Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 413 . mál.


618. Tillaga til þingsályktunar



um skipulagða leit að verðmæta- og atvinnuskapandi verkefnum.

Flm.: Árni M. Mathiesen, Guðjón Guðmundsson, Tómas Ingi Olrich.



    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að koma á fót þremur tímabundnum stöðum erindreka sem hefðu það hlutverk að leita að verðmæta- og atvinnuskapandi verkefnum erlendis — verkefnum sem hægt er að vinna hérlendis í samstarfi við erlenda og innlenda rekstrar- og fjárfestingaraðila.
     Nefnd skipuð fulltrúum utanríkis-, fjármála-, viðskipta- og forsætisráðuneytis skal hafa umsjón með starfi erindrekanna og hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins. Kostnaður við starfsemina greiðist úr ríkissjóði.

Greinargerð.


    Með tilkomu nýrra viðskiptasvæða og mikilvægi þess að Íslendingar afli sér bæði fjármagns- og samstarfsaðila til nýrra verkefna á sviði atvinnuskapandi starfsemi, sem stuðlaði jafnframt að verðmætaaukningu á innlendum starfsvettvangi, er lagt til að komið verði á fót þremur tímabundnum stöðum sérstakra erindreka sem hefðu það hlutverk að fylgja eftir hugmyndum sem mögulega gætu komið innlendum vinnumarkaði til góða.
    Sérstaða Íslands hvað varðar landfræðilega stöðu, svo og umhverfisvænleika landsins og afurða þess, er nú að verða helsti markaðsstyrkleiki afurða okkar. Þessi sérstaða er greinileg bæði á sviði framleiðslu og þjónustu. Því er nauðsynlegt að innlendir aðilar hafi sameiginlegt frumkvæði um að fylgja eftir hugmyndum um nýsköpun og verðmætaaukningu.
    Til þess að nýta sér þessa sérstöðu er nauðsynlegt að reynt verði að afla samstarfsaðila og fjármögnunar erlendis frá. Til þess að jafnræði verði með hinum ýmsu aðilum vinnumarkaðarins er lagt til að forsætisráðuneytið hafi forgöngu um tímabundna ráðningu sérstakra erindreka sem valdir verði með hliðsjón af reynslu þeirra og sérþekkingu á erlendum markaðsstörfum og svæðum. Ráðning þeirra tæki einnig mið af sérstökum verkefnum sem sinna þyrfti hverju sinni.
    Í nágrannalöndum okkar, m.a. í Noregi, hefur þessi háttur verið hafður á með góðum árangri. Erindrekar, sem annars eru við störf hjá innlendum fyrirtækjum, eru ráðnir til ákveðinna tímabundinna verkefna á sérstökum markaðssvæðum en atvinnuveitendur þeirra, fyrirtæki eða stofnanir, samþykkja tímabundin leyfi þeim til handa. Þessir erindrekar fara inn á markaðssvæði sem þeir þekkja af reynd og leita að ákveðnum fjárfestum sem væntanlega gætu haft erindi til samstarfs við íslenska aðila, bæði með fjárfestingu, samstarfi og söluaðgerðum.
    Vinna erindreka af þessum toga byggist fyrst og fremst á máta sem nefndur hefur verið „maður á mann“ og nýtist oft og tíðum betur en sambærileg vinna ráða og stofnana sem vitaskuld njóta síðan góðs af samböndum þeim sem erindrekarnir kynnu að stofna til. Á sama hátt eru erindrekar ekki kvaddir til nema að undirbúningsvinna aðila vinnumarkaðarins og opinberra stofnana sé fyrir hendi þannig að erindrekarnir hafi bæði upplýsingar og söluhvata á reiðum höndum.
    Þar sem samkeppni um fjármagn og markaðsleiðandi aðila er mjög hörð hefur beinskeytt starf sérstakra erindreka oft og tíðum skilað betri árangri en annarra. Má benda á bresk og bandarísk fyrirtæki sem fundist hafa eftir sérhæfða leit og kynningu fulltrúa hérlendra sveitarfélaga.