Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 239 . mál.


666. Breytingartillögur



við frv. til l. um breytingu á samkeppnislögum, nr. 8 25. febrúar 1993.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
                  Ráðherra skipar fimm menn í samkeppnisráð og jafnmarga til vara. Skulu þeir hafa sérþekkingu á samkeppnis- og viðskiptamálum. Ráðherra skipar formann og varaformann ráðsins og skal þess gætt að þeir hafi ekki beinna og verulegra hagsmuna að gæta í atvinnustarfsemi sem lögin taka til. Samkeppnisráð setur sér reglur um málsmeðferð.
    Á eftir 1. gr. komi þrjár nýjar greinar er orðist svo:
         
    
    (2. gr.)
                            1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo:
                            Ákvarðanir samkeppnisráðs og Samkeppnisstofnunar sæta kæru til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Skrifleg kæra skal berast innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina. Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála skal liggja fyrir innan sex vikna frá málskoti.
         
    
    (3. gr.)
                            2. mgr. 23. gr. laganna orðast svo:
                            Almennir skilmálar þjónustuaðila, sem bjóða neytendum þjónustu sína hér á landi, skulu vera á íslensku.
         
    
    (4. gr.)
                            2. mgr. 50. gr. laganna fellur brott.