Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 37 . mál.


730. Nefndar

álit

um frv. til l. um breyt. á l. um Hæstarétt Íslands, nr. 75/1973, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn til viðræðna Markús Sigurbjörnsson prófessor, Hrafn Bragason, forseta Hæstaréttar, Valtý Sigurðsson, formann Dómarafélags Íslands, og Magnús Thoroddsen, formann laganefndar Lögmannafélags Íslands. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, réttarfarsnefnd, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Hæstarétti, Neytendasamtökunum, Stéttarsambandi bænda, Lögmannafélagi Íslands og Eiríki Tómassyni hrl.
    Frumvarpið er tvíþætt. Í því felst annars vegar að Alþingi staðfesti tillögu ráðherra um skipun dómara í Hæstarétt. Hins vegar er gert ráð fyrir að hæstaréttardómari geti ekki horfið tímabundið til annarra starfa í sex mánuði eða lengur eða stundað önnur dómarastörf.
    Í umfjöllun nefndarinnar hefur komið fram að frumvarpið kallar á ítarlega skoðun, þar á meðal á stjórnskipun landsins í heild, og kann efni þess að kalla á stjórnarskrárbreytingu. Réttarfarsnefnd hefur nú til sérstakrar skoðunar lagaákvæði varðandi dómara og skipulag dómstóla og er ætlunin að nefndin semji sérstakt frumvarp að dómstólalögum. Allsherjarnefnd leggur áherslu á að í þeirri vinnu verði efnisatriði þessa frumvarps tekin til sérstakrar athugunar.
    Með hliðsjón af fyrrgreindu telur nefndin að ekki sé tímabært að taka afstöðu til þessa frumvarps eins og sér en í trausti þess að efnisatriði þess verði tekin til athugunar við endurskoðun dómstólareglna leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Ólafur Þ. Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 14. mars 1994.



Sólveig Pétursdóttir,

Gísli S. Einarsson.

Jón Helgason.


form., frsm.



Björn Bjarnason.

Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Kristinn H. Gunnarsson.



Ingi Björn Albertsson.

Ey. Kon. Jónsson.