Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 442 . mál.


654. Frumvarp til

laga

um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.

Flm.: Lára Margrét Ragnarsdóttir, Salome Þorkelsdóttir,


Anna Ólafsdóttir Björnsson, Árni Johnsen, Auður Sveinsdóttir,


Guðni Ágústsson, Gísli S. Einarsson, Guðmundur Hallvarðsson,


Margrét Frímannsdóttir, Sigríður A. Þórðardóttir, Valgerður Sverrisdóttir.



1. gr.


    72. gr. a laganna orðast svo:
    Börn 12 ára og yngri skulu bera viðurkenndan hlífðarhjálm á höfði við hjólreiðar.

2. gr.


    Á eftir 2. mgr. 100. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
    Eigi skal heldur refsa fyrir brot sem tilgreint er í 72. gr. a. Þó er lögreglu heimilt að taka reiðhjól af barni sem brýtur ítrekað gegn ákvæðinu og verður það þá aðeins afhent forráðamanni barnsins.

3. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 1995.

Greinargerð.


    Síðastliðin tíu ár hafa verið lagðar fram slysaskýrslur hér á landi er sýna að höfuðslys við hjólreiðar meðal barna og ungmenna eru mjög tíð og að slík slys hafa jafnan í för með sér alvarlegar afleiðingar. Þessum slysum hefur þó fækkað aðeins á síðastliðnum árum samhliða því sem notkun sérhannaðra hjólreiðahjálma hefur aukist hratt. Samkvæmt könnun, er Umferðarráð stóð fyrir í júlí 1993, var hjálmanotkun við hjólreiðar í þéttbýli hérlendis þá um 20%. Víða erlendis hafa verið framkvæmdar athuganir er sýna að langflest börn, sem slasast alvarlega eða deyja vegna höfuðáverka er hlýst við hjólreiðar, hafa ekki borið hjálm á höfði. Sama niðurstaða kemur í ljós þegar skoðuð er slysaskráning á sjúkrahúsum hérlendis síðustu árin.
    Árið 1990 voru sett lög um skyldunotkun hjólreiðahjálma í Ástralíu og í kjölfarið fækkaði alvarlegum höfuðmeiðslum hjólreiðamanna um 60–70% þar í landi. Sömu sögu er að segja frá nokkrum fylkjum Bandaríkjanna þar sem slík lög hafa verið sett. Fá lönd í Evrópu hafa hins vegar enn sem komið er sett slík ákvæði í löggjöf sína en samtök um öryggi evrópskra neytenda (ECOSA) ákváðu á fundi í Stokkhólmi í apríl á síðasta ári að stefna að því að árið 2010 yrði hjálmanotkun orðin sem útbreiddust í öllum löndum Evrópubandalagsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu.
    Skylda til bílbeltanotkunar var leidd í lög á Íslandi árið 1987, tíu árum eftir að fyrstu tillögur voru lagðar fram í því efni. Margir voru þá efins um ágæti þeirrar skyldu en í dag efast fáir enda hefur slysum af völdum árekstra fækkað um nálægt 50% og framrúðuslys nánast algerlega horfin. Stjórnvöld hljóta að leitast við að tryggja öryggi borgaranna eftir fremsta megni og lögleiðing bílbeltanotkunar var heillavænlegt spor í þá átt. Nú er tækifæri til að halda áfram á sömu braut og huga þá sérstaklega að yngstu vegfarendunum.
    Salome Þorkelsdóttir lagði ásamt fleirum fram bæði á 111. og 113. löggjafarþingi frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum þar sem meðal annars var lögð til skyldunotkun hlífðarhjálma við hjólreiðar, en það náði ekki fram að ganga. Notkun slíkra hjálma hérlendis hefur aukist mikið síðan þá og sannanlega dregið úr alvarlegum höfuðáverkum vegna hjólreiðaslysa. Enn verða þó allt of mörg slík slys meðal barna sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með notkun hlífðarhjálma.
    Á síðasta þingi var samþykkt sú viðbót við umferðarlögin að dómsmálaráðherra gæti sett reglur um notkun hlífðarhjálms við hjólreiðar. Hér er hins vegar lagt til að gengið verði lengra og slík skylda lögleidd og því er gert ráð fyrir að framangreind breyting verði felld brott. Börn undir 15 ára aldri teljast ósakhæf og verður því ekki refsað. Þó er gert ráð fyrir að ef brot er ítrekað geti lögregla tekið hjól í sínar hendur og eigi afhent aftur fyrr en forráðamaður barns kemur og sækir það.
    Þar sem nauðsynlegt er að undirbúa framkvæmd slíkra laga og nánari útfærslu á þeim vel er lagt til að lögin taki eigi gildi fyrr en 1. apríl á næsta ári.


Fylgiskjal I.


Landlæknisembættið:


Fjöldi innlagðra barna 0–14 ára með höfuðáverka


á Borgarspítala 1987–1991.


(Rúm 50% slasast á reiðhjóli.)

















Fylgiskjal II.


Umferðarráð:


Könnun á hjálmanotkun við hjólreiðar í þéttbýli í júlí 1993.