Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 433 . mál.


645. Tillaga til þingsályktun

ar

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Rúmeníu.

(Lögð fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Rúmeníu sem gerður var í Genf 10. desember 1992.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Á árinu 1990 var ákveðið að hefja samningaviðræður um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Póllands, Ungverjalands, Tékklands og Slóvakíu. Samningaviðræðum við öll þessi ríki er lokið með gerð fríverslunarsamninga. Samningaviðræður milli EFTA-ríkjanna og Rúmeníu og Búlgaríu um fríverslunarsamninga hófust á árinu 1992. Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Rúmeníu var undirritaður 10. desember 1992 og milli EFTA-ríkjanna og Búlgaríu 29. mars 1993. Samningurinn milli EFTA-ríkjanna og Rúmeníu er birtur sem fskj. I með þingsályktunartillögu þessari. Í fskj. II er birt bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins og í fskj. III er að finna tvíhliða landbúnaðarsamning Íslands og Rúmeníu.
    Lagabreyting vegna þessa samnings er ekki nauðsynleg, sbr. heimild í 6. gr. tollalaga, til að láta koma til framkvæmda ákvæði fríverslunar- og milliríkjasamninga.
    Fríverslunarsamningurinn við Rúmeníu er mjög hliðstæður þeim sem gerðir hafa verið við Pólland, Ungverjaland, Tékkland og Slóvakíu. Fríverslunarsamningurinn við Rúmeníu tryggir fríverslun milli einstakra EFTA-ríkja og Rúmeníu með iðnaðarvörur (25.–97. kafla í samræmdri vörulýsingar- og vöruheitaskrá), að undanskildum þeim vörum sem skráðar eru í I. viðauka samningsins. Einnig nær samningurinn til fisks og fiskafurða, sbr. C-lið 2. gr. og II. viðauka samningsins. Jafnframt nær hann til ákveðinna vara sem unnar eru að hluta til eða að öllu leyti úr landbúnaðarvörum. Þessar vörur eru sérstaklega tilgreindar og nánar kveðið á um framkvæmd þeirra í bókun A við samninginn. Sú bókun er stöðluð hvað varðar Ísland í öllum fríverslunarsamningum sem EFTA-ríkin hafa gert og er m.a. að finna í tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamningsins við Pólland.
    EFTA-ríkin afnema alla innflutningstolla á vörum sem upprunnar eru í Rúmeníu og gjöld sem hafa samsvarandi áhrif frá og með gildistöku samningsins, að undanskildum fáeinum vörum sem tilgreindar eru í III. viðauka þar sem nokkur EFTA-ríkjanna hafa lengri aðlögunartíma til að afnema tolla. Hér er einkum um að ræða textílvörur. Ísland hefur ekki sérstakan aðlögunartíma hvað þessa tolla varðar. Aðlögunartími Rúmeníu er til 31. desember 2002, sbr. 1. og 4. gr. og IV. viðauka samningsins. Fríverslun með fisk og fiskafurðir kemst á strax við gildistöku samningsins, sbr. 2. tölul. 1. gr. II. viðauka samningsins. Rúmenía fær þó tímabundna heimild til að halda núverandi innflutningstollum á sardínum, makríl, túnfiski og silungi, sbr. 7. gr. II. viðauka samningsins.
    Sérstök bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins var gerð samhliða samningnum. Í bókuninni eru ýmis túlkunaratriði og útfærslur á samningnum sem ekki þótti viðeigandi að hafa í megintexta hans.
    Varðandi viðskipti með landbúnaðarvörur lýsa samningsríkin sig reiðubúin, að því marki sem stefna þeirra í landbúnaðarmálum leyfir, að stuðla að samfelldri þróun viðskipta með landbúnaðarvörur, sbr. 13. gr. samningsins. Til að ná þessu markmiði hafa EFTA-ríkin gert tvíhliða samninga við Rúmeníu til að greiða fyrir viðskiptum með landbúnaðarvörur. Hvað Ísland varðar er hér um að ræða vörur sem ekki eru framleiddar hér á landi, einkum ávexti. Að öðru leyti fellur landbúnaður fyrir utan samninginn.
    Viðskipti Íslands og Rúmeníu eru ekki mikil. Á árunum 1990–1992 hefur einungis kísilgúr verið fluttur til Rúmeníu. Verðmæti þess útflutnings var á árinu 1990 5,1 milljón, 1991 13,7 milljónir og 1992 5,3 milljónir.
    Helstu innflutningsvörur frá Rúmeníu eru húsgögn og fatnaður. Verðmæti innflutnings var árið 1990 22,7 milljónir, 1991 22,6 milljónir og 1992 24,6 milljónir.


TAFLA REPRÓ


Fylgiskjal I.

Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Rúmeníu.




SAMNINGUR REPRÓ

























..........




    Með þingsályktunartillögu þessari voru birt þrjú fylgiskjöl.
    Auk samningsins voru prentuð á fskj. I eftirtalin gögn: I. viðauki sem um getur í A-lið 2. gr., bókun A um vörur sem um getur í B-lið 2. gr., tafla I við bókun A, tafla VII við bókun A, tafla VIII við bókun A, II. viðauki sem um getur í C-lið 2. gr., IV. viðauki sem um getur í 3. mgr. 4. gr., tafla A við IV. viðauka, tafla B við IV. viðauka, tafla C við IV. viðauka, tafla D við IV. viðauka, VI. viðauki sem um getur í 2. mgr. 8. gr., VII. viðauki sem um getur í 3. mgr. 8. gr., X. viðauki um aðferð við að tilkynna um drög að tæknilegum reglugerðum, XI. viðauki um hugverkarétt, bókun D um einokun sem stendur óbreytt við gildistöku samningsins þrátt fyrir 11. gr., XII. viðauki um túlkun 19. gr., viðbætir um skrá yfir aðstoð við útflutning sem um getur í VI. lið D-liðar í XII. viðauka og XIII. viðauki, skýrleiki við veitingu ríkisaðstoðar.
    Á fskj. II var birt bókun um samkomulag um framkvæmd ýmissa þátta samningsins og í fskj. III tvíhliða landbúnaðarsamningur Íslands og Rúmeníu.
    Einnig voru framangreind gögn prentuð í enskri þýðingu með þingsályktunartillögunni.
    Um fylgiskjöl og fylgigögn vísast til þingskjalsins (lausaskjalsins). Enn fremur verður samningurinn ásamt bókunum og viðaukum prentaður í C-deild Stjórnartíðinda.