er varðar hlutverk og umsvif.
    Við undirbúning norrænu samstarfsfjárlaganna fyrir árið 1994 var lögð til grundvallar sú stefnumörkun sem fólst í Árósayfirlýsingu forsætisráðherranna. Hún gerði ráð fyrir að á árinu 1994 yrði varið 25% meira fé til menningar- og menntamála en samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir 1993 og árið 1996 ættu 50% framlaga samkvæmt norrænu fjárlögunum að renna til samstarfs á þessu sviði. Á þessum grundvelli var í fjárlagatillögum samstarfsráðherranna gert ráð fyrir að til aukins samstarfs í menningarmálum yrði 1994 varið um 41 millj. d.kr. umfram fjárlögin 1993. Á 43. þingi Norðurlandaráðs í Maríuhöfn í nóvember 1993 var samþykkt tillaga um að minnka þessa viðbótarfjárveitingu um ríflega 7 millj. d.kr. og verja þeim mismun til verkefna á öðrum samstarfssviðum. Um það bil 20 millj. d.kr. aukning fjárveitingar til mennta- og vísindamála var látin óhögguð. Samstarfsráðherrarnir staðfestu fjárlögin í samræmi við tillögur Norðurlandaráðs.

3.2. Menningarmál.
    Í áætlun ráðherranefndar menningar- og menntamála um eflingu og breytt skipulag samstarfsins, sbr. tillögu hennar til 42. þings Norðurlandaráðs, kemur fram að með auknu samstarfi á menningarsviðinu sé stefnt að eftirtöldum markmiðum:
—    að varpa ljósi á og styrkja það sem sameinar norrænar þjóðir á sviði menningar og tungumála;
—    að glæða vitund æskufólks um sérkenni norrænnar menningar;
—    að tryggja og efla gæði og fjölbreytni á sviði lista og alþýðlegrar menningarstarfsemi á Norðurlöndum;
—    að stuðla að aukinni athygli umheimsins á norrænni menningu og stofna til átaksverkefna í því skyni að treysta og auðga menningarsamvinnu á Norðurlöndum í samskiptum við aðrar Evrópuþjóðir og á alþjóðavettvangi.
    Lýst er áformum um að beina auknum fjárveitingum sérstaklega að eftirtöldum viðfangsefnum:
—    að efla Menningarsjóð Norðurlanda;
—    að efla framleiðslu og dreifingu norræns sjónvarpsefnis og kvikmynda;
—    að beina auknum kröftum að norrænni málsamvinnu;
—    að auka starf í þágu barna og ungmenna;
—    að efla samvinnu á sviði lista;
—    að búa í haginn fyrir aukið alþýðlegt menningarsamstarf;
—    að skerpa ímynd norræns menningarsamstarfs í Evrópu og innan Norðurlanda;
—    að stofna til sérstakrar menningarkynningar ár hvert í formennskulandinu (í tengslum við þing Norðurlandaráðs).
    Á vegum ráðherranefndar menningarmála hefur framangreindum áformum verið fylgt eftir í sambandi við undirbúning norrænu samstarfsfjárlaganna fyrir árið 1994. Því aukna fjármagni, sem þar er gert ráð fyrir til menningarmála, á að verja sem hér segir:

Millj. d.kr.

Til Menningarsjóðs Norðurlanda
6

—    norræns kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfs
2

—    málsamvinnu
1
,3
—    starfs í þágu barna og ungmenna
4
,1
—    samstarfs á sviði lista
3
,8
—    alþýðlegs menningarsamstarfs
2
,1
—    norrænnar menningarkynningar í Evrópu
4
,1
—    menningarkynningar í tengslum við þing Norðurlandaráðs
3
,6
—    verkefna sem kostuð eru af ráðstöfunarfjárveitingu
2


    Meðal einstakra nýrra verkefna, sem samþykkt hefur verið að veita fé til eða eru á döfinni, skulu fáein nefnd:
—    Styrkir til dreifingar á norrænum kvikmyndum.
—    Myndbandasafn í Norræna húsinu í Reykjavík. Til þess eru veittar 300 þúsund d.kr. í tengslum við áætlun um málsamvinnu.
—    Ferðastyrkir handa ungum listamönnum.
—    Norrænt myndlistarár 1995.
    Jafnhliða áætlanagerð um ný samstarfsverkefni hefur verið haldið uppi öflugri og fjölbreytilegri starfsemi á vegum þeirra stofnana og annarra samstarfsaðila sem fyrir eru á menningarmálasviðinu.
    Norræna húsið í Reykjavík minntist 25 ára afmælis síns í ágúst 1993 með fjölskrúðugri dagskrá, þar á meðal málstefnu þar sem m.a. var fjallað um stöðu Íslendinga í samfélagi norrænna þjóða.
    Norðurlandahúsið í Færeyjum, sem varð 10 ára vorið 1993, hefur mjög stuðlað að auknum menningarsamskiptum Íslendinga og Færeyinga. Menntamálaráðuneytið hefur árlega um skeið veitt stofnuninni nokkurn styrk vegna þessara samskipta af fjárveitingu til norrænnar samvinnu.
    Haustið 1993 hófst framkvæmd verkefnis sem á íslensku hefur verið nefnt „Norræn æska — norræn list“ og felst m.a. í heimsóknum norrænna listamanna í skóla víða um Norðurlönd til að vinna með nemendum. Skólar á Akureyri og víðar við Eyjafjörð taka þátt í verkefninu hér á landi.

3.3. Athugun á norrænni sjónvarpsrás.
    Í ársbyrjun 1993 fólu menningarmálaráðherrar Norðurlanda stjórnarnefnd norræns menningar- og fjölmiðlasamstarfs að kanna tæknilegar og fjárhagslegar forsendur norrænnar sjónvarpsrásar sem miðuð væri öðru fremur við sendingar frétta og fréttatengds efnis um gervitungl. Samstarfsráðherrarnir höfðu hlutast til um athugun þess máls að frumkvæði Eiðs Guðnasonar, þáverandi samstarfsráðherra, í desember 1992. Stjórnarnefndin skilaði greinargerð þar sem lýst var þremur mismunandi kostum og árlegur kostnaður áætlaður um 48–77 millj. d.kr., háð því hve mikið af efni yrði þýtt. Á fundi ráðherranefndar menningarmála 20. janúar 1993 varð niðurstaðan sú að slíkt verkefni mundi ekki rúmast innan þess fjárhagsramma sem fyrirhugaðri eflingu menningarmálasamstarfsins væri markaður.
    Forsætisráðherrarnir tóku málið síðan upp og fólu opinberu sjónvarpsstofnununum á Norðurlöndum að undirbúa og leggja fram tillögu um sameiginlega norræna sjónvarpsrás. Í skýrslu sjónvarpsstofnananna var reifuð tillaga um rás með viðamikilli dagskrá sem kostuð yrði aðallega af notendagreiðslum. Hins vegar var gert ráð fyrir að á uppbyggingarskeiði nytu stöðvarnar lána eða ríkisábyrgða af hálfu Norðurlandaríkjanna, um 550 millj. d.kr., auk þess sem kostnaður vegna þýðinga og textunar, áætlaður um 100 millj. d.kr. á ári, yrði greiddur af ríkjunum. Danska ríkisútvarpið stóð ekki að tillögunni. Skýrslan kom til umfjöllunar á fundi forsætisráðherranna í Maríuhöfn 7. nóvember 1993.
    Í samþykkt forsætisráðherranna um málið var tillagan talin áhugaverð að því er varðaði dagskrárefni og tilhögun dreifingar en tekið fram að ekki væru að mati ráðherranna tök á að ríkissjóðir landanna veittu þann fjárhagsstuðning sem gert væri ráð fyrir. Var því vísað til sjónvarpsstofnananna að meta sjálfar hvaða möguleikar kynnu að vera á að koma upp norrænni sjónvarpsrás. Áður höfðu forsætisráðherrarnir beint því til menningarmálaráðherranna að kanna hvernig bæta mætti skilyrði til dreifingar á sjónvarpsefni milli norrænna grannlanda og efla gagnkvæm skipti á sjónvarpsefni og samstarf um framleiðslu þess. Stjórnarnefnd norræns menningar- og fjölmiðlasamstarfs hefur unnið að gerð skýrslu um forsendur aukins samstarfs af þessu tagi.
    Stjórnarnefnd kynningar á norrænni menningu erlendis átti hlut að mörgum verkefnum árið 1993 sem fyrr, bæði í Evrópu og Ameríku. Sem dæmi má nefna umfangsmikla sýningu á listhönnun frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum sem haldin var í höfuðborgum allra Eystrasaltsríkjanna og norræna ljóðakynningu í Bandaríkjunum, hvort tveggja með íslenskri þátttöku.

4. Rannsóknir og menntun.



4.1. Mennta- og vísindamál.
    Í þeirri áætlun ráðherranefndar menningar- og menntamála um eflingu og breytt skipulag norræns samstarfs á þessum sviðum, sem lögð var fyrir 42. þing Norðurlandaráðs og getið var hér að framan, er lýst því markmiði að búa í haginn fyrir norrænt mennta- og vísindasamfélag. Þannig eigi að vera jafnauðvelt að ástunda hvers konar samskipti og starfsemi á sviði menntunar og vísinda innan Norðurlanda sem heildar og í eigin landi. Lögð er áhersla á eftirtalin samstarfssvið:
—    námsmanna- og kennaraskipti,
—    norrænt rannsókna- og rannsóknamenntunarsamfélag,
—    stuðning við Vestur-Norðurlönd sem forgangsverkefni,
—    norræna málsamvinnu,
—    fullorðinsmenntun og alþýðufræðslu.
    Við undirbúning norrænu samstarfsfjárlaganna fyrir árið 1994 var tekið mið af þessum áherslum. Framlög til mennta- og vísindamála eru þar aukin sem nemur um 20 millj. d.kr., en með tilfærslum á grundvelli ákvarðana um aukinn sveigjanleika í fjárveitingum voru alls um 30 millj. d.kr. til ráðstöfunar í átaksverkefni innan þessa geira. Af því fé renna tæplega 10 millj. d.kr. sem viðbótarframlag til NORDPLUS-styrkjakerfisins, um 5,5 millj. d.kr. til Norræna rannsóknaháskólans (NorFA), 1,5 millj. d.kr. til áætlunarinnar um norræna málsamvinnu (og gert ráð fyrir að sú auking nýtist ekki síst í þágu Vestur-Norðurlanda) og um 2,5 millj. d.kr. til verkefna á sviði fullorðinsfræðslu.
    Í júní 1993 staðfesti ráðherranefnd mennta- og vísindamála nýja starfsáætlun fyrir stjórnarnefnd norræns skólasamstarfs. Lögð verður áhersla á samstarfsverkefni sem tengjast sameiginlegri menningararfleifð norrænna þjóða eða gefa færi á hagræðingu með því að vinna sameiginlega að viðfangsefnum. Stjórnarnefndin stóð vorið 1993 að ráðstefnu í Reykjavík um norræna menningarfræðslu í skólum í samvinnu við ýmsar samstarfsnefndir á menningarsviðinu og með stuðningi Menningarsjóðs Norðurlanda. Þátttakendur í ráðstefnunni komu hvaðanæva af Norðurlöndum.
    Ráðherranefnd mennta- og vísindamála hefur ákveðið að gerðar verði ráðstafanir til að koma á laggirnar tölvuneti sem allir skólar á Norðurlöndum eigi kost á að tengjast og nota megi til margvíslegra samskipta og upplýsingamiðlunar. 300 þús. d.kr. af norrænu fé verður varið til þessa á næsta ári.
    Haldið er áfram framkvæmd áætlunar um norræna málsamvinnu, en áætlunin tekur til áranna 1990–95. Innan vébanda hennar er m.a. efnt til margvíslegra námskeiða, einkum fyrir kennara og túlka, og hafa Íslendingar notið góðs af því starfi. Norræna húsið í Reykjavík hefur fengið styrki til að halda námskeið í íslensku fyrir norræna þátttakendur. Einnig er starf skólaráðgjafans, sem þar hefur aðsetur, kostað af fjárveitingum til áætlunarinnar um málsamvinnu. Meðal annarra verkefna, sem styrkt eru af því fé, er rannsókn Auðar Hauksdóttur cand. mag. á dönskukennslu í íslenskum grunnskólum.
    Á fundi ráðherranefndar mennta- og vísindamála í Maríuhöfn á Álandseyjum 9. október 1993 voru samþykkt drög að norrænum samningi um aðgang að æðri menntun. Samningurinn kveður á um að norrænir námsmenn skuli eiga rétt til inngöngu í háskóla hvarvetna á Norðurlöndum með sömu eða sambærilegum skilyrðum og heimamenn. Gert er ráð fyrir að samningur þessi verði undirritaður í febrúar 1994 og komi til framkvæmda frá upphafi háskólaársins 1994–95. Heimilt verður þó að beita takmörkunum í einstökum greinum fyrstu árin ef nauðsynlegt reynist, eftir nánara samkomulagi. Jafnframt var samþykkt að stefna að því að gera fyrir 1. júlí 1996 samning um gagnkvæmar greiðslur milli landanna vegna kennslukostnaðar í tengslum við námsvist norrænna stúdenta. Tekið er þó fram að slíkt greiðslukerfi eigi ekki að taka til stúdenta frá Íslandi.
    Starfandi er norræn samstarfsnefnd um stuðning við kennslu í norrænum tungumálum og menningu við erlenda háskóla. Að tilhlutan ráðherranefndar mennta- og vísindamála var á árinu 1993 tekin saman skýrsla um stöðu mála í þessum efnum til undirbúnings tillögum um hvernig samhæfa megi og efla starfsemi norrænna sendikennara utan Norðurlanda.
    Í reglum um Norræna vísindaráðið er kveðið á um að ráðið skuli á þriggja ára fresti leggja fram drög að stefnumiðum fyrir starfsemi sína. Í mars 1993 voru staðfest slík stefnumið fyrir tímabilið 1993–95 að lokinni umfjöllun í Norðurlandaráði. Í stefnuyfirlýsingunni er gerð grein fyrir því á hvaða sviðum vísindaráðið hyggst einkum beita sér á næstu árum, en því er ætlað að efla norrænt vísindasamstarf, bæði á sviði grunnvísinda og hagnýtra rannsókna, svo og um rannsóknamenntun. Áhersla verður lögð á að stuðla að greiðum samskiptum vísindamanna og sameiginlegri nýtingu þeirrar aðstöðu sem býðst til rannsóknamenntunar á Norðurlöndum. Einnig mun ráðið beita sér fyrir aukinni upplýsingamiðlun og umfjöllun um mál sem tengjast vísindastefnu og eru ofarlega á baugi í löndunum öllum. Þá er og ráðgert að efla samráð og samhæfingu að því er varðar norræna þátttöku í fjölþjóðlegu vísindasamstarfi.


5. Umhverfismál.



Almennt.
    Eins og áður hefur komið fram var gerð breyting á skipulagi norrænnar samvinnu 1992 og samþykkt áætlun sem tók gildi 1. janúar 1993 og starfa nú fimm fastar vinnunefndir undir embættismannanefnd um umhverfismál (ÄK-M).

Norrænt samstarf að umhverfismálum.
    Á liðnu ári hefur áhersla verið lögð á að efla samstarfið og laga það að tækifærum sem opnast vegna aðildarumsókna norrænna landa að Evrópubandalaginu, gildistöku samnings um Evrópskt efnahagssvæði og þróunar í Austur-Evrópu og Rússlandi. Þessar áherslur þarf að skoða í ljósi þess að árangursrík stefna í umhverfismálum þarf að byggja á samvinnu milli atvinnugreina og alþjóðlegu samstarfi. Leiðarljós í eflingu norræns samstarfs í umhverfismálum er þau forgangsverkefni sem kynnt voru í yfirlýsingu ráðherranefndarinnar sem samþykkt var í Kirkenes í Noregi í september 1992. Eitt markmiða yfirlýsingarinnar er að afla alþjóðaviðurkenningar á stefnu Norðurlandanna í umhverfismálum og samræma alþjóðleg viðhorf afstöðu Norðurlandanna. Á árinu hefur verið unnið að tillögu ráðherranefndarinnar um norræna stefnu í umhverfismálum fyrir tímabilið mars 1994 til marsmánaðar 1996. Þá hefur verið gert yfirlit yfir norræna þátttöku á alþjóðavettvangi í samstarfi milli stofnana sem vinna að umhverfismálum.
    Tekist hefur að efna til samvinnu stofnana og nefnda á sviði umhverfismála við þá aðila sem hafa lykilhlutverki að gegna í umhverfismálum. Norræna embættismannanefndin í umhverfismálum (ÄK-M) og embættismannanefndin í skógar- og landbúnaðarmálum (NÄJS) hafa hrundið úr vör samstarfi að umhverfismálum á sviði landbúnaðar þar sem áhersla er lögð á umhverfisvöktun, erfðaefni og ræktarland, svo og almenna samvinnu aðila á verksviði þessara nefnda. Verkefnasamvinna er hafin við aðila í sjávarútvegi. Samstarf um hagrænar hliðar umhverfisnefndar við þá sem fjalla um fjármál á sér lengri sögu. Umræður hófust um verkefni sem lúta að umhverfisþáttum samgöngumála.
    Á árinu hefur enn fremur verið unnið að endurskoðun á samstarfinu í ljósi forgangsröðunar umhverfisráðherranna á áherslum á næstu árum. Með endurskoðuninni hefur föstum vinnunefndum verið fækkað úr 12 í fimm. Nefndirnar fást við umhverfismál sem varða loft og haf, náttúru og útivist, umhverfisvöktun og upplýsingar, efnamengun og hreinni framleiðslutækni.
    Á vegum norrænu ráðherranefndarinnar var á árinu 1993 varið rúmum 32 millj. d.kr. til umhverfismála.

Yfirlit yfir störf vinnunefnda árið 1993.
Vinnunefnd um umhverfi lofts og hafs.
    Um áramótin 1992–1993 varð allsherjaruppstokkun á vinnunefndum um umhverfismál á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Meðal annars var slegið saman vinnunefndum um loft-, haf- og vatnsmengun og mynduð ofangreind nefnd. Til þess að koma starfinu í nýju nefndinni í gang voru haldnir þrír fundir á árinu en framvegis verða aðeins tveir fundir árlega.
    Viðfangsefni nefndarinnar er að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og móta tillögur að aðgerðum á alþjóðavettvangi og heima fyrir, til að bæta umhverfið og draga úr hvers konar mengun, þ.e.:
—    að móta samnorræna stefnu um varnir gegn mengun umhverfis, byggða á vísindalegum rökum,
—    að gera tillögur um hvernig bestum árangri má ná með sem minnstum tilkostnaði og undirbúa alþjóðareglur í því sambandi.
    Til að vera í stakk búin til að takast á við þetta skipaði nefndin þrjá verkefnahópa til að annast tiltekin verkefni og fá hóparnir fjárveitingar í því skyni. Auk þess annast nefndin sjálf vissa málaflokka. Þau verkefni, sem styrkt eru, miða að því að skýra ferli mengunarefna í umhverfinu og er því ýmiss konar líkanagerð mikilvæg. Einnig eru fengnir helstu sérfræðingar á mikilvægum sviðum, svo sem hvað varðar eyðingu ósonlagsins og gróðurhúsaáhrif, til að rita yfirlitsgreinar um stöðu rannsókna og þekkingar í þessum málaflokkum.
    Ísland á tvo fulltrúa í vinnunefndinni, auk ritara í hálfu starfi. Ísland á auk þess fulltrúa í tveimur af verkefnahópunum.
    Árið 1993 var ekki veitt fjármagn til verkefna undir stjórn íslenskra aðila, en Íslendingar voru þátttakendur í verkefnum og fengu fjármagn í gegnum þau. Fyrir næsta ár eru samþykkt þrjú verkefni á vegum íslenskra aðila að fjárhæð 3.250.000 ísl. kr., en heildarfjárframlög til nefndarinnar eru þó skorin niður á milli ára.

Náttúruvernd og útivistarmál.
    Náttúruverndar- og útivistarnefndin hefur það hlutverk að vinna að málefnum er varða náttúruvernd og útivistarmál á Norðurlöndum og leggja grunn að því að hægt sé að skilgreina samnorræn markmið í þeim málaflokki.
    Verksviðið er skilgreint þannig að áhersla er lögð á efirfarandi málefni: Hvernig samþykktinni um varðveislu fjölbreytileika lífs (Convention on Biological Diversity) verði framfylgt á Norðurlöndum, norrænar vinnureglur um verndun gróðurs, dýralífs og búsvæða/lífsvæða dýra og plantna og hvernig Norðurlöndin geti sameiginlega haft frumkvæði í landslagsvernd, fornleifavernd og útivistarmálum og útfærslu á vöktunarkerfi fyrir lífverur í útrýmingarhættu. Nefndin á einnig að gæta þess að samræma starf sitt starfi annarra vinnunefnda undir embættismannanefndinni og annarri alþjóðasamvinnu og samþykktum.
    Náttúruverndar- og útivistarnefndin veitti fjármagn til um 15 verkefna á árinu. Þar af er helmingur á lokastigi, en nokkur ný verkefni, sem hefjast árið 1994, eru í undirbúningi. Í framkvæmdaáætlun fyrir 1994, sem skilgreinir nánar verksvið nefndarinnar, var lögð áhersla á fimm meginverksvið sem eru: Áætlun um hvernig fylgja skuli eftir samþykktinni um fjölbreytileika lífs, áætlun um hvernig fylgja skuli eftir samþykkt evrópsku skógarráðstefnunnar í Finnlandi 1993 um sjálfbæra nýtingu skóga, útivistarmál á Norðurlöndum, verndun menningarlandslags, lífríkis þess og menningarminja og áhrif mengunar frá landbúnaði á Eystrasaltið. Við val á verkefnum hefur nefndin litið til þess að ætla megi að niðurstöður verkefna hafi víðtækt notagildi fyrir þá er starfa að náttúruvernd og útivistarmálum á Norðurlöndum, auk þess sem þau þurfa að falla innan framangreinds verksviðs og fylgja framkvæmdaáætlun nefndarinnar. Þó voru ekki ákveðin nein ný verkefni um áhrif landbúnaðarmengunar á Eystrasaltið þar sem miklar rannsóknir eru á Eystrasaltinu á öðrum vettvangi.
    Íslendingar voru þátttakendur í flestum þeirra verkefna er lauk á árinu og í undirbúningi er þátttaka Íslendinga í nýjum verkefnum.

Umhverfisvöktun og meðferð gagna (Nordisk monitoring og data grupp (NMD)).
    Hlutverk NMD að samræma umhverfisvöktun og meðferð gagna á Norðurlöndunum og nágrannasvæðum. Þetta á að leiða til að betri heildarmynd af ástandi umhverfisins á þessu svæði fáist. Til þess að ná þessu markmiði þá skal nefndin gera eftirfarandi:
—    byggja upp og samræma langtímaumhverfisvöktun og meðhöndlun gagna á Norðurlöndum,
—    vinna að gerð skýrslu um ástand umhverfisins á Norðurlöndunum; skýrslan skal nýtast valdhöfum og öðrum við ákvarðanatöku og vera undirlag fyrir vinnu í alþjóða samhengi;
—    stuðla að því að vöktun og meðferð gagna á nágrannasvæðunum (í Rússlandi og Eystrasaltsríkjunum) verði sambærileg við það sem gerist á Norðurlöndunum,
—    ýta undir norræna samvinnu á alþjóðavettvangi í sambandi við umhverfisvöktun og vernd.
    Af skiljanlegum ástæðum tók nefndin við verkefnum frá eldri nefndum sem voru lagðar niður og af þeim sem Ísland tók þátt í má nefna eftirfarandi: vöktun á Norður-Atlantshafi, NCC-kódamiðstöð, útgáfu skýrslu um ástand umhverfisins (Miljötilståndsrapport) og vinnuhóp um umhverfisnema (Miljöindikatorer).
    Að auki voru haldnir vinnufundir um nokkur verkefni í því augnamiði að kanna hvort æskilegt væri að halda þeirri vinnu áfram og tók Ísland m.a. þátt í vinnufundum um gæðatryggingu á vöktunargögnum (Kvalitetssäkring av Miljödata) og líffræðilega vöktun í ám á norðurslóðum.
    Ákvörðun um framhald þessara verkefna verður tekin þegar skýrslur frá þessum vinnufundum liggja fyrir.
    Nefndin sér einnig um að stýra vöktunarverkefnum sem eru sérstaklega til aðstoðar við Eystrasaltslöndin.
    Þar sem ekki hafði verið um þátttöku að ræða af Íslands hálfu í þeim vinnuhópum sem mynduðu grunninn að þessari nýju nefnd einkenndist starfið af því að kynna sér það sem fyrir var og hafa áhrif á hvernig markmiðum skyldi náð.

Efnavörur.
    Vinnunefnd um efnavörur er í forsvari fyrir norrænu samstarfi á sviði eiturefna og hættulegra efna. Nefndin stuðlar að söfnun upplýsinga um notkun og útbreiðslu eiturefna og hættulegra efna og um áhrif á heilsufar og umhverfi og hún gerir tillögur um aðgerðir þegar þörf krefur til að takmarka notkun efnanna. Auk þess er hlutverk nefndarinnar að miðla upplýsingum, stuðla að samræmingu verkefna og að samvinnu stjórnvalda. Á vegum nefndarinnar hefur í auknum mæli verið unnið að verkefnum sem nýtast í alþjóðlegri samvinnu innan Sameinuðu þjóðanna, OECD, EB og EFTA og styrkja stöðu Norðurlandaþjóðanna á viðkomandi vettvangi. Ísland hefur tekið þátt í starfi nefndarinnar frá því árið 1989.
    Meðal verkefna nefndarinnar má nefna: Könnun á og flokkun tiltekinna efna og efnasambanda með tilliti til áhrifa á heilsufar manna og umhverfi; verkefni er varða ofnæmisvaldandi efni; öflun upplýsinga um eiturefna- og umhverfiseiturefnafræðilega eiginleika varnarefna; öflun upplýsinga um og ábendingar um leiðir til að takmarka notkun ósoneyðandi efna; aðgerðir til að draga úr notkun þungmálma og lífrænna klórefnasambanda. Í tengslum við þessi verkefni voru gefnar út ýmsar skýrslur. Meðal þeirra má nefna skýrslu um áhrif tiltekinna efna á heilsu, skýrslur um snertiofnæmi, sápu og hreinsiefni, takmörkun á notkun etera og aðferðir við efna- og málmahreinsun án ósoneyðandi efna. Þeim skýrslum, sem gefnar hafa verið út á vegum nefndarinnar, hefur verið dreift til hagsmunaaðila á Íslandi.
    Undir vinnunefndinni starfa ráðgefandi nefndir og eiga Íslendingar fulltrúa í tveimur þeirra, þ.e. nefnd sem fjallar um takmörkun á notkun ósoneyðandi efna og nefnd sem vinnur að hættuflokkun umhverfisskaðlegra efna. Á vegum vinnunefndarinnar um ósonskaðleg efni var á árinu haldin ráðstefna um eftirlits- og skráningarkerfi fyrir ósoneyðandi kælimiðla.

Hreinni tækni.
    Óskað var eftir því í kjölfar breytinganna á skipulagi vinnunnar að vinnan í hópunum yrði markvissari en jafnframt sveigjanleg eftir þörfum. Vænst er áþreifanlegri niðurstaðna af vinnu hópsins þannig að meta megi árangur (t.d. á tveggja ára fresti). Verkefnum skal forgangsraða. Jafnframt er stefnt að því að starf á vegum ráðherranefndarinnar fái meira vægi á alþjóðlegum vettvangi. Leggja á áherslu á alþjóðasamvinnu, stefnumarkandi mál og skilgreina sameiginleg svið.
    Helstar breytingar og nýjar áherslur í vinnunefndinni eru þær að hópurinn á að vinna að stefnumarkandi málum og málefnum sem eru pólistískt mikilvæg hverju sinni. Jafnframt á hópurinn að vinna nær ráðherrunum, þ.e. vinna að tilteknum tillögum til ráðherranna. Hópurinn á fyrst og fremst að fjalla um ásættanlega meðhöndlun úrgangs út frá umhverfissjónarmiðum og lágmörkun úrgangsefna með fjögur meginþemu: spilliefni, hreinni framleiðslutækni, ábyrgð framleiðenda og hagræna stjórntækni.
    Á árinu var fjallað um samnorrænar lausnir á sviði hreinnar framleiðslutækni. Í sambandi við líftímagreiningu (LCA) var unnið að handbók á ensku þar sem lágmarkskröfur eru skilgreindar. Fjallað var um samnorrænar kröfur (Eco-audit) hvað endurskoðun eigin fyrirtækja (Miljørevision) varðar. Tekið var upp samráð við EB um bestu fáanlega tækni (BAT). Loks var almennt fjallað um að efla upplýsingastreymi og norræna samvinnu á sviði tæknilegra leiðbeininga fyrir iðnað og eftirlitsaðila.
    Á vegum nefndarinnar eru nokkrir undirhópar sem vinna að tilteknum verkefnum og á árinu var unnið að fjölda verkefna. Unnið var að kortlagningu umbúða á Norðurlöndum sem hugsanlega getur haft áhrif á þá vinnu sem er í gangi hjá EB og nýst til að vinna að norrænni framkvæmdaáætlun fyrir umbúðir. Ráðgjafi á vegum nefndarinnar fór til allra Norðurlandanna og lagði fram stöðuskýrslu um verkefnið jafnframt því sem lokið var við könnun á magni umbúða á Íslandi árið 1991. Í lok nóvember var fundur í Stokkhólmi þar sem farið var yfir stöðu einstakra undirverkefna. Verkefninu á að ljúka 1994.
    Á vegum nefndarinnar er undirhópur sem fjallar um bestu fáanlega tækni (BAT). Lögð er áhersla á að vinnan nái til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. BAT-hópurinn lauk vinnu við eftirtaldar atvinnugreinar á árinu: yfirborðsmeðhöndlun málma, sútun og vefnaðarvöruiðnað (ullarlitun). Jafnframt komst hópurinn langt áleiðis með skipasmíðastöðvar og bílalökkun og hóf umfjöllun um fiskiðnað og vélaverkstæði.
    Undirhópur um spilliefni hefur unnið að eftirtöldum undirverkefnum: endurvinnslu stálryks, meðhöndlun úrgangs sem inniheldur kvikasilfur og kemur frá brennslu spilliefna, svo og meðhöndlun mengaðs jarðvegs og rafgeyma. Hópurinn mun skila greinargerð 1994.
    RT-hópurinn tók á árinu upp samvinnu við vinnunefndina um efnavörur. Byrjað var á því að ræða möguleg samvinnuverkefni hópanna í tengslum við vörur og efni sem koma í veg fyrir endurvinnslu og um CFC-efni og söfnunarkerfi fyrir þau.
    Áhersla hefur verið lögð á dreifðar byggðir og lausnir fyrir eysamfélög. Í maí sl. var haldin námsstefna í Færeyjum um fiskúrgang. Þar var ákveðið að skoða úrgang frá rækjuverksmiðjum nánar, en ekki var farið út í tiltekið verkefni að sinni. Lögð var fram skýrsla um móttöku sorps og úrgangsolíu í höfnum á Íslandi árið 1991 sem Siglingamálastofnun gerði. Nokkuð var rætt um úrgang frá skipum og skilgreint hefur verið verkefni sem nær yfir öll Norðurlöndin. Unnið var að úttekt á sorphirðu í litlum byggðarlögum á Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Álandseyjum og Borgundarhólmi. Lokið var við verkefni um hreinni tækni og lágmörkun úrgangsefna í minni fyrirtækjum og forverkefni um lífrænan úrgang og í undirbúningi er að fara út í að framkvæma jarðgerð í litlu byggðarlagi.


6. Réttindamál þegnanna.



6.1. Embættismannanefndin um heilbrigðis- og félagsmál.

    Norræna heilbrigðis- og félagsmálanefndin hefur yfirumsjón með þeim verkefnum sem eru á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og að nokkru leyti á vegum félagsmálaráðuneytis í norrænu samstarfi.
    Gert er ráð fyrir að fjórir aðalmenn séu frá hverju landi í nefndinni og fjórir varamenn. Í nefndinni eru nú: Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Ólafur Ólafsson landlæknir og Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri frá heilbrigðisráðuneytinu og Margrét Margeirsdóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti. Varamaður er Kristján Guðjónsson, deildarstjóri í Tryggingastofnun ríkisins.
    Starfsemi norrænu heilbrigðis- og félagsmálanefndarinnar er þannig háttað að fastir fundir eru tvisvar á ári, og er gert ráð fyrir að þessir fundir standi í tvo daga.
    Nefndin hittist einnig á stuttum fundum þegar Norðurlandaráð kemur saman og þegar heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar halda árlega sumarfundi sína.
    Á stuttu fundunum, sem eru í tengslum við þing Norðurlandaráðs og ráðherrafundi, eru eingöngu tekin fyrir mál sem hefur verið frestað á næsta fundi áður eða önnur mál sem skrifstofa ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn telur að að ræða þurfi. Þá er einnig á þessum fundum gengið að fullu frá dagskrám í tengslum við ráðherrafundi eða fundi heilbrigðis- og félagsmálaráðherranna með nefndum Norðurlandaráðs.
    Á fundunum í apríl og október er annars vegar rætt um fjárlagatillögur og nýtingu þess fjár sem til þessa starfs er ætlað og hins vegar rætt um þá starfsemi sem nefndin hefur umsjón með og rétt þykir að rekja þá starfsemi að nokkru.
    Nefndin hefur umsjón með eftirtöldum stofnunum og nefndum og verður hér á eftir gerð nákvæmari grein fyrir störfum og viðfangsefnum flestra þeirra:
—    Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn í Gautaborg (NHV).
—    Norræna stofnunin til prófunar efna til tannlækninga (NIOM).
—    Norræna lyfjanefndin (NLN).
—    Norræna rannsóknanefndin á sviði vímuefna (NAD).
—    Norræna nefndin um heilbrigðistölfræði (NOMESKO).
—    Norræn framkvæmdaáætlun um krabbamein.
—    Norræna hagskýrslunefndin (NOSOSKO).

6.1.1. Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn í Gautaborg (NHV).
    Aðalverkefni stjórnar NHV á árinu 1994 verða að halda áfram þeim sparnaðar-, hagræðingar- og skipulagsverkefnum sem unnið hefur verið að í skólanum jafnframt því að aðlaga skólann harðnandi samkeppni og tryggja að skólinn verði í enn ríkari mæli „þvernorrænn og þverfaglegur“.
    Á síðasta ári var gerð umfangsmikil úttekt á starfsemi NHV. Í þessari úttekt kemur annars vegar fram lof um skólann og spá um bjarta framtíð, hins vegar tillögur og ábendingar um ýmislegt sem styrkt getur skólann við þær nýju samkeppnisaðstæður sem myndast hafa sl. 2–3 ár.
    Þær tillögur til breytinga, sem mestu máli skipta í úttektinni, eru tillögur um breytingar á skipulagi náms við skólann. Stjórn skólans samþykkti í júlí sl. að fela stjórnendum skólans að leggja fram framkvæmdaáætlun um slíka breytingu. Á fundi í nóvember sl. voru þessar tillögur síðan samþykktar í stjórn skólans og stjórnendum falið að hrinda þeim í framkvæmd. Það verður annað höfuðverkefni stjórnar skólans á næsta ári að fylgja því eftir að þessar breytingar nái fram að ganga eins fljótt og unnt er.
    Annað sem fulltrúar Íslands hafa rætt um að taka upp sem stefnuskrármál er að:
—    koma til leiðar rannsóknum og vísindastefnu, m.a. í doktorsnámi, þannig að rannsóknavinna verði í framtíðinni meira tengd raunverulegum verkefnum og fjármögnuð af utanaðkomandi aðilum,
—    heimila skólanum að annast ráðgjöf, m.a. fyrir heilbrigðisyfirvöld,
—    ráða rekstrarlegan framkvæmdastjóra að skólanum,
—    vega og meta kosti og galla og undirbúa ákvörðun um hvort heimila skuli ensku sem kennslumál við skólann, m.a. með tilliti til óska Finna,
—    vega og meta kosti og galla og undirbúa ákvörðun um hvort auka skuli alþjóðlega starfsemi skólans, m.a. í Eystrasaltslöndunum,
—    endurskoða ráðningar- og hæfniskröfur, m.a. með aukinni áherslu á kennslufræði,
—    endurskoða ráðningarkjör með tilliti til norræns þjóðernis, launakjara og húsnæðishlunninda.
    Þetta eru þau áhersluatriði sem fulltrúar Íslands í skólastjórn og námsráði ásamt nemendafulltrúum telja ástæðu til að taka til ítarlegrar umræðu og ákvörðunar á næstunni og næstu árum.

6.1.2. Norræn stofnun til prófunar efna til tannlækninga (NIOM).
    NIOM er norræn stofnun sem stofnuð var árið 1972 og heyrir undir norrænu ráðherranefndina.
    Í stjórn stofnunarinnar er einn fulltrúi frá hverju Norðurlandanna fimm og annar til vara, auk eins fulltrúa starfsfólks.
    Verkefnum NIOM er skipt í fjóra meginþætti, þeir eru:
    Gerð staðla.
    Prófun efna.
    Rannsóknir.
    Fræðsla.
    Á alþjóðavettvangi tekur NIOM þátt í mótun staðla varðandi gæði og öryggi við tannlækningar með þátttöku í t.d. ISO (International Organization for Standardisation), CEN (Comité Européen de Normalisation) og FDI (Federation Dentaire International).
    Stofnuninni er skipt í eftirtaldar þrjár deildir:
    Stjórnunar- og líffræðideild.
    Fræðslu- og eðlisfræðideild.
    Efnafræðideild.
    Stöðugildi eru 28 og vinna við stofnunina sérfræðingar í tannlækningum, líffræði, eiturefnafræði, eðlisfræði, málmfræði og efnafræði.
    Efni til tannlækninga, sem boðin eru til sölu á Norðurlöndunum, eru prófuð og viðurkennd eða hafnað af NIOM, en til að hljóta viðurkenningu af NIOM þurfa þau að uppfylla kröfur sem byggjast á alþjóðastöðlum eða lágmarkskröfum sem NIOM setur.
    Einnig tekur NIOM þátt í starfi við að setja og endurskoða alþjóða- og Evrópustaðla.
    Rannsóknarstörf NIOM njóta alþjóðlegrar viðurkenningar og eru oft unnin í samvinnu við aðrar rannsóknastofnanir á sviði tannlækninga, læknisfræði og eðlisfræði.
    Mikilvægur þáttur í starfi NIOM er dreifing upplýsinga til notenda á öllum Norðurlöndunum og hafa tengslin við NIOM reynst hagkvæm íslenskum tannlæknum, tannsmiðum og öðru aðstoðarfólki, vegna upplýsinga sem fengist hafa varðandi gæði og aukaverkanir efna til tannlækninga, ekki síst varðandi ný efni sem framleiðendur reyna oft að selja áður en þau eru fullreynd.
    Síðastliðið haust fékk NIOM þriggja ára starfshlé frá ráðherranefndinni, en í ljósi aukinnar samvinnu Evrópuþjóða er NIOM nú að aðlaga störf stofnunarinnar breyttum aðstæðum. Vegna fjárhagslegra þrenginga á öllum Norðurlöndunum, ekki síst í Finnlandi, hefur NIOM orðið að leita leiða til sparnaðar og aukningar eigin tekna frá fyrirtækjum í sambandi við prófanir á efnum.

6.1.3. Norræna lyfjanefndin (NLN).
    
Norræna lyfjanefndin er samstarfsvettvangur Norðurlanda í lyfjamálum.
    Tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna sitja í nefndinni, þ.e. alls tíu manns og jafnmargir varamenn, skipaðir til fjögurra ára í senn. Nefndin heldur fundi tvisvar á ári. Fulltrúar Íslands í nefndinni eru nú Árni Kristinsson, yfirlæknir á Landspítala, og Einar Magnússon, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Varamenn eru Guðrún S. Eyjólfsdóttir, forstöðumaður Lyfjaeftirlits ríkisins, og Sigurður B. Þorsteinsson, læknir á Landspítala og formaður lyfjanefndar. Skipunartími þeirra er til 1. janúar 1996. Núverandi formaður NLN er Knud Kristensen, deildarstjóri hjá Sundhedsstyrelsen í Danmörku.
    Skrifstofa NLN er í Uppsölum í Svíþjóð og starfsmenn eru fjórir. Ulf Janzon, sænskur lyfjafræðingur, veitir skrifstofunni forstöðu.
    Kostnaður við störf nefndarinnar er um 3 millj. s.kr. og greiðist að mestu með framlagi frá norrænu ráðherranefndinni, en einnig með sértekjum nefndarinnar sem voru á árinu 1992 741.000 s.kr., aðallega vegna námskeiðahalds.
    Verkefni nefndarinnar eru:
—    að stuðla að samræmingu laga, reglugerða og framkvæmd lyfjamála á Norðurlöndum og vinna að norrænni skráningu og norrænni merkingu lyfja,
—    að stuðla að norrænni samvinnu um samstarf Evrópu um lyfjamál innan Evrópsku lyfjaskrárnefndarinnar, EFTA og EB,
—    að stuðla að norrænum rannsóknum og samvinnu um lyfjamál og vera ráðgefandi fyrir ríkisstjórnir Norðurlanda og norrænu ráðherranefndina,
—    að gera reglulega samanburð á lyfjanotkun og kostnaði milli Norðurlanda (þar með talið ATC, DDD og ATCvet).

Starfshópar NLN.
    Innan NLN eru starfandi starfshópar á eftirtöldum sviðum:
    Norræn merking lyfja. Fulltrúi Íslands í starfshópnum er Guðbjörg Kristinsdótir, skrifstofustjóri lyfjanefndar.
     Norræn lyfjatölfræði. Fulltrúi Íslands er Eggert Sigfússon, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
    Norrænir lyfjastaðlar. Fulltrúar Íslands eru Einar Magnússon, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, og Vilhjálmur G. Skúlason, prófessor í Lyfjafræði lyfsala við Háskóla Íslands.
    Innan NLN hafa auk þess starfað til skemmri tíma starfshópar um ýmis afmörkuð málefni, svo sem um samnorræna skráningu, flokkun lyfja, klíniskar prófanir, lyfjaeftirlit o.s.frv.
    NLN heldur námskeið, bæði norræn og alþjóðleg, um lyfjafræðileg efni og hefur staðið fyrir ýmsum merkum ráðstefnum, ýmist ein sér eða í samstarfi við aðra. Árlega er haldin á vegum nefndarinnar norræn ráðstefna sem skipulögð er af norrænum lyfjaskráningarstjórum, „Nordisk lægemiddelkonference“.

Útgáfustarf NLN.
    Norræna lyfjanefndin hefur gefið út fjölda bóka og bæklinga með leiðbeiningastöðlum um framkvæmd lyfjamála og ýmis afmörkuð svið er varða lyf. Nýjasta útgáfan (NLN Publication No. 34) nefnist: „Nordic Statistic on Medicines 1990–1992“ en þar er gerður samanburður á notkun einstakra lyfjaflokka á Norðurlöndum og heildarkostnaði. NLN hefur einnig gefið út fréttabréf.

Alþjóðlegt samstarf.
    NLN hefur fengið áheyrnarfulltrúa í ýmsum mikilvægum vinnuhópum um lyfjamál innan EB. Nýjar tilskipanir EB um lyfjamál eru sendar NLN til umsagnar. Skrifstofa NLN varðveitir öll skjöl EB um lyfjamál og þangað geta heilbrigðisyfirvöld og lyfjafyrirtæki sótt þjónustu varðandi málefni EB. NLN tekur virkan þátt í samstarfi evrópsku lyfjaskrárnefndarinnar. NLN hefur með styrk frá norrænu ráðherranefndinni tekið að sér aðstoð við Eystrasaltslöndin, Eistland, Lettland og Litáen, við að skipuleggja lyfjamál í löndunum. Tveir Eistlendingar dvöldust t.d. á vegum NLN hér á landi frá 17.–24. maí á síðasta ári til að kynna sér hvernig skipulagningu lyfjaskráninga og lyfjaeftirlits er háttað hér.

Gildi NLN fyrir Ísland.
    Norræna lyfjanefndin hefur ótvírætt mikla þýðingu fyrir Íslendinga. Við skipulag lyfjamála á Íslandi hefur einkum verið tekið mið af skipulagi þessara mála annars staðar á Norðurlöndum en það hefur einmitt verið talið vera til fyrirmyndar fyrir önnur lönd.
    Flokkun lyfja samkvæmt svokölluðu ATC-kerfi og mælikvarði á lyfjanotkun með skilgreindum dagsskömmtum (DDD) er tilkomin í norrænu samstarfi og NLN hefur unnið ötullega að útbreiðslu þessara kerfa á alþjóðavettvangi.
    Mikill vinnusparnaður er fólginn í því fyrir okkur að geta fengið aðgang að upplýsingum og þeirri vinnu sem lögð er í skráningu lyfja, gerð laga og reglugerða annars staðar á Norðurlöndum. Einnig hefur samanburður á milli Norðurlanda á lyfjanotkun og kostnaði á vegum starfshóps NLN um lyfjatölfræði nýst heilbrigðisyfirvöldum hér á landi í verulegum mæli á undanförnum þremur árum við ákvarðanatöku um aðgerðir til að draga úr lyfjanotkun og lækka lyfjakostnað.

6.1.4. Norræna rannsóknanefndin á sviði vímuefna (NAD).
    Norræna rannsóknanefndin á sviði vímuefna, NAD, er norræn stofnun á sviði félags- og heilbrigðismála. Aðalmarkmið nefndarinnar er að efla rannsóknir og safna upplýsingum um mikilvæg atriði í áfengis- og vímuefnamálum.
    Fjárframlög til nefndarinnar fyrir tímabilið 1992–94 eru 6,5 milljónir finnskra marka. Skrifstofa nefndarinnar er í Helsingfors og þar starfa framkvæmdastjóri og tveir aðrir starfsmenn.
    Í nefndinni eru þrír aðalmenn og þrír varamenn frá hverju landi. Þrír Íslendingar eru í nefndinni og þrír til vara. Nefndin fundar að jafnaði tvisvar á ári.
    Hér á eftir fer yfirlit yfir helstu verkefni nefndarinnar árið 1993.
    Á sviði áfengispólitískra rannsókna hefur NAD átt frumkvæði að rannsókn á áhrifum „landamæraverslunar“ og verðlækkana á áfengi. Þetta efni verður í brennidepli þegar EES-samningurinn kemur til framkvæmda og í viðræðum einstakra landa við Evrópusambandið. Þetta verkefni mun væntanlega einnig ná yfir óskráða áfengissölu eins og smygl og brugg áfengra drykkja.
    NAD hefur látið gera norræna könnun sem kalla má „Barnið í áfengisrannsóknum“. Þá hefur NAD tekið þátt í að meta árangur af norrænu fræðsluefni um vímuefni. Þetta fræðsluefni hefur ekki verið notað á Íslandi og nær könnunin því ekki til Íslands.
    Á undanförnum árum hefur NAD stutt verkefni um vímuefni í löndunum við Eystrasalt.
    Á sviði ólöglegra fíkniefna hefur NAD fengist bæði við alþjóðleg og norræn viðfangsefni. Verkefninu „Nauðungarmeðferð og vímuefni“ lýkur á árinu. Á undanförnum árum hefur NAD stutt vinnuhóp sem kannað hefur dauðsföll af völdum fíkniefna. Þeirri rannsókn er nú lokið. Einn Íslendingur hefur tekið þátt í vinnuhópnum. Þá hefur NAD stutt rannsókn á meðferð lyfjamisnotenda og rannsókn á skráningu sjálfsvíga.
    NAD hefur stutt fjölþjóðakönnun á AA-samtökunum. Einn Íslendingur er í fjölþjóðavinnuhópnum.
    Á árinu hélt NAD tvo rannsóknafundi (seminarer). Í apríl hélt NAD fund um „fjölskyldumeðferð og vímuefnavandamál“, en á Norðurlöndum hefur ýmsum formum fjölskyldumeðferðar verið beitt í vaxandi mæli í meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga. Einn Íslendingur var meðal þátttakenda og flutti fyrirlestur.
    „Áfengis- og vímuefnameðferð á Norðurlöndum í umbyltingu“ var efni fundar sem NAD hélt í maí. Þar var fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á norrænu velferðar kerfunum og hvaða afleiðingar þær hafa fyrir misnotendur áfengis og annarra vímuefna. Tveir þátttakendur voru frá Íslandi og flutti annar þeirra fyrirlestur.
    NAD styrkir fjárhagslega og tilnefnir fulltrúa í ritstjórn norræna tímaritsins „Nordisk alkoholtidsskrift“. Ritstjórn skipa sex manns, þar af er einn Íslendingur.
    Á árinu hafa komið út þrjár bækur í ritröð NAD:
    „Minor Tranquillizers in the Nordic Countries“, NAD nr. 23.
    „Narkotikapolitik i internationellt perspektiv“, NAD nr. 24.
    „Familiebehandling innen rusomsorgen i Norden“, NAD nr. 25.
    Einn kafli í síðasttalda ritinu er eftir Íslending. Öll ritin eru árangur rannsóknaverkefna sem NAD hefur átt frumkvæði að og stutt.

6.1.5. Norræna nefndin um heilbrigðistölfræði og heilbrigðisskýrslur (NOMESKO).
    Norræna nefndin um heilbrigðistölfræði og heilbrigðisskýrslur (NOMESKO) starfar með svipuðum hætti og áður. Fyrir nefndina starfar ritari í hálfu starfi, Johannes Nielsen, og er hann staðsettur hjá norrænu tölfræðistofnuninni í Kaupmannahöfn.
    Helstu verkefni nefndarinnar eru:
    Samræming á skráningu skurðaðgerða. Við þetta starfar vinnuhópur sem mun ljúka störfum í febrúar 1994. Fulltrúi Íslands í vinnuhópnum hefur verið Jónas Magnússon, prófessor. Gert er ráð fyrir að að því loknu verði gefin út samræmd aðgerðaskráning fyrir öll Norðurlöndin sem auðveldar mjög samanburð fjölda og tegunda aðgerða sem framkvæmdar eru á sjúkrahúsum. Áður hafa verið í notkun mismunandi aðgerðaskrár, hér á Íslandi skrá sem gefin var út af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni en hún hefur ekki verið endurnýjuð.
    Samræmd skráning á slysum. Vinnuhópur hefur sett fram tillögur um samræmda flokkun slysa. Fulltrúi Íslands í þessum vinnuhópi hefur verið Brynjólfur Mogensen yfirlæknir á slysadeild Borgarspítalans. Er gert ráð fyrir að nefndin haldi áfram störfum á árinu 1994.
    Samræmd skráning á fæðingum. Vinnuhópur undir stjórn Gunnars Bierings yfirlæknis á nýburadeild fæðingadeildarinnar hefur skilað skýrslu um fæðingar á Norðurlöndum sem gefin hefur verið út í bókaformi. Annar fulltrúi Íslands í þeim vinnuhópi var Gunnlaugur Snædal prófessor. Nefndin lauk störfum árið 1993 en gert er ráð fyrir að framhaldið verði að forsvarsmenn fæðingaskráa Norðurlanda hittist einu sinni á ári og annist gerð á samræmdum töflum um fæðingar sem birtast muni í árlegri tölfræðibók nefndarinnar, „Helsestatistik i de nordiske lande“.
    Skráning upplýsinga frá heilsugæslu. Gert er ráð fyrir að á árinu 1994 hefji störf vinnuhópur um skráningu upplýsinga frá heilsugæslu.
    Alþjóðleg sjúkdóma- og dánarmeinaskrá. Danir hafa þegar tekið í notkun tíundu útgáfu alþjóðasjúkdóma- og dánarmeinaskrárinnar og er gert ráð fyrir að Finnland, Noregur og Svíþjóð taki þá útgáfu í notkun 1996 eða 1997. Hefur NOMESKO haft það hlutverk að samræma þýðingar og gangast fyrir námskeiðum fyrir þá sem flokka og skrá dánarmein. Fulltrúar Íslands í þeirri vinnu hafa verið Hrafn Tulinius prófessor og Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir.
    Fundir í norrænu NOMESKO-nefndinni eru tvisvar á ári, í júní og desember. Formaður nefndarinnar frá 1. janúar 1994 er Gunnar Schiøler, yfirlæknir við danska landlæknisembættið.
    Íslenska nefndin er þannig skipuð: Guðjón Magnússon, formaður. Aðrir nefndarmenn eru Hallgrímur Snorrason, Gunnlaugur Snædal og Ingimar Sigurðsson. Ritari er Bryndís Óskarsdóttir.

6.1.6. Norræn framkvæmdaáætlun um krabbamein.
    
Fjölþjóðasamstarf um aðgerðir gegn krabbameini færist í vöxt. Norræn framkvæmdaáætlun um krabbamein var samþykkt á þingi Norðurlandaráðs 1987. Framkvæmdaáætluninni er ætlað að:
—    leiða til fækkunar dauðsfalla af völdum krabbameins og
—    bæta líðan þeirra sem ekki læknast.
    Með norrænni framkvæmdaáætlun er safnað upplýsingum um krabbamein úr rúmlega 20 milljóna þjóðfélagi á staðlaðan hátt. Upplýsingarnar eru sóttar rúmlega fjóra áratugi aftur í tímann, staðlaðar og á þeim byggð spá um þróun krabbameina á Norðurlöndum fram til ársins 2010. Þáttur forvarna, krabbameinsleitar, krabbameinsmeðferðar (sjúkdómsmeðferð, endurhæfing, líkn), fagmenntunar og rannsókna er skoðaður og metinn. Upplýsingar um mismun á árangri á milli landanna eða landsvæða innan þeirra eru dregnar fram sérstaklega til að benda á hvernig best er á málum haldið öðrum til eftirbreytni þannig að gæðastaðall þjónustunnar sé sem jafnastur og sem minnst háður búsetu.
    Norrænni framkvæmdaáætlun um krabbamein var skipuð stjórn 1989 og sl. tvö ár hefur Ísland veitt stjórninni formennsku.
    Til samstarfs um skipulagningu og framkvæmd áætlunarinnar voru kölluð til Norrænu krabbameinsskrárnar, Norræni heilbrigðisháskólinn í Gautaborg og Norræna krabbameinssambandið.
    Hlutverk Norrænu krabbameinsskránna er að safna saman tölfræðilegum upplýsingum um krabbamein og orsakir þeirra, meta árangur skipulegrar krabbameinsleitar hvað varðar afrakstur leitarstarfsins og hagkvæmni þess og skoða þátt sjúkdómsgreiningar, sjúkdómsstigs og meðferðar í ljósi lengri lifunar (survival) og fækkunar dauðsfalla. Þá munu krabbameinsskrárnar miðla upplýsingum um þá þætti sem helst geta stuðlað að frekari fækkun dauðsfalla af völdum sjúkdómsins á Norðurlöndum.
    Norræni heilbrigðisháskólinn í Gautaborg hefur sem verkefni að stuðla að aukinni fagfræðslu til að bæta líf og líðan krabbameinssjúklinga á Norðurlöndum. Fagþekkingu á sviði félagslegrar og andlegrar umönnunar sjúklinga er nú safnað við skólann og gengið hefur verið frá fyrsta námskeiðinu við skólann sem m.a. miðlar aukinni fræðslu um líkn sem hluta krabbameinsmeðferðar. Þá er í gangi umræða við stjórn skólans um námskeið í mati á heilsutengdum lífsgæðum fyrir þá sem stunda klínískar krabbameinsrannsóknir eða hafa krabbameinssjúklinga til meðferðar.
    Til umræðu er samstarf við krabbameinsfélög og samtök þeirra, Norræna krabbameinssambandið, og hvernig ná megi skýrari verkaskiptingu á milli frjálsra félagasamtaka og opinberra aðila í norrænni framkvæmdaáætlun um krabbamein, svo og samstöðu um sameiginlega framkvæmdaáætlun á landsvísu.
    Norrænt samstarf um framkvæmdaáætlun um krabbamein getur haft áhrif á mótun íslenskrar heilbrigðisstefnu á þessu sviði. Ófært er að skipuleggja þessi mál á Íslandi án þess að hafa samanburð við né taka mið af þróuninni erlendis. Svipað þjóðfélagsskipulag, menning, menntun og efnahagur auk skyldleika þjóðanna gerir samanburð við önnur Norðurlönd áhugaverðan. Norræn framkvæmdaáætlun um krabbamein er því verðmætt verkfæri til þessara skipulagsmála hérlendis. Upplýsingum úr rúmlega 20 milljóna þjóðfélagi er safnað saman á staðlaðan hátt á einn stað og á þeim byggðar rökstuddar tillögur til úrbóta. Þessi vinna getur leitt til betri og hraðari þróunar á Norðurlöndum en hægt hefði verið að valda í hverju landanna fyrir sig.

6.1.7. Norræna hagskýrslunefndin (NOSOSKO).
    Norræn hagskýrslunefnd á sviði félagsmála, NOSOSKO, er fastanefnd sem starfað hefur frá árinu 1946. Fram til ársins 1978 heyrði nefndin undir ráðherra félagsmála á Norðurlöndum en hefur síðan starfað á vegum norrænu ráðherranefndarinnar.
    Höfuðverkefni NOSOSKO er að vinna að samanburðarhæfri skýrslugerð um félagsmál á Norðurlöndum og gefa út bók um þann málaflokk þriðja hvert ár. Hér er átt við félagsmál í víðri merkingu þar sem veigamestu þættirnir eru heilbrigðismál og ellitryggingar. Fram til ársins 1974 takmarkaðist verkefnið við ráðstafanir sem skipaðar voru með lögum, en síðan var starfsemi lífeyrissjóða og samningsbundnum launagreiðslum í veikindaforföllum bætt við.
    Nefndin er skipuð þremur fulltrúum frá hverju landi. Hún hefur skrifstofu í Kaupmannahöfn og ritara í þjónustu sinni, en hann er jafnfram ritari norrænu nefndarinnar um heilbrigðisskýrslur, NOMESKO. Starfshópar, einn eða fleiri, skipaðir nefndarmönnum, starfa að jafnaði að tímabundnum verkefnum, og einnig er algengt að sérfróðir menn utan nefndarinnar séu ráðnir til tiltekinna verkefna undir umsjón hennar.
    Norræna ráðherranefndin greiðir laun ritara og annan kostnað við skrifstofu, prentun skýrslna og laun sérfræðinga sem ráðnir eru til einstakra tímabundinna verkefna. Kostnað við vinnu nefndarmanna að öflun gagna og skýrslugerð, þátttöku þeirra í starfshópum og ferðakostnað ber hins vegar hvert land fyrir sig.
    Á árinu 1993 hefur NOSOSKO unnið að undirbúningi næstu skýrslu nefndarinnar sem gefa á út árið 1995. Að öðru leyti hafa umræður um framtíðarverkefni nefndarinnar mótast mjög af væntanlegri aðild Norðurlanda ýmist að Efnahagsbandalagi Evrópu eða EES, svo og af þeirri úttekt á starfi hennar sem norræna félagsmálanefndin hefur gengist fyrir. Var úttekt þessi falin Hannu Uusitalo, prófessor í Helsingfors.
    Í greinargerð sinni kemst Hannu Uusitalo að þeirri niðurstöðu að NOSOSKO hafi unnið þarft verk og skýrslugerð nefndarinnar standi framar öðru hliðstæðu samstarfi Evrópuþjóða. Leggur hann til að nefndin gangist fyrir tengslum við EUROSTAT, og enn fremur telur hann æskilegt að nefndin gefi skýrslur sínar út árlega. Greinargerðin hefur nú verið send út til umsagnar, en norræna félagsmálanefndin mun taka afstöðu til hennar í aprílmánuði 1994.
    Ísland hefur frá öndverðu leitast við að taka fullan þátt í starfi NOSOSKO. Á hinn bóginn er ljóst að aukin umsvif nefndarinnar mundu hafa í för með sér þörf fyrir aukin framlög norrænu ráðherranefndarinnar til þessa verkefnis og þá ekki síður aukna vinnu og aukin útgjöld hérlendis.

6.1.8. Norrænt samstarf um jafnréttismál.
    Norrænt samstarf á sviði jafnréttismála hefur staðið allt frá árinu 1974. Jafnréttisráðherrar Norðurlanda héldu einn fund á árinu 1993 og norræna embættismannanefndin um jafnréttismál (ÄK-JÄM) hélt fjóra fundi. Starfið á árinu fylgdi að mestu áætlun Norðurlanda á sviði jafnréttismála tímabilið 1989 til 1993. Jafnframt var unnið að gerð nýrrar framkvæmdaáætlunar fyrir tímabilið 1995 til 2000. Vinna við undirbúning norræns kvennaþings, sem haldið verður í Åbo í Finnlandi í ágúst 1994, setti einnig svip sinn á norrænt samstarf á þessu sviði.

Framkvæmdaáætlun Norðurlanda 1989 til 1993.
    Árið 1993 er síðasta ár þessarar áætlunar. Norræna jafnlaunaverkefnið er stærsta verkefni áætlunarinnar en það hófst árið 1989. Verkefnið skiptist annars vegar í norræn verkefni eða aðgerðir og hins vegar í aðgerðir í hverju landi. Verkefnisstjóri er starfandi í hverju landi. Á Íslandi skiptist verkefnið milli tveggja starfsmanna Jafnréttisráðs en stjórn þess er hjá Jafnréttisráði. Samkvæmt verkefnislýsingu er tilgangur verkefnisins í fyrsta lagi að kanna orsakir launamunar kvenna og karla og gera tillögur um úrbætur; í öðru lagi að kanna löggjöf á þessu sviði, einkum ákvæði er varða verðmæti starfa, og gera tillögur um hvernig beita megi jafnréttislöggjöfinni til að vinna að launajafnrétti kynja; í þriðja lagi að kanna upplýsingaöflun um laun kvenna og karla og gera tillögur um úrbætur á launatölfræði hvers lands og í fjórða lagi að efla almenna umræðu og miðla upplýsingum um launamun kynjanna.
    Önnur verkefni samkvæmt áætluninni, sem Ísland tók þátt í á árinu, eru samvinna og stuðningur við norrænar kvennarannsóknir. Starfandi eru ráðgjafahópar og á árinu kom út fyrsta hefti nýs tímarits, „Nora“, um norrænar kvennarannsóknir en það er gefið út á ensku. Konur og karlar á Norðurlöndum og hvernig þau birtast í tölfræði er annað verkefni sem rétt þykir að nefna. Unnið er að útgáfu nýs norræns kynningarheftis á ensku um stöðu kvenna og karla, „Women and men in the Nordic countries 1994“.
    Haldin var ráðstefna um mikilvægi þess að fjölga körlum í störfum við leikskóla og að karlar komi meira að hinni opinberu barnagæslu.

Framkvæmdaáætlun á sviði jafnréttismála 1995 til 2000.
    Á árinu var unnið að gerð nýrrar framkvæmdaáætlunar og voru drög send út til ýmissa innlendra og norrænna félagasamtaka og stofnana í lok ársins. Stefnt er að því að jafnréttisráðherrar Norðurlanda afgreiði framkvæmdaáætlunina vorið 1994 og þing Norðurlandaráðs um haustið. Framkvæmdaáætlunin tekur til tímabilsins 1995 til 2000 og skiptist í eftirfarandi meginkafla og verkefnasvið:
—    Möguleikar kvenna og karla til valda og áhrifa.
—    Konur og karlar í efnahagslífinu.
—    Konur og karlar í atvinnulífinu.
—    Möguleikar kvenna og karla til að sameina fjölskyldulíf og launaða atvinnuþátttöku.
—    Alþjóðlegt samstarf á sviði jafnréttismála.

Norrænt kvennaþing.
    Undirbúningur nýs norræns kvennaþings í Åbo í Finnlandi í ágúst 1994 er í fullum gangi. Norrænt kvennaþing 1994 eða „Nordisk forum 1994“ er stærsta og dýrasta verkefni sem norræna ráðherranefndin hefur skipulagt innan jafnréttissviðsins fram til þessa. Áhersla er lögð á þátttöku norrænna kvennahreyfinga og grasrótarhreyfinga við undirbúning og á þinginu sjálfu. Skipaður var sérstakur undirbúningshópur þar sem í eiga sæti fimm fulltrúar frá hverju Norðurlandanna. Íslensku fulltrúarnir fimm skipa jafnframt innlendan undirbúningshóp.
    Samhliða „Nordisk forum“ munu jafnréttisráðherrar Norðurlanda standa fyrir opinberri ráðstefnu í tvo daga en tilgangur hennar er að kynna drög að framkvæmdaáætlun fyrir tímabilið 1995 til ársins 2000.

Ýmislegt.
    Norðurlandaráðsþing lagði áherslu á að til „Nordisk forum 1994“ skyldi boðið fulltrúum kvennasamtaka frá Eystrasaltsríkjunum. Til að byggja upp tengsl við konur frá þessum löndum var ákveðið að standa fyrir ráðstefnum í hverju Eystrasaltslandanna í samvinnu við þarlend kvennasamtök. Á árinu 1993 voru haldnar tvær slíkar ráðstefnur en sú þriðja er fyrirhuguð í byrjun ársins 1994.
    Breytingar á norrænu samstarfi og aukin samvinna við ríki Evrópu settu einnig mark sitt á starf nefndarinnar á árinu og koma þær breyttu áherslur fram í drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árin 1995 til 2000 og þar með í starfi nefndarinnar á komandi árum.

6.1.9. Nefnd um málefni fatlaðra (NNH).

    Helsti ávinningur fyrir Ísland af starfsemi NNH er sem hér segir:
    Stefnumótandi starf í málefnum fatlaðra. NNH er samstarfs- og fagstofnun um málefni fatlaðra og ber ábyrgð á stefnumótun og samhæfingu í þeim málefnum og tryggir réttindi fatlaðra í samfélaginu. Með samvinnu NNH-skrifstofunnar og stjórnarmanna NNH, sem eru bæði fulltrúar frá heilbrigðis- og félagsmálakerfinu, svo og samtökum fatlaðra, er unnið starf sem nýtist mjög vel í hverju landi fyrir sig, svo og milli landanna.
    Félagslegt samstarf. Samvinna við hinar ýmsu stofnanir, aðila og félagasamtök innan lands, sem og á hinum norrænu löndunum sem vinna að málefnum fatlaðra, þróun og prófunum á hjálpartækjum o.fl.
    Þátttaka í breytingum og þróun á sviði hjálpartækja og fleira.
    —     Norðurlandasamstarf varðandi hjálpartæki og fleira (ný þróun, kröfur, prófanir, staðlar, upplýsingamiðlun). Í þessu starfi felst stór ávinningur fyrir Ísland. Meðal annars fæst hér mikil þekking á hjálpartækjum, þeim kröfum sem eru gerðar til þeirra og fleira og nýtist beint í vali og innkaupum á hjálpartækjum. Þetta sparar bæði vinnu og fjármuni, einkum fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
    —     Evrópusamstarf með tilliti til hjálpartækja, aðgengis og fleira er snýr að málefnum fatlaðra (t.d. verkefnis á vegum Efnahagsbandalagsins (EB), Comité Européen de Normalisation (CEN)).
    —     Alþjóðlegt samstarf með tilliti til hjálpartækja og fleira sem snýr að málefnum fatlaðra (t.d. International Organization for Standardization (ISO)).
    Stjórn NNH: Ísland á tvo aðalmenn í stjórn NNH og tvo varamenn. Aðalmenn eru Björn Önundarson, tryggingayfirlæknir Tryggingastofnunar ríkisins, og Ásta Þorsteinsdóttir, formaður Landssamtakanna „Þroskahjálp“. Varamenn eru Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi, Tryggingastofnun ríkisins, og Þórey Ólafsdóttir, ritari Öryrkjabandalags Íslands.
     Fjárveiting til NNH á árinu 1993 var 8,3 millj. s.kr., þar af 2,2 millj. s.kr. til „Nordisk utvecklingscenter för handikapphjälpmedel“ (NUH) sem er stofnun á vegum NNH og 1,6 millj. s.kr. í styrki til norrænnar samvinnu félaga fatlaðra.
     Sérstök verkefni NNH á árinu 1993: Kostnaður (ferðakostnaður) vegna þessara verkefna er ýmist greiddur af NNH eða einstökum stofnunum í hverju landi fyrir sig. NNH greiðir þó meiri hlutann af kostnaðinum.
    Aðgengi í samfélaginu:
    —      Nefnd um aðgengi að byggingum og almenningsfarartækjum í samfélaginu. Í nefndinni er Ólöf Ríkarðsdóttir, Öryrkjabandalagi Íslands, fulltrúi Íslands. Nefndin hefur verið starfandi frá 1992 og vinnur að mótun krafna um aðgengi fyrir alla með það í huga að hafa áhrif á lög og reglur í þessum málum. Fulltrúar í nefndinni eru jafnframt í evrópskri nefnd (sjá lið 5) til að móta samevrópskar viðmiðunarreglur og reyna þannig að hafa áhrif á reglur innan EB og EFTA. Á Íslandi er samstarfshópur (samtaka fatlaðra, ýmissa fagfélaga og stofnana) sem vinnur að gerð handbókar um aðgengi fyrir alla og kemur þetta norræna samstarf að beinu gagni fyrir þá vinnu.
    —      Aðgengi að tölvubúnaði fyrir alla. Norræn tillaga um viðmiðunarreglur um aðgengi að tölvum fyrir alla.
    —      Aðgengi að símum (sjá bls. 33, nefnd um fjarskipti fyrir fatlaða).
    Sérstök viðfangsefni:
    —      Þjónusta í nærsamfélaginu.
         
    
    Upplýsingasöfnun um þjónustu vegna sjaldgæfra sjúkdóma.
         
    
    Upplýsingasöfnun um lífskjör daufblindra.
    —     Menntun og atvinnumarkaðurinn.
         
    
    Samstarfshópur á vegum norrænu nefndarinnar um norræna skólasamvinnu og NNH á sviði verkefna sem varða báðar nefndirnar. Hópurinn starfar í tengslum við samnorrænt verkefni í sérkennslu um myndun tengslaneta fyrir skilgreindar fatlanir sem er á vegum norrænu nefndarinnar um norræna skólasamvinnu. Verkefnið er til fimm ára, 1992–1997, og á að byggja upp fimm norræn tengslanet. Kolbrún Gunnarsdóttir, menntamálaráðuneytinu, er fulltrúi Íslands í verkefnisstjórn. Íslenskir samstarfshópar starfa að þessu verkefni.
         
    
    Ráðstefna í Finnlandi 24.–26. nóvember 1993: „Leið ungra fatlaðra frá menntakerfi til atvinnulífs“. Þrír Íslendingar sóttu ráðstefnuna og hélt Guðrún Hannesdóttir frá Starfsþjálfun fatlaðra fyrirlestur.
    Rannsóknir og þróunarverkefni á sviði málefna fatlaðra:
    —      Tölvuskráð upplýsingasöfnun um rannsóknir á Norðurlöndum á sviði málefna fatlaðra. NNH hefur verið með þessa skráningu frá upphafi starfsemi NNH.
    Hjálpartæki og ný tækni:
    —     Nefnd um flokkunarkerfi hjálpartækja. Björk Pálsdóttir, Tryggingastofnun ríkisins, er nefndarmaður af hálfu Íslands. Nefndin hefur verið starfandi frá 1980 við þróun flokkunarkerfis hjálpartækja. ISO og CEN hafa tekið þetta kerfi upp og hefur norræna nefndin áhrif á þróun þessa máls í ISO/CEN. Upplýsingakerfi um hjálpartæki, notendakerfi o.fl. er byggt á þessu norræna flokkunarkerfi. Tryggingastofnun ríkisins notar þetta flokkunarkerfi í hjálpartækjakerfi sínu.
    —     Norræn samvinna um evrópska stöðlun á hjálpartækjum. Náin og öflug samvinna NNH og hjálpartækjastofnananna í Svíþjóð, Danmörku og Noregi í evrópskri stöðlunarvinnu innan CEN.
    —     Nefnd um heyrnarhjálpartæki. Birgir Ás Guðmundsson, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, er nefndarmaður af hálfu Íslands. Starf nefndarinnar er að gera tilmæli um kröfur til framleiðanda um heyrnarhjálpartæki.
    —     Stofnun á vegum NNH í Finnlandi, NUH (Nordisk utvecklingscenter för handikapphjälpmedel). Stjórn NUH er skipuð sex einstaklingum, einum frá hverju landi, Páli Theódórssyni, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, frá Íslandi og framkvæmdastjóra NNH.
                            NUH veitir styrki til samnorrænna verkefna á sviði nýrrar þróunar á hátæknivæddum hjálpartækjum og miðlar reynslu og niðurstöðum innan sviðsins. NUH er samstarfsaðili NNH í TIDE sem er verkefni á vegum EB.
                            Á árinu 1993 voru Íslendingar þátttakendur í þremur verkefnum sem styrkt eru á vegum NUH. Þau eru: 1) Tentaculus, tengibúnaður milli notandabúnaðar (rofa) og vélbúnaðar (tölvu/fjarstýribúnaðar), Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins, 2) Nordlys II, handbók fyrir fagaðila um flokkun hugbúnaðar sem er í notkun í norrænu löndunum og er ætlaður þeim sem ekki hafa lestrarfærni, Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins, 3) Blissgrammer, málfræðilegt tengiforrit milli BLISS-forrita og talgervla, Jón Hjaltalín Magnússon, ACT, í samvinnu við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi.
    —     Nefnd um fjarskipti fyrir fatlaða (NFTH). Gylfi Már Jónsson, Pósti og síma, er nefndarmaður af hálfu Íslands. Starf nefndarinnar er að sjá um að samræma viðmiðunarreglur í fjarskiptum, svo og miðlun upplýsinga á því sviði. NFTH er samstarfsaðili NNH í COST 219, verkefni á vegum EB.
    —     Ráðstefna í Stokkhólmi 19.–21. mars 1993. Tæknilegir möguleikar fyrir þá sem ekki hafa lestrarfærni. Fjórir Íslendingar sóttu ráðstefnuna. Sigrún Grendal, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, og Jón Hjaltalín Magnússon frá JHM ACT héldu fyrirlestra.
    Evrópusamvinna og önnur alþjóðleg samvinna:
    —      Þátttaka í vestur-evrópsku samstarfsverkefni um gerð handbókar um aðgengi (sjá lið 1).
    —     Þátttaka í stöðlunarvinnu innan hjálpartækjasviðsins á vegum CEN.
    —     Þátttaka í ýmsum verkefnum innan EB (m.a. Handynet, TIDE, COST 219).
    —     Samstarfsverkefni við Eystrasaltsríkin.
         
    
    Könnun á tengslum milli samtaka fatlaðra í norrænu löndunum og Eystrasaltslöndunum.
         
    
    Undirbúningur að námsstefnu 1994 í einu landi Eystrasaltsríkjanna.
    Styrkveiting til norrænnar samvinnu félaga fatlaðra:
    —     Nefnd um úthlutun styrkja til félaga fatlaðra til þátttöku í norrænni samvinnu. Arnþór Helgason, Öryrkjabandalagi Íslands, er nefndarmaður af hálfu Íslands. Þessi nefnd hefur starfað frá 1990. Styrkveitingar eru m.a. til ráðstefnuhalds og ferðakostnaðar vegna samstarfsfunda félaga í norrænu löndunum. Þetta gerir t.d. Íslendingum kleift að senda fulltrúa á ýmsar ráðstefnur og samstarfsfundi erlendis. Á árinu voru veittir styrkir til 40 samtaka fyrir 50 fundi og ráðstefnur.
    Upplýsingamiðlun NNH:
    —     Upplýsingablað NNH, „NNH-Nytt“, kom út fjórum sinnum á árinu 1993. Þetta blað er sent til ýmissa stofnana og samtaka.
    —     Bæklingar sem innihalda skýrslur um öll stærri verkefni og ráðstefnur á vegum NNH. Sex slíkar skýrslur komu út á árinu 1993 og eru þær sendar ýmsum stofnunum og samtökum.
    —     Upplýsingabæklingar um NNH og norræna samvinnu að málefnum fatlaðra.

6.1.10. Norræn menntastofnun um málefni daufblindra (NUD).
    NUD varð sjálfstæð stofnun undir norrænu ráðherranefndinni frá 1. janúar 1993 og er með sér fjárveitingu frá sama tíma, en var áður stofnun undir NNH.
    NUD er menntastofnun sem sér um námskeið og ráðstefnur fyrir starfsfólk sem vinnur með daufblinda. NUD er eini aðilinn á Norðurlöndum sem veitir faglega þjónustu hvað varðar vinnu við daufblinda (námskeiðahald, fagleg ráðgjöf í einstaka tilfellum, bókasafn). Íslendingar, sem vinna með daufblinda, blinda, sjónskerta og heyrnarskerta, leita mikið til stofnunarinnar hvað varðar skólun og ráðgjöf.
    Fjárveiting til NUD 1993 var 5,5 millj. s.kr.
    Stjórn NUD er sú sama og stjórn NNH.
    Sérstakt skólaráð er til tveggja ára í senn og situr í því einn fulltrúi frá hverju landi. Frá Íslandi: Aðalmaður Anna Soffía Óskarsdóttir, sérkennari Þjálfunarskóla ríkisins, og varamaður Kristín Jónsdóttir, Blindrafélaginu.
    Starfsemi: Ellefu námskeið og ráðstefnur voru haldnar á vegum NUD á árinu 1993. Á árinu sóttu tíu Íslendingar námskeið og/eða ráðstefnur sem haldnar voru á vegum NUD.

6.2. Norrænt samstarf um neytendamál á árinu 1993.
    Á Norðurlöndum hefur starf að neytendamálum á árinu einkennst annars vegar af aðgerðum til samræmingar við það sem gerist í Evrópu og hins vegar af efnahagsþrengingum.
    Norðurlöndin hafa haldið áfram að taka upp og aðlaga reglur Evrópusambandsins að sínum vegna gildistöku EES-samnings í árslok 1993. Löndin hafa haft samráð sín á milli um tilskipanir Evrópusambandsins, m.a. um pakkaferðir, öryggisatriði varðandi söluvarning, stykkjaverð, ólögmæta viðskiptahætti og póstverslun.
    Ráðgjafarstarfsemi neytendasamtaka um rekstur heimila og um fjármál hefur aukist í ríkjandi efnahagserfiðleikum.
    Svíar fara nú að dæmi Dana, Norðmanna og Finna og vinna að lagasetningu sem heimilar skuldbreytingar. Fjármálaráðgjöf á vegum sveitarfélaga hefur verið efld í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Um skeið hefur verið gefin út svokölluð staðalfjárhagsáætlun heimilanna í Noregi og Svíþjóð. Þessi viðmiðun er notuð í ráðgjöf til heimilanna. Danir og Finnar eru að taka upp þessi vinnubrögð og Íslendingar hafa tekið málið til athugunar.
    Skipulagsbreytingar hafa orðið á starfsemi að neytendamálum í löndunum. Í Svíþjóð hafa neytendafélög stofnað landssamtökin Neytendaráð Svíþjóðar. Þar í landi er að vænta nefndarálits þar sem kynntar verða m.a. tillögur um takmörkun afskipta hins opinbera af neytendamálum. Verðlagsstofnun á Íslandi var nýlega breytt í Samkeppnisstofnun með breyttum verkefnum og fyrirkomulagi um leið og ný samkeppnislög tóku gildi. Í Danmörku og Svíþjóð hafa verið lagðar til breytingar á lögum um auglýsingar og framboð vöru og þjónustu. Í sænsku tillögunum er m.a. gert ráð fyrir sektarákvæðum vegna villandi auglýsinga. Í barna- og fjölskylduráðuneyti Noregs starfar nú sérstök deild að neytendamálum og öryggismálum sem varða vörur. Fjármálaráðgjöf og skuldbreytingar eru nú orðið málefni sem sveitarfélög sinna í Noregi. Norska neytendaráðið bættist í hóp aðildarlanda Evrópusamtaka neytendafélaga, BEUC.
    Á öllum Norðurlöndum og í samstarfi þeirra er nú gefinn meiri gaumur að umhverfisáhrifum neyslu og neysluvarnings. Norræna umhverfismerkið „græni svanurinn“ hefur fest sig í sessi á Norðurlöndunum. Í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð er umhverfismerking vöru í höndum sérstakra aðila.

Starfsemin 1993.
    Endurskipulagning Norðurlandasamstarfsins olli á fyrri hluta árs 1993 nokkurri óvissu um samvinnu að neytendamálum. Í marsmánuði varð ljóst að neytendamál yrðu meðal þess sem forgangs nýtur í samstarfi landanna.
    Ný embættismannanefnd var sett á laggirnar og sitja í henni eingöngu fulltrúar ráðherra, þ.e. embættismenn úr ráðuneytunum. Við hlið hennar starfar ráðgefandi nefnd, norræna neytendamálanefndin, sem hefur á að skipa fulltrúum stjórnvalda, frjálsra samtaka, rannsóknaraðila, háskólamanna og annarra er vinna að neytendamálum. Breytingar þessar voru gerðar vegna breyttra áherslna í norræna samstarfinu.
    Auk samráðs og upplýsingaskipta í fastanefndum í skipulagða samstarfinu vex því samstarfi fiskur um hrygg sem verkefnisstjórnir standa fyrir. Þar er um að ræða kannanir, málþing og rannsóknir. Niðurstöðurnar nýtast opinberum stofnunum sem starfa að neytendamálum í daglegum störfum, bæði heima fyrir og í erlendu samstarfi, m.a. til þess að hafa áhrif á þróun þessara mála á alþjóðavettvangi.
    Vegna uppstokkunar í norræna samstarfinu var lengi vel óvíst hvort neytendamálin yrðu áfram sjálfstæður samstarfsvettvangur, eins og áður er skýrt frá, en í mars 1993 var ljóst að þessi málaflokkur yrði meðal forgangsmála. Um leið og breytingar þessar hófust var unnið að nýrri norrænni samstarfsáætlun á sviði neytendamála, eins og að framan segir, og var hún samþykkt á þingi Norðurlandaráðs í nóvember sl. og verður síðan endanlega afgreidd á fundi neytendamálaráðherra Norðurlanda sem haldinn verður í Stokkhólmi 24. janúar 1994. Helstu markmið í nýrri samstarfsáætlun eru að:
—    bæta lagalega og fjárhagslega stöðu neytenda, svo og heilsu þeirra og öryggi,
—    útvíkka og þróa neytendarannsóknir,
—    hafa áhrif á þróun neytendamála í Evrópu,
—    efla kröfu neytenda um að tillit verði í auknum mæli tekið til umhverfisins.
    Íslendingar hafa aukið þátttöku sína í norræna samstarfinu á sviði neytendamála jafnt og þétt síðustu árin. Við tökum þátt í flestum verkefnum sem styrkt eru af norrænu ráðherranefndinni auk þess sem við höfum verið í forsvari fyrir tveimur þeirra. Annars vegar var unnið að því að útbúa staðlað heimilisbókhald fyrir íslenskar aðstæður og hins vegar var gerð könnun um landbúnaðarstefnuna og hag heimilanna á Norðurlöndunum. Var sú skýrsla kynnt sérstaklega hér á landi í byrjun ágúst sl.

6.3. Norrænn vinnumarkaður.

Atvinnuleysi ungs fólks.
    Atvinnuleysi hefur haldið áfram að aukast á Norðurlöndum árið 1993 og fram hafa komið miklar áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi ungs fólks. Norðurlandaráð hefur því lagt sérstaka áherslu á að leita úrræða gegn atvinnuleysi aldurshópsins 16 til 25 ára og skipuleggja aðgerðir í framhaldi af því. Á síðasta ári hefur verið unnið að því að undirbúa verkefnaáætlun undir heitinu „Ungdomssatsning 1994“. Um það bil helmingi þess fjár, sem varið er til norræns vinnumálasamstarfs, verður á árinu 1994 varið til verkefna í tengslum við atvinnuleysi ungs fólks. Verkefni þessi verða margvísleg.
    Frá því í október 1993 hafa tveir vísindamenn frá hverju landi unnið annars vegar að rannsókn á orsökum atvinnuleysis ungs fólks í hverju landi og hins vegar árangri vinnumarkaðsaðgerða gegn atvinnuleysi ungs fólks. Gert er ráð fyrir að þeir leggi fram niðurstöður sínar á ráðstefnu í Stokkhólmi sem verður haldin 8. og 9. febrúar 1994. Fyrir Íslands hönd starfa Gestur Guðmundsson félagsfræðingur og Guðmundur Gylfi Guðmundsson hagfræðingur að þessu verkefni.
    Þá er fyrirhuguð önnur þriggja daga ráðstefna í Finnlandi í apríl 1994 um það fjölbreytta grasrótarstarf sem unnið er í einstökum löndum gegn atvinnuleysi ungs fólks þar sem kostur gefst á að miðla reynslu af þessu starfi milli landa. Gert er ráð fyrir að íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar, Félagsmálastofnun Akureyrar og ef til vill fleiri taki þátt í þessari ráðstefnu af hálfu Íslands.
    Þá er gert ráð fyrir að vísindastofnanir geti lagt fram umsóknir um styrk til rannsóknarverkefna á þessu sviði til norrænu ráðherranefndarinnar.

Norræn ráðstefna um atvinnuleysistryggingar á Íslandi.
    Dagana 6. og 7. september 1993 var haldin á Hótel Loftleiðum ráðstefna um atvinnuleysistryggingar á Norðurlöndum þar sem meginumræðuefnið var „Erfiðleikatímar og átaksverkefni atvinnuleysistrygginga“.
    Fjölmörg erindi og umræður á ráðstefnunni leiddu í ljós að mikið er að gerast í þessum málum á Norðurlöndum og athyglisvert var hve afstaða einstakra landa mótaðist af því á hvaða stigi þau voru stödd í atvinnuleysi eða hve lengi það hefur verið viðvarandi í viðkomandi löndum. Annars vegar er Danmörk, þar sem menn ganga út frá viðvarandi atvinnuleysi og aukin áhersla er lögð á að virkja fólk til hvers konar félags- og tómstundastarfa, og hins vegar Finnland þar sem atvinnuleysi er orðið svo mikið að menn fá ekki við neitt ráðið þótt allt sé reynt og talsverð áhersla lögð á að útvega fólki störf erlendis. Þá er Ísland með megináherslu á almennar efnahagsaðgerðir, sértæka atvinnusköpun, átaksverkefni og starfsmenntun og loks Noregur og Svíþjóð með áherslu á atvinnusköpun en þó fyrst og fremst starfsmenntunina þar eð takmörk eru fyrir hve hægt er að skapa mörg tímabundin störf.
    Aðalfyrirlesarinn, Jens Lind, lektor frá Danmörku, lýsti því þróunarferli sem baráttan við atvinnuleysi er talin ganga í gegnum. Fyrst er eingöngu treyst á almennar efnahagsaðgerðir og bótagreiðslur, síðan kemur til tímabundin atvinnusköpun hjá hinu opinbera og styrkt vinna á almennum vinnumarkaði, þá starfsmenntun af ýmsu tagi og að lokum hvers kyns félags- og tómstundastarf til að virkja fólk. Þessari þróun fylgja eilífar breytingar á reglum um atvinnuleysisbætur til að draga úr kostnaði sem kunna ef til vill að enda með að menn viðurkenna lágmarksframfærslueyri sem „almenn borgaralaun“ sem öllum verða tryggð í stað margbreytilegs trygginga- og framfærslukerfis en sú umræða hefur vaxandi meðbyr í Danmörku.

Evrópskur vinnumarkaður.
    Samstarf Norðurlandanna á sviði atvinnumála á árinu 1993 hefur að öðru leyti snúist um að halda áfram þeim áherslubreytingum sem orðið hafa undanfarin ár í átt að alþjóðlegu vinnumálasamstarfi. Þessar áherslubreytingar vegna samningsins um Evrópskt efnahagssvæði hafa í för með sér aukið samstarf á sviði vinnumála þótt það gerist á öðrum vettvangi en í formlegum nefndum norrænu ráðherranefndarinnar. Efnislega hefur umfjöllunin mótast mjög af aðild Norðurlandanna að EES og hugsanlegri aðild sumra þeirra að EB. Þannig hefur bæði verið fjallað um hugsanleg áhrif EES á vinnumarkaðinn, sem og útfærslu einstakra reglugerða og tilskipana eða umfjöllun um nýjar reglugerðir og tilskipanir sem eru á döfinni hjá EB. Hins vegar mun samstarf í nefndum á vegum norrænu ráðherranefndarinnar mótast mjög af þessum breytingum og verða nefndirnar áfram mikilvægur vettvangur fyrir samstarf og skoðanaskipti um þessar breytingar.

Vinnumálanefndirnar.
    Í „Iloniemi-skýrslunni“ er lögð áhersla á að réttindamál þegnanna séu samstarfssvið sem eigi að hafa forgang í norrænu samstarfi á næstu árum. Í þeim málaflokki eru m.a. vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismál.
    Nýtt skipulag, sem tók gildi 1. mars 1993, hefur verið fest í sessi, en gerð var grein fyrir þessu skipulagi í síðustu skýrslu og eru því aðeins aðalatriðin rakin hér. Markmiðið með skipulagsbreytingunum er að auka skilvirkni og hagkvæmni samstarfsins. Þetta er gert með einföldun og hagræðingu, t.d. með því að draga úr skrifræði og fækka nefndum og fundum.
    Hið nýja skipulag felur í sér að vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismálin eru sameinuð undir eina yfirstjórn. Yfirstjórnina annast embættismannanefndin sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju landi. Nefndinni er ætlað að vera stefnumarkandi í vinnumálum eins og vinnumarkaðsmálum, atvinnumálum, vinnumarkaðsþjónustu, vinnuverndarmálum, vinnuréttarmálum og atvinnulífi.
    Undir embættismannanefndina heyra sex málefnanefndir sem skipaðar eru sérfræðingum til að fjalla um einstaka málaflokka. Þetta eru nefndir um vinnumarkaðsmál, vinnumarkaðsrannsóknir, vinnuverndarmál, vinnuverndarrannsóknir, vinnuréttarmál og atvinnulíf og um fólksflutningamál. Þá starfar sérstakur stýrihópur sem samræmir störf nefndanna og undirbýr fundi embættismannanefndarinnar í samráði við skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Nefndirnar hafa allar gert nána grein fyrir hlutverkum sínum og verkefnum í sérstökum stefnu- og verkefnaskjölum.

Nefnd um stjórnun vinnumarkaðsmála.
    Helstu verkefni nefndarinnar eru INFO eða „Informationsprojektet“ sem er fjölbreytt upplýsingaútgáfa á mörgum sviðum. Á vegum þessa verkefnis er m.a. tímaritið „NORDISK ARBETSMARKNAD“ sem hefur verið gefið út í sex ár en fjögur blöð voru gefin út á árinu 1992. Annað mikilvægt samfellt verkefni á vegum nefndarinnar er „NORDJOBB“ sem byggir á atvinnuskiptum ungs fólks milli Norðurlandanna en Norræna félagið hefur annast þessi samskipti fyrir Íslands hönd og hefur hlutur Íslands verið stór í þessu verkefni. Verkefni þetta hefur verið til endurskoðunar í ljósi reynslunnar og breytinga vegna EES-samningsins og kom út skýrsla um þetta efni á árinu en nokkuð skiptar skoðanir eru um framtíðarstefnu þessa verkefnis vegna erfiðleika í atvinnumálum víðast hvar. Þá eru fjölmörg verkefni er tengjast starfsmenntun og endurmenntun, m.a. „VOKS FREM“ sem er framkvæmdaáætlun til þriggja ára, þ.e. frá 1992 til 1995, um menntunarþarfir framtíðarinnar, en áætlunin er samsett af mörgum stærri og smærri verkefnum. Verkefnið „Effektivisering af internordisk arbejdsformidling“ hefur skipulagt heimsóknir til vinnumiðlana í Evrópu og EB-stofnana til að undirbúa samstarf við þessa aðila gegnum vinnumiðlunarkerfið „EURES“. Að lokum má nefna ýmis verkefni sem eru til stuðnings atvinnulífi í Eystrasaltslöndunum.
    Tveimur verkefnum á vegum nefndarinnar lauk á árinu með lokaskýrslu. Í fyrsta lagi var um að ræða skýrslu um „Flaskehalsprojektet“ sem snýst um að auka svæðisbundið samstarf milli vinnumiðlunar og starfsmenntunar fyrir atvinnulífið til þess að koma í veg fyrir að samtímis sé eftirspurn eftir menntuðu vinnuafli og nægt framboð vinnuafls sem ekki hentar í störfin sem um er að ræða. Í öðru lagi var lögð fram skýrsla um langtímaatvinnuleysi þar sem samþættuð er reynsla Norðurlandaþjóðanna hvað snertir orsakir, áhættuhópa og aðgerðir gegn langtímaatvinnuleysi.

Nefnd um vinnumarkaðsrannsóknir.
    Helsta verkefni nefndarinnar nú er ofangreint verkefni um atvinnuleysi ungs fólks. Annað verkefni nefndarinnar hefur verið svokallað „Paraplyprojekt“ sem fjallar um valkosti vinnumarkaðarins á tíunda áratugnum. Þessu verkefni lauk árið 1992 en á árinu 1993 hefur verið unnið að því að gefa út rit um verkefnið í fimm bindum á ensku og einu bindi með samantekt á Norðurlandamálunum. Þetta verkefni fjallar m.a. um ungt fólk á vinnumarkaði, aðstæður aldraðs fólks á vinnumarkaði, launamun á Norðurlöndum, atvinnuleysi á Norðurlöndum og hreyfanleika vinnuafls.
    Athugun og rannsókn á starfsemi vinnumiðlana hefur verið í sviðsljósinu á árinu. Unnið hefur verið að samanburði á fyrirkomulagi opinberrar vinnumiðlunar og starfsemi einkaráðningarstofa á öllum Norðurlöndum. Þá hefur verið unnið að rannsókn sem leiða á í ljós hve virkar opinberar vinnumiðlanir eru í að ráða fólk þegar atvinnutilboð berast frá atvinnurekendum.

Nefnd um vinnurétt og atvinnulíf.
    Í þessari nefnd hefur einkum verið fjallað um þá margvíslegu löggjöf sem taka þarf upp á sviði vinnuréttar vegna aðildar að EES jafnframt því sem mikið er fjallað um þær vinnuréttarreglugerðir eða tilskipanir sem eru til umfjöllunar hjá EB og hugsanlega verða teknar upp á síðari stigum í EES-samninginn.
    Helstu verkefni nefndarinnar eru verkefnið „NordFram“ eða „Den nordiska modellens fremtid“ sem fjallar um hvaða áhrif alþjóðahyggjan og EB-samhæfingin hafa á vinnumarkaðinn í hinum norrænu löndum. Sérstök áhersla er á meðákvörðunar- og upplýsingarétt starfsmanna við breytingar í fyrirtækjum. Þessu verkefni lýkur með ráðstefnu 17. og 18. febrúar 1994.
    Annað verkefni, sem þegar er langt komið, er verkefni um samanburð á vinnurétti á Norðurlöndum sem hefur verið útvíkkað til að ná til samanburðar við vinnurétt EB-ríkja, en samanburður á vinnurétti Norðurlanda lá fyrir í bók árið 1990 undir heitinu „Arbetsrätten i Norden“. Íslenskir vísindamenn taka þátt í þessum verkefnum. Þriðja verkefnið, sem tengist þessum tveimur, er verkefnið „Samræming norrænnar starfsemi“ en það tengist einkum rannsóknum eða könnunum á áhrifum EES og EB á norrænan vinnumarkað.
    Önnur verkefni, sem eru langt komin eða er um það bil að ljúka, fjalla um ný rekstrarform til að auka sveigjanleika og vinnugæði í vefnaðariðnaði, fyrirtækjaformið í norrænum vinnurétti og ný rekstrarform fyrirtækja.

Nefnd um stjórnun vinnuverndarmála.
    Samstarf um vinnuvernd vegna þátttöku Norðurlanda í Evrópska efnahagssvæðinu hefur verið mjög virkt og mikið upplýsingastreymi hefur verið um þær breytingar á vinnuverndarreglum sem þátttaka í EES hefur í för með sér.
    Þá hafa Norðurlöndin unnið mikið saman og skipt með sér verkum vegna samstarfs við CEN, Staðlastofnun Evrópu, en um 100 staðla af ýmsu tagi þarf að taka upp sem eru í smíðum. Sérstakur hópur vinnur að athugun á öryggi véla til matvælaframleiðslu og annar fjallar um öryggi krana og lyftibúnaðar. Haldinn var samráðsfundur í nóvember um aðferðafræði við eftirlit á vinnustöðum og hvernig auka megi eigið eftirlit. Fleiri slíkir samráðsfundir voru haldnir um afmörkuð svið vinnuverndarmála eins og um atvinnusjúkdóma í endurvinnsluiðnaði.
    Þá hefur sérstaklega verið unnið að samstarfi og samráði um aðstoð við Eystrasaltsríkin á sviði vinnuverndarmála og tók Vinnueftirlit ríkisins þátt í ráðstefnu í Tallin þar sem fulltrúi vinnueftirlitsins flutti erindi.

Nefnd um vinnuverndarrannsóknir.
    Íslenskir sérfræðingar í vinnuverndarmálum fá styrki frá norrænu ráðherranefndinni til að sækja sérhæfð námskeið í vinnuverndarmálum hjá „NIVA“, en það er norræn stofnun sem sér um framhaldsmenntun á sviði vinnuumhverfismála. Unnið er að margvíslegum rannsóknarverkefnum um efni, öryggisbúnað o.fl. hjá „NIVA“.
    Vinnueftirlitið tekur m.a. þátt í samstarfsverkefni um tilkynningu atvinnusjúkdóma. Þá starfar vinnueftirlitið í nefnd sem fjallar um mengunargildi efna í náttúrunni.


7. Efnahagsmál.



7.1. Fjármál og efnahagsmál.

    Verkefni á sviði efnahags- og fjármálaráðherra Norðurlanda á starfsárinu 1993–1994 hafa verið bæði mörg og yfirgripsmikil og teygt anga sína víða. Auk verkefna, sem telja má hefðbundin, hafa bæst við sérstök verkefni, bæði í tengslum við þá áherslu sem lögð hefur verið á stuðning við Eystrasaltsríkin og umfjöllun og umræður á vettvangi Norðurlandaráðs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi. Hér á eftir er gerð grein fyrir fundum efnahags- og fjármálaráðherra á árinu og starfi ýmissa nefnda á sviði þeirra, helstu verkefnum og greinargerðum.

Ráðherrafundir.
    Efnahags- og fjármálaráðherrar Norðurlanda héldu þrjá reglubundna fundi á árinu 1993. Jafnframt héldu forsætis- og fjármálaráðherrar Norðurlanda sameiginlegan fund í Maríuhöfn í nóvember 1993 um vandamál vaxandi atvinnuleysis og áherslur af hálfu Norðurlandanna í því samhengi. Auk þess héldu ráðherrarnir sérstakan fund með fjármálaráðherrum Eystrasaltsríkjanna í tengslum við ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í september 1993.
    Megináherslur ráðherrafundanna voru sem fyrr segir samskipti Norðurlanda við Eystrasaltsríkin, einkum í tengslum við hina sérstöku fjárfestingaráætlun (BIP) sem ráðherrarnir hrundu í framkvæmd í mars 1992. Enn fremur hefur mikil áhersla verið lögð á umfjöllun um atvinnuleysisvandann og hugsanlegar aðgerðir til að bregðast við honum. Í þessu samhengi hefur verið lögð mikil áhersla á alþjóðlegt samstarf, bæði á vegum EFTA- og EB-ríkjanna og innan OECD-samtakanna.
    Ráðherrarnir höfðu frumkvæði að tveimur sameiginlegum fundum efnahags- og fjármálaráðherra EFTA- og EB-ríkjanna á árinu 1993 og verður því samstarfi fram haldið á árinu 1994. Í tengslum við þetta starf hefur ráðherranefndin tekið saman tvær greinargerðir sem hafa verið lagðar fram í Norðurlandaráði og unnið er að þeirri þriðju sem lögð verður fyrir Norðurlandaráðsþingið í mars 1994. Auk þess hafa ráðherrafundirnir verið vettvangur almennrar umræðu um ástand og horfur í efnahagsmálum og í nóvember 1993 kom að venju út árleg skýrsla ráðherranna um efnahagsmál á Norðurlöndunum (sjá umfjöllun um starf efnahagsnefndar fjármálaráðherra).

Helstu nefndir, skýrslur o.fl.
    Embættismannanefndin (EK-finans).
Nefndina skipa háttsettir embættismenn í fjármálaráðuneytum landanna, einn frá hverju landi. Verkefni nefndarinnar eru fjölþætt. Meginverkefnið er að undirbúa ráðherrafundi og vera ráðgefandi í öllum málefnum sem varða starf ráðherranna á norrænum vettvangi. Nefndin hefur þannig haft yfirumsjón með skýrslugerð og greinargerðarskrifum fyrir ráðherrafundina. Jafnframt hafa sérstakir vinnuhópar starfað á vegum nefndarinnar til að sinna ákveðnum verkefnum. Á síðasta starfsári komu út fjórar skýrslur á vegum nefndarinnar, þ.e. tvær fyrrnefndar greinargerðir um atvinnuleysismál, skýrsla um styrki til atvinnuvega á Norðurlöndum og greinargerð um framgang sérstakrar efnahagsáætlunar Norðurlanda 1989–1992. Enn fremur er nú á lokastigi skýrsla um umhverfismál sem unnin er í sameiginlegum vinnuhópi embættismannanefnda um efnahagsmál og umhverfismál (sjá umfjöllun um starf ráðgjafanefndar á sviði umhverfismála).
    Eystrasaltsnefndin (Baltikumudvalget). Þessi nefnd var sett á laggirnar árið 1991, fyrst sem sérstakur vinnuhópur á vegum embættismannanefndarinnar til þess að undirbúa norrænu fjárfestingaráætlunina fyrir Eystrasaltsríkin sem var samþykkt á Norðurlandaráðsþingi 1992. Frá þeim tíma var nefndin formlega skipuð til þess að hafa eftirlit og yfirumsjón með þessu verkefni. Nefndina skipa að mestu sömu fulltrúar og sitja í embættismannanefndinni. Starf nefndarinnar hefur að mestu falist í að greiða fyrir og leitast við að tryggja framgang fjárfestingaráætlunarinnar. Í þessu skyni hefur nefndin haft náin samskipti við fulltrúa Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Evrópubankans í London (EBRD) og Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (NoPEF). Auk þess hefur nefndin átt viðræður við stjórnvöld og fulltrúa bankakerfisins í Eystrasaltsríkjunum. Nefndin hefur tvisvar lagt sérstaka skýrslu fyrir Norðurlandaráð, nú síðast í nóvember 1993, þar sem gerð er grein fyrir stöðu og framgangi fjárfestingaráætlunarinnar.
    Efnahagsnefndin (Konjunkturgruppen). Helsta verkefni þessarar nefndar er að fjalla um ástand og horfur í efnahagsmálum, einkum á Norðurlöndum. Auk þess hefur nefndin iðulega fjallað um afmörkuð verkefni á sviði efnahagsmála sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Nefndina skipa embættismenn úr fjármálaráðuneytum landanna. Á hverju hausti skilar nefndin sérstakri skýrslu til fjármálaráðherranna sem síðan er lögð fram á aukaþingi Norðurlandaráðs (Økonomiske udsigter i Norden).
    Ráðgjafarnefnd í gjaldeyris- og peningamálum (Nordiskt finansielt udvalg). Eins og nafnið ber með sér er nefndin ráðgefandi aðili fyrir fjármálaráðherrana í gjaldeyris- og peningamálum. Enn fremur annast nefndin undirbúning og samræmingu norrænna sjónarmiða á þessu sviði á alþjóðavettvangi, einkum fyrir fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Nefndina skipa embættismenn frá fjármálaráðuneytum og seðlabönkum landanna.
    Norræna hagrannsóknaráðið (Nordisk økonomisk forskningråd). Ráðið er sjálfstæður aðili sem heyrir undir fjármálaráðherrana. Meginverkefni þess er að stuðla að framgangi hagrannsókna, með styrkveitingum, ráðstefnum o.fl. Í samræmi við þetta veitir ráðið árlega styrki til vísindamanna á þessu sviði og gengst fyrir ráðstefnum um ýmis þau málefni á sviði efnahagsmála sem efst eru á baugi hverju sinni. Enn fremur hefur ráðinu ekki síst verið falið að leggja sérstaka áherslu á tiltekin verkefni. Sem dæmi má nefna skattlagningu fyrirtækja, aðlögun Norðurlandanna að Evrópubandalaginu og nú síðast sérstakt uppbyggingar- og fræðslustarf í Eystrasaltsríkjunum. Í ráðinu sitja fulltrúar frá fjármálaráðuneytum, seðlabönkum og háskólum landanna.
    Ráðgjafarnefnd á sviði umhverfismála (Nordisk kontaktgruppe for miljøøkonomi). Á vegum tveggja embættismannanefnda, þ.e. þeirra sem fjalla um efnahagsmál (EK-Finans) og umhverfismál (EK-M), starfar sérstakur ráðgjafahópur um beitingu hagrænna aðgerða á sviði umhverfismála. Fjármálaráðuneyti og umhverfisráðuneyti eiga fulltrúa í þessum hópi. Á árinu 1993 hefur hópurinn unnið að ýmsum verkefnum. Í byrjun árs stóð hann m.a. fyrir ráðstefnu um notkun hagrænna stjórntækja í umhverfismálum og í tengslum við hana hefur verið gefin út sérstök skýrsla, „The use of Economic Instruments in Environmental Policy“. Þá ritstýrir hópurinn tímariti um umhverfishagfræði, „Nordic Journal of Environmental Economics“, en það kemur út einu sinni á ári. Meginverkefni hópsins hefur hins vegar verið gerð skýrslu um stöðu umhverfismála á Norðurlöndunum út frá efnahagslegu sjónarmiði og er Ísland aðili að þessari skýrslu. Skýrslan verður gefin út á ensku, „A Nordic Report on Economic Instruments in Environmental Policy“, og er hún væntanleg á næstunni.
    Sérfræðinganefnd um norræn fjárlög (Budgetexpertgruppen). Hlutverk nefndarinnar er að skila faglegri umsögn um frumvarp samstarfsráðherrana til norrænu fjárlaganna, bæði tæknilegri og efnislegri. Fundi hópsins sitja einnig starfsmenn frá skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Í tengslum við sérfræðinganefndina starfa sömu fulltrúar innan annars hóps, Referensgruppen för mål- och ramstyrning. Samstarfsráðherrar Norðurlandanna fólu norrænu staðgenglanefndinni í lok árs 1991 að skipa nefnd til að fylgjast með og meta árangur af tilraunastarfsemi er lýtur að markmiðs- og rammastjórnun norrænna stofnana, skilgreina markmið með vinnuaðferðinni og leggja mat á hvort ástæða sé til að færa ákvörðunarvald í enn meira mæli til stofnana. Nefndinni er ætlað að skila skýrslu til samstarfsráðherranna og hefur þegar skilað áfangaskýrslu.
    Norræna launa- og starfsmannanefndin (Löne- och personalutskottet). Norræna launa- og starfsmannanefndin er ráðgefandi fyrir norrænu ráðherranefndina (samstarfsráðherrana) og forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Nefndin veitir ráðherranefndinni og forsætisnefndinni ráðgjöf í launa-, ráðningar- og lífeyrismálum þeirra sem starfa við samnorrænar stofnanir og skrifstofur nefndarinnar í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Nefndin fær þessi mál til umfjöllunar ýmist frá norrænu samstarfsnefndinni (Nordiska samarbetskommittén), ráðherranefndinni, Norðurlandaráði eða skrifstofum þeirra. Nefndin getur að eigin frumkvæði skotið málum varðandi ráðningar- og starfskjör til ráðherranefndarinnar og forsætisnefndarinnar. Hún ákveður þóknanir til stjórnarmanna við samnorrænar stofnanir. Nefndin á að ábyrgjast að um málefni, er varða stofnanirnar, fari eftir 5. gr. sáttmála þjóðanna um réttarstöðu samnorrænna stofnana frá 9. desember 1988 og að starfsmannafélög njóti umsagnarréttar áður en ákvörðun er tekin.

Önnur starfsemi.
    Auk þeirra verkefna, sem hér hafa verið nefnd, er rétt að vekja athygli á að fjármálaráðherrar Norðurlanda hafa um árabil haft náið samstarf og samráð á vettvangi ýmissa alþjóðastofnana. Áður var minnst á samráð fyrir fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Enn fremur má nefna hliðstæð samráð vegna funda á vegum OECD. Meginlínurnar eru gjarnan lagðar á norrænum ráðherrafundum og þeim er fylgt eftir á hinum ýmsu fundum innan OECD, jafnt ráðherrafundum sem öðrum. Þá má nefna starfsemi Evrópubankans í London. Norðurlöndin eiga þrjá fulltrúa í stjórn bankans sem hafa náið en óformlegt samráð þar sem leitast er við að samræma norræn sjónarmið.
    Loks er rétt að nefna að í ársbyrjun 1994 varð sú breyting á starfsháttum innan norrænu ráðherranefndarinnar að ábyrgð og umsjón með málefnum Norræna fjárfestingarbankans var formlega færð frá samstarfsráðherrum Norðurlanda til fjármálaráðherranna. Þessi breyting var talin eðlileg þar sem málefni bankans heyra í flestum landanna undir fjármálaráðuneytin. Breytingin var því talin greiða fyrir afgreiðslu ýmissa málefna bankans á norrænum vettvangi.
    Þetta breytir ekki því að samkvæmt gildandi ákvæðum um verkaskiptingu íslenskra ráðherra heyra bankamál og samskipti við erlendar fjármálastofnanir undir viðskiptaráðherra, þar með talinn Norræni fjárfestingarbankinn, en viðskiptaráðherra skipar fulltrúa Íslands í stjórn hans.

7.2. Norrænt samstarf um orku- og iðnaðarmál.
Skipulag.
    Haustið 1992 ákváðu iðnaðar- og orkuráðherrar Norðurlanda að sameina embættismannanefndirnar um orku- og iðnaðarmál og að halda sameiginlega fundi iðnaðar- og orkuráðherranna með einni sameiginlegri dagskrá. Breytingar þessar voru gerðar í samræmi við tillögur þær sem fyrir lágu frá forsætisráðherrum Norðurlanda um breytingar á norrænu samstarfi og viðleitni til að gera samstarfið virkara.
    Ráðherrar þessara málefna funda því saman og sameiginleg embættismannanefnd orku- og atvinnumála annast málatilbúnað. Á árinu voru haldnir tveir fundir orku- og iðnaðarráðherra landanna.
    Þannig starfa saman sem heild en í tveimur deildum þær embættismannanefndir er áður fjölluðu um orkumál annars vegar og hins vegar iðnaðarmál. Til iðnaðarhlutans, sem nú er kenndur við atvinnumál (näring), flokkast að auki ferðamannaþjónusta, stöðlun, vottun og prófun og eftir sem áður Norræni iðnaðarsjóðurinn í Ósló og „Nordtest“ í Helsingfors.

Samstarf um iðnaðar- og atvinnumál.
    Á síðasta ári beindust sjónir manna á sviði samstarfs í iðnaðar- og atvinnumálum mjög að forsendum starfsemi og starfsskilyrðum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og í því sambandi einkum að áhættufjármagni, svo og útflutningsmálum. Við forkönnun þessara málefna var samin skýrsla um áhættufjármagn á Norðurlöndum (NSA 1993:577). Að þessum málum verður hugað áfram enda starfshópur í gangi á vegum embættismannanefndarinnar sem falið hefur verið að greina hvernig koma megi til móts við þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir áhættufjármagn og leggja fram tillögur um hugsanlegar sameiginlegar aðgerðir.
    Á árinu 1993 var sérstökum starfshóp falið að meta og leggja fram tillögur um það hvernig mætti auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum útflutning. Þessu starfi verður haldið áfram á árinu 1994 og útflutningseflandi samstarf gaumgæft nánar.
    Á miðju síðasta ári var sérstökum samhæfingarhóp um norræna framkvæmdaáætlun fyrir Eystrasaltsríkin falið að vinna áfram að ráðgjafaráformum, einkavæðingarráðstefnum og gerð sjónvarpsþátta um markaðshagkerfi fyrir Eystrasaltsríkin. Þeim var einnig falið að kanna hvort unnt væri að framkvæma slíkar áætlanir í St. Pétursborg og nágrenni.
    Norrænt rannsóknar- og þróunarsamstarf innan ramma Norræna iðnaðarsjóðsins á árinu 1993 nam um 320 millj. n.kr. Hlutur sjóðsins í fjármögnun nam 85,2 millj. kr. sem er nokkuð lægri upphæð en á árinu á undan.
    Skilyrði fyrir stuðningi sjóðsins við rannsóknarverkefni er að um sé að ræða raunhæft samstarf á milli aðila frá a.m.k. tveimur Norðurlandanna.
    Stjórn sjóðsins samþykkti stuðning við 74 verkefni, samtals að fjárhæð 76,8 millj. n.kr. Auk þess var á árinu veitt fé til undirbúnings verkefnum og fleiri verkefna almenns eðlis að fjárhæð 8,4 millj. n.kr.
    Hlutur Íslendinga í stuðningi frá sjóðnum hefur vaxið með hverju ári og nam árið 1993 um 7% af samanlögðum styrkveitingum, en hlutdeild í greiðslum til sjóðsins er hins vegar 1%. Samtals var veitt fé til 118 verkefna sem er svipaður fjöldi og 1992.
    Með hliðsjón af auknum möguleikum á þátttöku í evrópsku rannsóknarsamstarfi á vettvangi EES var ákveðið að beina fé sjóðsins að fáum afmörkuðum verkefnasviðum sem miklu máli skipta fyrir samstarf Norðurlanda. Þau eru ný tækni í matvælaiðnaði, efnistækni léttra burðarhluta og ný tækni í skógar- og tréiðnaði.
    Í sérstökum kafla er fjallað nánar um starfsemi Norræna iðnaðarsjóðsins.
Samstarf um orkumál: breytt skipan.
    Í samræmi við ofangreindar breytingar var ákveðið að leggja niður sérfræðinganefndir er starfað höfðu á vegum embættismannanefndarinnar á sviði orkusparnaðar, orkumarkaðar og orku- og umhverfismála.
    Ákveðið var að leggja verulega aukna áherslu á alþjóðlegt samstarf. Fjallað hefur verið um samstarf að undirbúningi alþjóðlegra samninga, svo sem orkusáttmála Evrópu, sáttmála um loftslagsbreytingar, þróun mála í Evrópubandalaginu, áhrif EES á samstarf um orkumál og undirbúning funda í Alþjóðaorkustofnuninni (IEA).
    Á vegum embættismannanefndar um orku- og iðnaðarmál, orkuhlutans, starfa nú eftirfarandi nefndir: Stjórn orkurannsóknanefndarinnar og samstarfsnefnd varðandi kynningu möguleika á nýtingu á jarðgasi. Hin síðarnefnda lýkur störfum árið 1994. Auk þessa hafa verið settar á fót starfsnefndir til að fjalla um afmarkaða þætti í starfsáætlun um orkusamstarf Norðurlanda. Nefndir þessar fjalla um sameiginlegan raforkumarkað, stefnumótun varðandi alþjóðlegt starf við takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda og alþjóðlegt starf á sviði orkusparnaðar. Þá hefur verið haldinn einn fundur með embættismannanefndinni og forsvarsmönnum „Nordels“.

Starfsáætlun norræna orkusamstarfsins 1993.
    Haustið 1992 samþykktu norrænu orkuráðherrarnir áætlun um samstarfið fyrir árið 1993. Áætlunin gildir raunar einnig í megindráttum fyrir árið 1994. Helstu áhersluatriði eru eftirfarandi:
—    Norrænn raforkumarkaður.
—    Samstarf um orkumál innan EB/EES.
—    Orkusáttmáli Evrópu.
—    Samstarf á vettvangi Alþjóðaorkustofnunarinnar.
—    Stefnumótun varðandi alþjóðlegt starf við takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda.
—    Norrænt orkurannsóknasamstarf.
—    Staða og þróun orkumála í Austur-Evrópu og sérstaklega Eystrasaltsríkjunum.

Starfsemi 1993: norrænn raforkumarkaður.
    Stofnaður var starfshópur sem fjalla skyldi um norræna raforkumarkaðinn (skipunartími er frá 1. mars 1993 til 30. júní 1994). Starfshópurinn skyldi gera tillögu að svari við tilmælum Norðurlandaráðs nr. 9/1993, um framtíð „Nordels“, og meta forsendur og þörf fyrir sameiginlegar aðgerðir til að þróa norræna raforkumarkaðinn og kanna þróun innan Evrópubandalagsins og við Eystrasalt og meta afleiðingar hennar í sambandi við norrænan raforkumarkað.

Stefnumótun varðandi losun gróðurhúsalofttegunda.
    
Stofnaður var starfshópur sem meta skyldi áhrif skuldbindinga Norðurlanda um takmörkun útblásturs á orkuframleiðslu landanna (skipunartími hópsins er frá 1. apríl 1993 til 30. júní 1994). Meginverkefni starfshópsins eru eftirfarandi:
—    Gera athugun á stefnumörkun landanna varðandi hið svokallaða gróðurhúsavandamál, bera hana saman við alþjóðastefnumörkun á þessu sviði og meta kostnað landanna við að ná þeim markmiðum sem löndin hafa sett.
—    Meta áhrif orkuskatta sem hjálpartækis í orkumálum, sérstaklega koltvísýringsskatts við takmörkun útblásturs og hvaða áhrif slíkur skattur hefði á samkeppnishæfni.
—    Leggja mat á það með hvaða hætti löndin geti sameiginlega framkvæmt skuldbindingar, m.a. að bera saman aðgerðir heima fyrir og aðgerðir í Eystrasaltslöndum og Austur-Evrópu, til þess að markmiðum verði náð með sem lægstum kostnaði (kostnadseffektivitet).
—    Takmörkun útblásturs og flutningar.

Alþjóðleg orkumál.
    Á vegum embættismannanefndarinnar hefur verið fylgst með þróun orkumála á alþjóðavettvangi.
    Fjallað hefur verið um tilskipanir sem framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins hefur samþykkt eða gert tillögu um, sérstaklega með hliðsjón af samstarfi og skuldbindingum á Evrópska efnahagssvæðinu (og í Evrópubandalaginu), svo sem drög að tilskipunum um leyfi til olíuleitar og olíuvinnslu og tilskipunum um sameiginlegar reglur um raforku og gasmarkað. Haft hefur verið samráð um mikilvæga þætti varðandi orkusáttmála Evrópu. Fulltrúar landanna hafa rætt mál sem hafa verið á dagskrá á fundum Alþjóðaorkustofnunarinnar (IEA).
    Lögð hefur verið áhersla á upplýsingamiðlun um aðgerðir í Austur-Evrópu og Eystrasaltsríkjum, bæði aðgerðir sem einstök lönd hafa ráðist í og aðgerðir á vegum alþjóðlegra samtaka.

Orkusparnaður.
    Settur var á stofn starfshópur til að fjalla um orkusparnað á alþjóðavettvangi (skipunartími er frá 1. mars 1993 til 28. febrúar 1994). Hópurinn skal fyrst og fremst fjalla um miðlun upplýsinga um orkusparnað í sambandi við aðgerðir Evrópubandalagsins á þessu sviði, þar á meðal SAVE- og PACE-verkefnin, sérstaklega með tilliti til merkingar raftækja með upplýsingum um orkunotkun, sem og staðla og mæliaðferðir í sambandi við rafmagnstæki til heimilisnota.

Orkurannsóknir.
    Árið 1990 var ákveðið að halda áfram norræna orkurannsóknaverkefninu næstu fjögur árin, þ.e. til ársins 1994. Meginmarkmið verkefnisins er að byggja upp þekkingu og færni á sviði orkumála í háskólum í löndunum. Verkefnið nýtur fyrst og fremst styrkja beint frá Norðurlöndunum fimm og voru fjárveitingar í heild á árinu 1993 24 millj. n.kr. Viðamikið norrænt samstarf er unnið við verkefnið. Til marks um það er að um 60 rannsóknarmenn dveljast árlega í lengri eða skemmri tíma utan heimalands síns við nám og störf. Einnig eru haldin minni námskeið, málþing og ráðstefnur.
    Ráðherranefndin beitti sér fyrir því að gerð var úttekt á árangri verkefnisins af sérstökum starfshópi. Umsögn hópsins var mjög jákvæð, og á grundvelli hennar hefur stjórn verkefnisins nú lagt drög að framhaldi sem ná skal til áranna 1995–1998.
    Auk þeirra verkefna, sem lýst hefur verið hér að framan, hefur verið lokið við ýmis verkefni sem hafin voru á árinu 1993 og gefnar út lokaskýrslur um þau.
    Nefndin hefur lagt fram svar við tveimur „tilmælum“ (rekommendation) Norðurlandaráðs, nr. 9/1993, um framtíð Nordels, og nr. 35/1992, um samstarf á sviði umhverfis- og orkumála.

7.3. Norrænt samstarf um samgöngumál.
    Eins og fram kemur í skýrslu samstarfsráðherra fyrir árið 1992 fer norrænt samstarf um samgöngumál fyrst og fremst fram í norrænni embættismannanefnd um samgöngumál (NET), en í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar samgönguráðuneytanna á Norðurlöndunum ásamt aðstoðarfólki.
    Norræn nefnd um samgöngurannsóknir (NKTF), sem er föst nefnd undir stjórn NET, hefur fengið til ráðstöfunar meginhluta þess fjármagns sem NET hefur yfir að ráða frá norrænu ráðherranefndinni. Nefndin hafði til ráðstöfunar 2,7 millj. d.kr. á árinu 1993.
    Á árinu 1993 gerði NET tillögur til samgönguráðherra Norðurlandanna um verulegar breytingar á norrænu samstarfi á sviði samgöngumála.
    Í fyrsta lagi að NKTF hætti starfsemi frá og með 1. janúar 1994.
    Í öðru lagi var gerð sú tillaga að norræni samgöngusamningurinn frá árinu 1972 yrði felldur úr gildi.
    Ráðherrarnir hafa samþykkt að NKTF hætti starfsemi frá áramótum 1993/1994. Á fundi í mars 1994 munu ráðherrarnir væntanlega taka til afgreiðslu tillögu NET varðandi uppsögn norræna samgöngusamningsins.
    Undanfarin ár hefur ráðuneytið átt fulltrúa í sérstakri embættismannanefnd (EK-T) sem starfar að ferðamálum. Í tengslum við endurskoðun norræns samstarfs lagði aðalritari norrænu ráðherranefndarinnar til að EK-T yrði lagt niður 31. maí 1993 og að verkefni nefndarinnar yrðu flutt til norrænnar nefndar um iðnaðar- og orkumál þar sem þau ráðuneyti, sem fjalla um þessa málaflokka á Norðurlöndunum, nema á Íslandi og nýlega í Danmörku, hafa einnig með ferðamál að gera. Öll löndin hafa samþykkt þessa tilhögun mála.

7.4. Norrænt samstarf um húsnæðis- og byggingarmál 1993.
    
Embættismannanefndin um húsnæðis- og byggingarmál (ÄK-bygg) hefur starfað frá árinu 1972. Nefndin hefur á sínu verksviði samræmingu samstarfs Norðurlandanna um byggingarrannsóknir, samræmingu byggingarlaga og reglugerða, byggingarstaðla og gæðaeftirlits auk samstarfs á sviði stefnumótandi þátta húsnæðismálanna.
    Í janúar héldu húsnæðisráðherrar Norðurlandanna fund í Ósló og staðfestu fjórar verkefnaáætlanir fyrir árið undir heitunum: „Hið byggða umhverfi“, „Húsnæðispólitík“, „Aðgerðir varðandi byggingarreglur og stöðlun“ og „Verkáætlun fyrir aðgerðir í þágu baltnesku landanna“. Á vegum embættismannanefndarinnar hafa verið ræddar nýjar áherslur í norrænu samstarfi á sviði húsnæðis- og byggingarmála.
    Starfið samkvæmt samstarfsáætlun fyrir tímabilið 1992–1996, sem samþykkt var af ráðherrum á miðju ári 1992, er að taka á sig fast form. Stór framlög fóru til áframhaldandi starfs við að samræma norræna samstarfið á sviði stöðlunar vegna aðlögunar að Evrópustöðlum. INSTA B, sem miðar að samræmingu stöðlunar á vegum CEN, fékk 1.090.000 d.kr. af ráðstöfunarfé embættismannanefndarinnar. Samstarf um byggingarrannsóknir fer fram á vegum samstarfsnefndar norrænna byggingarrannsóknastofnana (NBS). Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins er aðili að þessari nefnd og hefur haft umsjón með starfi samstarfsnefndarinnar tímabilið 1990–1993. Norræna nefndin um byggingarlög og reglur (NKB) er stofnun sem annast um samræmingu á lögum og reglum um byggingar og umhverfi þeirra. Skipulag ríkisins er aðili að þessari nefnd. Undirnefnd stofnunarinnar vinnur að samræmingu á reglum um gæðaeftirlit og byggingarstaðla. Norrænu húsnæðisráðuneytin og stjórnsýslustofnanir húsnæðismála vinna saman að rannsóknarverkefnum er lúta að stefnumótandi þáttum húsnæðismálanna.
    Embættismannanefndin hefur tekið þátt í og styrkt fjölmörg rannsóknarverkefni, útgáfur skýrslna og ráðstefnur á vegum ofannefndra aðila. Á árinu var byrjað á tveimur nýjum samstarfsverkefnum á vegum húsnæðisstofnana og ráðuneyta á Norðurlöndunum: „Sértækar aðgerðir í húsnæðismálum — hlutverk félagslegra leiguíbúða“ og „Skipting áhættu og greiðsluerfiðleikar vegna húsnæðislána“.
    Á árinu var fram haldið samstarfi við baltnesku löndin. Á vegum embættismannanefndarinnar hefur verið sett á laggirnar verkefni sem snýr að einkavæðingu sem nú er unnið að í húsnæðismálum í þessum löndum. Einnig hefur verið haldið áfram fræðslu og ráðgjafarstarfsemi. Í því skyni var haldið námskeið í Ríga fyrir öll baltnesku löndin undir heitinu „Stjórnun og viðhald húsnæðisstofnsins“.
    Starf embættismannanefndarinnar einkenndist nokkuð af óvissu um framtíð samstarfsins í kjölfar þeirra breytinga á norrænu samstarfi sem ákveðnar hafa verið í samræmi við tillögur forsætisráðherranna. Samstarf á sviði húsnæðis- og byggingarmála er ekki eitt af forgangsviðfangsefnum norræns samstarfs samkvæmt fyrrgreindum breytingum. Á haustmánuðum varð ljóst að engin áform væru þrátt fyrir þetta um að hætta þessu samstarfi og hefur embættismannanefndinni verið veitt fjármagn til áframhaldandi starfs.

7.5. Vestur-Norðurlönd í norrænni samvinnu.
7.5.1. Samstarfsnefnd Vestur-Norðurlanda.
    Vestur-Norðurlönd eru eitt þeirra tíu samstarfssvæða sem heyra undir embættismannanefndina um byggðamál (NERP). Sérstaða samstarfs á þessu svæði felst m.a. í því að Ísland, Grænland og Færeyjar eiga ekki eiginleg landamæri saman, fjarlægðir eru miklar og staðhættir mjög misjafnir innan svæðisins. Starfsemi samstarfsnefndar Vestur-Norðurlanda er m.a. af þessum sökum ólík þeirri sem fram fer á hinum samstarfssvæðunum, en hún hefur í miklum mæli snúist um atvinnuþróunarstarf og samvinnu í atvinnumálum fremur en til að mynda samstarf í menningar- eða félagsmálum. Starfsemin á öðrum svæðum hefur beinst að því að ryðja burt þeim hindrunum sem landamæri eru, en af augljósum ástæðum hefur það ekki verið raunhæft markmið innan útnorðursvæðisins nema í takmörkuðum skilningi.
    Samstarfsnefnd Vestur-Norðurlanda var sett á stofn árið 1980. Nefndin er skipuð sex nefndarmönnum, tveimur frá hverju landi. Fyrir nefndina starfa sérstakur ráðgjafi í Færeyjum, ritari í hálfri stöðu á skrifstofu nefndarinnar í Færeyjum, auk starfsmanns á Grænlandi sem er þar í hálfu starfi fyrir samstarfsnefndina og hálfu fyrir Lánasjóð Vestur-Norðurlanda. Nefndin fundar að jafnaði tvisvar á ári.
    Fyrstu árin, sem nefndin starfaði, hafði hún takmarkað fé til umráða, en nokkuð rættist úr með samþykkt framkvæmdaáætlunar á vegum norrænu ráðherranefndarinnar um eflingu norræns samstarfs. Árið 1993 hafði nefndin 3,5 millj. d.kr. til ráðstöfunar sem var lítils háttar hækkun frá fyrra ári. Langstærstur hluti þess fjár, sem nefndin hefur til umráða, er veittur til einstakra verkefna á grundvelli umsókna. Umtalsverð fjölgun umsókna síðustu ár hefur gert nefndinni kleift að gera auknar kröfur til verkefna.
    Á síðustu tveimur árum hefur verið unnið að ýmsum breytingum á starfsháttum nefndarinnar. Nefndin hefur samið drög að samþykktum fyrir starfsemi sína og verða þau afgreidd af NERP í mars n.k. Í þeim er m.a. kveðið á um fjárhag og gerð ársskýrslu, markmið og verkefni, afgreiðslu umsókna, skilyrði fyrir styrkveitingum, eftirlit með verkefnum og skyldur styrkþega. Gerð er krafa um að verkefni, sem nefndin styrkir, feli í sér beint samstarf tveggja eða fleiri aðila í a.m.k. tveimur landanna eða að verkefni hafi ótvírætt gildi fyrir a.m.k. tvö þeirra. Þær umsóknir, sem fela í sér þróun og nýsköpun í atvinnumálum og hvetja til þess að samstarf sé tekið upp á nýjum sviðum, njóta nokkurs forgangs umfram aðrar umsóknir. Í því sambandi má benda á að nefndin áformar að beita sér fyrir því að koma á og styrkja samstarf rannsóknastofnana á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu í löndunum þremur. Þá er lögð þung áhersla á að niðurstöðum verkefna og þeim lærdómi, sem af þeim má draga, sé miðlað á milli landanna. Ekki er leyfilegt að veita styrki til einstakra verkefna lengur en til þriggja ára og skal nefndin að jafnaði ekki veita hærri styrki en sem nema helmingi útgjalda. Hér á landi hefur sú nýbreytni verið tekin upp að Byggðastofnun veitir umsögn um einstakar umsóknir íslenskra aðila áður en lagt er til við hina færeysku og grænlensku fulltrúa að nefndin styrki verkefnin. Meðal stærstu verkefna, sem nefndin ákvað að styrkja á árinu 1993, má nefna rannsóknir Hafrannsóknastofnunar og systurstofnunar í Færeyjum á sameiginlegum fiskstofnum, en rannsóknir hafa farið fram á karfastofninum og nú er unnið að því að kortleggja dreifingu ufsastofnsins; enn fremur ýmis verkefni á vegum vestnorræna ferðamálaráðsins sem ferðamálaráð landanna þriggja standa saman að.
    Á sl. ári barst nefndinni fyrirspurn landssamtaka sveitarfélaga í Norður-Noregi (Landdelsutvalget for Nord-Norge) um starfsemi nefndarinnar og lýstu þau áhuga sínum á þátttöku í störfum hennar. Lýsti nefndin yfir jákvæðri afstöðu sinni til þess, en samkvæmt samþykktum nefndarinnar, sem bíða staðfestingar, er nefndinni heimilt að veita fulltrúum annarra svæða áheyrnarrétt á fundum sínum (observatør-status). Er þess að vænta að komið verði á föstum tengslum við landshlutasamtökin og að athugað verði hvort mögulegt sé að efna til verkefna með þátttöku Norðmanna, enda ljóst að atvinnu- og staðhættir í Norður-Noregi eru um margt áþekkir því sem gerist á hinum vestlægu Norðurlöndum.
    Fulltrúar Íslands í nefndinni síðan 1991 eru Guðmundur Árnason, deildarstjóri í forsætisráðuneyti, og Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði.

7.5.2. Ferðamálaráð Vestur-Norðurlanda.
Vestnorræna ferðakaupstefnan.
    Kostir þess að Íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar hafi með sér náið samstarf í atvinnumálum eru e.t.v. hvergi eins augljósir og á sviði ferðamála þar sem segja má að ávinningur eins lands sé jafnframt ávinningur hinna. Meginmarkmið ferðamálaráðs Vestur-Norðurlanda er að vinna að fjölgun ferðamanna til aðildarlandanna og jafnframt að efla samskipti og ferðalög á milli landanna innbyrðis.
    Meðal verkefna, sem ferðamálaráðið hefur beitt sér fyrir, er vestnorræn ferðakaupstefna þar sem starfandi aðilar í ferðaþjónustu frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum kynna erlendum ferðaskrifstofum þá þjónustu og möguleika sem ferðamönnum standa til boða í löndunum þremur. Er það samdóma álit þeirra sem til þekkja að hér sé um afar mikilsvert framtak að ræða og að árangurinn undirstriki þann ávinning sem hlotist getur af nánu samstarfi landanna á þessu sviði. Ferðakaupstefnurnar nýtast ekki hvað síst smærri þjónustuaðilum sem hafa takmarkað bolmagn til að ráðast í kostnaðarsama kynningar- og markaðsstarfsemi. Þessar ferðakaupstefnur eru haldnar árlega, á Íslandi annað hvert ár og hin árin til skiptis í Færeyjum og á Grænlandi. Góð aðsókn var að síðustu kaupstefnu sem haldin var í Syðri-Straumfirði á Grænlandi í september sl. og þótti hún heppnast mjög vel. Næsta kaupstefna verður haldin á Íslandi í september 1994.

Sameiginleg markaðssókn og markaðskönnun.
    Ferðamálaráð Vestur-Norðurlanda tók í mars 1993 þátt í stórri ferðakaupstefnu sem sérhæfir sig í ferðamennsku með skemmtiferðaskipum. Er hér um að ræða markaðsátak sem vel þykir henta þessu samstarfi þar sem fyrst og fremst eru kynntar norðlægar slóðir og vakin athygli á viðkomu skemmtiferðaskipa í viðkomandi löndum. Stefnt er að þátttöku árið 1994. Gefinn verður út kynningarbæklingur með upplýsingum um helstu viðkomustaði fyrir skemmtiferðaskip í löndunum þremur og þá þjónustu sem veitt er á hverjum stað.
    Ferðamálaráðið hefur unnið að þessu markaðsátaki í náinni samvinnu við hafnarstjórnir Reykjavíkur og Akureyrar sem jafnframt eru aðilar að samstarfsverkefni fjölda hafna í Evrópu undur heitinu „Cruise Europe“.
    Ferðamálaráðið tók þátt í markaðskönnun meðal farþega nokkurra skemmtiferðaskipa sem komu til Reykjavíkur síðasta sumar. Könnunin var unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir ferðamálaráðið, Reykjavíkurhöfn og Reykjavíkurborg.
    Meðal annarra verkefna sem ráðið hefur staðið fyrir má nefna útgáfu kynningarbæklings um löndin þrjú á fimm tungumálum sem dreift hefur verið víða um heim. Verið er að vinna að gerð myndbanda um löndin þrjú, sérkenni þeirra og það sem aðgreinir þau.
    Þá má einnig nefna heimsóknir blaðamanna og stuðning við ferðalög námsmanna milli landanna.
    Í ferðamálaráði Vestur-Norðurlanda eiga sæti þrír fulltrúar frá hverju aðildarlandi. Fulltrúar Íslands árið 1993 eru Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri sem er formaður ráðsins, Pétur J. Eiríksson, markaðsstjóri Flugleiða, og Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi formaður ferðamálaráðs Íslands. Í byrjun árs 1992 var Inga Sólnes ráðin verkefnisstjóri ráðsins til tveggja ára. Samningur hennar hefur nú verið framlengdur til 31. desember 1995.

7.6. Landbúnaður og skógrækt.
Þróunin á Norðurlöndum.
    Þróun landbúnaðarmála á Norðurlöndum ber skýr merki aðlögunar að alþjóðlegum aðstæðum og áhrifa umhverfissjónarmiða á stefnu í landbúnaði. Erfiðleikar urðu í GATT-viðræðunum á árinu, einkum vegna ágreinings um þýðingu „Blair-House“-samningsins sem skyldar Evrópubandalagið til að draga úr stuðningi við landbúnað. Lokadagur GATT-viðræðnanna var ákveðinn 15. desember 1993, og jákvæð niðurstaða þeirra leiðir til frjálsari viðskipta með landbúnaðarafurðir og að dregið verði úr útgjöldum til landbúnaðarmála.
    Finnar, Norðmenn og Svíar standa í viðræðum um aðild að Evrópubandalaginu. Aðild landanna hefði í för með sér að stefna sambandsins yrði einnig stefna þeirra í landbúnaðarmálum og útfærsla þess er meðal viðfangsefna í viðræðunum. Gildistaka EES-samningsins hefur í för með sér að EFTA-löndin, sem aðild eiga að honum, munu taka upp reglur Evrópubandalagsins um plöntuheilbrigði, heilbrigði búsmala, fræ- og plöntuhluta og hollustu fóðurs. Gagnkvæmir samningar, sem náðust milli Evrópubandalagsins og EFTA-landanna um landbúnaðarmál samhliða EES-viðræðunum, tóku gildi frá 15. apríl 1993 að telja.

Samstarfsáætlun um landbúnaðarmál.
    Unnið er samkvæmt áætlun til tíu ára sem samþykkt var árið 1985 á 33. þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík. NEJS (Nordisk embetsmannskomité for jord- og skogbruksspørsmål) vinnur að framgangi þeirrar áætlunar auk annarra verkefna sem upp koma hverju sinni. Verkefnin eru flest á sviði landbúnaðar og skógræktar en einnig er tekist á við ýmis verkefni í samstarfi við aðra aðila innan Norðurlandasamstarfsins og þá einkum þau sem skarast við ofangreindan málaflokk. Stofnað hefur verið til sérstaks samstarfs við embættismannanefnd um umhverfismál, og einnig ýmis málefni tengd iðnaði, manneldismálum, rannsókna- og þróunarstarfi og byggðamálum.
    Framgangur áætlunarinnar var metinn og á grundvelli endurmatsins var gerð ný áætlun fyrir síðari hluta tímabilsins, þ.e. árin 1990–1995. Í þessari nýju áætlun hefur verið lögð aukin áhersla á nokkur ný svið og þá einkum ýmsa þætti umhverfismála og erlend samskipti í tengslum við þau.
    Forgangsverkefni þessa tímabils eru:
—    Umhverfismál í landbúnaði.
—    Norðlæg svæði Norðurlanda.
—    Erfðaefni og erfðabreytileiki.
—    Samræming og aðlögun að reglugerðum EB.
—    Rannsóknasamstarf og framhaldsmenntun.
    Íslendingar taka virkan þátt í flestum verksviðum starfsáætlunarinnar um landbúnaðarmál og eru þessi helst:
—    Samræming á sviði stefnumörkunar í landbúnaði (NKJS).
—    Norræni genbankinn fyrir nytjaplöntur (NGB).
—    Norræni genbankinn fyrir búfé (NGH).
—    Norræna samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ).
—    Norræna bútækniráðið (NTS).
—    Samstarf um plöntusjúkdóma og samræmdar reglur um innflutning.
—    Samstarf á sviði aðfangaeftirlits.
—    Samstarfsnefnd um norrænar skógræktarrannsóknir (SNS).
    Íslenskir skógræktarmenn taka virkan þátt í mörgum undirhópum SNS og Rannsóknastöðin á Mógilsá er beinn þátttakandi í þremur verkefnum sem eru í gangi og eru fjármögnuð að hluta til úr norrænum sjóðum.
    Á árinu 1993 var unnið sérstaklega að endurskoðun á skipulagi samstarfs Norðurlandanna á sviði hagnýtrar erfðafræði plantna í þágu landbúnaðar og garðyrkju. Í framhaldi af því voru sameinaðar í eina stofnun NGB og SNP (Norrænar plöntukynbætur) og ber hin nýja stofnun nafnið NGB. Dr. Sigfús Bjarnason veitir þessari stofnun forstöðu og er henni ætlað mikið hlutverk í framtíðinni, ekki hvað síst í tengslum við aukið vægi umhverfismála, varðveislu erfðabreytileika í framhaldi af Ríó-ráðstefnunni og norrænt samstarf á sviði þróunaraðstoðar. NGB samræmir og styður margvísleg verkefni sem sum hver hafa haft mikla þýðingu hér á landi. Framkvæmdastjóri fyrir NGH er dr. Stefán Aðalsteinsson og hefur vægi þeirrar stofnunar innan norrænu ráðherranefndarinnar einnig aukist verulega á síðasta ári af sömu ástæðum og nefndar eru fyrir NGB. Á árinu var unnið að ýmsum skipulagsbreytingum sem koma í kjölfar breyttra starfshátta og breytts vægis málaflokka innan ráðherranefndarinnar í framhaldi af samþykkt síðasta þings Norðurlandaráðs.

7.7. Norrænt samstarf í líftækni.
7.7.1. Samstarfsnefnd um líftækni (NKB).
    Norrænu líftækniáætluninni, sem hófst 1988, lauk formlega í árslok 1992. Einstakar undiráætlanir stóðu þó mislengi og þeim síðustu lýkur í byrjun árs 1994.
    Stjórn norrænu líftækniáætlunarinnar (NPB) var því lögð niður en í staðinn var sett á laggirnar norræn samstarfsnefnd um líftækni (Nordisk Koordineringskommitté för Bioteknologi — NKB) og hófst starfsemi hennar 1. janúar 1993. Fulltrúi Íslands í NKB er dr. Jakob K. Kristjánsson hjá Iðntæknistofnun. NKB hefur haft u.þ.b. 3 millj. d.kr. til ráðstöfunar á ári. Nefndin hélt þrjá fundi á árinu 1993 og tóku fulltrúar frá Norræna iðnaðarsjóðnum (NI) og norrænu landbúnaðar- og skógnytjanefndinni (NÄJS) þátt í fundum NKB til þess að tryggja upplýsingaflæði að og frá nefndinni. NKB er uppálagt að fjármagna starfsemi norrænnar nefndar sem fjallar um siðfræðileg atriði líftækni. NKB ákvað síðan að setja á fót tvö samstarfsverkefni sem tengdust vandamálum við losun erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Þessi verkefni (netverk) fjalla annars vegar um losun, lífslíkur og losun erfðaefnis frá erfðabreyttum örverum í umhverfinu og hins vegar um notkun Basillus turingensis sem „náttúrulegs“ skordýraeiturs. Þessu til viðbótar ákvað NKB að styrkja áfram framhald á verkefninu HUGO sem fjallar um erfðamengi mannsins („The Nordic Genome Initiative“) og verkefni um mótefnafræði fiska (fiskeimmunologi). NKB hefur fjármagn til þess að efna til eins verkefnis enn til tveggja ára og verður tekin ákvörðun um það á næsta fundi nefndarinnar sem fyrirhugaður er á Íslandi í lok maí 1994.

Framhald á norrænu samstarfi í líftækni.
    Megnið af því fjármagni sem fór til norrænu líftækniáætlunarinnar á sínum tíma fór í gegnum Norræna iðnaðarsjóðinn. Norræna líftækniáætlunin skipti verulegu máli fyrir rannsóknir á þessu sviði á Íslandi og er áætlað að tekist hafi að afla milli 20 og 30 millj. kr. árlega a.m.k. frá 1990 til 1993 til íslenskra líftæknirannsókna af verkefnafé norrænu líftækniáætlunarinnar. Áherslusvið Norræna iðnaðarsjóðsins hafa nú gjörbreyst auk þess sem fé til hans hefur verið skorið niður.
    Íslenskir vísindamenn í líftækni hafa ekki getað bætt sér upp innan lands það fjármagn sem þeir urðu af þegar norrænu líftækniáætluninni lauk. Það kom sér einmitt sérstaklega illa þegar frestun varð á gildistöku EES-samningsins, en margir höfðu annars séð sér færi á að leita fanga í evrópskum samstarfsverkefnum og fjármagna þau með styrkjum úr sjóðum EB.
    Áherslusvið Norræna iðnaðarsjóðsins eru nú fjögur, matvælaiðnaður, efnistækni, pappírsiðnaður og tréiðnaður. Ekkert þessara sviða gefur virkilega góða möguleika fyrir líftækniverkefni enda hefur það komið á daginn að hlutur Íslands í flestum þessum nýju áætlunum NI er mjög rýr. Eina áætlunin, þar sem Íslendingar eru með í einhverjum mæli, er matvælaiðnaðaráætlunin þar sem þeir náðu mjög góðum árangri í fyrsta hluta úthlutunarinnar, en líftækniverkefni þar eru hins vegar mjög fá og smá. Eitt lítið líftækniverkefni er þó með í norrænu pappírsiðnaðaráætluninni. Þau sambönd, sem byggð voru upp við norræna samstarfsmenn á meðan á norrænu líftækniáætluninni stóð, hafa þó haldist áfram. Sum þeirra hafa einmitt orðið að eins konar inngangi að EB-verkefnum.

7.7.2. Siðfræðilegar hliðar líftækni.
    Framfarir í gentækni og líftækni almennt verða nú æ örari og stórstígari og bera fréttir í fjölmiðlum hérlendis á síðustu mánuðum glöggt vitni um það. Má þar nefna umræðu um erfðafræðilega fjölföldun eða „klónun“ einstaklinga, um erfðakort mannsins, svokölluð „krabbameinsgen“ og gervifrjóvgun er gerir eldri konum fært að eignast börn. Þá voru Nóbelsverðlaunin 1993 í lífeðlis- eða læknisfræði veitt fyrir uppgötvanir á þessu sviði. Hér höfum við greinileg teikn um það að þessi tækni getur komið til með að gerbylta starfsemi á mörgum sviðum í framtíðinni.
    Samkvæmt ákvörðun norrænu ráðherranefndarinnar 16. september 1992 var endurskipað í nefnd til að fjalla um siðfræðilegar hliðar líftækni sem skyldi starfa í þrjú ár, frá og með 1. janúar 1993. Siðfræðinefnd hafði áður starfað frá 1988 til ársloka 1992 sem ein af nefndum líftækniáætlunar ráðherranefndarinnar, og var fjallað um störf þeirrar nefndar í heftinu Bioteknologisk samarbeidsprogram 1988–92 — sluttrapport sem kom út 1993 (Nordiske seminar og arbejdsrapporter 1993:535).
    Fulltrúar Íslands í nefndinni eru nú dr. Erlendur Jónsson heimspekingur og dr. Jórunn Erla Eyfjörð erfðafræðingur.
    Á árinu 1993 hélt nefndin fjóra fundi, í Kaupmannahöfn, Helsingfors, Ósló og Stokkhólmi. Á fundinn í Kaupmannahöfn kom prófessor Steen Struwe og fræddi nefndarmenn um samnorræna rannsóknaráætlun um umhverfishættu vegna erfðabreyttra lífvera.
    Í ársbyrjun 1993 kom út bæklingurinn Patent på liv? er fjallar um siðfræðivanda í tengslum við einkaleyfi á líftæknilegum uppgötvunum. Í þessu riti birtust erindi, flutt á ráðstefnu í Lundi 28.–29. apríl 1992.
    Haldin var fjölmenn málstofa á vegum nefndarinnar á Hanaholmen, Esbo, í Finnlandi dagana 22.–23. apríl undir yfirskriftinni „Notkun erfðabreyttra lífvera“ með þátttöku vísindamanna, stjórnmálamanna og starfsmanna stjórnsýslu frá öllum Norðurlöndunum. Í lok málstofunnar var haldinn blaðamannafundur. Íslenskir þátttakendur í málstofunni voru, auk fulltrúa Íslands í nefndinni, Aðalheiður Jóhannsdóttir, lögfræðingur frá umhverfisráðuneytinu, sem hélt erindi um íslenskar réttarreglur um not á erfðabreyttum lífverum, og dr. Snorri Baldursson, sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Flutt voru erindi um það hvaða siða- og réttarreglur um erfðabreyttar lífverur gildi innan Evrópubandalagsins (Jan Vater frá danska umhverfisráðuneytinu í Kaupmannahöfn) annars vegar og á Norðurlöndum hins vegar (Madeleine Holst frá Svíþjóð, Hans Erik Svart frá Danmörku, Ritta Rönn frá Finnlandi, Wenche Blix Gundersen frá Noregi, auk Aðalheiðar Jóhannsdóttur). Sigrid Andersen frá Kaupmannahafnarháskóla ræddi um samnorræna rannsóknaráætlun um hættu á umhverfisspjöllum vegna erfðabreyttra lífvera og um ónæmi gegn fúkkalyfjum og þýðingu þess fyrir notkun á erfðabreyttum lífverum. Göran Hermerén, formaður nefndarinnar, prófessor í Lundi, fjallaði um hugsanlegan mun á gildismati því er liggur að baki siða- og réttarreglna um þessi mál milli Norðurlandanna innbyrðis annars vegar og milli þeirra og Evrópubandalagsins hins vegar. Þeir dr. Peter Sandöe, formaður Dýraverndarráðs danska ríkisins (Det Dyreetiske Råd), og dr. Matthias Kaiser frá Óslóarháskóla töluðu um heimspekilegar hliðar á notkun erfðabreyttra lífvera. Erindi málstofunnar voru gefin út af norrænu ráðherranefndinni í september 1993 undir heitinu Erfðabreyttar lífverur — siðfræðileg og lögfræðileg umræða á Norðurlöndum. Sem viðauki við þetta rit birtast tveir siðareglubálkar Evrópubandalagsins um not á erfðabreyttum lífverum (nr. 90/219 og 90/220).
    Nefndarmenn hafa enn fremur fengið það verkefni að semja yfirlit yfir umræður um siðfræðilegan vanda tengdan líftækni á árinu 1993 í sínu heimalandi.
    Næsta höfuðverkefni nefndarinnar er að skipuleggja málstofu, sem haldin verður í apríl nk. í Ósló, um siðfræðilegar hliðar á forsögnum um sjúkdóma sem reistar eru á gentæknilegum rannsóknum. Á þessa málstofu verður boðið a.m.k. tveimur sérfræðingum frá Íslandi.

7.8. Norrænt samstarf um upplýsingavinnslu.
    Nefnd um upplýsingavinnslu var skipuð samkvæmt bréfi norrænu ráðherranefndarinnar, dags. 30. september 1991, í framhaldi af tillögum fyrri samráðsnefndar er í daglegu tali var kölluð KO-data. Tillögurnar er að finna í skýrslunni „Framtidiga datapolitiska satsningsområder innen Nordisk ministerråd“ sem dagsett er í maí 1991. Í skýrslum samstarfsráðherra fyrir árin 1991 og 1992 er greint ítarlega frá aðdraganda og upphafi starfseminnar. Verður það ekki rakið hér.
    Af hálfu Íslendinga situr Jóhann Gunnarsson, deildarstjóri tölvumála í fjármálaráðuneyti, Hagsýslu ríkisins, í nefndinni.
    Á fyrsta fundi ársins 1993, 21. janúar, var rætt um stöðu nefndarinnar í ljósi breyttra áherslna í norrænni samvinnu, sbr. samþykkt forsætis- og samstarfsráðherranna í Árósum 11. nóvember 1992, athugasemdir, dags. 14. desember 1992, frá Pär Stenbäck framkvæmdastjóra, „Politisk uppföljning av statsministerrapporten“ og athugasemdir, dags. 1. desember 1992, frá skrifstofu framkvæmdastjórans, „Förslag til fördelning av samarbetsområden under de sju satsningsområdena“.
    Nefndin túlkar þessi gögn svo að áhersla hafi minnkað á upplýsingatækni sem sjálfstætt umfjöllunarefni í norrænni samvinnu. Að minnsta kosti í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er í vaxandi mæli litið á upplýsingatækni sem hjálpartæki fyrir aðrar greinar opinberrar stjórnsýslu og ábyrgð á þróun og framförum því færð yfir á þær.
    Formaður nefndarinnar, Eivind Jahren, ritaði því ráðherranefndinni bréf, dags. 2. febrúar 1993, þar sem lagt var til að starfstímabil hennar yrði stytt um eitt ár og að áætluð fjárveiting til hennar 1994 að upphæð 1,5 millj. d.kr. ekki veitt. Þó megi nefndin árið 1994 ráðstafa því fé af fjárveitingu 1993 sem óráðstafað verði. Ráðherranefndin samþykkti þessa tillögu.

EB-tengiliður.
    Svo sem getið var í skýrslu síðasta árs var Emil Bundesen, sérfræðingur í danska fjármálaráðuneytinu, ráðinn í hálft starf sem EB-tengiliður á vegum nefndarinnar með það forgangsverkefni að velja úr gögnum bandalagsins og senda tengiliðum í hverju landi valdar upplýsingar um málefni tengd upplýsingatækni í opinberri stjórnsýslu. Þessu verkefni gat hann ekki sinnt nema fram á mitt ár 1993, og var ekki fundinn annar maður í hans stað. Nefndir munu skiptast á upplýsingum um EB-málefni á þeim fundum sem eftir eru.

Upplýsingatækni og opinber stjórnsýsla.
    Lögð var fram skýrsla um ráðstefnu, er nefndin styrkti, um efnið „Electronic document and EDI in the public administration of Nordic countries“ er haldin var í Helsingfors haustið 1992.
    Nefndin veitti styrk til undirbúnings ráðstefnu um upplýsinganet fyrir almenning, „medborgarnät“. Atli Arason, viðskiptafræðingur hjá Skýrr, sótti hana og flutti erindi um stöðu mála hér á landi.

Stöðlun.
    Ákveðið var að styrkja verkefni samkvæmt tillögu frá Svíþjóð um að þróa og laga sænskan staðal um stafrófsröðun, TN34:1, að aðstæðum á Norðurlöndum og í Evrópu með tilliti til víðtækrar notkunar hans.

Öryggi gagna.
    Unnið var með fjárveitingu frá nefndinni að könnun á stöðu öryggismála varðandi upplýsingar og upplýsingatækni hjá opinberum stofnunum á Norðurlöndum. Ákveðið var af hálfu Íslendinga að taka ekki beinan þátt í könnuninni. Þó er búist við að niðurstöður hennar geti komið að gagni hér. Skýrsla liggur fyrir í drögum til gagnrýni. Nefndin hyggst taka til meðferðar hugsanlegar framhaldsaðgerðir þegar henni verður skilað í endanlegu formi.

Lokaorð.
    Nefndin hefur til ráðstöfunar um 1 millj. d.kr. á árinu 1994. Formlega mun hún verða lögð niður 1. júlí næstkomandi. Tillögur liggja fyrir um nokkur verkefni, og verða þær afgreiddar á fundi í febrúar 1994.


8. Norrænt samstarf um sjávarútvegsmál.



Almenn atriði.
    Í ársbyrjun 1993 féll verð á sjávarafurðum, m.a. vegna almenns samdráttar á heimsmarkaði og vegna lækkandi verðlags á samkeppnisvörum. Að auki drógust fiskveiðiheimildir landanna saman á árinu nema í Noregi.
    Evrópubandalagið, sem er mikilvægasti markaður norrænna sjávarafurða, hefur sett lágmarksverð á innfluttan fisk til þess að sporna við lækkandi skiptaverði til sjómanna. Einnig hefur eftirlit með fiskinnflutningi og löndunum skipa frá ríkjum utan sambandsins verið hert. Alvarlegustu áhrifin af þessari óhagstæðu þróun hafa orðið í Færeyjum, en til viðbótar verðlækkunum hefur afli þeirra minnkað um 30 af hundraði frá árinu 1990.
    Grænlendingar hafa haldið óbreyttum heimildum til rækjuveiða, en þær afla þjóðinni mestra útflutningstekna. Í því skyni að bæta afkomu útgerðarfyrirtækja á tímum lækkandi verðs á rækju hafa Grænlendingar fækkað úthafsrækjutogurum úr 55 í 33.
    Landanir rússneskra fiskiskipa hafa haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á sjávarútveg í Noregi. Jákvæðu áhrifin eru aukin umsvif á vinnumarkaði en neikvæðu áhrifin að aukið framboð á afla hefur leitt til þrýstings til lækkunar á markaði, svo og til óróa í röðum norskra sjómanna.
    Athygli vöktu aðgerðir danskra sjómanna gegn innflutningi frá Noregi og flutningum á norskum afla um Danmörku, ásamt deilum Norðmanna og Íslendinga um þorskveiðar íslenskra fiskiskipa í Smugunni í Barentshafi.
    Umsóknir Finna, Norðmanna og Svía að Evrópubandalaginu og afstaða þeirra til sjávarútvegsmála í aðildarviðræðum hafa verið helsta tilefni viðræðna milli talsmanna sjávarútvegs og stjórnvalda.
    Ákvörðun Norðmanna um að hefja hvalveiðar að nýju hefur verið umræðuefni á vettvangi Norðurlandasamstarfsins.
    Norðurlandasamstarf á sviði sjávarútvegsmála hefur í vaxandi mæli varðað áhrif Evrópubandalagsins á stefnu Norðurlandanna í þessum málaflokki sem ljóslega hefur komið fram bæði í verkefnavali og á málþingum.
    Ráðstöfunarfé sjávarútvegsráðherranna til verkefna hefur verið notað í samræmi við áherslur í samstarfsáætlun frá 1992 að viðbættu samstarfi við lönd við Eystrasalt og málefni varðandi Evrópubandalagið.

Eitt af sjö áherslusviðum í norrænu samstarfi.
    Á árinu 1993 var norræna samstarfinu á sjávarútvegssviðinu hagað samkvæmt sérstakri starfsáætlun, en grundvöllur hennar er samstarfsáætlun um sjávarútvegsmál fyrir árin 1993–1996 sem sjávarútvegsráðherrar Norðurlandanna samþykktu í mars 1992. Á árinu 1993 var höfuðáhersla lögð á eftirtalin svið:
—    Stefnumörkun í sjávarútvegsmálum og sjávarútvegsstefnu EB.
—    Samstarf hagsmunasamtaka í sjávarútvegi með sérstakri áherslu á umhverfismál.
—    Tengsl við Austur-Evrópu.
—    Skynsamleg nýting auðlinda hafsins.
—    Kjörhæfni veiðarfæra og aðrar tæknilegar aðferðir til verndunar fiskstofna.
—    Hafbeit og fiskeldi.
—    Framleiðsla sjávarafurða, gæðamál og markaðsmál.
    Á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar hefur sú ákvörðun forsætisráðherranna að gera sjávarútvegsmál eitt sjö áherslusviða við endurskoðun á samstarfinu leitt til þess að unnt er að fylgja samstarfsáætluninni frá 1992 samkvæmt því sem gert hafði verið ráð fyrir.

Styrkir til ýmissa verkefna.
    Á árinu 1993 var rúmum 9 millj. d.kr. ráðstafað til að styrkja ýmis verkefni á sviði sjávarútvegsins. Stærstum hluta þessara fjármuna var ráðstafað til ýmissa rannsóknarverkefna í samræmi við þær áherslur sem voru í starfsáætluninni. Auk þess var hluta fjármunanna varið til ráðstefnuhalds um ýmis samstarfsverkefni og til funda sem haldnir voru m.a. til að kanna möguleika á því að samræma stefnu Norðurlandanna út á við í tilteknum málum. Sem dæmi má nefna fund sem haldinn var fyrir ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um veiðar á úthafinu þar sem skipst var á skoðunum um efni ráðstefnunnar. Enn fremur var haldinn fundur um nýtingu sjávarspendýra. Einnig voru haldnir fundir um fyrirkomulag veiðieftirlits á Norðurlöndunum og hagnýtingu nýjustu tækni til að senda upplýsingar frá skipum til lands og hvernig það, ásamt bættum upplýsingaskiptum milli landanna, gæti nýst í eftirliti.

Norrænt samstarf á sviði sjávarútvegsmála.
    Af hálfu Íslands hefur verið lögð áhersla á samstarf á þeim sviðum sjávarútvegsmálanna sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Má þar nefna heilbrigðiskröfur EB til sjávarafurða og innra eftirlit með framleiðslu þeirra, sem og landamæraeftirlit við innflutning sjávarafurða til EB. Einnig var haldinn fundur um rannsóknasjóði EB og kannaðir möguleikar á samstarfi Norðurlandanna til að hafa áhrif á þá þætti sem áhersla verður lögð á í framtíðinni í rannsóknum á sjávarútvegssviðinu, en eins og kunnugt er fá EFTA ríkin aðgang að þessum sjóðum eftir að EES-samningurinn kemur til framkvæmda.

Styrkveitingar frá norrænu ráðherranefndinni.
    Íslenskir vísindamenn og stofnanir áttu hlut að máli í mörgum þeirra verkefna sem voru styrkt af norrænu ráðherranefndinni á árinu 1993. Meðal verkefna, sem voru undir forustu Íslendinga, má nefna:
—    verkun kryddsíldar,
—    rannsóknir á stofnum löngu, keilu og blálöngu í Norðaustur-Atlantshafi,
—    kynbætur á hafbeitarlaxi og
—    verkefni sem einnig var styrkt af ráðherranefndinni um umhverfismál og fjallar um botndýralíf við Ísland (BIOICE).
    Þá var tekið upp samstarf við ráðherranefndina um umhverfismál og voru bæði haldnir fundir ráðherra sem og embættismanna.

Norræna fiskimálaráðstefnan í Karlstad.
    Á árinu var 23. norræna fiskimálaráðstefnan haldin í Karlstad í Svíþjóð, en ráðstefna sem þessi er haldin þriðja hvert ár. Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um fyrirkomulag eftirlits með fiskveiðum og fiskveiðistefnu Evrópubandalagsins. Enn fremur var fjallað um markaðsmál, lágmarksverð EB á fiski, sem og markað fyrir fisk á almennari grundvelli. Þá var norrænt verkefni um kjörhæfni veiðarfæra kynnt. Ráðstefnuna sóttu um það bil 250 manns. Meðal þeirra voru sjávarútvegsráðherrar Norðurlandanna, þingmenn, fulltrúar frá rannsóknastofnunum og hagsmunasamtökum í sjávarútveginum og fréttamenn. Frá Íslandi fóru 14 manns á ráðstefnuna.


9. Lagaleg atriði.



9.1. Samvinna um setningu laga.
    
Á árinu 1993 var norrænu samstarfi um setningu laga fram haldið með líkum hætti og verið hefur síðasta áratug. Samstarfsáætlun um lagasetningu frá 1988 hefur reynst hagnýtt verkfæri í vali milli verkefna.
    Að tillögu laganefndar Norðurlandaráðs samþykktu dómsmálaráðherrarnir á árinu sérstaka verkefnaáætlun sem viðauka við samstarfsáætlun frá 1988. Verkefnaáætlunin nær til fimm ára og fjallar einkum um breytingar á hefðbundnu samstarfi að lagasetningu vegna áhrifa af breytingum á Evrópusamstarfinu.
    Á þeim sviðum, sem EES-samningurinn nær til, munu verkefni einkum lúta að norrænu samstarfi við að taka upp og laga reglugerðir (tilskipanir) Evrópubandalagsins að lögum og reglugerðum heima fyrir.
    Að venju funduðu dómsmálaráðherrar og embættismannanefndin reglulega á árinu. Embættismenn ráðuneyta skiptust á upplýsingum og ræddu einstök mál sem varða setningu laga. Fulltrúar Norðurlanda hafa einnig unnið saman á alþjóðavettvangi, jafnt í samningaviðræðum um EES sem í víðara samhengi. Óformleg samskipti embættismanna hafa verið umfangsmikil og einkum haft þýðingu í daglegu starfi að setningu laga.
    Eðlilega hefur mikið af samstarfinu varðað atriði sem tengjast EES-samningnum. Samningurinn hefur leitt af sér nánara samstarf á mörgum sviðum en einnig til þess að samstarfið nær til fleiri sviða nú en áður. Þannig hafa Norðurlöndin haft samvinnu um undirbúning að þeim lagabreytingum heima fyrir sem leiðir af EES-samningnum. Lögð hefur verið áhersla á að finna svipaðar lausnir þegar ákvæði EES-samningsins eru ekki einhlít og að innleiða dómsaðgerðir Evrópubandalagsins með svipuðum hætti. Miklu hefur þótt skipta að nýta reynslu Dana þegar upp hafa verið teknar dómsaðgerðir Evrópubandalagsins. Ráðherranefndin íhugar einnig hvernig samvinnu að lagasetningu verður háttað eftir gildistöku EES-samningsins.
    Samhliða samvinnu á grundvelli EES-samningsins hafa Norðurlöndin haldið áfram og fjölgað sviðum í samstarfi að setningu laga, m.a. í refsirétti og í meðferð opinberra aðila.
    Aðstoð við þróun og uppbyggingu réttarfarskerfis í Eystrasaltslöndum hefur notið forgangs á árinu. Aðstoðin, sem bæði er veitt af einstökum löndum og af ráðherranefndinni, felur í sér menntun og þjálfun lögfræðinga, rit um lögfræðileg efni, málþing og aðstoð við gerð laga í einstökum málaflokkum. Samstarf þetta byggist m.a. á tilmælum Norðurlandaráðs. Í tengslum við fund norrænu dómsmálaráðherranna í Marstrand sumarið 1993 var efnt til fyrsta sameiginlega fundar þeirra með starfsbræðrum frá Eystrasaltslöndum.
    Norræna nefndin um rannsóknir á Evrópurétti, sem stofnuð var 1991, starfaði á árinu. Í nefndinni eru tíu meðlimir og unnið er að því að byggja upp gagnagrunn um lögfræðilegar og réttarfarslegar rannsóknir á Evrópubandalaginu sem stundaðar eru á Norðurlöndunum. Einnig hafa komist á tengsl við rannsóknastofnanir á sviði lögfræði utan Norðurlandanna. Stofnun, sem nefndin rekur, verður flutt frá Noregi til Danmerkur árið 1994.
    Ráðstöfunarfé embættismannanefndarinnar nam 447 þús. d.kr. á árinu.

9.2. Búferlaflutningur og málefni flóttamanna.
    Samráðsnefnd æðri embættismanna um málefni flóttamanna hefur í vaxandi mæli fjallað um stefnumótun. Þessar umræður, svo og upplýsingaskipti um endurskoðun einstakra atriða í löndunum, hafa reynst einkar gagnlegar. Svíar hafa verið í forsæti starfsins á árinu. Fjórir fundir voru haldnir 1993. Á fundum hefur einnig verið rætt við fulltrúa yfirmanns flóttamannamála hjá Sameinuðu þjóðunum á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum, svo og við fulltrúa IOM. Starfsmaður 16 landa samráðs um málefni flóttamanna hefur setið einn fund nefndarinnar.
    Ástand mála á grannsvæðum, svo og í fyrrum Júgóslavíu, var rætt við yfirmann flóttamannamála hjá Sameinuðu þjóðunum og við fulltrúa IOM. Efnt var til sérstaks fundar sérfræðinga um hæli fyrir flóttamenn til bráðabirgða og um takmarkanir á fjölda þeirra sem veitt er hæli til frambúðar. Kostnaður af þessu starfi hefur verið greiddur með sérstökum framlögum Norðurlandanna.
    Auk umræðna um þróun mála í grannríkjum hefur samráðsnefndin einkum rætt ástandið í fyrrum Júgóslavíu. Skoðanaskiptin hafa auðveldað samráð Norðurlanda og sameiginlega afstöðu á alþjóðlegum vettvangi. Nefna má danskt-sænskt verkefni um flutning flóttamanna frá ríkjum fyrrum Júgóslavíu.
    Vandamál, sem tengjast málefnum Eystrasaltslanda, hafa verið til umfjöllunar frá og með Stokkhólmsráðstefnunni 27.–29. apríl 1993 um ólöglegan straum flóttamanna yfir Eystrasaltið.
    Unnið hefur verið að aðlögun Norðurlanda að Evrópubandalaginu. Þróun mála hefur verið til umræðu á öllum fundum nefndarinnar. Einkum hefur verið fjallað um norrænt samkomulag um vegabréfaeftirlit, samkomulagið, sem kennt er við Dublin, um hæli fyrir flóttamenn, um EURODAC og Schengen-samvinnuna. Jafnframt hefur gefist tækifæri til viðræðna við starfshóp Evrópubandalagsins um málefni innflytjenda, svo og við starfshóp bandalagsins sem fjallar á þess vegum um málefni flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu.
    Samráðsnefndin hefur fram haldið umræðum um sameiginleg viðbrögð, mat á réttarstöðu o.fl. ef til þess kæmi að straumur flóttamanna lægi til einhvers landanna. Komi til neyðarástands er það mat manna að skilvirk upplýsingamiðlun skipti verulegu máli. Einnig hefur verið rætt um RÖSE-ferlið sem vettvang stefnumótunar um málefni flóttamanna í Evrópu.
    Meðal annarra mála sem rædd hafa verið og samráð verið haft um eru:
—    Samráð um þátttöku í alþjóðlegum fundahöldum.
—    Viðbúnaður til að annast flóttamenn sem koma til landanna samkvæmt sérstökum heimildum sem veittar eru.
—    Vegabréfaskylda í löndunum. Mikil áhersla er lögð á að tímanlega sé upplýst um breytingar sem verða á döfinni hjá einhverju landanna.
    Starfshópur á vegum embættismannanefndarinnar um vinnumarkað og aðbúnað á vinnustöðum annast verkefni sem miða að aðlögun flóttamanna og innflytjenda í nýjum heimalöndum þeirra.
    Árið 1992 lauk tveimur verkefnum. Tilgangur annars verkefnisins var að koma á tengslum til að miðla upplýsingum milli stjórnvalda um þróun mála er varða flóttamenn og búferlaflutninga. Hitt verkefnið fjallaði um markmið, leiðir og aðgerðir í þágu flóttamanna á vinnumarkaði.
    Haustið 1993 var haldið níunda málþing vísindamanna sem fjalla um búferlaflutninga. Málþingið hét „Det flerkulturelle samfund í Norden“.
    Verkefni um skoðanamyndun lauk 1993. Viðfangsefnið var að lýsa aðgerðum á Norðurlöndunum til þess að vinna gegn kynþáttahatri, mismunun og fjandskap í garð útlendinga í þeim tilgangi að bæta tengsl þjóðarbrota.
    Árið 1993 hófst verkefnið „Nýbúi í fyrirtækjarekstri“. Viðfangsefnið er að varpa ljósi á atvinnurekstur sem nýbúar hafa ráðist í og meta þörf á stuðningi yfirvalda í því efni.


10. Önnur samstarfssvið.



10.1. Viðskiptasamvinna Norðurlanda.
    Með tilkomu EES-samningsins var ljóst að forsendur norræns samstarfs á ýmsum sviðum mundu breytast. Þetta átti ekki hvað síst við um viðskiptasamvinnu Norðurlandanna enda var það ein helsta niðurstaða árlegs fundar utanríkisviðskiptaráðherra landanna, sem haldinn var í nóvember 1992, að þessi samvinna og allt samráð innan embættismannanefndar um viðskiptamál (EK-Handel) mundi í framtíðinni færast í auknum mæli inn á vettvang EES-samstarfsins. Þrátt fyrir gildistöku EES var þó talið að það samstarf mundi ekki geta komið að fullu í staðinn fyrir norrænt samstarf á þessu sviði.
    Á fundi utanríkisviðskiptaráðherranna í Ósló 3. mars 1993 gaf formaður norrænu embættismannanefndarinnar skýrslu um störf nefndarinnar og undirbúning þess að hún verði lögð niður og lagði til að í stað hennar kæmi óformlegt samráð yfirmanna viðskiptamála á Norðurlöndum. Á þeim fundum er gert ráð fyrir að ekki verði einungis fjallað um viðskiptamál, eins og verið hefur, heldur einnig stefnumótun í alþjóðlegum samtökum á borð við GATT. Jafnhliða þessu var ákveðið að hvert Norðurlandanna mundi tilnefna ákveðinn tengilið sem færi með daglega umsýslu hvað þennan málaflokk varðaði.
    Vegna dráttar á gildistöku EES-samningsins var síðasti fundur embættismannanefndarinnar (EK-Handel) ekki haldinn fyrr en í Stokkhólmi í desember sl. þar sem m.a. var ákveðið að fulltrúi Svía í nefndinni, en þeir fara með formennsku í Norðurlandasamstarfinu 1993–1994, mundi skrifa samstarfsráðherrum Norðurlandanna fyrir hönd nefndarinnar og tilkynna þeim að nefndin hefði nú lokið störfum sínum.
    Hvað snerti þau verkefni, sem embættismannanefndin hafði formlega með höndum, voru lagðar fram hugmyndir á fundi utanríkisviðskiptaráðherranna í mars 1993 um hvernig þau yrðu meðhöndluð í framtíðinni. Þar kom m.a. fram að í ljósi endurmats á norrænni samvinnu væri eðlilegt að umfjöllun um norræna verkefnaútflutningssjóðinn (NoPEF) félli undir iðnaðar- og orkunefnd (EK-Industri/Energi). Markmið þessa sjóðs er að hvetja til samstarfs norrænna fyrirtækja og þátttöku þeirra í útflutningsverkefnum á alþjóðavettvangi. Hvað varðaði undirnefnd um tæknilegar viðskiptahindranir (STH) var einnig lagt til að þau verkefni, sem þar væri fjallað um, mundu færast með einhverju móti yfir til iðnaðar- og orkunefndar. Rétt er að geta þess að búast má við því að stór hluti verkefna nefndar um viðskiptahindranir snerti framkvæmd EES-samningsins. Önnur mál, sem embættismannanefndin hefur fjallað um, svo sem almennar viðskiptahindranir og landamæraeftirlit, verða að mestu til umfjöllunar hjá yfirmönnum viðskiptamála.
    Auk fyrrgreindra mála hefur nefndin í störfum sínum einnig haft til ráðstöfunar fjármuni til að styrkja áhugaverð verkefni sem mættu verða til að efla verslun og viðskipti á Norðurlöndunum. Á árinu var til að mynda veittur styrkur til verkefnis til eflingar stjórnunar- og útflutningsþekkingu í Eystrasaltsríkjunum sem Útflutningsráð Íslands, ásamt fleiri aðilum, stóð að.

10.2. Jarðskjálftarannsóknir (SIL-verkefnið).
    SIL-verkefninu er formlega lokið að því leyti að síðasta fjárveiting frá norrænu sjóðunum var í árslok 1992. Þó er ekki enn þá endanlega lokið öllum þróunar- og rannsóknarverkefnum á vegum verkefnisins.
    Áfram var haldið að útvíkka það kerfi sem tengist SIL-kerfinu. Þannig var fimm stöðvum bætt við á Norðurlandi. Þar eru nú sex stöðvar að Akureyrarstöð meðtalinni. Þó að þessar stöðvar séu ekki fjármagnaðar af norræna verkefninu tengjast þær SIL-kerfinu og njóta góðs af þeirri sjálfvirku úrvinnslu sem þar er fyrir hendi.
    Unnið var að þróun hugbúnaðar, bæði almennt og í sambandi við útvíkkun kerfisins, sem og áframhaldandi þróun á sjálfvirka viðvörunarkerfinu sem byggir á þeirri tækni sem til er vegna SIL-verkefnisins.
    Haldinn var vinnufundur, sem NorFA styrkti, í tengslum við lok SIL-verkefnisins. Þar gafst vísindamönnum, sem unnið hafa að jarðfræðilegum og jarðeðlisfræðilegum rannsóknum á Suðurlandsundirlendi, færi á að bera saman bækur sínar. Þennan fund átti að halda í nóvember, en honum var frestað fram í byrjun janúar. Á fundinum kom fram að SIL-kerfið hefur þegar skilað merkum árangri í að auka þekkingu manna á Suðurlandsundirlendinu.
    Auk íslenskra jarðvísindamanna hafa ýmsir erlendir vísindamenn unnið úr gögnum úr SIL-kerfinu og bætt þannig við þekkingu okkar á Suðurlandssvæðinu. Stefnt er að áframhaldandi rannsóknum á þeim grundvelli. Vísindamenn erlendis, m.a. í tengslum við deild eðlisfræði fastrar jarðar við Uppsalaháskóla og stofnanir og háskóla í Bretlandi og Bandaríkjunum, hafa sótt um styrki til vísindasjóða sinna til verkefna sem stuðla að áframhaldandi þróun og þekkingaröflun í tengslum við SIL-kerfið. Má nefna í því sambandi að stjórnarnefnd SIL-verkefnisins hefur ákveðið að halda áfram að starfa sem ráðgefandi nefnd þó svo að verkefninu sé formlega lokið.

10.3. Upplýsingar til Evrópu.
    Starf norrænu ráðherranefndarinnar að kynningu á Norðurlandasamstarfinu í Evrópu hefur haldið áfram af fullum þunga. Úttekt blaðafulltrúa utanríkisráðherranna í tengslum við endurskoðun forsætisráðherranna á norrænu samstarfi, sem fram fór 1992, hefur hins vegar leitt til breyttrar meginstefnu sem unnið verður eftir 1993–1995.
    Aðildarviðræður þriggja Norðurlanda við Evrópusambandið og gildistaka EES-samningsins undirstrika þörf á betri tengslum við stjórnmálamenn og þá sem starfa að fjölmiðlun og gegna lykilhlutverki í skoðanamyndun í grannlöndunum í Evrópu. Áhugi á Norðurlöndum hefur aukist samhliða umfjöllun um aukið samstarf Evrópuþjóða. Af þessu tilefni hefur ráðherranefndin boðað fulltrúa allra sendiráða með aðsetur í Kaupmannahöfn til upplýsingafundar um norrænt samstarf.
    Sú staðreynd að þrjú Norðurlanda eiga í samhliða viðræðum um aðild að Evrópusambandinu hefur beint athygli evrópskra fjölmiðla að Norðurlöndum í heild. Þetta hefur ráðherranefndin fært sér í nyt og efnt til fjölda heimsókna og blaðamannafunda um mál sem eru til umfjöllunar. Þannig var þeim utanríkisfréttariturum stærstu dagblaða Evrópu, sem staðsettir eru í Brussel, boðið til Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem haldið var í mars. Forsætisráðherrarnir veittu fréttariturunum áheyrn og tilefni gafst til umræðna við fulltrúa stjórnmálaafla með andstæð sjónarmið í afstöðu til aðildar Noregs að Evrópubandalaginu.
    Mun fleiri erlendir fréttamenn komu í heimsókn hingað til lands árið 1993 á vegum „nefndar um upplýsingar til Evrópu“ en venja er. Fjölgunin var í samræmi við óskir Íslendinga um aukinn hlut í áætluninni eins og fram kom í skýrslu samstarfsráðherra í febrúar 1993.
    Fréttamenn frá Þýskalandi, Englandi, Írlandi, Frakklandi, Portúgal og Spáni komu til Íslands í júní. Hittu þeir forseta Íslands, umhverfisráðherra, utanríkisráðherra og sérfræðinga í efnahagsmálum, heimsóttu hraðfrystihús og kynntu sér sjávarútveg og ferðamál. Fóru þeir m.a. til Akraness og að Gullfossi og Geysi.
    Hópur 12 fréttamanna kom síðan til landsins í september. Þar voru á ferð fréttamenn frá Svíþjóð, Þýskalandi, Englandi, Ísrael, Tékklandi og Finnlandi. Fóru þeir í tveggja daga ferð um Suðurland austur að Höfn í Hornafirði. Gafst þeim tækifæri til að kynna sér landbúnað, ferðamál og sjávarútveg. Þegar til Reykjavíkur kom sátu þeir ráðstefnu með þátttöku Þjóðhagsstofnunar, Hafrannsóknastofnunar, sjávarútvegsráðuneytis, umhverfisráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis, Seðlabanka Íslands og utanríkisráðuneytis. Einnig heimsóttu þeir varnarstöðina í Keflavík, sátu ráðstefnu um jafnréttismál, áttu fund með forseta Íslands og hittu borgarstjóra Reykjavíkur. Í Norræna húsinu voru haldnir fyrirlestrar um Ísland, norrænt samstarf, Norðurlönd í Evrópu, EB, EES og Atlantshafsbandalagið. Í lok ferðarinnar áttu fréttamennirnir fund með utanríkisráðherra.
    Efnt var til ferðar til Íslands og Færeyja fyrir blaðamenn frá Evrópulöndum þar sem sjávarútvegsmál eru þýðingarmikil. Haustið 1993 var blaðamönnum í Brussel boðið í ferð um norska og finnska hluta Norðurkolls til þess að kynna þeim byggðamálefni og samvinnu á Barentssvæðinu.
    Blaðamönnum frá svæðum og löndum umhverfis Eystrasalt var boðið til málþings til kynningar á alþjóðlegu samstarfi til lausnar á umhverfisvanda við Eystrasalt. Farið var í heimsóknir, m.a. til Sosnovij Bor.
    Fjöldi ferða, námskeiða og styrkja eru á áætlun nefndar um upplýsingar til Evrópu á árinu 1994. Ýmist er miðað við reynda fréttamenn, unga fréttamenn sem eiga eftir að marka sér áhugasvið eða embættismenn annarra landa og stofnana sem æskilegt er að kynni sér vel málefni Norðurlanda. Skipulögð verður sérstök heimsókn fréttamanna til Íslands í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins, en einnig vegna þess að seinni hluta ársins gegnir Ísland bæði formennsku í norrænu ráðherranefndinni og EFTA.
    Áhugi á efldri upplýsingastarfsemi og kynningu á Norðurlöndunum vex hjá sendiráðum þeirra í Evrópu. Að ósk sendiráðanna og í samvinnu við þau hefur ráðherranefndin efnt til málþinga um Norðurlöndin og hlutverk norrænnar samvinnu í nýrri Evrópu. Málþingin voru haldin í Dublin og Berlín á liðnu ári.
    Ráðherranefndin tók í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegu bókasýningunni í Frankfurt við hlið annarra fjölþjóðlegra samtaka. Þar var kynnt norrænt samstarf og enskar útgáfur rita sem ráðherranefndin gefur út. Árangur af þátttökunni er m.a. sá að samningar hafa tekist við evrópska umboðsmenn um dreifingu rita ráðherranefndarinnar.
    Í janúar 1994 hélt kynningardeild skrifstofu ráðherranefndarinnar, í samstarfi við sendiráð Norðurlandanna í Lissabon og tvær stofnanir sem fjalla aðallega um varnarmál og Evrópumál, ráðstefnu í Lissabon undir heitinu „Norðurlönd og hin nýja Evrópa“.

10.4. Samvinna við grannlönd.
    Norræna ráðherranefndin samþykkti 29. janúar 1993 verkefnaáætlun sem nær til Eystrasaltslanda og grannlanda Norðurlandanna. Í brennidepli eru verkefni sem hafa þýðingu fyrir þróun lýðræðis og markaðshagkerfis í löndunum handan Eystrasalts. Norðurlöndin, hvert um sig, verja einnig umtalsverðum fjármunum til að kosta tvíhliða samstarfsverkefni í Austur-Evrópu og Eystrasaltslöndunum. Ráðherranefndin hefur þess vegna einkum leitað viðfangsefna þar sem norræn færni kemur að gagni, t.d. með því að nýta norrænar stofnanir eða með miðlun þekkingar og annarrar aðstoðar. Ráðherranefndin benti sérstaklega á eftirtalin svið sem áhersla verður lögð á:
—    framhald samskipta milli Norðurlandanna og grannþjóða, einkum við Eystrasalt,
—    aukið samstarf í menntamálum,
—    aðstoð við innri uppbyggingu (stjórnsýsla, réttarkerfi, markaðshagkerfi),
—    samvinnu í heilbrigðis- og félagsmálum,
—    aukna samvinnu á sviði fjölmiðlunar,
—    eflingu samstarfs að umhverfismálum.
    Ráðherranefndin hvetur til athugunar á möguleikum á að samstarf við grannsvæðin nái einnig til Norðvestur-Rússlands, einkum svæðanna kringum Múrmansk og Arkangelsk. Jafnframt er í athugun með hvaða hætti reynslan af norrænum samstarfsverkefnum gæti nýst í samvinnu við Barentshafssvæðin.


11. Norrænar stofnanir á Íslandi.



11.1. Norræna húsið.
Hálfrar aldar starfsemi.
    Norræna húsið fagnaði hálfrar aldar starfsemi á árinu 1993. Hátíðahöldin náðu hámarki í síðustu viku ágústmánaðar. Á afmælisdaginn 24. ágúst var dagskrá fyrir almenning allan daginn, en einnig voru leiksýningar, tónleikar og sérstök hátíðardagskrá og haldin voru tvö málþing undir heitinu „Ísland og hin Norðurlöndin“ og „Hlutverk Norrænu húsanna í framtíðinni“.
    Sumarsýning Norræna hússins og jafnframt afmælissýning var um verk Alvars Aalto, arkitekts Norræna hússins. Annað verkefni tengt afmælisárinu var „Det Nordiska Nyhetsbladet“, fréttablað sem kom út daglega á skandinavísku, og var dreift ókeypis til norrænna ferðamanna á Íslandi.
    Sem fyrr var boðið upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá allt afmælisárið. Færeysk, vesturnorsk og vestursænsk menning var kynnt á sérstökum þemavikum. Bókmenntakynningar fyrir almenning, þar sem norrænir rithöfundar kynntu verk sín, voru haldnar á vormánuðum. Yfir sumarmánuðina voru um 30 fyrirlestrar fluttir um íslenska menningu og samfélag fyrir norræna ferðamenn, en auk þess voru kvikmyndasýningar á hverjum degi. Málþing voru haldin, m.a. um ímynd Íslands erlendis og hlutverk nútímakarlmannsins á Norðurlöndum.
    Af listsýningum má nefna sýningu á verkum frá Skagen-safninu í Danmörku, farandsýninguna „Fimm færeyskir myndlistarmenn“, sýningu á finnskri hönnun (Kaj Franck og Alvar Aalto), farandsýninguna „Norrænar vatnslitamyndir“ og sýninguna „Form Ísland II“ (sýning á íslenskri listiðn og hönnun) sem farið var með víða um Norðurlönd. Eistneskir veflistamenn sýndu verk sín í sýningarsölum og íslenskir listmálarar leigðu salina fyrir sýningar sínar.

Mikilvægur styrkur fyrir Norðurlandamálin.
    Eitt mikilvægasta hlutverk Norræna hússins er að styrkja stöðu Norðurlandamálanna á Íslandi. Haldin voru þrjú íslenskunámskeið fyrir Norðurlandabúa og fjögur námskeið í skandinavísku fyrir Íslendinga. Opnað hefur verið nýtt fjölmiðlunarsamband við fréttastofur á Norðurlöndum með gervihnattasendingum frá Norðurlöndum og stuttbylgjuútvarpi og nýjustu fréttir frá norrænum fréttastofum berast daglega gegnum tölvu.
    Myndbandasafnið, sem hóf starfsemi sína á síðasta ári með ókeypis útlánum á norrænum barna-, leik- og fræðslumyndum, hefur verið stækkað.
    Bókasafn Norræna hússins er það eina í landinu sem er opið alla daga vikunnar. Í bókasafni hússins var nýtt tölvukerfi, „Micromarc“, tekið í notkun. Bókasafnið hefur lánað út á árinu um 25.000 bækur, grafíkmyndir og hljómplötur og geisladiska.
    „Islandskontakt“, upplýsingablað um íslenskt samfélag og menningu, var gefið út ársfjórðungslega í 2.000 eintökum á skandinavískum málum og finnsku. Norræna húsið tók þátt í Íslandskynningu í Karelíu í Austur-Finnlandi í október.

Rekstur Norræna hússins.
    Kostnaður við rekstur Norræna hússins er greiddur samkvæmt fjárveitingu norrænu ráðherranefndarinnar. Fjárveiting fyrir árið 1993 var um það bil 50 millj. ísl. kr. Fastráðið starfsfólk var 10 manns.
    Stjórnarformaður var Finninn Matti Gustafson og forstjóri var Svíinn Lars Åke Engblom.

11.2. Norræna eldfjallastöðin.
    Norræna eldfjallastöðin er samnorræn stofnun sem heyrir undir norrænu ráðherranefndina og er kostuð af henni. Stjórn hennar er skipuð fulltrúum Norðurlandanna auk þriggja fulltrúa íslenskra stofnana á sviði jarðvísinda. Stjórnarformaður er prófessor Carl Ehlers, Finnlandi, en dr. Guðmundur E. Sigvaldason veitir stöðinni forstöðu.
    Í reglugerð fyrir stöðina frá árinu 1973 er hlutverk hennar skilgreint svo: „Norræna eldfjallastöðin á að stunda rannsóknir í eldfjallafræði með áherslu á veigamestu rannsóknasvið þeirrar fræðigreinar: bergfræði, jarðefnafræði, jarðeðlisfræði og eldfjallasögu. Stofnunin á að veita vísindamönnum og námsmönnum frá Norðurlöndum og, eftir nánari ákvörðun stjórnar stofnunarinnar, einnig frá öðrum löndum aðstöðu til rannsókna í eldfjallafræði og tengdum greinum“.

Rannsóknir í eldfjallafræði.
    Rannsóknir stofnunarinnar beinast að því að svara spurningum um eðlis- og efnafræðilegar forsendur eldvirkni.
    Lega Íslands á eldvirkum úthafshrygg beinir rannsóknum stofnunarinnar inn á þau sérsvið sem varða eiginleika rekhryggja jarðarinnar. Rekhryggir liggja á botni úthafanna og eru alls 60.000 km langir, en Ísland er eina úthafseyjan sem rekhryggur liggur um.
    Leitað er svara við spurningum um styrk og broteiginleika jarðskorpunnar, um uppruna og þróun bergkviku, um flutning kviku til yfirborðs og gagnkvæm áhrif kviku og grannbergsins sem hún snertir. Einnig er leitað svara við spurningum um hegðun eldvirkninnar á fyrri tímum, áhrif eldvirkni á loftslag og áhrif loftslags á eldvirkni, einkum á tíma stórfelldra loftslagsbreytinga á ísöldum.
    Öll svör við spurningum af þessu tagi auka skilning á eðli eldvirkninnar og auðvelda búsetu í eldvirkum löndum. Stofnunin leitast við að nýta og auka við þekkingu á eldvirkni með því að þróa og reka viðvörunarkerfi, byggð á hátækni.

Skýrslur um niðurstöður rannsókna.
    Stofnunin leggur áherslu á að birta niðurstöður rannsókna í alþjóðlegum tímaritum sem setja strangar gæðakröfur. Frá upphafi hafa um 100 slíkar greinar verið birtar. Minni áhersla er lögð á birtingu áfangaskýrslna, en um 60 skýrslur hafa verið gefnar út. Rit stofnunarinnar eru gefin út á ensku.
    Stofnunin hefur einnig lagt áherslu á að kynna eldfjallafræði í ritum og sjónvarpsþáttum fyrir almenning, bæði á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum.

Hvetjandi rannsóknarumhverfi fyrir styrkþega.
    Norræna eldfjallastöðin var sett á fót í þeim tilgangi að skapa hvetjandi rannsóknarumhverfi sem höfðaði til fjölþjóðlegs vísindasamfélags. Stofnunin hefur haft til umráða fimm stöður styrkþega, sem stjórn stofnunarinnar veitir til eins árs í senn, með möguleika á framlengingu til allt að þriggja ára. Frá upphafi hafa 60 norrænir vísindamenn dvalið við stofnunina. Hver styrkþegi fær rannsóknarverkefni til úrvinnslu og er til þess ætlast að verkinu ljúki með birtingu á niðurstöðu við lok dvalar. Flestir styrkþegar eru ungt fólk sem hefur nýlokið embættisprófi. Margir nota dvölina við stofnunina til að öðlast æðri menntagráðu, ýmist „licensiat“ eða doktorsgráðu við háskóla í heimalandinu.
    Það er áberandi að margir af styrkþegum Norrænu eldfjallastöðvarinnar fara til enn frekari sérhæfingar til dvalar við stofnanir utan Norðurlanda. Oftast er ástæðan sú að dvölin við stofnunina leiddi til alþjóðlegra tengsla sem greiddu götu þessa fólks til frekari rannsóknastarfa.

Mikil aðsókn í rannsóknastöður.
    Aðsókn í rannsóknastöður við Norrænu eldfjallastöðina er langt umfram getu stofnunarinnar til að veita styrki. Að jafnaði eru umsóknir þrisvar til fimm sinnum fleiri en hægt er að sinna. Ásókn manna utan Norðurlanda er einnig mikil, en stofnunin hefur enn sem komið er ekki farið inn á þá braut að styrkja aðra en Norðurlandabúa. Stofnunin hefur hins vegar tekið á móti fólki, sem fær styrki eftir öðrum leiðum, t.d. styrkþegum Fullbright-stofnunarinnar bandarísku. Í samvinnu við háskóla í Frakklandi, Bretlandi og Þýskalandi hefur stofnunin haft veruleg afskipti af allmörgum doktorsverkefnum sem voru unnin að hluta til við Norrænu eldfjallastöðina.
    Breytingar á samfélögum Austur-Evrópu hafa leitt til þess að norræna ráðherranefndin leggur áherslu á aukna samvinnu við þau, einkum Eystrasaltslöndin. Norræna eldfjallastöðin hefur brugðist við þessum nýju viðhorfum með því að bjóðast til að veita vísindamönnum frá þessum löndum aðstöðu við stofnunina. Fjárveiting fékkst til að bjóða einum manni til ársdvalar og jarðfræðingur frá Eistlandi kom til starfa við stofnunina 1. júní 1993.

Verkefni og tilraunir.
    Forstöðumaður stofnunarinnar hefur átt sæti í nefnd á vegum vísindaráðs Evrópu (European Science Foundation) sem hafði verkefni sem nefnist „European Volcanology Project“ (EVOP), en markmiðið er að beina athyglinni fyrst og fremst að sex evrópskum eldfjöllum og leita leiða til að fjármagna dýrari rannsóknir en hingað til hefur verið hægt að gera. Krafla er eitt þessara sex tilraunaeldfjalla. Starf nefndarinnar leiddi til þess að einn af vísindasjóðum Evrópubandalagsins (Environment 1991–1994) skilgreindi eldfjallafræði sem deild í þriðju rammaáætlun umhverfismálasjóðsins. Vegna tafa á fullgildingu EES-samningsins missti Kröfluverkefnið af þessari lest en hefði að öðrum kosti fengið 30–40 millj. ísl. kr. Eldfjallafræði verður sennilega ekki með í fjórðu rammaáætlun umhverfissjóðsins og því verður að leita annarra leiða til að hrinda því í framkvæmd.
    Norræna eldfjallastöðin er virkur þátttakandi í verkefni sem fjallar um eldfjallið Furnas á Azóreyjum. Þetta verkefni fékk ríflegan styrk frá umhverfissjóði EB, en af sömu orsökum og áður er greint frá reyndist ekki unnt að fá peninga til þátttöku Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Menntamálaráðuneytið, fyrir hönd íslenska ríkisins, hefur þess vegna greitt útlagðan kostnað vegna þátttöku NE í þessu verkefni.

Vaxandi stofnun.
    Norræna eldfjallastöðin er virkur þátttakandi í verkefni á vegum European Science Foundation sem fjallar um þróun og prófun tækja til símælinga á jarðeðlisfræðilegum breytum. Þátttaka stofnunarinnar felst m.a. í rekstri tækja, sem eru hönnuð og smíðuð í stofnuninni, við staðlaðar aðstæður í gamalli kalksteinsnámu í Lúxemborg. Samstarfsaðilar hafa komið tækjum sínum fyrir á þessum stað og geta borið saman hæfni þeirra til ýmiss konar mælinga. Hluti verkefnisins er þróun nýrra skynjara og hönnun tækja, einkum til mælinga á hreyfingum jarðskorpunnar.
    Síaukin samvinna við erlendar og innlendar stofnanir ásamt góðum undirtektum ráðherranefndarinnar við beiðnum um fé til tækjakaupa og sérverkefna hefur leitt til stöðugs vaxtar Norrænu eldfjallastöðvarinnar.

Breytt stjórnun fjármála.
    Norræna ráðherranefndin hefur nú tekið upp nýja skipan í meðferð fjárveitinga til fastra stofnana í norrænu samstarfi. Breytingin felst í því að stofnanirnar gera áætlun til þriggja ára í senn þar sem nákvæm grein er gerð fyrir verkefnum sem unnið verður að. Áætlunin felur í sér skuldbindingu um afköst en með vissu bili verður gerð úttekt á hversu vel stofnunin stendur við skuldbindingar. Á móti kemur að stofnuninni eru tryggðar umsamdar fjárveitingar fyrir allt tímabilið.


12. Norrænir sjóðir.



12.1. Starfsemi Norræna fjárfestingarbankans.
Almennt um starfsemina árið 1993.
    Slaki í efnahagslífi Norðurlanda og minni fjárfestingar hafa komið fram í minni eftirspurn eftir lánsfé. Af þessum sökum voru útborguð lán Norræna fjárfestingarbankans (NIB) minni innan Norðurlanda árið 1993 en árið áður. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir en ætla má að um 10% lækkun sé að ræða á þessum útlánum. Þau námu um 425 millj. ekna (ecu) árið 1993 samanborið við 527 millj. ekna árið 1992. Hins vegar er áætlað að alþjóðleg útlánaaukning vaxi úr 127 millj. ekna árið 1992 í um 145 millj. ekna árið 1993.
    Jafnframt hafa afborganir af eldri lánum aukist. Útistandandi lán námu í heild 4.229 millj. ekna í ágústlok 1993 samanborið við 4.243 millj. ekna í árslok 1992. Í lok ágúst 1993 höfðu um þrír fjórðu af nýjum lánum á því ári innan Norðurlanda farið til Finnlands og Svíþjóðar. Þar af var um 30% varið til orkugeirans. Önnur 30% runnu til vistfjárfestinga og innviðaframkvæmda á vegum sveitarfélaga en um fjórðungur nýrra lána fór til framleiðslugeirans.
    Þess má geta að NIB lánar aðallega til verkefna þar sem um sameiginlega hagsmuni fyrirtækja eða stofnana í a.m.k. tveimur Norðurlanda er að ræða. Á árinu 1993 fékk bankinn auknar heimildir til að lána til innviðafjárfestinga (strukturinvesteringar). Lán til þeirra eru talin fullnægja skilgreiningunni um samnorræna hagsmuni þótt framkvæmd eigi sér aðallega stað í einu Norðurlandanna, t.d. lagning vegar í einu landi sem tengist vegakerfi í öðru landi. Þetta er í samræmi við útlánastefnu bankans sem gilt hefur á sviði orkumála og umhverfismála á Norðurlöndum. Alþjóðleg útlán hafa einkum aukist til Asíulanda.
    Árið 1992 fólu ríkisstjórnir Norðurlanda NIB að annast úthlutun á allt að 30 millj. ekna til fjárfestinga í Eystrasaltsríkjunum. Fyrstu lán í þessum flokki voru samþykkt á árinu 1993. NIB var jafnframt falið að aðstoða við að stofna fjárfestingarbanka í Eystrasaltsríkjunum og fyrsta lánið var veitt til eistneska fjárfestingarbankans ESTIB.
    NIB aflar lánsfjár á alþjóðlegum markaði þar sem það er hagstæðast hverju sinni. Hann hefur víða leitað fanga og jafnvel sótt á fjarlæga markaði í Austurlöndum auk þess að treysta á hefðbundna markaði í Evrópu. Eins og fram kom í greinargerð um starfsemi bankans árið 1992 hefur hann hærri lánshæfiseinkunn matsfyrirtækja en aðrar lánastofnanir á Norðurlöndum og það meira að segja hærri einkunn en eigendur hans hver um sig. Vegna sterkrar eiginfjárstöðu sinnar hefur NIB getað aflað lánsfjár á afar hagstæðum kjörum. Bankinn hefur einnig tiltölulega mikið laust fé umleikis, eða 1.811 millj. ekna í ágústlok 1993.

Lán bankans til Íslands.
    Á árinu 1993 voru samþykkt níu lán til lántakenda á Íslandi, samtals jafnvirði 5,2 milljarða kr., sbr. eftirfarandi sundurliðun:

Fjöldi

Upphæð


Lántakandi

lána

í millj. kr.



Sveitarfélög     
2
400 ,0
Ríkissjóður     
1
700 ,0
Fjárfestingarlánasjóðir     
3
1.220 ,0
Fyrirtæki     
3
2.885 ,0
Samtals     
9
5.205 ,0

    Samþykktar lánveitingar ársins 1993 greinast þannig á atvinnuvegi eða málefni:

Fjöldi

Upphæð


Atvinnuvegur/málefni

lána

í millj. kr.



Samgöngur/Innviðir     
2
2.200 ,0
Iðnaður     
1
525 ,0
Sjávarútvegur     
1
550 ,0
Raforkuframleiðsla     
1
1.310 ,0
Umhverfismál     
2
400 ,0
Verslun og þjónusta     
1
75 ,0
Ferðaþjónusta     
1
145 ,0
Samtals     
9
5.205 ,0

    Til samanburðar voru samþykkt alls tíu lán til lántakenda á Íslandi árið 1992. Útborguð lán til Íslands námu ríflega 3,6 milljörðum kr. á árinu 1993 sem svarar til 10% af útborguðum lánum til Norðurlanda árið 1993. Útborganir nýrra lána til Íslands árið 1992 námu hins vegar 29,8 millj. SDR. Heildarlán NIB til Íslands námu 28,5 milljörðum kr. í árslok 1993 og eru til 26 lántakenda. Lánveitingar bankans til Íslands svara nú til 9,2% af heildarútlánum NIB til Norðurlanda. Þetta hlutfall var 8,3% í árslok 1992 og hefur því hækkað um 0,9 prósentustig á árinu 1993.
    Af útistandandi lánum alls til Íslands (jafnvirði 28,5 milljarða kr.) eru 2,3 milljarðar kr. sem aflað var með skuldabréfaútboði á erlendum markaði.
    Hvað varðar árið 1994 eru nú til meðhöndlunar fjögur ný mál alls að upphæð 1,9 milljarðar kr.

Afkoma bankans og staða.
    Eins og áður er getið liggja endanlegar tölur rekstrar- og efnahagsreikninga bankans ekki fyrir þegar þessi greinargerð er samin.
    Frá og með 1. mars 1993 er eka (ecu) notuð sem reikningseining bankans í stað sérstakra dráttarréttinda (SDR) áður. Breytingin tókst vel þar sem færsla eigna úr SDR í ekur skilaði bankanum umtalsverðum hagnaði sem færist til tekna í reikningum bankans yfir nokkurra ára tímabil.
    Áætlað er að hagnaður bankans árið 1993 verði um 64 millj. ekna. Þá hefur ekki verið tekið tillit til útlánatapa sem nema um 3,5 millj. ekna og um 15 millj. ekna verða færðar á afskriftarreikning en bankaráðið hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um þetta. Rekstrarafgangur bankans eykst því verulega frá árinu 1992, en hann var þá 50,7 millj. ekna. Þessi bætta afkoma bankans árið 1993 átti sér stað þrátt fyrir nokkuð minni umsvif. Þetta má einkum rekja til aukinna vaxtatekna af eigin fé bankans.
    Á árinu 1993 greiddi bankinn arð til eigenda fyrir árið 1992 sem nam 12 millj. ekna.
    Rekstrarkostnaður ársins 1993 var eilítið lægri en árið 1992, ekki síst vegna gengislækkunar finnska marksins, en rekstrargjöld bankans eru aðallega í þeirri mynt. Hjá NIB störfuðu 100 manns árið 1993, þar af þrír Íslendingar. Til þess að meta rekstrarárangur er oft miðað við summu rekstrarkostnaðar og afskrifta í hlutfalli við niðurstöðutölu efnahagsreiknings. Áætlað er að þessi hlutfallstala verði 0,137 árið 1993 samanborið við 0,157 árið áður.
    Grunnfé bankans var aukið um 600 millj. SDR á árinu 1993 í 2.400 millj. SDR eða 2.809 millj. ekna (á gengi í ágústlok 1993). Bankanum er heimilt að lána út tvö- og hálffalt grunnfé sitt. Auk þess hefur bankinn sérstakan lánaflokk fyrir útflutningslán (PIL) sem nemur 1.000 millj. SDR og annan fyrir fjárfestingarlán til fjárfestinga í Eystrasaltsríkjunum (30 millj. ekna). NIB hefur sótt um að auka útflutningslánarammann (PIL) um 770 millj. ekna í 2.000 millj. ekna.
    Varasjóður bankans skal samkvæmt stofnskrá nema 10% af grunnfé áður en til greiðslu arðs kemur. Áætlað er að hann nemi um 210 millj. ekna í árslok 1993 og verður því ekki greiddur út arður fyrr en hann nemur 240 millj. ekna.

Nýr bankastjóri og breytingar í bankaráði.
    Norðmaðurinn Jannik Lindbæk hætti sem aðalbankastjóri í árslok 1993 eftir átta ára starf. Hann hefur verið ráðinn bankastjóri (Executive Vice President) International Finance Corporation (IFC) sem er dótturfyrirtæki Alþjóðabankans í Washington D.C.
    Auglýst var eftir og leitað að nýjum aðalbankastjóra NIB. Sem kunnugt er varð niðurstaðan sú að Jóni Sigurðssyni seðlabankastjóra var boðin staðan og varð hann við þeirri beiðni. Hann mun taka til starfa 11. apríl 1994. Er þetta mikil viðurkenning bæði fyrir Jón Sigurðsson persónulega og Ísland. Frá 1. janúar til 11. apríl gegnir Jan Callerström stöðu aðalbankastjóra en hann hefur verið staðgengill Jannik Lindbæks.
    Formaður bankaráðs NIB, Svíinn Olle Västberg, lét af störfum í desember 1993. Á fundi ráðsins í desember 1993 var Guðmundur Magnússon prófessor kjörinn formaður þess, en Norðmaðurinn Kari Gjesteby varaformaður. Þær breytingar urðu af Íslendinga hálfu í bankaráðinu árið 1993 að Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri lét af störfum sem aðalmaður. Í stað hans kom Tómas Árnason, fyrrverandi bankastjóri, sem hafði um langt árabil verið varamaður. Sem nýr varamaður í bankaráðinu var skipaður Þorkell Helgason ráðuneytisstjóri. Varamaður Guðmundar Magnússonar er Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri.
    Þess má geta að lokum að bankinn fluttist í annað leiguhúsnæði í Helsingfors á árinu. Hið nýja aðsetur er að Fabiansgötu 34 þar sem unnt er að sameina alla starfsemina í Helsingfors undir sama þaki.

12.2. Norræni iðnaðarsjóðurinn.
    
Norræni iðnaðarsjóðurinn var stofnaður árið 1973. Tilgangur Norræna iðnaðarsjóðsins er að hvetja til norrænnar samvinnu um tækniþróun og nýsköpun í atvinnulífinu. Auk þess á sjóðurinn að stuðla að alþjóðlegri samkeppnishæfni afurða, framleiðsluferla og þjónustu innan Norðurlanda með þátttöku í verkefnum og áætlunum á sviði tæknirannsókna og iðnþróunar. Sjóðurinn á að starfa með atvinnulífinu, rannsóknaaðilum og yfirvöldum á Norðurlöndum, m.a. með því að stuðla að aukinni framleiðni í norrænum rannsóknum.
    Heildarfjárhæð sérverkefna, sem sjóðurinn tók þátt í, nam á árinu 1992 323 millj. n.kr. Hlutur sjóðsins í þessum verkefnum var 85,2 millj. n.kr. Til samanburðar var hlutur sjóðsins árið 1992 102,3 millj. n.kr. af 389 millj. n.kr. Alls var veitt fé til 118 verkefna. Skipting fjárins eftir verkefnasviðum, ásamt hlutfallslegri skiptingu, var eftirfarandi:

    Ný tækni í matvælaiðnaði
22%

    Efnistækni léttra burðahluta
20%

    Ný tækni í skóg- og pappírsiðnaði
14%

    Líftækni
3%

    Til ýmissa annarra verkefna
41%


    Norræni iðnaðarsjóðurinn er stofnun á vegum norrænu ráðherranefndarinnar (iðnaðarráðherranna) með aðsetur í Ósló. Árið 1992 störfuðu 14 manns í fullu starfi auk hlutastarfa. Starfsmenn sjóðsins eru frá öllum Norðurlöndum og hjá sjóðnum starfar einn Íslendingur, Snæbjörn Kristjánsson verkfræðingur. Í stjórn sjóðsins af Íslands hálfu sátu árið 1993 Kristmundur Halldórsson og Hallgrímur Jónasson. Stjórn sjóðsins skipa tveir fulltrúar frá hverju landi.
    Á seinni árum hefur þátttaka Íslendinga í verkefnum á vegum sjóðsins aukist. Meðal annars hefur verið ráðist í verkefni á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Þáttur Íslendinga hefur vaxið með árunum og nam 3% árið 1985, 7% árið 1990, 6% árið 1991, 5% árið 1992 og 7% árið 1993. Hlutur Íslendinga í greiðslum til sjóðsins er 1%.
    Starfsemi sjóðsins hefur skipt miklu máli fyrir þróun íslenskrar rannsóknastarfsemi. Á undanförnum árum hafa komið í hlut íslenskra aðila u.þ.b. 60–90 millj. ísl. kr. á ári. Íslensk verkefni sem Norræni iðnaðarsjóðurinn hefur veitt fé í á undanförnum árum eru á milli 35 og 40 á ári. Stærstu verkefnin, sem veitt hefur verið fé til hér á landi, eru á sviði upplýsingatækni, framleiðslutækni og sjálfvirkni í fiskiðnaði, líftækni og efnistækni. Þessi rannsókna- og þróunarvinna hefur skipt miklu máli í íslensku þróunarumhverfi og hefur reynst mikilvægur undirbúningur að þátttöku okkar í evrópsku rannsóknasamstarfi.
    Breytinga- og samrunaferlið í Evrópu mun hafa mikil áhrif á rannsóknir, þróun og nýsköpun. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn stutt fjögur tæknisvið sérstaklega, þ.e. upplýsingatækni, líftækni, efnistækni og umhverfistækni, og lýkur þessum verkefnum á árinu 1994. Norðurlöndin munu í vaxandi mæli taka þátt í rannsóknasamstarfi Evrópubandalagsins þar sem m.a. er lögð rík áhersla á þessi svið.
    Stjórn sjóðsins hefur því endurskoðað áherslur í starfsemi sjóðsins og varð niðurstaðan sú að leggja áherslu á þrjú afmörkuð svið sem sameiginlega eru mjög mikilvæg fyrir Norðurlönd:
—    Efnistækni léttra burðarhluta (NORDLIST).
—    Ný tækni í matvælaiðnaði (NORDFOOD).
—    Ný tækni í skóg- og tréiðnaði (NORDWOOD/PAP).

Nordlist, efnistækni léttra burðarhluta.
    Verkefnið hófst á árinu 1993. Kynningarfundur var haldinn í Ósló 26. mars þar sem fjallað var um tillögur um verkefni og unnið var að gerð umsókna.
    Flestir þættir verkefnisins hófust haustið 1993. Markmiðið er að auka samkeppnishæfni norræns iðnaðar á sviðum léttrar efnistækni þar sem góð þekking er fyrir hendi á Norðurlöndum í dag. Ætlunin er að ná þessu með samstarfi iðnfyrirtækja og rannsóknaraðila með þróun aðferða burðar- og framleiðslutækni sem hafa munu mikla þýðingu í framleiðslunni á næstu árum.

Nordfood, ný tækni í matvælaiðnaði.
    Verkefnið var lagt fyrir og samþykkt í stjórn sjóðsins í janúar 1993.
    Markmið verkefnisins er að tryggja samkeppnishæfni matvælaiðnaðarins á breytilegum markaði, m.a. með því að ná lágmarksstærð á einstökum völdum sviðum.
    Meðal valdra sviða eru:
—    Matvælapökkun.
—    Gæðastjórnun og upplýsingatækni.
—    Hreinlæti í matvælaframleiðslu.
—    Nýjar aðferðir, ný framleiðsluferli.
    Umsóknarfrestur rann út 30. september 1993. Einstök verkefni voru samþykkt á stjórnarfundi í desember 1993.

Nordpap, ný tækni í pappírsiðnaði.
    Pappírsiðnaður hefur mikla þýðingu, sérstaklega fyrir Finnland, Svíþjóð og Noreg. Megináhersla er lögð á eftirfarandi þætti í verkefninu: Eiginleika nýs og endurunnins pappírs, nútímableikingartækni, pappír sem flutningsmiðil upplýsinga og Evrópustaðla.

Nordwood, ný tækni í tréiðnaði.
    Notkun timburs í iðnaði á sér langa hefð á Norðurlöndum. Engu að síður er flutt út mikið magn óunnins timburs frá þeim löndum þar sem timburframleiðsla er mikil. Markmið verkefnisins er að auka samkeppnishæfni norræns tréiðnaðar. Meðal áhersluatriða í verkefninu má nefna timbur og umhverfi, bætta eiginleika timburs, nýja markaði og nýjar framleiðsluvörur.
    Íslendingar hafa tekið virkan þátt í undirbúningi allra þessara áætlana og eru virkir þátttakendur í þróunarvinnunni á efnistækniáætluninni og sérstaklega matvælaáætluninni.
    Stefnt var að því að um 3 / 4 hlutar ráðstöfunarfjár sjóðsins fari til þessara þriggja verkefna, en 1 / 4 fari til annarra verkefna.
    Formaður stjórnar sjóðsins er Svíinn Sven Sjögren og fulltrúi Íslands í stjórninni er Kristmundur Halldórsson. Framkvæmdastjóri er Norðmaðurinn Per Gjelsvik.

12.3. Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NoPEF).
Samstarf um útflutningsverkefni.
    Markmið Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (Nordiska projektexpertfonden, NoPEF) er að hvetja til samstarfs norrænna fyrirtækja og þátttöku þeirra í útflutningsverkefnum á alþjóðavettvangi. Sjóðurinn styrkir norræn fyrirtæki og stofnanir til að gera forathuganir og arðsemisathuganir vegna verkefna sem talin eru arðbær og þjóna hagsmunum Norðurlandanna. Í þessu skyni getur sjóðurinn styrkt gerð forathugana um allt að 50% af kostnaði við gerð þeirra. Styrkurinn er veittur í formi áhættuláns sem að öllu jöfnu þarf að endurgreiða ef verkefnið leiðir til sölusamnings en annars ekki.
    Auk þessarar meginstarfsemi beitir sjóðurinn sér fyrir athugunum sem hafa almenna þýðingu fyrir norrænan verkútflutning. Þannig beitir hann sér fyrir sérstökum könnunum á sóknarfærum í verkútflutningi, svo sem á nýjum mörkuðum eða á nýjum sviðum. Þá getur NoPEF haft frumkvæðið að verkútflutningi með því að koma á samstarfi fyrirtækja. Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn gengst einnig fyrir alþjóðlegum fundum og ráðstefnum á sviðum og mörkuðum sem teljast áhugaverð fyrir norrænt atvinnulíf.

Smá og meðalstór fyrirtæki í Eystrasaltsríkjunum.
    Loks felur norræna ráðherranefndin sjóðnum tímabundin verkefni af ýmsu tagi. Þannig var sjóðnum falið að ráðstafa 300 millj. kr. á árunum 1990–1992 til þess að örva útflutning sem stuðlar að umhverfisvernd og nú hefur sjóðnum verið falið að örva fjárfestingu í baltnesku löndunum samkvæmt sérstakri áætlun sem nefnist baltneska fjárfestingaráætlunin.
    Þáttur NoPEF í baltnesku fjárfestingaráætluninni snýr að stuðningi við athuganir á uppbyggingu smárra og meðalstórra fyrirtækja í baltnesku löndunum í samvinnu við norræn fyrirtæki. Samkvæmt áætluninni hefur sjóðurinn 5 millj. ekna (um 400 millj. ísl. kr.) til ráðstöfunar í þessu skyni á næstu þremur árum. Þessi þáttur hefur sett mikinn svip á starfsemi sjóðsins sl. ár eins og fjöldi samþykktra lána vegna þessara áætlana sýnir.

823 verkefni á ellefu árum.
    NoPEF hefur nú starfað í ellefu ár og fjallað um 823 verkefni og þar af samþykkt lán og styrki til 426 verkefna að fjárhæð um 1,1 milljarður kr. Á árinu 1993 veitti sjóðurinn styrki til 56 verkefna. Þessi verkefni skiptust þannig á Norðurlöndin og markaðssvæði:





REPRÓ





    Eins og þessi skipting sýnir hefur baltneska fjárfestingaráætlunin verið fyrirferðarmest í starfsemi sjóðsins á árinu 1993. Samtals 38 verkefni af 56 féllu undir þessa áætlun. Enginn vafi er því á að umrædd áætlun hefur stuðlað að aukinni fjárfestingu norrænna fyrirtækja í baltnesku löndunum.

Íslensk verkefni.
    Samtals hafa 19 íslensk verkefni fengið stuðning frá sjóðnum að fjárhæð um 37 millj. kr. Flest verkefnanna hafa tengst sjávarútvegi og orkubúskap, enda hafa Íslendingar haft fram að bjóða þekkingu á þessum sviðum sem er samkeppnishæf á alþjóðavettvangi. En einnig hefur sjóðurinn styrkt íslensk útflutningsverkefni á öðrum sviðum, m.a. á sviði byggingariðnaðar, verktakastarfsemi, heilbrigðisþjónustu og hrossaræktar. Að auki tengjast íslenskir hagsmunir mörgum almennum verkefnum sem sjóðurinn hefur beitt sér fyrir í þágu atvinnulífsins á Norðurlöndum.
    Á árinu 1993 samþykkti NoPEF styrki til fjögurra íslenskra verkefna sem eftirtalin fyrirtæki stóðu að:

         

Finnsk mörk


    Isen
278.000

    UNA
540.000

    Industrial Pipe Contractors
110.000

    Icelandic Waters
350.000


    Þessi verkefni tengjast öll baltnesku löndunum. Þrjú fyrstu verkefnin eru samstarfsverkefni Íslendinga og Litáa og hið síðastnefnda Íslendinga og Eista. Verkefnin eru á ólíkum sviðum. Isen tengist hrossarækt, Una byggingariðnaði, Industrial Pipe Contractors húshitun og Icelandic Waters sjávarútvegi.
    NoPEF, sem sett var á stofn árið 1982, er systurstofnun Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Norræna þróunarsjóðsins (NDF) og Norræna umhverfissjóðsins (NEFCO). Þessar stofnanir eru allar staðsettar í Helsingfors. Af Íslands hálfu sitja í stjórn sjóðsins Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, og Stefán Friðfinnsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Þorsteinn Ólafsson viðskiptafræðingur er forstjóri NoPEF.

12.4. Norræni þróunarsjóðurinn.

    Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) tók formlega til starfa 1. febrúar 1989. Hann hefur aðsetur hjá Norræna fjárfestingarbankanum í Helsingfors og nýtur samrekstrar með honum að mörgu leyti. Stofnfé sjóðsins er 250 millj. SDR (um 25 milljarðar ísl. kr.) og greiðist af Norðurlöndunum í samræmi við „norræna deililykilinn“ og kemur síðasti hlutinn til greiðslu árið 1998.
    Markmið sjóðsins er að styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir í þróunarríkjunum í samvinnu við aðrar lánastofnanir. Fyrst og fremst er lánað til fátækustu ríkja heims. Lánskjörin eru með þeim bestu sem þekkjast. Lánin eru til 40 ára, afborganalaus fyrstu 10 árin, vaxtalaus, en með 0,75% þjónustugjaldi á ári.
    Í lok nóvember 1993 hafði stjórn sjóðsins veitt vilyrði fyrir lánum til 37 verkefna í 24 þróunarlöndum að upphæð 104,6 millj. SDR (um 105 milljarðar ísl. kr.). Þar af hafa verið undirritaðir 22 lánasamningar að upphæð 83 millj. SDR (um 8,3 milljarðar ísl. kr.).
    Eitt lán hefur verið undirritað þar sem íslensk fyrirtæki eiga beinna hagsmuna að gæta. Það er lán til fiskveiðiverkefnis í Malawi og er lánsupphæðin 2,8 millj. SDR (um 280 millj. ísl. kr.). Sjóðurinn tekur þátt í verkefninu ásamt Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Alþjóðabankanum. Samið var við Slippstöðina á Akureyri um smíði rannsóknaskips og fiskiskips til nota á Malawi-vatni. Rannsóknaskipið var flutt til Malawi árið 1992, en fiskiskipið var smíðað og flutt þangað árið 1993. Norræni þróunarsjóðurinn fjármagnaði tækjabúnað í rannsóknarskipinu fyrir 200.000 SDR (um 17,6 millj. ísl. kr.) en Þróunarsamvinnustofnun Íslands skipið sjálft. Sjóðurinn fjármagnaði fiskiskipið að fullu (750.000 SDR eða um 75 millj. ísl. kr.). Þar af voru greiðslur til íslenskra fyrirtækja fyrir skipasmíði, veiðarfæri og ráðgjöf um 53 millj. ísl. kr. Þess má geta að þetta eru tvö síðustu skipin sem Slippstöðin Oddi hf. á Akureyri hefur smíðað.
    Íslenskir ráðgjafar hafa unnið fyrir Norræna þróunarsjóðinn við undirbúning fiskveiðiverkefnis á Maldiveyjum. Sjóðurinn hefur lánað 4,2 millj. SDR (um 420 millj. ísl. kr.) til verkefnisins sem er samvinnuverkefni með Alþjóðabankanum, norskum og sænskum hjálparstofnunum o.fl. Íslensk skipasmíðastöð (Þorgeir og Ellert hf.) er tilboðsgjafi í hafnsögubát í verkefninu (báturinn kostar um 25 millj. ísl. kr).
    Undirbúningur að samstarfi Norræna þróunarsjóðsins, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Afríska þróunarbankans um fiskveiðiverkefni á Grænhöfðaeyjum er kominn vel á veg. Einnig er hafinn undirbúningur að samstarfi Norræna þróunarsjóðsins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um fiskveiða- og fiskvinnsluverkefni í Namibíu. Hugsanlega mun sjóðurinn fjármagna byggingu frystihúss í tengslum við verkefnið en íslensk fyrirtæki munu leggja til fiskiskip. Þá er til athugunar hjá Norræna þróunarsjóðnum lánveiting til hitaveituframkvæmda í borginni Tanggu í Kína, en þar er næststærsta jarðhitaveita heimsins á eftir Hitaveitu Reykjavíkur. Kínverska hitaveitan hefur leitað eftir aðstoð íslenskra ráðgjafarfyrirtækja um tæknilegan undirbúning. Yfirverkfræðingur kínversku hitaveitunnar sótti nám í Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík.
    Sjóðurinn hefur sex starfsmenn. Meðal þeirra er einn Íslendingur, Engilbert Guðmundsson hagfræðingur, en hann gegnir starfi aðstoðarframkvæmdastjóra sjóðsins.
    Í stjórn sjóðsins situr einn fulltrúi frá hverju Norðurlandanna. Fulltrúi Íslands er dr. Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en varamaður dr. Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Svíinn Carl Ivar Öhman veitir sjóðnum forstöðu.

12.5. Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO).
    Árið 1993 var þriðja heila starfsár Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO). Megintilgangur félagsins er að stuðla að umhverfisbótum, svo sem bættum mengunarvörnum í löndum Mið- og Austur-Evrópu. NEFCO tekur þátt í verkefnum með því að leggja fram fjármagn í formi hlutafjár eða lána til fyrirtækja. Þátttaka NEFCO er ákveðin á grundvelli mats á umhverfisáhrifum verkefnis og rekstrarhorfum. Almenn skilyrði fyrir þátttöku NEFCO í umhverfisverkefnum er að fyrirtæki eða einstaklingar í því landi þar sem verkefnið er unnið og frá einu hinna Norðurlandanna eigi aðild að verkefninu og leggi til þess fjármagn. Hlutdeild NEFCO er að jafnaði ekki meiri en sem nemur 25% af heildarhlutafé og lánsfé þegar um slíkt er að ræða.
    Í árslok hafði stjórn NEFCO samþykkt þátttöku í alls 25 verkefnum með fjármögnun, þ.e. í formi hlutafjár og lána að upphæð samtals 17,8 millj. ekna (ecu) (1,45 milljarðar ísl. kr.), en áætluð heildarfjárfesting í þessum verkefnum er 205 millj. ekna (16,7 milljarðar ísl. kr.).
    Þessi verkefni skiptast þannig eftir löndum: Pólland 10, Tékkland 4, Slóvakía 1, Eistland 4, Lettland 1, Litáen 3 og Rússland 2. Aðild norrænna fyrirtækja skiptist þannig eftir löndum: Danmörk 8, Finnland 10, Ísland 1, Noregur 2 og Svíþjóð 11.
    Á árinu urðu nokkrar breytingar á starfsemi NEFCO. 1. júlí tóku gildi breytingar á reglum félagsins sem gerðu rekstur þess óháðan rekstri Norræna fjárfestingarbankans (NIB), en bankinn hafði frá upphafi séð um rekstur félagsins. Þá var lögð aukin áhersla á þátttöku NEFCO í frumverkefnamati og undirbjó stjórn félagsins í umboði ráðherranefndarinnar úttekt á brýnustu umhverfisverkefnunum á Barentssvæðinu við Kólaskagann.
    Í stjórn NEFCO fyrir Íslands hönd sátu á árinu 1993 Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri (aðalmaður) og Jón Gunnar Ottósson skrifstofustjóri (varamaður). Forstjóri NEFCO frá 1. júlí 1993 er Haaro Pitkänen.

12.6. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda.
Starfshættir.
    Mat starfsmanna sjóðsins á lánshæfni umsóknarverkefna er þrískipt. Öll þrjú matsatriði verða að vera jákvæð með tilliti til hæfni verkefnanna til fjármögnunar úr sjóðnum.
    Í fyrsta lagi verður verkefnið að vera gott þróunarverkefni í skilningi samþykkta sjóðsins og stjórnar hans. Er þá sérstaklega átt við þróun í útflutningi, sparnað á innflutningi, hagræðingu á þjónustu eða nýsköpun atvinnuvega. Þetta matsatriði byggist mikið á reynslu og oft er leitað til opinberra stofnana eða ráðuneyta ef vafi leikur á.
    Í öðru lagi fer fram greining á rekstrarefnahag og markaðsmöguleikum verkefnisins hjá sjóðnum í nánu samstarfi við umsækjendur. Þessi greining er oftast nær nokkuð tímafrek enda fer hún ofan í kjölinn á forsendum og áætlunum allt að tíu ár fram í tímann. Henni lýkur með áætlun fyrir rekstur og jöfnuð sem umsækjandi og sjóðurinn samþykkja. Þótt ótrúlegt kunni að virðast koma oft veikleikar fram við slíka greiningu, jafnvel hjá reyndum fyrirtækjum. Litið er á fjármögnunina í heild ef fleiri lánastofnanir eru inni í dæminu.
    Í þriðja lagi verður að vera nægileg trygging fyrir endurgreiðslu láns ef illa skyldi fara og verkefnið verða gjaldþrota. Fjallað er nánar um veð og áhættu þeirra hér að neðan.

Áhættumat verkefna og veða.
    Þegar á öðru starfsári, 1989, hóf sjóðurinn að beita áhættumati bæði á verkefnunum og þeim veðum eða ábyrgðum sem veittar voru til tryggingar á endurgreiðslu lánsfjár.
    Áhættumat verkefna er í eðli sínu huglægt og háð reynslu starfsmanna sjóðsins eða ráðgjafa þeirra og beinist að athafnasviði, stjórnendum og aðstæðum verkefnanna.
    Áhættumat veðanna byggist í fyrsta lagi á óháðu markaðsmati reyndra fagmanna utan sjóðsins (á Íslandi er yfirleitt miðað við sölu innan eins árs) og í öðru lagi á huglægu reynslumati starfsmanna sjóðsins á mögulegri verðrýrnun veðsins ef eigendur skyldu verða gjaldþrota enda aðstæður við sölu veðs allt aðrar hjá gjaldþrota fyrirtæki. Beinist mat starfsmanna sjóðsins að staðsetningu, ástandi og hinni sérhæfðu notkun veðsins.
    Matsgerðir þessar koma loksins saman í eina tölu sem lýsa áhættumati sjóðsins á útlánum til einstakra verkefna og einnig á útlánum í heild. Þær eru að verulegu leyti háðar reynslu starfsmanna og því eðlilegt að gæði og notagildi þeirra aukist verulega með tímanum og með aukningu á fjölda útlána. Reynslan af matsaðferðum sjóðsins hefur verið góð til þessa. Þær þykja ekki tímafrekar og auðvelda samanburð á verkefnum.
    Áhættumat útlána er notað til þess að meta öryggi þeirra á lánstímabilinu og vísa þeim lánsmálum frá sem af einhverjum ástæðum geta ekki uppfyllt skilyrði sjóðsins til veða. Einnig eru þau notuð til þess að ákveða stærð afskriftareiknings útlána á ári hverju.

Lánskjör.
    Öll lán frá sjóðnum eru lán með viðmiðun við erlenda gjaldmiðla, og eru þar algengastir danskar krónur (DKK), þýsk mörk (DEM) og Bandaríkjadalir (USD). Viðmiðun við danskar krónur hefur lengi verið algengust en viðmiðun við þýsk mörk hefur orðið æ algengari síðustu árin.
    Vextir miðast við markaðsþróun millibankavaxta og stöðugleika þeirra á mörkuðum erlendis. Dæmigerður vaxtamunur hefur verið um 1,0–1,5% p.a. til þessa hjá sjóðnum, en hann er talinn nægilegur við venjuleg rekstrarskilyrði.
    Ekki hefur vöxtum verið beitt þannig að mismunur sé gerður á verkefnum samkvæmt einhverju gæðamati hjá sjóðnum enda er það ekki talið hlutverk vaxtanna hjá sjóðnum. Slík mismunun gæti hæglega bitnað á góðum þróunarverkefnum sem síst mega við því.
    Lengd lána fer að miklu leyti eftir þörfinni eins og hún kemur fram í greiningu sjóðsins á rekstrarefnahag umsóknarverkefna. Einnig er tekið tillit til væntanlegs aldurs verkefnisins á markaði og kemur þá t.d. oft í ljós að hátækniverkefni eiga sér stuttan aldur.
    Öll lán frá sjóðnum eru undanþegin stimpil- og þinglýsingargjöldum samkvæmt lögum.

Fjölgun á útlánum.
    Umsóknum hefur fjölgað verulega 1993 og hafa þrettán lán verið greidd út til íslenskra verkefna og fjögur til grænlenskra verkefna. Engin lán hafa verið afgreidd til Færeyja á árinu og fáar raunhæfar umsóknir eru á leiðinni, enda efnahagur þar í járnum og halda athafnamenn eðlilega að sér höndum þangað til úr rætist.
    Engin ný samstarfsverkefni landa á milli í útnorðri hafa séð dagsins ljós og má segja að sá þáttur í tilgangi sjóðsins hafi valdið vonbrigðum fram að þessu. Hins vegar má halda því fram að fenginni reynslu að slík verkefni séu eðlilega sjaldgæf en ekki að öllu leyti ólíkleg og má þar nefna ferðamál sem líklegan vettvang samstarfsverkefna.
    Útlán sjóðsins eru að miklu leyti í skilum, en þó eru vanskil meiri nú en á fyrri árum, ekki síst á útlánum til íslenskra fyrirtækja. Aðeins þrjú vanskilamál eru talin mjög alvarleg og líkleg til vandræða. Er eitt þeirra íslenskt en hin tvö færeysk og grænlensk.
    Sjóðurinn hefur komist hjá tapi á útlánum fram til þessa þótt nokkur verkefni hafi farið illa og endað með gjaldþroti. Einhvern tímann kemur þó að því að afskriftareikningur útlána verði notaður, enda mat á öryggi útlána byggt á slíkum eins og greint er frá að framan.
    Hátt á þriðja hundrað umsókna hafa borist til sjóðsins frá upphafi, en tæplega helmingur þeirra hefur verið með þeim formlega hætti og nægilegum upplýsingum sem nauðsynlega þarf til umfjöllunar og greiningar. Alls hafa starfsmenn sjóðsins fjallað um og greint rúmlega hundrað umsóknir. Tæplega sextíu þessara umsókna hafa verið lagðar fyrir stjórn sjóðsins og hefur einni umsókn verið hafnað en hinar allar samþykktar.

Tveir styrkir og þrjú skilyrt lán.
    Fyrir rúmu ári ákvað stjórn sjóðsins að veita eingöngu styrki í undantekningartilfellum í sambandi við útlán, enda hafa aðeins tveir styrkir verið veittir til þessa og þeir báðir til íslenskra verkefna. Stærð styrkja þótti vera eðlileg allt að 5,0 millj. ísl. kr.
    Þess ber að geta að samkvæmt samþykktum getur sjóðurinn aðeins veitt styrki eða lán sem í felst veruleg áhætta úr uppsöfnuðum arði. Þessi regla setur að sjálfsögðu takmörk fyrir fjármögnun úr sjóðnum með svonefndu áhættufé.
    Í stað styrkja var ákveðið að reyna um tíma aðra útlánategund, sem nefnist skilyrt lán, til forkönnunar á sérstökum þróunarverkefnum. Þessi skilyrtu lán eru yfirleitt lítil (allt að 5,0 millj. ísl. kr.) og eru veitt í sambandi við stærri lánamál eins og styrkirnir. Skilyrtu lánin þarf ekki að endurgreiða ef verkefnið mistekst þótt vel og skilmerkilega hafi verið að því staðið. Þrjú slík lán hafa verið greidd út til íslenskra fyrirtækja á síðustu tveimur árum.
    Meðferð skilyrtra lána er mjög vandasöm, en of snemmt er að meta endanlega hæfni slíkra lána til verkefna í útnorðri og einnig fyrir starfshætti sjóðsins.

Reksturinn.
    Rekstur sjóðsins er sjálfstæður að mestur leyti. Hann leigir skrifstofuhúsnæði á hentugum stað (nú hjá Byggðastofnun í Reykjavík) og kaupir sérfræðingaþjónustu af ýmsu tagi (lögfræðingar, matsmenn veða, skjalaþýðendur o.s.frv.) þegar nauðsyn krefur. Þrátt fyrir smæð sjóðsins er þetta nokkuð hentugur rekstrarmáti.
    Sjóðurinn hefur fram að þessu þurft að fjárfesta í ríkisskuldabréfum (dönskum) til þess að ná bestu ávöxtun á eignum sínum, bæði til langs og skamms tíma. Í sambandi við þessa starfsemi hefur hann fengið og notið ráða ýmissa erlendra banka.
    Öll starfsemi sjóðsins hefur aukist verulega á síðustu árum og eru starfsmenn nú fjórir en alls eru stöðugildin þrjú að forstjóranum meðtöldum. Tveir starfsmenn vinna aðeins hálfan daginn í sambandi við bókhald og ritarastörf. Einn nýr starfsmaður var ráðinn á árinu og starfar hann aðallega við greiningu rekstrarefnahags umsóknarverkefna.
    Tveir stjórnarfundir eru haldnir á ári hverju. Einn í Kaupmannahöfn á vetrum og annar til skiptis í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi á sumrum. Langflest lánamál eru afgreidd skriflega í fjarskiptum og fjalla stjórnarfundir því mikið um stefnu- og efnahagsmál.
    Rekstur sjóðsins og ástand útlána hefur fram að þessu verið þannig að hagnaður hefur verið af starfseminni á hverju starfsári. Svo mun einnig verða fyrir árið 1993 þótt endanlegar tölur séu ekki kunnar, enda sýndi uppgjör á miðju ári eðlilegan hagnað, rúmlega 1,4 millj. d.kr. eða tæpar 15 millj. ísl. kr.
    Sjóðurinn er ekki á fjárlögum aðildarlanda nema hvað greiðslu stofnfjár varðar. Greiðslur þessar voru ákveðnar við stofnun sjóðsins árið 1986 og þeim lýkur 1995. Starfsemi sjóðsins fer að öllu leyti fram við almenn markaðsskilyrði samhliða öðrum lánastofnunum og verður sjóðurinn að standa sjálfur fyrir rekstri sínum og efnahag.

Starfsemi á tímamótum.
    Segja má að starfsemi sjóðsins sé nú á tímamótum. Hún hefur byrjað hægt eins og við mátti búast hjá fjárfestingarsjóði á athafnasvæði í kreppu. Útlán hafa þó aukist verulega, sérstaklega á þessu ári (1993). Aukningin er að verulegu leyti á útlánum til Íslands.
    Nýting stofnfjár — miðað við þá reglu samþykkta að útistandandi lán megi verða alls að upphæð tvöföld stærð stofnfjár — er að nálgast 50% sem aftur á móti þýðir að sjóðurinn verður að útvega sér hagstæð innlán á næstunni til þess að geta haldið áfram starfseminni. Fram til þessa hefur sjóðurinn eingöngu aflað sér innlána til þess að ná jöfnuði í tegundum gjaldeyris og þar af leiðandi minni áhættu.
    Langflest útlán hafa verið veitt til Íslands en fæst til Færeyja (aðeins tvö), enda er efnahagsástandið þar óvenju slæmt eins og allir vita.
    Sjóðurinn hefur frá upphafi veitt lán til þróunarverkefna í flestöllum atvinnugreinum og í mjög breiðum skilningi af ásettu ráði — en þó í samræmi við samþykktir sjóðsins. Þetta hefur verið gert til þess að ná fótfestu og reynslu á athafnasvæðinu.
    Nú þegar þessu takmarki hefur verið náð að verulegu leyti er tími til kominn, að mati stjórnarmanna, að ákveða nánar og beina starfsemi sjóðsins betur inn á svið þróunarverkefna með verulega nýsköpunarmöguleika eins og frekast er unnt án þess að glata hinni sterku fjárhagsstöðu sem sjóðurinn hefur nú. Þetta áform mun að sjálfsögðu takmarkast eitthvað af samþykktum sjóðsins eins og þær eru nú.
    Í stjórn Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda sitja sjö menn, einn frá hverju aðildarlandi, og hefur hver þeirra varamann. Fyrir Íslands hönd situr Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, í stjórn sjóðsins og er hann jafnframt formaður stjórnar næstu tvö árin. Varamaður Sturlaugs er Guðmundur Árnason, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu.



Fylgiskjal I.

Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna.


(Ósló, 1. mars 1993.)



    Í tengslum við 42. þing Norðurlandaráðs í Ósló var hinn 1. mars 1993 haldinn fundur forsætisráðherra Norðurlandanna til að ræða norræna og evrópska samvinnu. Ráðherrarnir lýstu eftirfarandi yfir:

Atvinnumál á Norðurlöndunum.
    Forsætisráðherrarnir hafa þungar áhyggjur af þróun atvinnuleysis á Norðurlöndunum. Aukning atvinnuleysis meðal ungs fólks, er leitar að vinnu, er sérstakt áhyggjuefni.
    Baráttan gegn atvinnuleysinu er mikilvægasta þjóðfélagsverkefnið á öllum Norðurlöndunum. Stefnan í atvinnumálum er í ríkum mæli mál á ábyrgð hvers lands um sig en aðstæður knýja á um að aðgerðir Evrópulandanna séu samræmdar betur og alþjóðlegt efnahagssamstarf sé endurnýjað og aukið.
    Forsætisráðherrarnir telja mjög mikilvægt það starf sem miðar að því að auka efnahagssamvinnu í Evrópu. Þeir leggja mikla áherslu á að aðstæður séu til þess fallnar að unnt sé að fullgilda EES-samninginn í öllum EFTA- og EB-ríkjunum þannig að hann geti gengið í gildi frá og með 1. júlí 1993.
    Forsætisráðherrarnir leggja á það áherslu að fjármunum Evrópulanda verði að ráðstafa á samræmdan hátt með það að leiðarljósi að atvinnumál hafi algeran forgang. Mikilvæg forsenda þess að hagvöxtur og atvinna aukist varanlega er sú að verðbólga sé áfram lág og fjármálastjórn verði styrkt en slíkt getur leitt til lægri vaxta. Til að stuðla að því að fjárlög hafi áhrif í þá átt að auka atvinnu munu Norðurlöndin leitast við að hraða kerfisumbótum þar sem norrænir hagsmunir eru fyrir hendi.
    Þörf er á samræmdari evrópskri áætlun til að stuðla að því að fjárfesting í Evrópu verði vænlegri kostur. Nauðsynlegt er að fjárframlögum hins opinbera sé í ríkari mæli en nú er beint frá óvirkum til virkra ráðstafana og aukinnar fjárfestingar enda sé jafnframt gætt aðhalds á sviði opinberra útgjalda. Það er einnig mjög mikilvægt að stuðla að meiri samvinnu í efnahags- og gengismálum til að tryggja aukningu hagvaxtar.
    Forsætisráðherrarnir líta það jákvæðum augum að baráttunni gegn atvinnuleysi er nú gefinn góður gaumur í EB-ríkjunum þar sem unnið er að umfangsmiklum sameiginlegum ráðstöfunum varðandi hagvöxt og atvinnu.
    Forsætisráðherrarnir leggja mikið upp úr fyrirhuguðum fundi fjármálaráðherra EFTA- og EB-ríkjanna 19. apríl. Þeir beina því til fjármála- og efnahagsráðherranna að undirbúa þennan fund mjög vel í því augnamiði að Norðurlöndin geti með þátttöku sinni stutt störf að því að örva með samræmdum hætti hagvöxt á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
    Forsætisráðherrarnir styðja áform um frekari ráðstafanir gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks sem norrænu vinnumálaráðherrarnir hafa staðið að.
    Forsætisráðherrarnir undirstrika mikilvægi annarra ráðstafana á alþjóðavettvangi sem eru nú í undirbúningi, starf OECD í baráttunni við atvinnuleysið og fund ríkjanna sjö í sumar þar sem markmiðið er að efla alþjóðlega samvinnu.
Evrópsk samvinna.
    Forsætisráðherrarnir hafa rætt hvernig viðræðum miði milli EB og þeirra Norðurlandanna sem sótt hafa um aðild að bandalaginu. Þeir eru ánægðir með mótun góðs skipulags og tímaáætlunar viðræðnanna. Þeir leggja áherslu á að áfram verði náin tengsl milli Norðurlandanna með það í huga að veita gagnkvæman stuðning og gæta sameiginlegra hagsmuna þar sem slíkt er eðlilegt.

Svæðissamstarf í nágrenni Norðurlandanna.
    Forsætisráðherrarnir hafa rætt hvernig samvinnu um Eystrasalt og Barentshaf miði og styðja aukningu samstarfsins á þessum svæðum. Þeir leggja mikla áherslu á frekari þróun svæðissamstarfs í nágrenni Norðurlanda og líta á það sem mikilvægan þátt í nánari samvinnu í Norður-Evrópu.
    Forsætisráðherrarnir vísa til góðrar reynslu sem fengist hafi með sameiginlegum aðgerðum Norðurlandanna í Eystrasaltsríkjunum og eru samþykkir því að áfram sé unnið á svipaðan hátt gagnvart Norðvestur-Rússlandi.

Ástandið í fyrrum Júgóslavíu.
    Forsætisráðherrarnir lýsa yfir eindreginni andstöðu sinni við þau stríðsátök sem eiga sér stað og linnulausar árásir á óbreytta borgara á ófriðarsvæðunum í fyrrum Júgóslavíu.
    Forsætisráðherrarnir lýsa yfir stuðningi sínum við Vance-Owen-áætlunina fyrir Bosníu-Hersegóvínu og undirstrika mikilvægi þess að samningaviðræðum sé haldið áfram. Þeir styðja allar aðgerðir sem átt geta þátt í að girða fyrir það að ófriðurinn breiðist út til Kósóvó og Makedóníu, fyrrverandi lýðveldis í Júgóslavíu. Í þessu sambandi minna þeir á sameiginlegt norrænt herfylki sem nú er í fyrrverandi júgóslavneska lýðveldinu Makedóníu.
    Forsætisráðherrarnir telja mikilvægt að allir aðilar stuðli að þróun sem tryggt geti að friður náist og mannlegum þjáningum linni. Þeir eru hlynntir því að Bandaríkin láti nú meira að sér kveða í friðarstarfi Sameinuðu þjóðanna á svæðinu. Þeir styðja frumkvæði Bandaríkjamanna um að koma upp loftbrú með sendingum hjálpargagna í mannúðarskyni þar sem aðstæður krefjast.
    Forsætisráðherrarnir styðja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 808 um stofnun alþjóðadómstóls til að dæma þá sem hafa gerst sekir um stríðsglæpi.

Meðferð tillagna um umbætur í norrænni samvinnu.
    Forsætisráðherrarnir lýsa yfir ánægju sinni með starf á grundvelli þeirra tillagna um umbætur í norrænni samvinnu sem lagðar voru fram á forsætisráðherrafundinum á Borgundarhólmi og á 41. þingi Norðurlandaráðs í Árósum.
    Forsætisráðherrarnir styðja breytingar á skipulagi samstarfs ríkisstjórna á grundvelli þeirra sviða sem samkomulag varð um í Árósum að leggja mesta áherslu á.
    Þeir telja öll samskipti milli ríkisstjórnanna mikilvæg hvort sem þau eru óformleg eða eiga sér stað með aðstoð skrifstofunnar. Forsætisráðherrarnir vilja leggja áherslu á það nána samstarf sem þróast hefur milli forsætisráðherranna, utanríkisráðherranna og fjármála- og efnahagsráðherranna.
    Forsætisráðherrarnir leggja áherslu á að frumkvæði þeirra miðist að því að hleypa lífi í norrænt samstarf með því að gera samstarf ríkisstjórnanna markvissara og stuðla að því að styrkja Norðurlandaráð sem samstarfsvettvang ríkisstjórna og þingmanna að því er varðar norræn mál og alþjóðamál. Þeir undirstrika að tillagan um breytingar á Helsingfors-samningnum muni styrkja mjög ákvörðunarvald Norðurlandaráðs varðandi fjárhagsáætlunina.
    Fulltrúar Norðurlandanna voru:

Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra, Noregi (formaður),
Paul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra, Danmörku,
Esko Aho forsætisráðherra, Finnlandi,
Davíð Oddsson forsætisráðherra, Íslandi,
Carl Bildt forsætisráðherra, Svíþjóð.




Niðurstaða forsætisráðherranna um
norræna samvinnu varðandi persónur.

(Reine, 2. júlí 1993.)



    Forsætisráðherrarnir fara þess á leit við samstarfsráðherrana að þeir láti hefja athugun á þeim hindrunum sem fólk verður fyrir á landamærum vegna ferða yfir þau og dvalar eða atvinnu í öðru landi auk þess sem þeir geri tillögur til forsætisráðherranna um ráðstafanir til úrbóta.
    Í starfi þessu skal aðallega höfð hliðsjón af Iloniemi-skýrslunni, yfirstandandi athugun í ráðherranefnd Norðurlanda og samrunaþróuninni í Evrópu.
    Starfinu skal stýra einstaklingur með víðtæka reynslu í norrænum málefnum en í samstarfi við skrifstofuna, norrænu samstarfsnefndina og sérfræðinga einstakra landa.
    Samstarfsráðherrarnir skulu tilnefna einstaklinginn. Skal leggja fyrstu skýrslu fyrir fund forsætisráðherranna í Maríuhöfn 8. nóvember.


Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna ásamt


fjármála- og efnahagsráðherrum landanna um aukna atvinnu,


gefin út í Maríuhöfn 8. nóvember 1993.



    Norðurlöndin og Evrópa þarfnast aukins hagvaxtar til að skapa ný störf og draga úr atvinnuleysi.
    Atvinnuleysið á bæði rætur að rekja til almenns efnahagsvanda og kerfisvandamála í efnahagslífinu. Kerfisvandamálin hafa gert æ erfiðara um vik við að draga úr atvinnuleysi auk þess sem samkeppni frá öðrum ríkjum hefur aukist. Ef ekki verður komið á víðtækum kerfisumbótum og samkeppnishæfni aukin er alvarleg hætta á miklu, varanlegu langtímaatvinnuleysi jafnvel þótt betri tíð komi í efnahagslífinu.
    Mikilvæg forsenda hagvaxtar, sem skapar ný störf, er að áfram sé barist gegn verðbólgunni.
    Ríkisstjórnir Norðurlandanna fagna endurnýjuðu átaki Evrópuríkja til að leita sameiginlegra lausna á hagvaxtar- og atvinnuvandamálum innan vébanda EB og í samstarfi EB og EFTA.
    Hagkerfi einstakra ríkja skipta sköpum en einungis með samstarfi Evrópuríkja getur átak einstakra ríkja haft hámarksáhrif.
    Heilbrigð opinber fjármál eru einnig mikilvæg forsenda þess að efnahagslífið megi örva, fyrst og fremst í formi lægri vaxta.
    Ríkisstjórnir Norðurlandanna fagna því starfi sem hófst á og fyrir tilstuðlan fundar evrópska ráðsins í Edinborg og haldið var áfram með fundinum í Kaupmannahöfn en það fólst í því að skapa virka stefnu í hagvaxtar- og atvinnumálum með sameiginlegu átaki. Þær leggja mikið upp úr því starfi sem unnið verður á fundi evrópska ráðsins í Brussel í desember.
    Það skiptir mjög miklu að viðræðurnar milli EB og EFTA haldi áfram á ráðherrafundinum sem haldinn verður í Brussel 14. desember. Ríkisstjórnir Norðurlandanna meta einnig starf á þessu sviði í OECD og fagna hugmyndum um leiðtogafund um atvinnumál innan vébanda þess.
    Við leggjum sérstaka áherslu á eftirfarandi mál í áframhaldandi alþjóðasamstarfi um aukinn hagvöxt og atvinnu:

Víðtækari fríverslun.
    Það er mjög mikilvægt að viðræðurnar um aukið frjálsræði í viðskiptum í heiminum verði fljótt til lykta leiddar. Ágætur grundvöllur hefur verið lagður með þegar gerðum samningum. Verði GATT-samningur gerður fljótlega yrði það mikilvægt merki um aukinn hagvöxt.
    Það er einnig mjög mikilvægt að EES-samningurinn með auknu frjálsræði og fríverslun í Evrópu gangi nú í gildi.
    Það er skoðun Norðurlandanna að fríverslun eigi svo skjótt sem auðið er að ná til allrar Evrópu. Fríverslun í Evrópu felur ekki síst í sér nýja möguleika fyrir Mið- og Austur-Evrópu en getur einnig haft umtalsverð hagvaxtaráhrif í Vestur-Evrópu séu nauðsynlegar kerfisbreytingar gerðar.
    Það er sérlega mikilvægt að Eistland, Lettland og Litáen geti tekið þátt í fríverslun við grannlönd sín á Norðurlöndunum. Möguleikar Eystrasaltslandanna á aukinni velmegun og stöðugleika í stjórnmálum eru mjög undir því komnir að vörur þessara landa eigi frjálsan aðgang að útlendum mörkuðum. Við fögnum því þess vegna að framkvæmdastjórn EB var falið á fundinum í Kaupmannahöfn að leggja fram tillögur um að rýmka gildandi viðskiptasamninga við Eystrasaltslöndin þannig að þeir verði að fríverslunarsamningum.
    Fyrir ríkisborgarana leiðir mikil og útvíkkuð fríverslun til lægra verðs, fjölgunar fyrirtækja, þar sem framleiðni eykst og unnt er að greiða hærri laun, og loks traustari grundvallar efnahagslífsins. Hið síðarnefnda er einnig forsenda þess að rekstur hins opinbera gangi vel.
    
Heilbrigð ríkisfjármál til að lækka vexti.
    Í svo að segja öllum Evrópulöndum er slæmt ástand í ríkisfjármálum nú vaxandi vandamál. Það takmarkar athafnafrelsi í efnahagsmálum jafnframt því sem hætt er við að nauðsynleg þróun í átt til lægri vaxta verði stöðvuð. Þau lönd, sem hafa aðstöðu til þess, ættu þó að nýta svigrúm sitt í ríkisfjármálum.
    Séu ríkisfjármálin í lagi skapast grundvöllur fyrir því að efnahagslíf í hinum mismunandi Evrópulöndum glæðist, fyrst og fremst í formi lægri vaxta. Hér er þó forsendan sú að áfram sé gert ráð fyrir lágri verðbólgu.
    Stefnu í fjármálum ber að móta þannig að hún styðji kerfisumbætur, hagvöxt og atvinnu. Breyta má samsetningu opinberra útgjalda þannig að fjárfestingar, sem auka hagvöxt, fái meira vægi. Skattar og útgjöld eiga ekki að fara fram úr því sem eðlilegt er þegar litið er til langs tíma.
    
Kerfisumbætur til að skapa fleiri og ný störf.
    Það er mjög mikilvægt í efnahagslífi Evrópulanda að nýta hæfileika manna betur en það nægir ekki til að skapa aftur fulla atvinnu. Stefnan á því sem næst öllum sviðum þjóðlífsins verður þess vegna að miða að kerfisumbótum sem leiða til þess að efnahagslíf í löndum okkar gangi betur og hagvöxtur aukist hraðar.
    Máli skiptir að gefa einstaklingum, fyrirtækjum og hinu opinbera rétt skilaboð og tryggja þannig að á virkan hátt verði mikilvægasta auðlindin nýtt — vilji manna til að vinna þarft dagsverk.
    Nokkur mikilvæg dæmi um kerfisumbætur:
 —    Lítil og meðalstór fyrirtæki.
    Nýjum störfum fjölgar fyrst og fremst á þann hátt að litlum og meðalstórum fyrirtækjum fjölgar og þau stækka. M.a. verður stefnan í skattamálum að greiða götu fyrirtækja. Einnig verður að leitast við að einfalda löggjöfina almennt til hagsbóta fyrir smá og meðalstór fyrirtæki, m.a. í skattamálum og vinnumarkaðsmálum.
—    Virk stefna í vinnumarkaðsmálum.
    Þá stefnu ber að móta þannig að fólk sé hvatt til að mennta sig, endurhæfa sig og vera virkt á tímum atvinnuleysis fremur en að þiggja óvirkt bætur. Það er sérlega mikilvægt að hinar virku aðgerðir beinist að því að gefa þeim sem hafa verið atvinnulausir í langan tíma betri færi á að hefja aftur verðmæt störf. Annars láta menn endanlega bugast og því fylgja miklar mannlegar þjáningar og erfið félagsleg vandamál, svo sem verðbólguhvetjandi hindranir í framleiðslu.
—    Staða þess er leitar vinnu á vinnumarkaðinum.
    Stöðuna ber að styrkja. Það krefst aukins sveigjanleika í atvinnulífinu. Bótatími í atvinnuleysistryggingakerfinu er ekki ótímabundinn heldur endar við aðgerðir og jafnframt eru gerðar kröfur um að vinna, sem í boði er, sé þegin. Með ýmsum hætti skal gefa vinnuafli, sem er ekki fulllært, möguleika á að starfa á vinnumarkaðinum. Það getur m.a. gerst með fyrirtækja- og starfsmenntun, svo og meiri sveigjanleika.
—    Hæfnisþróun.
    Hæfnisþróun með menntun og endurhæfingu er orðin mikilvægari vegna fleiri láglaunaframleiðenda „við okkar eigin þröskuld“ í Eystrasaltsríkjunum, Mið- og Austur-Evrópu. Við viljum ekki að fyrirtæki okkar komist í þá stöðu að þau verði að eiga í samkeppni með því að greiða lág laun og framleiða eða láta í té tiltölulega óvandaða vöru og þjónustu. Gagnráðstöfunin er einmitt falin í hæfnisþróun og fjárfestingum í háframleiðnistarfsemi.
—    Varanlegur hagvöxtur.
    Aukin starfsemi takmarkast af þeim hömlum sem náttúran setur. Mikil þörf er á að leggja sig fram um að hamla gegn umhverfisspjöllum, bæði í okkar eigin löndum sem og annars staðar í heiminum. Metnaðarfull stefna í umhverfismálum hefur ekki einungis í för með sér betra umhverfi heldur getur einnig átt þátt í því að skapa fleiri störf þegar til skemmri eða lengri tíma er litið.
—    Minni styrkir til atvinnulífs.
    Sú stefna að efla atvinnulífið á að beinast að því að skapa færi á þróun og aukinni starfsemi nýrra fyrirtækja. Stefna, þar sem aðeins vissar greinar og fyrirtæki eru styrkt, getur raskað samkeppni og valdið öðrum fyrirtækjum, sem vilja færa út kvíarnar, erfiðleikum. Lægri styrkir til atvinnulífsins geta leitt til fjármálastefnu sem örvar atvinnulífið. Í alþjóðasamningum þarf stefnan að vera sú að takmarka styrki einstakra ríkja.
—    Vinnuskipting.
    Á nýjan leik er rætt um almenna styttingu vinnutímans sem leið til að auka vinnu. Reynslan á Norðurlöndunum, svo og fræðilegar athuganir, benda ekki til þess að almenn stytting vinnutímans mundi auka heildareftirspurn eftir vinnuafli. Það er þó mikilvægt að gefa kost á sveiganlegri vinnutíma, hlutastörfum, skiptum á störfum í tengslum við framhaldsmenntun o.s.frv.

Stöðugt gengi gjaldmiðla.
    Í efnahagslífi lítilla landa eins og Norðurlandanna skapast sérlega mikil vandamál þegar gengi gjaldmiðla sveiflast mikið. Sveiflur upp og niður hafa m.a. í för með sér mjög mismunandi hagnað og skapa erfiðleika í launamyndun hjá aðilum á vinnumarkaði. Stöðugri gengistengsl í hinum stóru löndum Vestur-Evrópu eru þess vegna mjög mikilvæg Norðurlöndunum. Ákvörðun EB um Evrópsku myntstofnunina (EMI) teljum við fagnaðarefni og í grundvallaratriðum mikilvægt skref í átt til aukins jafnvægis gjaldmiðla í Vestur-Evrópu. Upphaf annars þáttar í starfi myntsamstarfs Evrópu (EMU) bætir möguleikana á samræmingu í efnahagsmálum og um leið forsendur fyrir stöðugum hagvexti og aukinni atvinnu.
    Stöðugleiki í gengismálum er ekki síst mikilvægur vegna þess að miklar sveiflur á gengi gjaldmiðla skapar sennilega erfiðleika í þeirri fríverslun sem svo miklu er kostað til að ná í EFTA, EES-samningnum og á innri markaði EB. Mikill óstöðugleiki milli gjaldmiðla skapar hættu á undiröldu verndarstefnu sem ógnar fríversluninni og um leið hagvexti og atvinnu.
    Stöðugri gjaldmiðlar byggjast á því að betur takist til um samstarf varðandi stefnu í efnahagsmálum í Evrópu. Hin litlu og opnu efnahagskerfi Norðurlandanna eiga mjög mikið undir því að þetta samstarf gangi betur.


Yfirlýsing.


(Reine, 2. júlí 1993.)



    Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Reine 2. júlí 1993 var rætt um forsendur norræns samstarfs í sjónvarpsmálum.
    Forsætisráðherrarnir eru sammála um að biðja ríkisreknu norrænu sjónvarpsstöðvarnar að leggja fram tillögu þar sem lagt sé mat á hvort unnt sé að koma upp sameiginlegri norrænni sjónvarpsrás. Biðja forsætisráðherrarnir stöðvarnar um að koma skýrslu um málið í sínar hendur fyrir 15. október.
    Samtímis fara forsætisráðherrarnir þess á leit við menntamálaráðherrana að vinna að því að skapa bætt skilyrði fyrir því að sjónvarpsþáttum Norðurlandanna sé í auknum mæli dreift til nágrannalandanna. Eru hinir síðarnefndu einnig beðnir um að athuga betur möguleika á aðgerðum til að auka norrænt samstarf í sjónvarpsmálum, m.a. með lausn óútkljáðra mála sem snerta höfundarétt, frekari þróun samstarfs á grundvelli Nordvisjon og styrk til sameiginlegrar norrænnar framleiðslu á sjónvarpsefni.
    Forsætisráðherrarnir vísa til nýrrar áherslu á norrænt menningarsamstarf og að á grundvelli þess geti Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn í ríkari mæli styrkt norræna þáttagerð.

Samþykkt forsætisráðherranna.


(Maríuhöfn, 8. nóvember 1993.)



    Ráðstafanir til að greiða götu íbúanna varðandi ferðir, dvöl og atvinnu á Norðurlöndunum.
    Forsætisráðherrarnir biðja viðkomandi sérráðherra í ráðherranefnd Norðurlanda að gera nauðsynlegar breytingar á gildandi reglum og stjórnsýsluvenjum til að ryðja úr vegi þeim hindrunum, sem bent er á í tilvikunum hér að ofan, og leggja skýrslu um fyrirhugaðar ráðstafanir fyrir fund Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í mars 1994.
    Enn fremur biðja forsætisráðherrarnir samstarfsráðherrana að meta tillögur um norrænt jafnréttisákvæði í Helsingfors-samningnum. Skal það gert í ljósi jafnréttisákvæða EES-samningsins. Í þessu sambandi skal athuga önnur form varðandi lausn deilna.


Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna um


sjónvarpssamstarfið „Norðurstjörnuna“ (Nordstjärnan).


(Maríuhöfn, 8. nóvember 1993.)



    Grundvöllur norrænnar samvinnu er gagnkvæm tungumálakunnátta og þekking á málefnum nágrannalandanna. Í þessu samhengi gegna fjölmiðlar, ekki síst sjónvarp, veigamiklu hlutverki.
    Áhugi Norðurlandabúa og markvissar stjórnmálalegar ákvarðanir í norrænu ríkjunum hafa leitt til þess að æ fleiri á Norðurlöndunum geta nú horft á sjónvarp nágrannalands. Við fögnum mjög þeirri þróun og viljum efla hana í framtíðinni.
    Sem stendur er þó aðeins unnt að ná sjónvarpi nágrannalands á minni hluta heimila á Norðurlöndunum. Ríkisreknu sjónvarpsstöðvarnar hafa nú gert athugun á því hvort unnt sé að koma upp sameiginlegri sjónvarpsrás um gervihnött. Danska útvarpið hefur lýst því yfir að það geti ekki stutt tillögu hinna sjónvarpsstöðvanna.
    Í „Norðurstjörnunni“, sjónvarpsrás þeirri sem tillaga hefur verið gerð um, skal samkvæmt ofangreindri athugun vera mikið úrval þátta. Á grundvelli fjármögnunar sjónvarpskerfisins með afnotagjöldum skiptir máli að framboð sjónvarpsþátta sé frambærilegt til þess að rásin standist samkeppni við annað sjónvarpsefni sem í boði er. Í útreikningum sjónvarpsstöðvanna er gengið út frá því að þorri þeirra sem afnotagjöld greiða hafi áhuga á rásinni. Þrátt fyrir það hefur verið talin þörf á því að fara bæði fram á ríflegan ríkisstyrk til rekstrarins og ríkisábyrgðir.
    Á fundi sínum í Maríuhöfn 8. nóvember ræddu forsætisráðherrar Norðurlandanna fimm athugunina sem þeir höfðu farið fram á að gerð væri. Það er skoðun forsætisráðherranna að sjónvarpsrásin, sem drög hafa verið lögð að, sé áhugaverð, bæði með tilliti til efnis þátta og dreifingar þeirra.
    Það er þó skoðun forsætisráðherranna að ríkin geti ekki veitt í þessu skyni fjárstuðning þann sem tillaga hefur verið gerð um. Það er því komið undir viðkomandi sjónvarpsstöðvum að meta sjálfstætt frekari möguleika á að koma upp norrænni sjónvarpsrás.


Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlandanna um heimkvaðningu


rússnesks herliðs frá Eystrasaltsríkjunum.


(Maríuhöfn, 8. nóvember 1993.)



    Heimkvaðning rússneskra hersveita frá Eystrasaltslöndunum skiptir mjög miklu máli fyrir öryggi og jafnvægi á Norðurlöndunum og nágrenni þeirra.
    Forsætisráðherrar Norðurlandanna fagna heimkvaðningu hersveita frá Litáen og líta á hana sem jákvætt skref í þá átt að efna skuldbindingar í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu frá því í júlí 1992 þar sem kveðið var á um skjóta heimkvaðningu allra hersveita frá Eystrasaltslöndunum með skipulögðum hætti.
    Nú er liðið meira en ár frá því að Rússland gekkst undir þessa skuldbindingu. Þá eru yfir tvö ár frá því að Rússland viðurkenndi endurheimt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
    Rússneskar hersveitir, sem sitja enn í Eistlandi og Lettlandi, eru fáar og verður að kveðja þær heim sem allra fyrst. Óviðunandi er að erlendar hersveitir sitji áfram á landsvæði sjálfstæðra ríkja án samþykkis þeirra.
    Norðurlöndin hafa þegar innt af hendi, eða eru reiðubúin til að inna af hendi, bein framlög til að leysa viss raunhæf vandamál, m.a. húsnæðisvandamál hinna heimkvöddu, og ganga út frá því að framlögin leiði til þess að heimkvaðningu hersveita frá Eistlandi og Lettlandi ljúki hið fyrsta. Við hvetjum önnur lönd til að leggja einnig sitt af mörkum í þessu skyni.
    Forsætisráðherrar Norðurlandanna telja að efndir á heimkvaðningu rússneskra hersveita frá öllum Eystrasaltslöndunum séu mikilvægt skref á leið til bættra samskipta milli Eystrasaltslandanna og Rússlands. Gott samband þeirra í milli, byggt á trúnaðartrausti, eykur líkurnar á nánari samvinnu í allri Norður-Evrópu.



Fylgiskjal II.


Samstarfssamningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands,


Noregs og Svíþjóðar (Helsingfors-samningurinn).



     Samningurinn var undirritaður hinn 23. mars 1962 og öðlaðist gildi hinn 1. júlí sama ár. Hinn upprunalegi texti hefur verið endurskoðaður í samræmi við samninga er undirritaðir voru hinn 13. febrúar 1971, hinn 11. mars 1974, hinn 15. júní 1983, hinn 6. maí 1985, hinn 21. ágúst 1991 og hinn 18. mars 1993.

(Inngangur að samningnum hinn 18. mars 1993.)
    Ríkisstjórnir Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar,
sem með samkomulagi frá 13. febrúar 1971, 11. mars 1974, 15. júní 1983, 6. maí 1985 og 21. ágúst 1991 hafa breytt samstarfssamningnum frá 23. mars 1962 milli Norðurlandanna, og sem óska þess að endurnýja og efla norræna samvinnu í ljósi aukinnar þátttöku Norðurlandanna í evrópskri samvinnu, hafa orðið sammála um eftirfarandi:

Inngangsákvæði.


1. grein.
    Samningsaðilar skulu kappkosta að varðveita og efla enn frekar samstarf ríkjanna á sviði réttarfars, menningarmála, félagsmála og efnahagsmála, svo og um samgöngur og umhverfisvernd.
    Samningsaðilar skulu ráðgast hver við annan um sameiginleg hagsmunamál sem eru til umfjöllunar í evrópskum og öðrum alþjóðlegum stofnunum og á evrópskum og öðrum alþjóðlegum ráðstefnum.

Réttarsamstarf.


2. grein.
    Samningsaðilar skulu halda áfram að vinna að því að ríkisborgarar Norðurlanda, sem dveljast á Norðurlöndum utan heimalands síns, njóti svo sem framast er unnt sömu réttarstöðu og ríkisborgarar dvalarlandsins.

3. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að auðvelda ríkisborgurum Norðurlanda að hljóta ríkisfang í einhverju hinna landanna.

4. grein.
    Samningsaðilar skulu halda áfram löggjafarsamstarfi í því skyni að ná sem mestu samræmi á sviði einkamálaréttar.

5. grein.
    Samningsaðilum ber að leitast við að samræma reglur um afbrot og lögfylgjur þeirra.
    Hafi afbrot verið framið í einhverju Norðurlandanna ber að keppa að því að rannsókn, málshöfðun og dómur geti einnig farið fram, svo sem framast er unnt, í einhverju hinna.

6. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að ná samræmi sín á milli um aðra löggjöf en nú hefur verið nefnd á þeim sviðum þar sem hagkvæmt þykir.

7. grein.
    Sérhverjum samningsaðila ber að vinna að því að settar verði reglur um að úrskurðir dómstóls eða annars yfirvalds í einhverju Norðurlandanna geti einnig hlotið fullnustu á umráðasvæði hans.

Samstarf í menningarmálum.


8. grein.
    Fræðsla og menntun í skólum í sérhverju Norðurlandanna skal í hæfilegum mæli taka til fræðslu í tungumálum og um menningu og almennt þjóðfélagsástand á hinum Norðurlöndunum, þar með töldum Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.

9. grein.
    Sérhverjum samningsaðila ber að halda við og auka möguleika fyrir námsmenn, sem heima eiga í öðru Norðurlanda, til að stunda nám og þreyta próf við fræðslustofnanir hans. Skal þá, svo sem framast er unnt, leyft að taka gilt próf í hluta námsgreinar í einu landanna við lokapróf í einhverju hinna.
    Nemandi ætti að geta fengið styrk frá landi sínu án tillits til þess í hvaða landi námið er stundað.

10. grein.
    Samningsaðilum ber að samræma fræðslu sem veitt er af opinberri hálfu og miðar að því að veita heimild til að stunda ákveðna atvinnu.
    Slík menntun ætti, svo sem unnt er, að veita sömu réttindi í sérhverju Norðurlandanna. Krefjast má þó þeirrar viðbótarmenntunar sem nauðsynleg kann að vera vegna aðstæðna hverrar þjóðar um sig.

11. grein.
    Þegar um er að ræða að koma á fót fræðslustofnunum ber að hafa samstarf á þeim sviðum, sem hentugt þykir, með stöðugri samvinnu um áætlanir, sem um þetta eru gerðar, og framkvæmd þeirra.

12. grein.
    Samstarf í rannsóknum ber að haga þannig að tiltækar fjárveitingar til rannsókna og önnur framlög til þeirra verði samræmd og notuð á þann hátt sem bestur er, m.a. með því að setja á fót sameiginlegar stofnanir.

13. grein.
    Í því skyni að styðja og efla menningarþróunina skulu samningsaðilar stuðla að frjálsu lýðfræðslustarfi á Norðurlöndum og samskiptum á sviði bókmennta, myndlistar, tónlistar, leiklistar, kvikmynda og annarra menningarmála, m.a. með því að nýta þá möguleika sem útvarp og sjónvarp hafa að bjóða.

Samstarf í félagsmálum.


14. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að varðveita og þróa enn betur hinn sameiginlega norræna vinnumarkað samkvæmt þeim meginstefnum sem markaðar hafa verið með fyrri samningum. Vinnumiðlun og starfsfræðsla skulu samræmdar. Frjáls skulu skipti á nemum í verknámi.
    Stefna ber að samræmi í reglum hinna einstöku landa um vernd verkafólks og svipuð mál.

15. grein.
    Samningsaðilar skulu vinna að því að ríkisborgarar Norðurlandanna, sem dveljast í öðru Norðurlandanna en eigin landi, skuli svo sem framast er unnt njóta þeirra félagslegu hlunninda sem ríkisborgarar dvalarlandsins njóta.

16. grein.
    Samningsaðilar skulu auka enn samstarfið að heilsugæslu- og sjúkramálum, umönnun áfengissjúklinga, svo og barnavernd og unglinga.

17. grein.
    Sérhver samningsaðili skal vinna að því að læknisfræðilegt, tæknilegt eða annað áþekkt öryggiseftirlit sé framkvæmt á þann hátt að skírteini eða vottorð um eftirlit sé tekið gilt á hinum Norðurlöndunum.

Samstarf í efnahagsmálum.


18. grein.
    Samningsaðilar skulu hafa samráð um stefnuna í efnahagsmálum til þess að efla efnahagssamstarf Norðurlanda á ýmsum sviðum. Skal þá hyggja að möguleikum á því að samræma ráðstafanir sem gerðar eru til jöfnunar á hagsveiflum.

19. grein.
    Samningsaðilar hyggjast stuðla svo sem unnt er að framleiðslu- og fjárfestingarsamvinnu milli landa sinna og leitast við að hagræða svo aðstöðu að auðveldað verði beint samstarf milli fyrirtækja í tveimur eða fleiri Norðurlandanna. Samningsaðilar skulu kappkosta að ná hagkvæmri verkaskiptingu milli landanna varðandi framleiðslu og fjárfestingu sem þætti í víðtækara alþjóðlegu samstarfi.

20. grein.
    Samningsaðilar skulu vinna að því að fjármagnshreyfingar milli Norðurlandanna verði svo frjálsar sem framast er unnt. Leitast skal við að leysa í sameiningu önnur greiðslu- og gjaldeyrismál sem eru sameiginleg hagsmunamál.

21. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að treysta það samstarf sem áður er hafið í því skyni að ryðja úr vegi hindrunum fyrir verslunarviðskiptum milli Norðurlanda, svo og að efla og auka þetta samstarf svo sem framast er unnt.

22. grein.
    Samningsaðilar skulu bæði hver um sig og sameiginlega leitast við að hlynna að hagsmunum Norðurlanda í alþjóðlegum viðskiptamálum og ráðfæra sig hver við annan í því skyni.

23. grein.
    Samningsaðilar skulu vinna að samræmingu ákvæða um tæknileg atriði í tollamálum og stjórn tollamála, svo og að breytingum til einfaldari tilhögunar í tollamálum sem til þess eru fallnar að auðvelda samskipti milli landanna.

24. grein.
    Ákvæði um landamæraverslun á Norðurlöndum skulu þannig gerð að þau valdi íbúum landamærahéraðanna sem minnstum óþægindum.

25. grein.
    Þegar þörf er á og skilyrði til sameiginlegra efnahagslegra framkvæmda í samliggjandi héruðum tveggja eða fleiri samningsaðila skulu þeir leitast við að stuðla að þeim framkvæmdum í sameiningu.

Samstarf í samgöngumálum.


26. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að treysta það samstarf sem áður er hafið í samgöngumálum, svo og reyna að auka það samstarf í þeim tilgangi að auðvelda samgöngur og vöruskipti milli landanna og finna hagkvæma lausn þeirra vandamála sem kunna að vera á þessu sviði.

27. grein.
    Gerð samgönguleiða um landsvæði tveggja eða fleiri samningsaðila skal framkvæmd með samráði milli hlutaðeigandi aðila.

28. grein.
    Samningsaðilar skulu leitast við að varðveita og auka það samstarf sem orðið hefur til þess að lönd þeirra eru eitt umdæmi að því er vegabréfsskoðun varðar. Eftirlit með ferðamönnum, sem fara yfir landamæri milli Norðurlandanna, skal einnig að öðru leyti gera einfaldara og samræma.

29. grein.
    Samningsaðilar skulu samræma starfið að auknu umferðaröryggi.

Samstarfið á sviði umhverfisverndar.


30. grein.
    Samningsaðilar skulu í innlendri löggjöf og við beitingu hennar svo sem framast er unnt leggja umhverfisverndarhagsmuni annarra samningsaðila að jöfnu við hagsmuni síns eigin lands á því sviði.

31. grein.
    Samningsaðilar skulu kappkosta að samhæfa umhverfisverndarreglur sínar í því skyni að á verði komið sem mestu samræmi að því er varðar viðmiðunarmörk og meginreglur um losun úrgangs, notkun umhverfismengandi eiturefna og aðra umhverfisröskun.

32. grein.

    Samningsaðilar skulu kappkosta að samhæfa ákvarðanir um náttúruverndar- og útivistarsvæði, svo og varðandi friðun og aðrar ráðstafanir til verndar jurtum og dýrum.

Annað samstarf.


33. grein.
    Þátttaka samningsaðila í evrópskri og annarri alþjóðlegri samvinnu hefur í för með sér góða samstarfskosti í þágu ríkisborgara og fyrirtækja Norðurlanda. Í þessum efnum bera ríkisstjórnir sérstaka ábyrgð á því að gæta sameiginlegra hagsmuna og sjónarmiða.

34. grein.
    Starfsmaður í utanríkisþjónustu samningsaðila, er starfi gegnir utan Norðurlanda, skal, að því leyti sem það samrýmist skyldustörfum hans, og ekkert er til fyrirstöðu af hálfu þess ríkis, þar sem hann starfar, aðstoða einnig ríkisborgara annarra Norðurlanda hafi þau ekki fulltrúa á þeim stað.

35. grein.
    Samningsaðilar skulu, hvenær sem það telst kleift og hagkvæmt, samræma starfsemi sína til aðstoðar og samstarfs við þróunarlöndin.

36. grein.
    Ráðstafanir í því skyni að breiða út þekkingu á Norðurlöndum og norrænu samstarfi skulu gerðar í náinni samvinnu milli samningsaðila og stofnana þeirra sem annast landkynningu erlendis. Þegar hentugt þykir geta aðilar komið fram sameiginlega.

37. grein.
    Samningsaðilar skulu vinna að því að samræmd verði opinber hagskýrslugerð í ýmsum greinum.

Sérstakir samningar.


38. grein.
    Nánari ákvæði um samstarfið á þeim sviðum, sem hér voru talin, má setja í sérstökum samningum.

Tilhögun norræns samstarfs.


39. grein.
    Norðurlönd skulu jafnan hafa samráð og gera ráðstafanir til samræmingar, þegar þörf krefur, til þess að framkvæma og efla norræna samvinnu samkvæmt samningi þessum eða öðrum.

40. grein.
    Samstarfið fer fram í Norðurlandaráði, í ráðherranefnd Norðurlanda, á fundum forsætisráðherra, utanríkisráðherra og annarra ráðherra, í sérstökum samstarfsstofnunum og milli stjórnvalda landanna sem annast viðkomandi málaflokka.

41. grein.
    Ákvæði, sem til hefur orðið með samstarfi tveggja eða fleiri samningsaðila, má aðili ekki breyta nema hinum sé tilkynnt. Ekki verður þó krafist tilkynningar þegar mikið liggur á eða ákvæðið skiptir litlu máli.

42. grein.
    Yfirvöld á Norðurlöndum geta haft beint samband sín á milli í öðrum málum en þeim sem utanríkisþjónustunni ber að fjalla um samkvæmt eðli þeirra eða af öðrum ástæðum.

43. grein.
    Veita ber almenningi aðgang að upplýsingum um norræn samstarfsmálefni svo sem framast er kostur.



Fylgiskjal III.


Starfsreglur norrænu ráðherranefndarinnar.



     Norræna ráðherranefndin samþykkti starfsreglurnar 4. mars 1993 og tóku þær gildi 15. mars 1993. Þær koma í stað fyrri reglna, sem samþykktar voru 17. febrúar 1973 ásamt síðari breytingum (4. desember 1975, 15. júní 1983, 4. október 1985 og 12. desember 1989).


1. grein.
    Forsætisráðherrarnir bera ábyrgð á heildarsamræmingu norrænna samstarfsmála.
Norræna ráðherranefndin ber ábyrgð á samstarfi ríkisstjórna Norðurlanda, undir yfirumsjón forsætisráðherranna, svo og ríkisstjórna og Norðurlandaráðs.
    Ráðherranefndinni ber þannig að
    inna af hendi þau verkefni, sem henni er falin samkvæmt samstarfssamningi frá 23. mars 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar (Helsingfors-samningnum) með áorðnum breytingum,
    inna af hendi önnur verkefni, sem henni eru falin samkvæmt samningum milli Norðurlanda og
    fjalla um málefni, sem máli skipta fyrir norrænt samstarf, og er ráðherranefndinni einkum ætlað að undirbúa og hafa forustu um að auka og rækta norrænt samstarf á þeim sviðum, sem nefnd eru í Helsingfors-samningnum.

2. grein.
    Ráðherranefndin er skipuð einum eða fleiri ráðherrum frá hverju landi. Ráðherranefndin getur þannig verið skipuð samstarfsráðherrum eða öðrum ráðherrum eða hvorum tveggja. Fulltrúar landsstjórna Færeyja og Grænlands og stjórnar Álandseyja taka þátt í störfum ráðherranefndarinnar.

3. grein.
    Þeir ráðherrar, sem falið hefur verið að sjá um samræmingu norrænna samstarfsmála (samstarfsráðherrarnir), skulu einnig hver í sínu landi
    vera forsætisráðherrunum til aðstoðar við mótun höfuðstefnu norræns samstarfs,
    samræma störf hinna ýmsu samstarfssviða,
    bera ábyrgð á fjárhagsáætlun norrænu ráðherranefndarinnar,
    taka ákvarðanir um málefni, sem fagráðherrar eða norræna samstarfsnefndin hafa vísað til samstarfsráðherranna.

4. grein.
    Fundum ráðherranefndarinnar stjórnar ráðherra þess lands, þar sem næsta vorþing Norðurlandaráðs verður haldið, nema öðru vísi sé ákveðið.
    Formaðurinn skal gegna virku forustuhlutverki á samstarfssviðunum.

5. grein.
    Halda skal fund í ráðherranefndinni, fari einhver nefndarmanna fram á það.

6. grein.
    Ráðherranefndin og formaður hennar undirbúa, í samráði við skrifstofu ráðherranefndarinnar, starfið á samstarfssviðum sínum og gerir tillögur um fundardagskrá með góðum fyrirvara fyrir fundi ráðherranefndarinnar.
    Í upphafi fundar skal samþykkja dagskrá.

7. grein.
    Á fundum ráðherranefndarinnar taka nefndarmenn og fulltrúar landsstjórnanna og stjórnar Álandseyja til máls í þeirri röð, sem þeir hafa beðið um orðið. Fundarstjóra er þó heimilt að víkja frá þessari reglu, mæli sérstakar ástæður með því.

8. grein.
    Bera skal fram tillögu um ákvörðun varðandi tiltekið mál eða málsmeðferð undir atkvæði. Atkvæðagreiðslan fer þannig fram, að fulltrúi hvers lands gerir grein fyrir afstöðu sinni til framlagðrar tillögu.
    Ákvörðun um brýnt erindi má taka skriflega, samþykki öll löndin slíka málsmeðferð.

9. grein.
    Á fundum ráðherranefndarinnar mega nefndarmenn hafa embættismenn eða aðra sérfræðinga sér til aðstoðar.

10. grein.
    Á fundum ráðherranefndarinnar skal rita fundargerð yfir lokaákvarðanir um einstök mál. Auk þess má, ef þurfa þykir, rita frásögn um það, sem fram fer á fundum. Ráðherranefndin skal, eins fljótt og auðið er, staðfesta fundargerðir og frásagnir.

11. grein.

    Norræna samstarfsnefndin (NSK) er ráðherranefndinni (samstarfsráðherrunum) til aðstoðar, en hún fæst einnig við verkefni sem forsætisráðherrarnir fela henni beint.
    Þá hefur ráðherranefndin embættismannanefndir á sérstökum sviðum sér til aðstoðar í þeim mæli sem kveðið er á um í gildandi samningum og fyrirmælum eða ákvörðunum ráðherranefndarinnar.
    Embættismenn frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum taka þátt í fundum samstarfsnefndarinnar og annarra embættismannanefnda.
    Nefndarmenn í norrænu samstarfsnefndinni (NSK) mega sitja fundi annarra embættismannanefnda.
    Hlutverk norrænu samstarfsnefndarinnar er að
    skipuleggja starfsemi skrifstofu ráðherranefndarinnar í samræmi við þau fyrirmæli, sem forsætis- og samstarfsráðherrarnir hafa gefið og í nánum tengslum við fagráðherrana,
    sjá til þess að mál séu tekin fyrir í markvissri forgangsröð með stoð í pólitískri stefnumótun ríkisstjórnanna og í nánum tengslum við fagráðherrana, svo og að starfi ráðherranefndarinnar sé fylgt eftir,
    undirbúa norræn samstarfsmál sem taka á til meðferðar á fundum forsætisráðherranna að frumkvæði formannsins og í samráði við framkvæmdastjórann,
    undirbúa tillögur sem leggja á fyrir samstarfsráðherrana,
    taka ákvörðun í öllum málum sem full samstaða næst um, nema ráðherrarnir hafi gert fyrirvara um að þeir muni sjálfir taka ákvörðunina,
    mynda stjórn sem framkvæmdastjórinn og skrifstofa ráðherranefndarinnar lúta,
    sjá um samræmingu á málum skipulagslegs eðlis, sem varða fleiri en eitt samstarfssvið, í samvinnu við framkvæmdastjórann,
    fylgja eftir undirbúningsstarfi framkvæmdastjórans við gerð fjárhagsáætlunar, með fjárveitingatillögur samstarfsráðherrans að leiðarljósi, og taka tillögur framkvæmdastjórans til meðferðar áður en þær eru lagðar fyrir samstarfsráðherrana,
    marka stefnu fyrir upplýsingastarfsemi ráðherranefndarinnar,
    setja starfsreglur fyrir skrifstofu ráðherranefndarinnar, og
    skipa deildarstjóra.

12. grein.
    Ráðherranefndin, norræna samstarfsnefndin svo og aðrar embættismannanefndir geta skipað starfshópa til að annast sérstök verkefni.

13. grein.
    Ráðherranefndin, norræna samstarfsnefndin og aðrar embættismannanefndir njóta aðstoðar skrifstofu ráðherranefndarinnar í starfi sínu. Skrifstofunni stjórnar framkvæmdastjóri.

14. grein.
    Samstarfsráðherrarnir ráða framkvæmdastjóra til fjögurra ára. Ráðningu hans má framlengja um tvö ár.

15. grein.
    Framkvæmdastjórinn hefur rétt til setu á fundum ráðherranefndarinnar. Hann má hafa starfsmenn skrifstofunnar eða aðra sérfróða aðila sér til aðstoðar. Ráðherranefndin getur þó ákveðið að halda fund fyrir luktum dyrum.

16. grein.
    Forsætisráðherrarnir eða samstarfsráðherrarnir geta gert breytingar á þessum starfsreglum.
    Ráðherranefndinni og norrænu samstarfsnefndinni er í sérstökum tilvikum heimilt að ákveða að vikið skuli frá ákvæðum þessara starfsreglna.



Fylgiskjal IV.

Áætlun um norrænt samstarf 1994 (C2).


(Greinargerð norrænu ráðherranefndarinnar.)




I. INNGANGUR



Framtíð norræna samstarfsins.
    Endurnýjun og framþróun Norðurlandasamstarfsins verður fram haldið. Þróun heimsmála gerir þetta nauðsynlegt. Þessi þróun hefur verið til umfjöllunar í starfsáætlun ráðherranefndarinnar „Norðurlönd í Evrópu“, í áætlun um Norðurlandasamstarf frá 1992 og í skýrslu „Iloniemi-nefndarinnar“ til forsætisráðherranna. Allmörgum aðgerðum, sem þar var fjallað um, hefur þegar verið hrundið í framkvæmd. Eigi að síður þurfa endurskoðun og umbætur á samvinnunni að halda áfram. Aðeins með því að breyta og bæta verður unnt að viðhalda og efla stöðu þess sem norrænt er í þeirri Evrópu sem tekur skjótum breytingum.
    Um þessar mundir standa yfir viðræður um aðild Finna, Norðmanna og Svía að Evrópusambandinu (ES). Óháð því hvenær og hvernig þeim viðræðum lyktar mun samruni Evrópu setja mark sitt á framhald norræns samstarfs. Öll Norðurlöndin eiga hagsmuna að gæta í Evrópusamstarfi.
    EES-samningurinn er meðal mikilvægustu þátta og mun ráða miklu um rás atburða, hvort sem Norðurlöndin munu taka þátt í samstarfi á grundvelli samningsins sem aðilar að ES eða meðlimir EFTA.
    Með EES-samningnum verða Norðurlöndin í aðalatriðum aðilar að innri markaði ES og að fjórfrelsinu um frjálsa vöruflutninga, frjálsa fólksflutninga, frjálsa þjónustustarfsemi og frjálsa fjármagnsflutninga. Þetta hefur margvíslegar afleiðingar, einnig í samskiptum Norðurlanda. EES-samningurinn gerir að veruleika hið gamla markmið að gera Norðurlöndin öll að einum heimamarkaði innan víðs evrópsks ramma.
    Frjálsir fólksflutningar eru það svið þar sem samstarf Norðurlandanna hafði þegar náð jafnlangt og ákvæði Evrópusambandsins sjálfs, en með aðild að EES-samningnum ná þessi ákvæði til mun stærri hluta Evrópu.
    Með þátttöku í samruna Evrópu verða Norðurlöndin um leið þátttakendur í að móta sameiginlega stefnu og reglur á fjölmörgum sviðum sem einnig eru mikilvæg í norrænu samstarfi.
    Í þeim málaflokkum, þar sem EES-samningurinn felur í sér verulegar efnislegar umbætur hvað varðar forsendur fyrir viðskiptum og samvinnu milli Norðurlandanna, má vænta þess að minni þörf verði fyrir samræmdar sérnorrænar reglur. Á nokkrum sviðum er þess að vænta að dragi úr samstarfinu eða að því ljúki alveg. Í áætlun um norrænt samstarf eftir 1992 var Norðurlandaráði m.a. gerð grein fyrir þessu. Þetta hindrar þó ekki að samstarfinu verði haldið áfram, m.a. á sviði hagstjórnar, atvinnumála, starfsskilyrða fyrirtækja og um fjárfestingar. Þess ber þó að geta að ákvarðanir um fjárfestingar á sviði innviða (infrastruktur), sem varða eigin málefni, eru í höndum þeirra landa, sveitarfélaga og fyrirtækja sem í hlut eiga og ekki er fjallað um þær í Norðurlandasamstarfinu með formlegum hætti.
    Setning sameiginlegra EES-reglna á ýmsum sviðum er einnig mikilsverður viðauki við fjórfrelsið svonefnda. Norðurlöndin eru langt komin á mörgum þessara sviða og geta lagt fram góðar lausnir eða leggja áherslu á að gæta sérstakra hagsmuna. Svið, sem hér um ræðir, eru m.a. umhverfismál, neytendamál, jafnréttismál, atvinnumál og vinnuumhverfi, félags- og byggðamál.
    Eitt mikilvægasta atriði norrænnar samvinnu er e.t.v. að sjá til þess að stöðugt samráð sé haft og að samræmd sé afstaða landanna til einstakra mála í alþjóðlegu samstarfi sem þau eiga aðild að. Með þessu er oft unnt að beita samræmdri stefnu um einstök mál. Það land, sem fer með formennskuna hverju sinni, ber ábyrgð á að þetta samráð sé viðhaft þegar þörf krefur. Um þetta samráð verður fjallað í ræðum forsætisráðherranna á vorþingi Norðurlandaráðs, svo og í ræðum utanríkisráðherranna á haustþinginu þar sem einnig verður gerð grein fyrir þessu samráði.
    Það eru löndin sjálf en ekki Norðurlöndin sem heild sem eiga aðild að EES-samningnum, ýmist sem meðlimir að EFTA eða sem væntanlegir meðlimir í ES. Þetta samráð krefst þannig beinnar þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna Norðurlandanna. Óformleg samvinna um þessi mál milli landa mun færast í aukana í Norðurlandasamstarfinu öllu og gegna hlutfallslega sífellt mikilvægara hlutverki í heildarsamstarfi Norðurlandanna. Hinar formlegu stofnanir — ráð, nefndir og skrifstofur — gætu gegnt lykilhlutverki við undirbúning mála til þess að leggja grunn að sameiginlegri norrænni afstöðu, enda verði starfið hafið tímanlega.
    Norræna ráðherranefndin getur einnig orðið að liði við samráð og verkaskiptingu milli Norðurlandanna í þátttöku í stofnunum Evrópusamstarfsins. Auk þess ber nauðsyn til að upplýsa umheiminn um samstarf Norðurlandanna með hliðsjón af þátttöku þeirra í samruna Evrópu.
    Svæðisbundið norrænt samstarf mun áfram gegna mikilvægu hlutverki. Á sumum sviðum, sem EES-samningurinn tekur til, er nú þegar lengra gengið í Norðurlandasamvinnu, m.a. hvað varðar frjálsa fólksflutninga, sameiginlegan vinnumarkað og almannatryggingar.
    Í EES-samningnum er sérstök norræn grein sem tryggir að Norðurlandasamstarfið getur haldið áfram og þróast að svo miklu leyti sem það ekki hamlar framkvæmd EES-samningsins.
    EES-samningurinn snertir að litlu eða engu leyti ýmis kjarnasvið í Norðurlandasamstarfi. Einkum á þetta við um samstarf að menningarmálum. Á sama hátt er ekki til staðar neitt gróið og umfangsmikið samstarf milli Norðurlandanna á allmörgum nýjum sviðum sem skipta munu máli fyrir þau lönd sem verða aðilar að ES.
    Eðlilegt er að menningar-, mennta- og rannsóknasamstarfið sé í brennidepli norræns samstarfs sem byggist á því sem Norðurlandabúar eiga sammerkt, svo sem tungu, sögu, samfélagssýn og stofnunum. Ráðherranefndin mun því áfram veita menningar-, mennta- og vísindasamstarfinu forgang í samræmi við ákvörðun forsætisráðherranna. Forsætisráðherrarnir hafa bent á réttindi þegnanna og umhverfismál sem svið sem vel eru fallin til norræns samstarfs, auk efnahags- og stjórnmálasamvinnunnar sem áður var nefnd.
    Það er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að komast hjá tvítekningu í norrænu samstarfi. Heildarfjármagn það, sem til ráðstöfunar er til norræns samstarfs, er svo takmarkað að komast verður hjá því að íþyngja samstarfinu með verkefnum sem getur verið betur sinnt með öðrum hætti á norrænum vettvangi. Sérhvert verkefni verður því að meta í ljósi þess hvort besta úrlausnin fáist með norrænu samstarfi, hvort um er að ræða verkefni sem fyrst og fremst varðar eitt land eða hvort vísa beri því til umfjöllunar á vettvangi annars alþjóðlegs samstarfs. Ráðherranefndin hyggst því kanna með kerfisbundnum hætti að hvaða leyti sérhvert nýtt verkefni geti haft ávinning í för með sér fyrir norrænt samstarf.

Grannsvæði Norðurlanda.
    Norðurlöndin og samvinna þeirra mun á næstu árum hafa mikilvægu hlutverki að gegna fyrir grannsvæðin. Verkefni ráðherranefndarinnar í Eystrasaltslöndum og á grannsvæðum í Rússlandi verður þannig haldið áfram. Mikilvægur liður í svæðisbundnu samstarfi í norðurhluta Evrópu felst í yfirlýstum vilja til þess að aðstoða við þróun lýðræðis og markaðshagkerfis í Rússlandi og styðja sjálfstæði og efnahagsþróun í löndunum við Eystrasalt.
    Áætlun um fjárfestingar í Eystrasaltslöndunum lýkur á árinu 1995. Að lokinni sérstakri úttekt á áætluninni verður tekin afstaða til þess hvort framhald verður á henni. Norrænu upplýsingaskrifstofurnar verða starfræktar samkvæmt fyrri ákvörðun til aprílmánaðar 1995. Ráðherranefndin ákveður á þessu ári hvort framhald verður á starfrækslu þeirra.
    Í þátttöku ráðherranefndarinnar verður lögð áhersla á verkefni þar sem samnorræn færni skiptir máli, norrænar stofnanir koma að gagni og augljós ávinningur og margfeldisáhrif falla í skaut öllum þátttakendum af samnorrænni starfsemi.
    Menntun, lýðræðisþróun, aukin réttarvitund, umhverfismál, öryggismál gagnvart kjarnorku og hagþróun verða áherslusvið í þátttöku ráðherranefndarinnar í samstarfi við Eystrasaltslöndin á næstu árum. Ráðherranefndin mun því áfram beita aðstoð í þróun réttarfarskerfis í Eystrasaltslöndunum.
    Ráðherranefndin leggur mikla áherslu á aðstoð til úrbóta í umhverfismálum grannsvæðanna og hyggst vinna að því að hrundið verði í framkvæmd þeim hluta HELCOM-verkefnisins sem varðar Eystrasaltsríkin. Einnig verður framhald á samstarfi á sviði umhverfismála á Barentssvæðinu. Markmið ráðherranefndarinnar er að dragi úr umhverfisvanda sem á rætur sínar að rekja til Norðvestur-Rússlands og hefur umtalsverð áhrif á Norðurlöndin.
    Ráðherranefndin telur að þróun lýðræðis og markaðshagkerfis í löndum við Eystrasalt njóti góðs af skiptum á embættismönnum og þjálfunarkerfum fyrir námsmenn, vísindamenn, þingmenn, embættismenn o.fl. Í ljósi þeirrar góðu reynslu, sem fengist hefur, hyggst ráðherranefndin heimila þeim sem búa á grannsvæðum í Rússlandi aðgang að þessum styrkjum til þessara samskipta.
    Ráðherranefndin hefur ýtt úr vör verkefnum á fleiri sviðum til að styðja þróun í Eystrasaltslöndum og í ljósi hins góða árangurs þess sem þegar hefur verið gert hefur ráðherranefndin í hyggju að beita sér fyrir því að íbúum grannsvæðanna í Rússlandi verði boðin þátttaka í hinum ýmsu styrkjakerfum.


II. MENNINGARSAMVINNA


    Norræn sjálfsvitund byggist á þekkingu og upplifunum, þekkingu á því sem líkt er með þjóðunum og ólíkt og skilningi á veruleika hver annars. Á tímum, sem einkennast af óróleika og óvissu í okkar heimshluta, er lifandi samstarf Norðurlandanna fyrirmynd að stöðugleika sem umheimurinn getir dregið lærdóm af fyrir friðsamlega sambúð.
    Sameiginleg menningarvitund er þróttmikið og margþætt hugtak. Hún tekur sífelldum breytingum og þróast í ljósi þess sem gerist heima fyrir og í samstarfinu sjálfu.
    Árið 1996 hyggst ráðherranefndin ná því markmiði forsætisráðherranna að helmingi fjárlaga í Norðurlandasamstarfinu verði varið til menningar, mennta og vísinda. Hinum auknu fjármunum menningarsamstarfsins verður varið til þeirra forgangsverkefna sem hér verður lýst.

Norræni menningarsjóðurinn.
    Ráðherranefndin leggur áfram áherslu á að styrkja starfsgrundvöll sjóðsins. Sjóðnum verður ætlað skýrara menningarpólitískt hlutverk við hlið ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs sem verður síðan hvati að samstarfi um forgangsröðun verkefna í framtíðinni og stefnumótun varðandi þau þemu sem samkomulag hefur tekist um.
    Í samræmi við forgangsröðun forsætisráðherranna og yfirlýsingar Norðurlandaráðs um eflingu menningarsamstarfsins hyggst ráðherranefndin nýta framlög Norræna menningarsjóðsins m.a. til þess að efla norræna samkennd til eflingar og þróunar samstarfs um menningu, menntamál og vísindi, auk þess að kynna norræna menningu utan Norðurlandanna.

Kvikmynda- og fjölmiðlasamstarf.
    Með vísan til þess hve öflugir og áhrifamiklir fjölmiðlar sjónvarp og kvikmyndir eru í „menningarneyslu“ í löndunum öllum hyggst ráðherranefndin leggja ríka áherslu á þetta samstarf. Lifandi myndir njóta vinsælda í menningarsamskiptum og eru því mikilvægur liður í því að efla skilning og tilfinningu fyrir því sem er sameiginlegt og norrænt. Að tilhlutan forsætisráðherranna vinna menntamálaráðherrarnir nú að því að auka skipti á dagskrárefni fyrir sjónvarp og fjölga verkefnum um samvinnu í gerð þess.
    Ráðherranefndin vill að framboð á norrænum kvikmyndum og sjónvarpsefni aukist og dreifist víðar. Því verður leitað leiða til að auka dreifingu á norrænum kvikmyndum.

Tungumálasamstarf.
    Hin vestlægu Norðurlönd, tungumál sem ekki eru af skandinavískum uppruna og málþróun hjá börnum og unglingum eru nýir áhersluliðir í átaki ráðherranefndarinnar um samvinnu á sviði tungumála. Ráherranefndin ætlar að efla starfsemi tungumálaráðgjafa við menningarstofnanir. Tungumálaráðgjafarnir verða mikilvægir hlekkir í því átaki sem verður gert til þess að viðhalda og efla norræna samkennd. Nýjar leiðir í „ljósvakafjölmiðlun“ gera mönnum kleift að ná til stærri hópa barna og unglinga.

Börn og unglingar.
    Til þess að Norðurlandasamstarfið fái einnig að blómstra með komandi kynslóðum þarf nú þegar að vinna markvisst og meðvitað að því að ná til barna og unglinga með aðgerðum sem efla samkennd um það sem norrænt er. Í nýsköpun menningarsamstarfsins leggur ráðherranefndin áherslu á að unga kynslóðin verði í brennidepli og undirstrikar sérstaka ábyrgð fastra stofnana og nefnda í því sambandi. Ráðherranefndin hyggst gera ráð fyrir sérstökum fjárveitingum til verkefna fyrir börn og unglinga. Framhald verkefnisins „Lifandi Norðurlönd“ er verkfæri til þess að efla frekari skilning á þýðingu þess sem norrænt er meðal þeirra sem ungir eru. Í ljósi reynslu, sem fengist hefur af þessu stóra verkefni, mun ráðherranefndin leggja tillögu um stefnu í málefnum barna og unglinga fyrir þing Norðurlandaráðs 1995.
    Í samstarfi menningar- og menntamálaráðherranna er eðlilegt að nýta skólakerfið með áhrifamætti sínum til þess að ná til barna og unglinga. Undir yfirskriftinni „Norrænt menningaruppeldi“ hyggst ráðherranefndin þróa frekar og festa í sessi samstarf og víxlverkun milli menningarstarfs og skóla. Að þessu verður unnið með auknum samskiptum, ráðstefnum og framhaldsmenntun.
    Ráðherranefndin mun beita sér fyrir því að miðla norrænu sjónvarpsefni og kvikmyndum til barna og unglinga og í tengslum við verkefnið „Norrænir landkönnuðir“ (Nordic Explorers) verður sett á laggirnar margmiðlasýning. Sýningin verður þannig skipulögð að líkur aukast á að ungir áhorfendur muni leita í ríkara mæli til bókasafna og annarra menningarmiðstöðva.

Listasamstarf.
    Á sviði lista leggur ráðherranefndin áherslu á að efla þekkingu á norrænum listum og auka gagnkvæm samskipti listamanna og treystir framboð lista og menningar milli Norðurlandanna í menningarstofnunum landanna og í samskiptaneti menningarmálanna og framboð á farandsýningum. Ráðherranefndin telur að vel starfrækt norrænt samskiptanet á sviði menningarmála sé forsenda árangursríkrar þátttöku í alþjóðlegu menningarsamstarfi. Ráðherranefndin hyggst kanna hvort nýrra leiða sé þörf í starfsemi safna til að halda á lofti og gera norrænan menningararf og nútímalist sýnilegri en áður.
    Ráðherranefndin ætlar að koma á laggirnar víðtæku kerfi til styrktar ferðum ungra listamanna milli Norðurlandanna. Tilgangurinn er að efla samstarf á sviði lista, gera listamönnum auðveldara að kynnast liststarfi í hinum löndunum og auka framboð á norrænni list innan Norðurlandanna.
    Gefi reynslan af starfrækslu Hljómsveitar Norðurlandanna tilefni til verður ráðist í að efla hana svo að hún verði sinfóníuhljómsveit ungmenna í háum gæðaflokki.
Alþýðumenning.
    Að mati ráðherranefndarinnar eru Norrænu félögin einn mikilvægasti hlekkurinn í því að efla skilning og tilfinningu almennings fyrir norrænni samkennd. Í verkefni ráðherranefndarinnar „Líf á Norðurlöndum“ (NORDLIV) verður í samstarfi við Norrænu félögin unnið að verkefnum sem tengjast sögu landanna. Hámarki nær verkefnið með hátíðahöldum til þess að minnast sex hundruð ára afmælis Kalmarsambandsins árið 1997. Ráðherranefndin hefur þegar hafið undirbúning af þessu tilefni.

Ásýnd Norðurlanda í Evrópu.
    Stórir og veigamiklir menningaratburðir eiga ríkan þátt í því að varpa ljósi á það sem norrænt er, bæði erlendis og heima fyrir. Í samvinnu ráðherranefndarinnar og norrænna safna verður fylgt eftir stóru sýningunni „Víkingar og Hvíti-Kristur“ með annarri sýningu um Margréti I, og verður sýningin haldin á árunum 1996–98. Sýningin verður sett upp í tilefni af hátíðahöldum til þess að minnast stofnunar Kalmarsambandsins. Sýningin mun einnig að hluta fjalla um samband Norðurlanda við Evrópu, ekki síst við Hansa-sambandið. Til þess að efla tengsl Norður- og Suður-Evrópu efnir ráðherranefndin til norrænnar menningarhátíðar á Spáni vorið 1995. Ráðherranefndin vinnur einnig að undirbúningi menningarverkefna í Eystrasaltslöndunum, St. Pétursborg og í Mið-Evrópu, þ.e. á þeim svæðum þar sem breytingar í stjórnmálum, efnahags- og menningarmálum ganga hvað hraðast fyrir sig um þessar mundir.
    Á vegum ráðherranefndarinnar er unnið að því að fella saman sýningar og aðra atburði í tengslum við að Kaupmannahöfn hefur verið útnefnd menningarborg ársins 1996. Útnefning menningarborga á Norðurlöndum gefur tækifæri til þess að kynna norræna menningu og sérkenni og draga athygli að sérstakri ásýnd Norðurlandanna á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi.

Menningarviðburðir í tengslum við þing Norðurlandaráðs.
    Í því skyni að vekja athygli almennings og efla þátt hins norræna í menningarlífi landanna verður á hverju ári efnt til menningarviðburða í því landi þar sem Norðurlandaráð þingar hverju sinni. Takmarkið er að skapa menningarlega hefð sem vinnur sér sess í huga almennings og eflir samstarf samtaka og menningarstofnana í tengslum við þinghald ráðsins.


III. MENNTUN OG VÍSINDI


    Markmið samstarfsins er að koma á norrænu samfélagi mennta og vísinda. Aukin samþjöppun, styrkari pólitísk stefnumótun og betri nýting fjármagns og mannafla, ásamt því að leggja áherslu á hið norræna í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi, verða lykilatriði í samstarfi Norðurlandanna á sviði mennta- og vísindamála á næstu árum. Samstarfinu verður breytt í samræmi við óskir forsætisráðherranna um aukna áherslu á menntamál.

Samstarf um skólamál.
    Markmið ráðherranefndarinnar er að þróa og efla norrænt skólasamstarf með því að gera sér grein fyrir og ryðja hindrunum úr vegi þessa samstarfs. Ráðherranefndin hyggst leggja áherslu á nemenda- og kennaraskipti, efla samskipti milli þeirra sem taka þátt í skólastarfi í löndunum, hvetja til þess að komið verði á upplýsingakerfum og nettengslum til eflingar þessu samstarfi.
    Í sérstakri verkefnaáætlun hefur ráðherranefndin sett fram nýjar áherslur í fjölmörgum verkefnum sem hefjast munu á árinu 1994.
    Ráðherranefndin hyggst einnig hafa frumkvæði að því að koma upp tölvuneti til þess að efla upplýsingamiðlun og samskipti milli skóla. Ætlunin er að skapa forsendur fyrir auknu samstarfi skóla með líkum hætti og þegar NORDUnet-kerfið var byggt upp til að efla samstarf milli háskóla á Norðurlöndum. Um tölvunet af þessum toga geta skólar veitt og tekið við upplýsingum um málefni sem skólarnir telja mikilvæg.

Almennings- og fullorðinsfræðsla.
    Ráðherranefndin óskar að haga samstarfi um almennings- og fullorðinsfræðslu þannig að það ýti undir samvinnu milli frjálsra félagasamtaka og lýðháskóla. Í samræmi við markmið verkefnisins „VOKS FREM“ óskar ráðherranefndin að örva samvinnu milli ólíkra greina fullorðinsfræðslu í því augnamiði að bæta gæði og umfang samvinnunnar í menntastefnu fyrir fullorðinsfræðslu, jafnt í löndunum sjálfum sem í norrænu samstarfi.
    Í samstarfi á þessu sviði hyggst ráðherranefndin leggja áherslu á það sem skipta mun máli í þeim kröfum sem aukin þátttaka í Evrópusamstarfi leggur okkur á herðar og hefur einnig þýðingu fyrir málefni sem varða menntun og atvinnuleysi. Ráðherranefndin tekur til athugunar hugmyndir og ábendingar sem er að vænta í skýrslu norræns vinnuhóps í lok 1994.

Æðri menntun.
    Ráðherranefndin hefur sett sér að markmiði að skapa norrænt samfélag um æðri menntun. Ungmenni, sem leita æðri menntunar, eiga að geta litið til Norðurlandanna allra sem eins menntunarsvæðis. Ætlun ráðherranefndarinnar er að val nemenda á námskeiðum verði óháð landamærum, leiði til samkeppni um nemendur og um leið aukinna gæða í æðri menntun. Til þess að koma á sameiginlegum „markaði“ fyrir æðri menntun munu löndin gera samkomulag sem skuldbindur þau til þess að veita þegnum annarra Norðurlanda sama rétt og eigin þegnum til aðgangs að æðri menntun. Samkomulagið tekur gildi frá upphafi háskólaársins 1994–95. Í tengslum við þetta samkomulag verður gerður samningur um skiptingu menntunarkostnaðar milli landanna og tekur hann gildi ekki síðar en 1. júlí 1996.
    Það er markmið ráðherranefndarinnar að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem enn torvelda samstarf um æðri menntun, hvort sem þessar hindranir eru formlegar, efnahagslegar eða eiga rót sína að rekja til afstöðu fólks. Tilgangur ráðherranefndarinnar er sá að norrænir fjármunir, sem varið er til Nordplus og NorFA, verði nýttir til þess að koma á verkaskiptingu og ryðja þessum hindrunum úr vegi.

Námsmannaskipti.
    Áætlanir ráðherranefndarinnar um skipti á nemendum miðast einkum við þá kynslóð ungs fólks sem vegna stjórnmála- og efnahagsþróunar lítur miklu meira til annarra landa en fyrri kynslóðir.
    Að mati ráðherranefndarinnar skiptir það miklu fyrir framtíð norræns samstarfs og sjálfsmynd ungra Norðurlandabúa að í hugum þeirra sé það engum vafa undirorpið hver uppruni þeirra er, enginn Dani, Finni, Íslendingur, Norðmaður eða Svíi þurfi að velkjast í vafa um að hann er einnig Norðurlandabúi í þeim alþjóðlegu samskiptum sem færast í vöxt. Það er mikilvægur liður í þessu að gefa unglingum kost á því, í tengslum við skólagönguna, að kynnast milliliðalaust tungu annarra Norðurlanda, menningu þeirra, lifnaðarháttum, gildismati, þjóðfélagsaðstæðum, náttúru þeirra o.fl.
    Ráðherranefndin hyggst áfram leggja mikla áherslu á nemendaskipti í NORDPLUS-áætluninni og telur að áætlunin hafi mikilvægu hlutverki að gegna í norrænu menntamálasamstarfi.
    Með nýjum framlögum verður unnið að því í „NORDPLUS-junior“-áætluninni að tryggja að þessi samskipti geti náð til allra námsbrauta fyrir unglinga á aldrinum 16–19 ára.
    Lýðháskólar og alþýðufræðsla eru hefðbundin sérnorræn fyrirbæri. Ráðherranefndin hyggst styðja starfsemi norrænna lýðháskóla með þeim hætti að fjárstuðningur verði veittur ungum Norðurlandabúum sem hyggja á nám í lýðháskóla í öðru norrænu landi.

Tungumálasamvinna.
    Tungumálasamvinnan er skipulögð í áætlun sem heitir NORDMÅL (1990–1995). Norræna tungumálaskrifstofan, Norræna mál- og upplýsingamiðstöðin og norrænu bókmennta- og tungumálanámskeiðin, ásamt samskiptanetunum sem eru hluti NORDPLUS-verkefnisins, eru með sama hætti framlög til þess að styrkja norrænt málsamfélag.
    Ráðherranefndin hyggst efla samvinnu á þessu sviði á næstu árum. Við val nýrra verkefna skal einkum hugað að tungumálum sem ekki eru af norrænum toga og að vestnorræna svæðinu. Athygli skal einnig beint að börnum og unglingum með áherslu á námskeið og gerð kennsluefnis og orðabóka, svo og rannsóknir og upplýsingastarfsemi. Þannig verður stefnt að því að átakið verði hvort tveggja upplýsandi og efli meðvitund um það sem sérstaklega norrænt.

Vísindasamstarf.
    Ráðherranefndin ætlar að efla norrænt vísindasamfélag. Þetta vísindasamfélag getur að ýmsu leyti orðið fyrirmynd að gagnlegu og skilvirku samstarfi, einnig á vettvangi evrópsks samstarfs. Það er markmið ráðherranefndarinnar að gera hlut þess sem menningar- og félagslega er sérnorrænt fyrirferðarmeira í samstarfinu. Þau verkefni, sem nú er unnið að og gert var ráð fyrir að stæðu 1993–1997, munu halda áfram eins og ráð var fyrir gert. Þetta eru umhverfisrannsóknir og hugvísindi sem tengjast heimskautasvæðum.
    Að tilmælum Norðurlandaráðs kannar norræna vísindastefnuráðið (FPR) í samvinnu við rannsókna- og vísindaráð í löndunum hvort hleypa skuli af stokkunum sérstökum áætlunum á sviði félagsvísinda og hugvísinda þar sem viðfangsefnið yrði „Norðurlönd og Evrópa“. Komi fram tillögur þess efnis frá norræna vísindastefnuráðinu (FPR) yrði afstaða tekin til þeirra af ráðherranefndinni á starfsárinu 1994–1995.
    Þátttaka Norðurlandanna vex í menntunar- og vísindaáætlunum Evrópusambandsins. Ráðherranefndin hyggst vinna að því að tekið verði meira tillit til sameiginlegra hagsmuna Norðurlandanna í gerð áætlana ES og framkvæmd þeirra. Aukin þátttaka í Evrópusamstarfi mun ekki síst skapa sóknafæri í rannsóknum og þróun, en hún mun einnig krefjast meiri framlaga í samkeppni við verkefni sem unnið er að í löndunum sjálfum og í norrænu samstarfi. Ráðherranefndin mun því, í nánu samstarfi við þær norrænu stofnanir sem annast samvinnu háskóla og rannsóknaráða á Norðurlöndum, fylgjast með og meta þróun í Evrópusamstarfinu.

Norræn samvinna um fjarkennslu.
    Ný tækni býður upp á að ná til hópa sem eiga erfitt með að taka þátt í hefðbundnu námi vegna búsetu, atvinnu eða fjölskylduaðstæðna. Fjarkennsla er í eðli sínu óháð stund og stað og aukin norræn framlög til hennar eru mikilvæg í flestra augum, einnig hvað áhrærir norrænt átak með Vestur-Norðurlönd í huga. Ráðherranefndin hyggst þess vegna efla norræna samvinnu á sviði fjarkennslu.


IV. UMHVERFISMÁL


    Ráðherranefndartillaga um stefnu í umhverfismálum verður til umfjöllunar á 44. þingi Norðurlandaráðs. Í þessari stefnu eru staðfest þau stjórnmálaviðhorf sem ráða munu forgangi verkefna þegar fjármagni verður ráðstafað og verkefni ákveðin í umhverfismálasamstarfi Norðurlanda á komandi árum. Í stefnunni velta menn fyrir sér hvort niðurstöður og árangur samstarfsins skuli nýtt á Norðurlöndum, á grannsvæðum þeirra, fyrst og fremst í EES/ES eða í tengslum við aðrar alþjóðlegar samstarfsstofnanir.
    Í stefnunni er enn fremur tekið mið af grundvallarsjónarmiðum „um ströngustu hagnýtar kröfur“. Með þessu móti gætu Norðurlöndin verið í fararbroddi og haldið á lofti kröfuhörðum viðmiðunum í umhverfismálum.
    Samstarfi, þar sem umhverfismál og samgöngumál skarast, verður einkum beint að aukinni þekkingu á umhverfisáhrifum og aðgerðum vegna loftmengunar af völdum flutningastarfsemi, svo og að öðrum umhverfisspjöllum. Því samstarfi, sem tekist hefur í fjármálum, umhverfis- og sjávarútvegsmálum, verður haldið áfram.

Umhverfisvöktun og gagnasöfnun.
    Árið 1995 lýkur verkefni ráðherranefndarinnar um vöktun umhverfis á jöðrum norðursvæða. Tilgangurinn er sá að afla upplýsinga um ástand náttúru á Norðurlöndum. Árlega verður gerð grein fyrir því starfi sem fjallar um umhverfisviðmið sem sýna samhengi og umfang áhrifa af athöfnum mannsins á náttúru og umhverfi.
    Skýrslu ráðherranefndarinnar „Umhverfi á Norðurlöndum – ástand, þróun og hættur“ verður fylgt eftir með skýrslum um sérstök viðfangsefni sem birtar verða annað hvert ár. Þessi þemavinna hófst 1994 með skýrslu um ástand umhverfismála á heimskautasvæðum. Skýrslurnar verða lagðar til grundvallar tillögum um aðgerðir og grein gerð fyrir efnahagslegum áhrifum af þeirra völdum.

Mat á umhverfisáhrifum.
    Á Norðurlöndum er litið á mat á umhverfisáhrifum (MKB) sem mikilvægan þátt áætlanagerðar og sem lið í því að fyrirbyggja umhverfistjón. Ráðherranefndin telur árangurs að vænta af áframhaldandi norrænni samvinnu um þróun og aðlögun umhverfismats vegna mannvirkjagerðar og áforma þar að lútandi og með hliðsjón af áætlunum, stefnuskrám og framkvæmdum.

Hagstjórnartæki í umhverfisvernd.
    Ráðherranefndin vill að safnað verði nákvæmum upplýsingum og lagðar verði fram tillögur um gjaldtöku og skilagjöld á sérstakar vörur með hliðsjón af hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar í löndunum.

Náttúra og útivist.
    Til þess að fylgja eftir samþykktinni um líffræðilegan fjölbreytileika (Ríó-ráðstefnan) hyggst ráðherranefndin taka frumkvæði að verndun dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu og kjörlendis þeirra. Mestan fjölbreytileika lífvera á Norðurlöndum er að finna í skóglendi. Því hefur tekist samvinna milli þeirra sem vinna annars vegar að umhverfismálum og hins vegar að landbúnaði og nýtingu skóga um að skilgreina forsendur fyrir sjálfbærri nýtingu skóglendis. Með vísan til vaxandi straums ferðamanna hyggst ráðherranefndin leggja drög að norrænni stefnu um sjálfbæra nýtingu náttúrunnar til alhliða útivistar.
    Ráðherranefndin mun halda áfram samstarfi um skaðleg úrgangsefni. Markmiðið er að kanna leiðir til þess að byggja í samvinnu upp kerfi til söfnunar og endurvinnslu og meta þörf á sameiginlegri miðstöð til þess að meðhöndla vissar gerðir skaðlegra úrgangsefna. Ráðherranefndin mun vinna að því að bæta hér um þannig að auðveldara verði að taka hreinar framleiðsluaðferðir í notkun í iðnaði á Norðurlöndunum.

Evrópusamvinna að umhverfismálum.
    Til grundvallar norrænum áherslum í EES/ES-samstarfinu að umhverfismálum leggur ráðherranefndin til að unnið verði að því að afla stefnu Norðurlandanna fylgis innan Evrópusambandsins og að Norðurlöndin taki forustu í evrópsku samstarfi í umhverfismálum. Mikilsvert er að gengið verði út frá kröfuhörðum viðmiðunum í umhverfismálum og skilvirk stjórntæki í umhverfisvernd verði þróuð. Að auki verði settar bindandi reglur á sviði umhverfismála sem byggi á viðmiðunum fyrir gæði umhverfis. Þessar reglur skulu í þeim mæli, sem við verður komið, miðast við að sem minnst umhverfistjón verði unnið og ströngustu verndaraðgerðum fylgt svo sem framast er kostur.
    Norðurlöndin munu taka virkan þátt í fimmtu umhverfisáætlun Evrópusambandsins, sérstaklega í því sem lýtur að þeim skýru áformum að tillit verði tekið til umhverfisins í sem flestum greinum þjóðlífsins.
    Ráðherranefndin mun vinna að ýmsum umhverfismálum sem varða EES/ES-samstarfið:
—    Hagstjórnartæki: Ráðherranefndin hyggst hvetja til þess að Norðurlöndin beiti koltvísýringssköttum.
—    Loftmengun: Norðurlöndin ætla að vinna af krafti að því að væntanleg endurskoðun á reglugerð Evrópusambandsins um leyfilega loftmengun af rekstri orkuvera sem brenna föstu eldsneyti taki mið af þolmörkum umhverfisins og þau mörk verði sett eins lág og kostur er.
—    Meðferð efna, m.a. skordýraeiturs: Starfi á vegum ráðherranefndarinnar um efni sem eru skaðleg heilsu fólks og umhverfis verði einkum beint að þáttum sem valda umhverfistjóni, ofnæmi og taugaeitrun. Starfi, sem fjallar um takmarkanir á notkun hættulegra efna, verði beint að umfjöllun um þungmálma og ósoneyðandi efni. Auk þess verði metin áhrif af efnum sem eyða illgresi og lífrænum efnum sem notuð eru í þeim tilgangi.
—    Sorp: Ráðherranefndin hyggst freista þess að hafa áhrif á setningu reglugerða sem fjalla um úrgang, t.d. um sorphauga og umbúðir. Unnið verður að því að setja reglur um ábyrgð þeirra sem framleiða umbúðir, rafhlöður sem innihalda blý og rafeindatæki.

Umhverfismál á grannsvæðum Norðurlanda.
    Aðstoð til úrlausnar aðsteðjandi umhverfisvanda á grannsvæðum Norðurlanda er forgangsverkefni í starfi ráðherranefndarinnar. Aðstoðin getur falist í áhrifum á töku ákvarðana á Norðurlöndum, svo og á alþjóðavettvangi, en einnig í framlögum til einstakra verkefna sem miða að úrbótum í umhverfismálum. Til slíkra verkefna teljast verkefni sem varða öryggi í kjarnorkuverum.
    Ráðherranefndin hyggst vinna að því að hrundið verði í framkvæmd þeim hluta HELCOM-samstarfsins sem fjallar um Eystrasaltið. Fjárhagslegur stuðningur Norðurlandanna verður samræmdur innbyrðis og samráð verður haft við alþjóðlegar fjármálastofnanir, t.d. NEFCO, IBRD og EBRD. Ráðherranefndin mun veita stuðning við að koma á einu til tveimur samræmdum umhverfisvöktunarsvæðum í hverju Eystrasaltslandanna. Hún mun einnig styðja frekari samræmingu og þróun umhverfisvöktunar og úrvinnslu upplýsinga úr slíkri vöktun. Ráðherranefndin mun vinna að því að þær aðgerðir, sem gripið er til á Norðurlöndunum, svo og hugsanlegur stuðningur við landbúnað meðal annarra landa, til þess að hafa áhrif á tekjur í landbúnaði, miðist við að tillit sé tekið til umhverfismála.
    Ráðherranefndin telur sérstaklega mikilvægt að dregið verði úr þeim skaðlegu umhverfisáhrifum sem upprunnin eru frá norðvesturhlutum Rússlands. Þessara skaðlegu áhrifa gætir þegar á Norðurlöndum. Ráðherranefndin telur einnig sérstaklega mikilvægt að komið verði í veg fyrir leka frá notuðu kjarnorkueldsneyti. Jafnframt leggur ráðherranefndin sérstaka áherslu á sjálfbæra hagþróun sem er undirstaða almennrar velmegunar og stöðugs stjórnmálaástands í norðvesturhluta Rússlands.
    Hlutverk ráðherranefndarinnar í tilvikum þegar mengunar verður skyndilega vart verður skýrt og skilgreint í ljósi þess starfs sem unnið er innan AMAP-verkefnisins (Arctic Monitoring and Assessment Programme), en það byggir á Rovaniemi-ferlinu. Ætlunin er að NEFCO bendi á 10–12 forgangsverkefni í samvinnu við skrifstofu AMAP- verkefnisins og í fyrstu verði lagt mat á hve fýsilegt er að ráðast í þau.
    Ráðherranefndin mun leita nýrra leiða til þess að afla fjárframlaga til aðgerða í umhverfismálum á grannsvæðum Norðurlandanna.


V. SJÁVARÚTVEGUR


    Megintilgangur norrænnar samvinnu á sviði sjávarútvegs er að stuðla að því að koma í framkvæmd áætlun landanna í sjávarútvegi. Grundvallarmarkmið allra Norðurlandanna er verndun náttúruauðlindanna og skynsamleg nýting þeirra með tilliti til hagkvæmni og líffræðilegra áhrifa, einnig með því að styrkja fjárhagslegan grundvöll sjávarútvegsins með uppbyggingu sem hvílir á líffræðilegum forsendum.
    Ráðherranefndin hyggst í norræna sjávarútvegssamstarfinu leggja aðaláherslu á samvinnu stjórnunarstofnana, samtaka í sjávarútvegi og rannsóknastofnana. Þannig verði komið á samstarfi allra þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í atvinnugreininni. Við framkvæmd samstarfsverkefnisins verður tekið sérstakt tillit til hinnar miklu þjóðfélagslegu þýðingar sem sjávarútvegurinn hefur fyrir efnahagslífið á Grænlandi, Íslandi og í Færeyjum. Samvinnunni verður sérstaklega beint að starfssviðum sem hafa mikla þýðingu fyrir sjávarútvegsstefnu þjóðanna. Þau eru eftirfarandi:
—    Norræn samvinna sem tengist EES og ES.
—    Norræn samvinna á sviði byggðastefnu (sem varðar öll löndin).
—    Norræn samvinna í byggðamálum (milli sumra landa).

Samvinna um sjávarútvegs- og atvinnustefnu.
    Ráðherranefndin leggur höfuðáherslu á að styðja samvinnu í sjávarútvegs- og atvinnumálum og vill nýta norræna samstarfsvettvanginn til að stuðla að auknum norrænum áhrifum á alþjóðasjávarútvegsstefnu, einnig til að gæta hagsmuna á sviði sjávarútvegs með tilliti til alþjóðlegrar umhverfissamvinnu þar sem áhersla er lögð á baráttu gegn mengun hafsins. Gætt skal hagsmuna norrænna samtaka í sjávarútvegi og samstarfi komið á í sjávarútvegsmálum við Austur-Evrópulöndin. Fagleg samvinna verður á sviði fiskveiðistjórnunar og annarra stjórnunaraðgerða með áherslu á rannsóknir og sameiginlega hagsmuni. Samvinna verður enn fremur um mismunandi starfsaðferðir, varðandi umframfisktegundir og fiskdauða, ásamt þróun á veiðarfærum til að minnka magn óæskilegra veiðitegunda, auk framleiðslutækni, gæðamála og markaðsmála.
    Á næstunni mun ráðherranefndin leggja áherslu á stuðning við stefnumarkandi aðgerðir í atvinnumálum þar sem aðgerðir tengjast sérstaklega sviðum sem varða bæði sjávarútvegsstefnu EB og hagsmuni Norðurlandanna í sjávarútvegi.
    Ráðherranefndin hefur komið á nokkrum samstarfsverkefnum á afmörkuðum sviðum sem tengjast bæði sjávarútvegsstefnu EB og áhersluatriðum í norrænum sjávarútvegi. Til að koma samstarfsverkefnunum á voru haldnar nokkrar sérfræðiráðstefnur þar sem þátttakendur frá atvinnulífssamtökum, stjórnsýslu og rannsóknaaðilum frá Norðurlöndunum og EB komu saman til að fjalla um afmörkuð svið málsins.
    Þessu starfi verður haldið áfram á svipaðan hátt og gert hefur verið. Í nánustu framtíð verða tekin fyrir málefni á sviði „eftirlitsstefnu“, „nýting úthafsfisks“, „stjórnun á margstofna tegundum“ og „ábyrg sjávarútvegsstefna“ sem eru afar brýnir málaflokkar í norræna samstarfinu varðandi sjávarútvegsstefnu ES og Norðurlandanna.


VI. RÉTTINDI ÞEGNANNA



Vinnumarkaður og vinnuumhverfi.
    Mikilvægasta hlutverk samfélagsins á Norðurlöndunum öllum er baráttan gegn atvinnuleysi. Auka þarf hagvöxt á Norðurlöndunum og í Evrópu til að fjölga nýjum störfum og minnka atvinnuleysið. Atvinnustefnan er fyrst og fremst málefni hverrar þjóðar um sig en aðstæður krefjast samræmingar á Norðurlöndunum og á alþjóðavísu, auk endurnýjunar og styrkingar í alþjóðlegri efnahagssamvinnu. Norrænu forsætisráðherrarnir hafa lýst yfir áframhaldandi stuðningi við að fram fari umræður milli EFTA, EB og OECD um mótun atvinnustefnu. Áfram verður því unnið að hugmyndinni um fund æðstu manna innan OECD varðandi þessi mál.
    Ráðherranefndin mun beita auknum styrk til að auka möguleika ungs fólks til að fá vinnu. Ráðherranefndin mun þannig beita auknum styrk til að draga úr atvinnuleysi ungs fólks. Ráðherranefndin mun því stuðla að því að gerðar verði kannanir og greiningar til að auðvelda samræmda pólitíska stefnu og samræmdar aðgerðir sem nú eru í gangi og fyrirhugaðar eru, svo og gerð samstarfsáætlana á milli landanna. Sérstaklega verður leitast við að varpa ljósi á þá fyrirstöðu sem myndast vegna efnahagsástands, launauppbyggingar, vinnuréttar, menntamála, stofnanalægra þátta og innri uppbyggingar.
    Vegna þess hve hlutverk menntunarþáttarins er mikilvægt til að jafna efnahagsaðstæður mun ráðherranefndin bjóða til samvinnu milli aðila innan atvinnu- og menntageirans. Ráðherranefndin lítur alvarlegum augum á aukinn fjölda þeirra sem eru án atvinnu til langs tíma. Þess vegna mun ráðherranefndin leggja höfuðáherslu á aðgerðir sem geta komið í veg fyrir að einhverjir verði undir í samfélaginu eða verði óvirkir.
    Til að auka starfshæfni fullorðins starfsfólks mun ráðherranefndin með samstarfsverkefninu um eftir- og endurmenntun móta fullorðinsfræðslu í samræmi við atvinnustefnuna þannig að hún verði enn þá áhrifameira tæki en áður, bæði á þjóðlegum grunni og sameiginlega innan Norðurlandanna.
    Svo að hægt verði að móta sameiginlega norræna stefnu mun ráðherranefndin auka fræðslu um kosti og galla „norræna módelsins“ á atvinnumarkaði og í vinnuumhverfi og bera það saman við aðrar stefnur og lausnir í öðrum hlutum Evrópu varðandi ábyrgð og verndun á norræna atvinnumarkaðs- og atvinnuréttarmódelinu. Styrkja þarf stöðu þeirra sem eru í atvinnuleit. Það hefði í för með sér meiri sveigjanleika á atvinnumarkaðinum. Ráðherranefndin mun kanna um hvaða svið Norðurlöndin ættu helst að hafa samvinnu á vettvangi EES/ES.
    Á sviði vinnuumhverfismála mun ráðherranefndin áfram taka þátt í evrópsku stöðlunarsamstarfi innan Comité Européen Normalisation (CEN) og Comité Européen de Normalisation Electrotechnique (CENELEC) til að auka möguleika Norðurlandanna til að hafa áhrif á þróunina.
    Ráðherranefndin mun einnig standa fyrir rannsóknum á sviði atvinnusjúkdóma, standa fyrir framhaldsmenntun fyrir vísindamenn, stofnanir og sérfræðinga á sviði vinnuumhverfis auk þess að halda áfram samvinnu varðandi búferlaflutninga fólks.
    Ráðherranefndin telur að Nordjobb-starfsmannaskiptin séu mikilsverður samstarfsþáttur þar sem tilgangurinn er að styrkja hina norrænu vitund einstaklinganna. Ráðherranefndin leitast við að finna heppilegt form til að halda áfram verkefninu og enn fremur að auka möguleika norrænna ungmenna til að stunda starfsþjálfun í öðru Norðurlandi þrátt fyrir erfitt atvinnuástand.

Matvæli.
    Markmið norrænnar samvinnu á sviði matvæla er að vernda neytendur fyrir heilsutjóni af völdum matvæla og villandi markaðssetningar. Ný matvæli og vörur eru þróaðar í hraðari takti nú en áður fyrir markað sem verður sífellt alþjóðlegri. Einstakir neytendur eiga erfiðara með að fá réttar upplýsingar um innihald matvæla og eiginleika þeirra.
    Ráðherranefndin vinnur markvisst að
—    aukinni þekkingu á eiturefnum í matvælum og auknu áhættumati (mengun, náttúruleg eiturefni, aukefni),
—    aukinni þekkingu á sambandinu milli matvæla og heilsufars (ráðgjöf um næringarefni),
—    sameiginlegri upplýsingastefnu sem beinist að einstökum neytendum (upplýsingar um matvæli og heilsufar),
—    hagræðingu í eftirliti á matvælum (eigið eftirlit framleiðenda, opinbert eftirlit, gæðaeftirlit, eftirlit á innfluttum matvælum),
—    endurbótum á merkingu matvæla (innihaldslýsingar og merkingar með tilliti til ofnæmissjúklinga),
—    samræmingu á reglum sem varða matvæli vegna tilkomu innri markaðarins (EES-samningurinn).

Neytendastefna.
    Ráðherranefndin starfar í samræmi við samstarfsáætlun á sviði neytendamála 1994–1998. Ráðherranefndin hefur sem útgangspunkt að norræna neytendastefnan hvíli öll á svipuðu skipulagsformi hjá þjóðunum, m.a. með umboðsmanni neytenda, og að neytendasamtök hafi mikil áhrif á ákvarðanatöku. Tilgangurinn er að aðstoða neytendur með upplýsingum, auka áhrifamátt þeirra og styrkja neytendalöggjöfina.
    Ráðherranefndin mun vinna ötullega að því að tekið verði tillit til norrænnar neytendastefnu í tengslum við EES og ES.
    Ráðherranefndin mun áfram vinna að hinni jákvæðu, frjálsu umhverfismerkingu — græna svaninum.
    Meðal þess sem mun fá forgang í nýrri framkvæmdaáætlun fyrir árin 1995–1996 eru m.a. eftirtalin verkefni og starfssvið:
—    markmiðsstýrð og árangursrík hlutverkaskipti milli prófunarstofa norrænna neytendasamtaka,
—    norræn rannsóknaáætlun í neytendastefnu,
—    samvinna milli evrópskra eftirlitsaðila á sviði markaðssetningar,
—    áhrif norrænna neytenda á evrópskt stöðlunarstarf vegna neysluvara,
—    norræn þátttaka í evrópskum áætlunum um tilkynningarskyldu vegna hættulegs varnings og slysa,
—    greining á reynslu þjóðanna hvað varðar kerfi sem komið hefur verið á um fjármálaáætlun og lækkun skulda,
—    endurbætur á möguleikum neytenda til að geta fylgst með og notfært sér alþjóðlegt framboð á skulda-, sparnaðar- trygginga- og lífeyriskerfinu.

Félags- og heilbrigðisstefna.
    Félagsfræðileg og siðfræðileg málefni munu hafa forgang í hinum ýmsu samstarfsverkefnum á félags- og heilbrigðissviðinu. Þetta þýðir að meginreglan um samstöðu og hagsmunagæslu fyrir neytendur er sett í öndvegi þegar þróaðar eru vörur og þjónusta. Þetta felur einnig í sér að hagsmunir þeirra samfélagshópa, sem minna mega sín, eru sérstaklega verndaðir. Ráðherranefndin heldur þessari stefnu áfram og mun leitast við að efla og útvíkka gæðakröfurnar sem eru einkennandi fyrir samstarfssviðin. Eftir- og endurmenntun eru þau svið sem henta vel til samnorrænna aðgerða. Áhersla á menntun og rannsóknir er svið sem er mikilvægt í samstarfinu til þess að markmiðið um öryggi og velferð í samfélagi okkar náist.
    Ráðherranefndin ætlar sér að færa sér í nyt hina miklu kosti sem felast í norræna samstarfinu með aðstoð stofnana á þessu sviði, ásamt því að styrkja meginreglur í grundvallaratriðum „norræna módelsins“, einkum með það fyrir augum að eiga auðveldara með að hafa áhrif á evrópska samvinnu.
    Ráðherranefndin ætlar sér að
—    vinna áfram á grundvelli þess sem felst í sáttmálum um norræna samvinnu,
—    auka kynningarstarfsemi sem beinist að norrænum þegnum, m.a. varðandi þau réttindi sem felast í sáttmálum þjóðanna,
—    styrkja samnorræna stefnu í málefnum fatlaðra sem byggist á hugsjóninni um samstöðu, bótum vegna takmarkaðrar starfsgetu, neytendaáhrifum, auk umhverfismála fatlaðra, sem birtist í vöntun á aðgengi í samfélaginu og fyrirtækjum í ríkum mæli og ákvarðar að miklu leyti fötluninina í samfélaginu, ásamt því að
—    vinna að samnorrænni eiturlyfjastefnu til að viðhalda norrænu heildaryfirliti yfir eiturlyfjavandann, ekki bara í eigin löndum heldur einnig til að geta með frumkvæði sínu haft virk áhrif á notkun eiturlyfja á alþjóðavettvangi þar sem fylgt verði samþykktum Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði,
—    gæta enn frekar hagsmuna barna og unglinga með því að samræma aðgerðir stofnana varðandi börn með því m.a. að efla eftirmenntun innan þeirra stofnana sem nú vinna að þessum málum auk þess að auka upplýsingastarf og miðlun reynslu með það að markmiði að koma á norrænum gildum og viðmiðunum sem hægt er að beita fyrir sig innan hinnar evrópsku sameiningar,
—    halda áfram með og auka virka þátttöku og áhrif frá Norðurlöndunum í nefndum og vinnuhópum sem setja evrópska staðla á sviði heilbrigðis- og félagsmála til að viðhalda og þróa hið háa öryggis- og gæðastig sem Norðurlöndin hafa byggt upp á heilbrigðis- og hjálpartækjasviðinu,
—    hefja verkefni fyrir hópa sem eiga við mikla fjárhagslega og félagslega örðugleika að stríða til að móta sameiginlegar skilgreiningar og hugtök sem gefa langtímaforsendur til að gera samanburð í tíma og milli landa um ákveðin grundvallaratriði, t.d. varðandi fátækt og heimilisleysi.


VII. EFNAHAGSMÁL



Árangursríkur vöxtur og atvinna.
    Samvinna ráðherranefndarinnar á sviði efnahags- og fjármála þarf að leiða til jafnvægis og sjálfbærs vaxtar. Hún þarf að styrkja sameiginlega efnahagsstefnu Norðurlandanna og koma á framfæri hagsmunamálum Norðurlandanna í Evrópu og á víðu sviði alþjóðamála.
    Efnahagsstefnuna þarf að móta þannig að hún stuðli að jákvæðri breytingu á innri gerð þjóðfélagsins, vexti og atvinnu. Samsetning opinberra útgjalda getur t.d. breyst þannig að fjárfestingar aukist á kostnað millifærslu. Skatta og gjöld þarf að móta til langs tíma og miðast við bærilegt útgjaldastig þegar litið er til lengri tíma.
    Til að geta styrkt vöxt og atvinnu varanlega telur ráðherranefndin mikilvægt að halda lágri verðbólgu og opinberum útgjöldum.
    Í ljósi þess að nú á sér stað samþjöppun alþjóðlegra fjármála hefur ráðherranefndin í starfi sínu lagt áherslu á breiða alþjóðlega samstöðu um aðgerðir og stefnu til að auka atvinnustigið. Vegna frumkvæðis frá Noregi hefur hafist samvinna fjármála- og efnahagsráðherranna í ES og EFTA þar sem lagðar hafa verið fram áætlanir um aðgerðir í öllum löndunum til að auka vöxt og atvinnustig.
    Ráðherranefndin ætlar að halda áfram þessu starfi og auka það. Frekari samvinna á þessu sviði er ráðgerð til að geta metið nýja vaxta- og atvinnuaukandi stefnumörkun fyrir EB- og EFTA-löndin.
    M.a. vegna frumkvæðis Norðurlandanna mun OECD á fundi sínum í júní 1994 kynna umfangsmikla athugun á atvinnuleysinu. Ráðherranefndin mun fylgja eftir atvinnuleysisathugun OECD með tilliti til þess að náð verði breiðari alþjóðlegri samstöðu um stefnumótun um atvinnuleysið. Stefnt er að fundi æðstu manna innan OECD til að fjalla um þessi mál.
    Alþjóðavæðing efnahags landanna hefur aukið þörfina fyrir upplýsingagjöf og miðlun reynslu. Þess vegna ætlar ráðherranefndin áfram að leggja mikla áherslu á efnahagspólitískar umræður meðal norrænu fjármálaráðherranna. Með því að skiptast á þessum upplýsingum fæst grundvöllur að sameiginlegri norrænni stefnu.

Efnahagssamvinna með Eystrasaltsríkjunum og nágrannasvæðunum.
    Fjárfestingaráætlun Eystrasaltsríkjanna (BIP) hófst árið 1992 og heldur áfram til ársins 1995. Með áætluninni verður jafnvirði u.þ.b. 100 millj. ekna varið til tækniaðstoðar og fjármögnunar smárra og meðalstórra fyrirtækja. Ráðherranefndin mun láta gera úttekt á BIP-áætluninni árið 1995.
    Ráðherranefndin ætlar að hefja ákveðna tæknilega þróunaraðstoð til nágrannasvæða Norðurlandanna í Rússlandi.
    Í ferlinu, sem myndast við umbreytinguna, er mikil þörf fyrir að þróa með mönnum skilning á árangri af markaðshagkerfinu. Ráðherranefndin hefur, í samvinnu við vísindamenn frá Eystrasaltsríkjunum, gert áætlun um hagfræðirannsóknir á tímabilinu fram til 1995.
    Samvinnan við Eystrasaltsríkin á sér einnig stað innan ramma annarra fjölþjóðlegra stofnana. Innan Alþjóðabankans og Gjaldeyrissjóðsins eiga Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin sameiginlega fulltrúa (eitt kjördæmi) og innan EBRD eru norrænu forstjórarnir fulltrúar Eystrasaltsríkjanna. Ráðherranefndin vinnur að því að auka þetta samstarf í takt við aukna getu Eystrasaltsríkjanna til samstarfsins.
Flutningar og innri uppbygging (infrastrúktúr).
    Málefni norrænna flutninga hefur í auknum mæli orðið ástæða umræðu í tengslum við hina vaxandi evrópsku flutningasamvinnu. Ráðherranefndin ætlar að samræma norræna vega- og járnbrautanetið þróuninni í öðrum hlutum Evrópu. Norrænar reglur um flutninga verða einnig aðlagaðar að EES-samningnum. Unnin hefur verið skýrsla um áætlun um innri uppbyggingu í flutningum með tilliti til áætlana þjóðanna sem varðar norræna hagsmuni. Áætlunina á að framkvæma á næstu 10 árum. Ráðherranefndin mun meta og aðlaga þessar áætlanir innan þriggja ára.

Þróun byggðamála.
    Ráðherranefndin mun leggja fram nýja samstarfsáætlun fyrir byggðaþróun í mynd ráðherranefndartillögu til meðhöndlunar á fundi Norðurlandaráðs haustið 1994.
    Ráðherranefndin ætlar að þróa áfram samvinnu milli og innan svæða á Norðurlöndunum. Innifalin í því eru samstarfsverkefni á landamærasvæðum.
    Samvinnan þarf að byggja á sameiginlegum lausnum og möguleikum frekar en landfræðilegri nálægð og þarf einnig að ná til samvinnu norrænna svæða og svæða innan ES.
    Vesturhluti Norðurlandanna og nyrsti hluti þeirra verða áfram svæði sem njóta forgangs í þessari samvinnu. Gerð var úttekt á „Vest-norden-sjóðnum“ haustið 1993 og með tilliti til hennar mun ráðherranefndin leggja mat á hvernig sjóðurinn getur betur náð settum markmiðum.
    Ráðherranefndin leggur mikla áherslu á meiri fræðslu og miðlun reynslu, m.a. innan NordREFO (Nordisk institutt for regionalpolitisk forskning) og Bas-verkefnið (upplýsingasöfnun í tölvuformi o.fl.). Með nýju rannsóknaráætluninni NordREFO árin 1994–95 mun ráðherranefndin gera grein fyrir afleiðingum byggðastefnunnar með hliðsjón af núverandi og framtíðarefnahag, innri uppbyggingu og breytingum innan stofnana.

Samstarf í orkumálum.
    Ráðherranefndin hafði frumkvæði að tillögu um nýja rannsóknaáætlun í orkumálum fyrir tímabilið 1995–1998. Endanleg ákvörðun verður tekin í ráðinu fyrri hluta árs 1994. Gert er ráð fyrir að löndin leggi til fjármagn á bilinu 80–100 millj. n.kr. (á gengi 1995) á áætlunartímabilinu 1995–1998.
    Innra skipulag orkumála í einstökum löndum leiðir til breytinga á því samstarfi sem fyrir er á norrænum orkumarkaði. Ráðherranefndin hyggst fylgjast náið með skilyrðunum fyrir og þörfinni á norrænum aðgerðum til þess að þróa norrænan orkumarkað, sérstaklega í tengslum við þróunina innan EB/Eystrasaltssvæðisins.
    Ráðherranefndin telur að verði gasvinnsla í Norðursjó aukin eigi það að gerast á viðskiptalegum grundvelli. Ráðherranefndin mun á næstu árum leggja meiri áherslu á kostnaðarhlið stefnunnar í málefnum andrúmsloftsins og þá sérstaklega vandamálin tengd orku og skatti á koltvísýring.

Samstarf í málefnum atvinnuveganna.
    Ráðherranefndin vill stuðla að bættum starfsskilyrðum og grundvallaraðstæðum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Í því skyni er verið að vinna að athugun á þörfinni á áhættufjármagni á Norðurlöndum.
    Ráðherranefndin ætlar einnig að kanna möguleikann á norrænni samvinnu um útflutningsaukandi aðgerðir og alþjóðavæðingu á mörkuðum utan OECD-svæðisins. Í tengslum við þá vinnu mun ráðherranefndin meta þörfina á því að þróa fjármögnunarkerfi til þess að bæta starfsskilyrði norrænna fyrirtækja á grannsvæðum Norðurlanda. Ráðherranefndin mun enn fremur kanna atriði eins og þýðingu þjónustugeirans fyrir atvinnusköpun, evrópskan samruna og stöðlun.
    Í samræmi við framkvæmdaáætlunina fyrir Eystrasaltsríkin mun ráðherranefndin vinna áfram að Baltpraktik sem gefur ungu fólki þaðan færi á að öðlast starfsreynslu í fyrirtækjum á Norðurlöndum og Baltkonsult sem býður fyrirtækjum þar ráðgjöf, svo og að einkavæðingarráðstefnum á vegum stjórnvalda á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Ráðherranefndin mun einnig láta vinna röð sjónvarpsþátta fyrir Eystrasaltsríkin til þess að auka skilning á því hvernig markaðshagkerfi virkar.
    Ráðherranefndin hefur hafið athugun á því hvort unnt verði að koma á samvinnu við St. Pétursborgarsvæðið í málum atvinnuveganna.
    Ráðherranefndin mun áfram styðja verkefnaútflutning norrænna fyrirtækja til sívaxandi markaða í Austur-Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku og alþjóðavæðingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á „pre-investment“-skeiðinu svonefnda svo að þau geti betur nýtt sér þá möguleika sem þessir markaðir bjóða til lengri tíma litið.
    Starfið er unnið af Norræna verkefnaútflutningssjóðnum, NoPEF. Ráðherranefndin stuðlar að norrænu samstarfi á sviði tækni og iðnaðar í gegnum Norræna iðnaðarsjóðinn. Markmiðið er að þróa samstarf milli fyrirtækja og rannsóknastofnana á norrænum grunni. Á árunum 1993–96 leggur sjóðurinn megináherslu á eftirfarandi sérsvið iðnaðarins:
—    orkusparandi létta hönnun;
—    nýja tækni í matvælaiðnaði;
—    nýja tækni í skógar- og pappírsiðnaði.
    Á sviði skoðunartækni er markmið ráðherranefndarinnar á næsta ári að styrkja uppbyggingu skoðunartækninnar á Norðurlöndum á grundvelli Nordtest, auka norræn áhrif í Evrópu, vinna að því að niðurstöður prófana í norrænum rannsóknastofum verði viðurkenndar á alþjóðavettvangi og þróa prófanir fyrir sérnorrænar þarfir.
    Unnið verður nýtt skipulag fyrir Nordtest, m.a. til þess að auka norræn áhrif á evrópska stöðlun.

Samstarf í byggingar- og húsnæðismálum.
    Á sviði byggingar- og húsnæðismála leggur ráðherranefndin mesta áherslu á jafnvægi í byggðaþróun og atvinnuskapandi aðgerðir. Má nefna eftirfarandi svið:
—    endurnýjun borga með enduruppbyggingu og viðhaldi;
—    innri uppbyggingu borga (umferð, þarfir, umhverfi);
—    vistfræðilegar byggingar;
—    afleiðingar minni stjórnunar í húsnæðismálum;
—    heilbrigðara andrúmsloft innan húss.
    Gerð staðla og tæknilegra vottana fyrir byggingarvörur í samræmi við byggingarreglugerðir ES er á lokastigi. Norrænni aðlögun að CEB (evrópsku staðlastofnuninni) og CEOTA (evrópsku tæknivottunarstofnuninni) verður því haldið áfram.

Samstarf í landbúnaðarmálum.
    Samstarf á sviði landbúnaðar og skógnytja byggir á norrænu framkvæmdaáætluninni um landbúnaðar- og skógarnytjamál ásamt viðbótaráætlun sem báðar ná til 1996. Aðaláherslusvið áætlananna eru rannsóknir og vísindaleg menntun, svo og samstarf á sviði umhverfismála og endurvinnslu. Á sviðum landbúnaðar og umhverfismála leggur ráðherranefndin höfuðáherslu á hreinsun næringarsalta og umhverfiseftirlit.
    Á grundvelli þeirra eftirlitsgagna, sem fyrir liggja, vill ráðherranefndin gera heildarmat á umhverfisgæðum skóga á Norðurlöndum. Á þessum sviðum er einnig lögð áhersla á eftirlit með ástandi ræktaðs lands og líffræðilegri fjölbreytni.
    Norræni genbankinn og Norræni genbankinn fyrir húsdýr eru þættir í alþjóðlegu samstarfi um varðveislu erfðafræðilegra verðmæta. Ráðherranefndin vill halda áfram varðveislu erfðafræðilegra þátta í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og svæðisbundna samninga. Á samstarfssviðinu verður lögð mest áhersla á hæfnisaukandi aðgerðir, aðgerðir í tengslum við þróunaraðstoð og alþjóðlegt pólitískt samstarf með tilliti til UNCED.

VIII. LÖGFRÆÐILEG MÁL



Löggjöf.
    Í nýrri vinnuáætlun fyrir árin 1993–98 slær ráðherranefndin því föstu að evrópski samruninn leiði til þess að eðlisbreyting verði á löggjafarsamstarfinu. Á þeim sviðum, sem EES-samningurinn nær til, mun samningurinn, og þær reglur sem hann byggir á, einnig verða að miklu leyti ráðandi um norræna samvinnu. EES-samningurinn fær sérstaka þýðingu á sviðum samkeppni, ríkisstyrkja, opinberra innkaupa, fyrirtækjaréttar og einkaréttar (einkaleyfi, vörumerki og höfundaréttur).
    Ráðherranefndin leggur höfuðáherslu á norrænt samstarf til þess að viðhalda líkum réttarvenjum á Norðurlöndum einnig á þeim sviðum þar sem EES-samningurinn gefur færi á mismunandi lausnum. Þessi samvinna leiðir til sparnaðar þar sem löndin nýta sér reynslu hvers annars. Þetta gildir fyrst og fremst um beina beitingu þeirra EB-tilskipana sem voru samþykktar með EES-samningnum.
    Ráðherranefndin telur að þegar um er að ræða breytt vinnubrögð og þess háttar verði einnig gagnlegt að læra af reynslu hver annars og þá sérstaklega reynslu Dana. Á þeim sviðum, sem EES-samningurinn nær til, verður löggjafarstarfinu einkum beint að verkefnum á sviði félagaréttar, viðurkenningar dóma og fullnustu þeirra, vörumerkjaréttar, alþjóðlegs einkamálaréttar, verndar einkalífsins og neytendaréttar. Á þeim sviðum, sem EES-samningurinn nær ekki til, verður samstarfinu í framtíðinni beint að refsi- og réttarfarsrétti, opinberum rétti, sifjarétti, sjórétti, gjaldþrotarétti og skaðabótarétti.
    Rannsóknaráð evrópsks samrunaréttar mun gegna mikilvægu hlutverki og hvetja til rannsókna og skipta á upplýsingum á sviði samrunaréttarins.
    Ráðherranefndin styður þá uppbyggingu á réttarþjóðfélögum sem á sér stað í Eistlandi, Lettlandi og Litáen með ýmiss konar þróunaraðstoð, aðallega aðstoð sérfræðinga og kaupum á lögfræðibókum. Ráðherranefndin telur þetta starf mjög mikilvægt og fylgist stöðugt með annarri alþjóðlegri aðstoð.

Jafnréttismál.
    Ráðherranefndin vinnur nú að framkvæmdaáætlun fyrir norræn jafnréttismál fyrir árin 1995–2000. Tillaga að framkvæmdaáætlun verður til umræðu á norræna kvennaþinginu 1994. Norrænt samstarf á sviði jafnréttismála á að leiða til sameiginlegrar afstöðu og skapa sameiginlegan grundvöll í víðara evrópsku og alþjóðlegu samstarfi.
    Jafnréttismál á að færa inn á þau svið sem ráðherranefndin fjallar um. Hvert samstarfssvið á að sjá til þess að jafnréttismál verði hluti af starfinu. Ráðherranefndin á að stuðla að því að jafnt hlutfall kvenna og karla verði annars vegar í öllum stjórnum, nefndum, ráðum o.s.frv. á vegum hennar og hins vegar á hinum ýmsu skrifstofum nefndarinnar. Þannig eru gefin skýr merki um að meira jafnrétti í norrænu samstarfi sé æskilegt.
    Á næstu árum mun ráðherranefndin einkum beina starfi sínu í jafnréttismálum að því að:
—    stuðla að jöfnum aðgangi karla og kvenna að ákvarðanatöku;
—    stuðla að sömu launum fyrir sömu vinnu;
—    bæta möguleika bæði karla og kvenna á að sameina hlutverk foreldra og atvinnu;
—    þróa aðferðir sem nota má til að koma á jafnrétti í hinum ýmsu málaflokkum, svæðisbundið, í einstökum löndum og á norrænum vettvangi; tölfræði, rannsóknir og upplýsingamiðlun eru sérstaklega mikilvæg að þessu leyti;
—    hafa áhrif á evrópska og alþjóðlega þróun í jafnréttismálum.

Málefni flóttamanna og fólksflutninga.
    Ráðherranefndin mun áfram skiptast á upplýsingum um málefni flóttamanna og víkka þannig m.a. grundvöllinn fyrir stefnumótun landanna. Samkvæmt þessu og til þess að ná fram betri samræmingu og nýtingu eiga sér enn fremur stað viðræður við fulltrúa Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar (IOM). Á árinu 1994 verða haldnar ítarlegri viðræður um þætti eins og sameiningu fjölskyldna, fyrrum Júgóslavíu, kvótabreytingar og flutninga aftur til ættlandsins.
    Ráðherranefndin vinnur áfram að samræmingu, m.a. hvað snertir norræna samninginn um afnám vegabréfaeftirlits, hinn svokallaða Dublin-sáttmála um pólitískt hæli og sáttmála EB um landamæraeftirlit.
    Ráðherranefndin mun áfram vinna að því að aðlaga áætlanir einstakra norrænna landa og þróa áfram aðgerðaáætlanir um móttöku flóttamanna, lögfræðilegt mat o.s.frv. í tengslum við hugsanlegan fjöldaflótta. Ráðherranefndin hefur í hyggju að halda áfram samstarfi um rannsóknir á fólksflutningum, vinnumarkaðsmál kvenna og unglinga meðal innflytjenda, kynþáttahatur og útlendingahatur í samfélaginu, þjóðernislega mismunun á vinnumarkaðnum, aðlögun innflytjenda og flóttamanna að norrænu samfélagi og möguleika á því að auka ábyrgð einstaklinganna sjálfra meðal flóttamanna og innflytjenda og þeirra sem sækja um hæli.
    Í samræmi við ákvörðun á 43. þingi Norðurlandaráðs í ár mun ráðherranefndin í samvinnu við Norðurlandaráð og viðkomandi stofnanir taka frumkvæði að átaki gegn útlendingahatri og kynþáttahatri.


IX. EFNAHAGSLEG SKILYRÐI ÁÆTLANAGERÐAR


    Staða ríkisbúskaparins í aðildarlöndunum veitir takmarkaða möguleika á því að auka tekjuhlið norrænu fjárlaganna næstu árin. Verði annað ekki ákveðið verður heildarramminn 655,8 millj. d.kr. á ári. Samkvæmt fyrri ákvörðun landanna eiga áherslusviðin menning og menntun/rannsóknir að fá helming fjárlaganna í sinn hlut fyrir 1996. Fjárfestingin verður fjármögnuð með sparnaði á öðrum sviðum. Fjárveitingar til umhverfismála og fjárveitingar vegna grannsvæða verða þó áfram a.m.k. jafnháar og nú. Ráðherranefndin hefur áður ákveðið að taka þátt í fjármögnun lista- og menningarmiðstöðvar á Grænlandi (Nuuk). Til þess hafa verið veittar 20 millj. d.kr. (á verðlagi 1990) sem samsvarar 22,9 milljónum (á verðlagi 1994). Útborguninni er skipt á milli áranna 1995 og 1996.