Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 468 . mál.


717. Beiðni um skýrslu



frá sjávarútvegsráðherra um sölu ríkisins á SR-mjöli.

Frá Ólafi Þ. Þórðarsyni, Guðrúnu Helgadóttur, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur,


Guðna Ágústssyni, Jóhanni Ársælssyni, Önnu Ólafsdóttur Björnsson,


Finni Ingólfssyni, Steingrími J. Sigfússyni


og Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að sjávarútvegsráðherra gefi Alþingi skýrslu um sölu ríkisins á SR-mjöli. Fram hafa komið opinberlega alvarlegar ásakanir um að ekki hafi verið staðið með eðlilegum hætti að framkvæmd útboðs á hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli og að söluverð hafi verið of lágt. Því er nauðsynlegt að sjávarútvegsráðherra gefi Alþingi ítarlega skýrslu um þessi atriði þar sem slíkum ásökunum er svarað, enda er hér um að ræða háar fjárhæðir auk þess sem meðferð almannafjár verður að vera með þeim hætti að ekki gefi tilefni til ásakana um misfærslu.
    Óskað er eftir að eftirfarandi upplýsingar komi fram í skýrslunni:
    Hvers vegna var þeim aðila, sem bauðst til þess að annast söluna með minnstum tilkostnaði fyrir hið opinbera, ekki falið það verk?
    Telur ráðherra að VÍB hafi verið hæft til þess að annast verðmat og umsjón með sölu á hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli eftir að í ljós var komið að meiri hluti eigenda VÍB hafði lýst áhuga sínum á að kaupa hlutabréfin?
    Hve mörg tilboð bárust í SR-mjöl og frá hverjum?
    Hvers vegna voru tilboðin ekki opnuð að viðstöddum öllum tilboðsgjöfum? Telur ráðherrann að sú ráðstöfun sé í samræmi við þær reglur og hefðir sem um framkvæmd útboða gilda?
    Á hvaða grundvelli byggist það verð sem eignirnar voru seldar á? Er það rétt að hagnaður fyrirtækisins á síðasta ári hafi verið nálægt 300 millj. kr.? Fór fram eitthvert arðsemismat sem nær yfir lengra tímabil?
    Er það rétt að ríkið verði vegna sölunnar af allt að 200 millj. kr. skatttekjum vegna þess að mat á eigin fé fyrirtækisins var hækkað við söluna með þeim afleiðingum að afskriftagrundvöllur þess hækkar þannig að hinir nýju eigendur fái a.m.k. 200 millj. kr. skattafslátt á þeim tíma sem tekur að afskrifa eignir fyrirtækisins?
    Hvers vegna var formgildu tilboði hafnað án þess að kanna hvort við það yrði staðið og þess í stað gengið til samninga við aðila sem ekkert tilboð höfðu gert heldur einungis lýst yfir áhuga sínum á því að eignast SR-mjöl?