Ferill 478. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 478 . mál.


733. Frumvarp til

laga

breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989, sbr. lög nr. 43/1991.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)



1. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
    Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn þjóðminjavörslu í landinu.
    Menntamálaráðherra skipar þjóðminjaráð til fjögurra ára í senn. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir einn fulltrúa, Félag íslenskra safnamanna einn, Háskóli Íslands einn, Bandalag kennarafélaga einn og einn fulltrúi er skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Þjóðminjavörður og safnstjóri Þjóðminjasafns ásamt einum fulltrúa tilnefndum af föstum starfsmönnum safnsins úr þeirra röðum eiga setu á fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétti.
    Hlutverk þjóðminjaráðs er að vinna að mörkun stefnu og gera langtímaáætlun um starfsemi Þjóðminjasafns Íslands og þjóðminjavörsluna í heild og hafa yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar og framkvæmd hennar. Ráðið er stjórnarnefnd Þjóðminjasafns Íslands og hefur umsjón með rekstri þess. Að öðru leyti sinnir ráðið þeim verkefnum sem því eru sérstaklega falin í lögum þessum.
    Þjóðminjavörður hefur umsjón með þjóðminjavörslu í landinu öllu. Hann er forstöðumaður Þjóðminjasafns Íslands og framkvæmdastjóri þjóðminjaráðs. Forseti Íslands skipar þjóðminjavörð til fimm ára í senn að tillögu menntamálaráðherra sem leita skal umsagnar þjóðminjaráðs. Að öðru jöfnu skal ráðinn maður með sérfræðilega menntun í menningarsögu og reynslu af stjórnunarstörfum.
    Birta skal árlega starfsskýrslu þjóðminjaráðs og Þjóðminjasafns Íslands.
    

2. gr.


    3. gr. laganna orðast svo:
    Þriggja manna fornleifanefnd fjallar um og veitir leyfi til allra staðbundinna og tímabundinna fornleifarannsókna og er Þjóðminjasafni Íslands til ráðgjafar um fornleifavörslu, fornleifaskráningu og fornleifarannsóknir. Menntamálaráðherra skipar fornleifanefnd til fjögurra ára í senn og skulu a.m.k. tveir nefndarmanna hafa háskólapróf í fornleifafræði sem aðalgrein. Háskóli Íslands, þjóðminjaráð og Félag íslenskra fornleifafræðinga tilnefna einn fulltrúa hver aðili. Menntamálaráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Þjóðminjavörður, eða fulltrúi hans, situr fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétti.
    

3. gr.


    4. gr. laganna orðast svo:
    Landinu skal skipt í minjasvæði eftir ákvæðum í reglugerð sem menntamálaráðherra setur að fengnum tillögum þjóðminjaráðs.
    Á hverju minjasvæði skal starfa einn minjavörður. Hlutverk minjavarða er að hafa umsjón með menningarminjum og fornleifavörslu, skráningu og eftirliti forngripa og gamalla bygginga og vera byggðasöfnum til ráðuneytis og aðstoðar. Minjaverðir skulu að öðru jöfnu hafa sérfræðilega menntun á sviði menningarsögu eða fornleifafræði.
    Í Reykjavík fer borgarminjavörður með minjavörslu. Aðra minjaverði ræður þjóðminjavörður til fimm ára í senn samkvæmt tillögu þjóðminjaráðs. Þeir eru starfsmenn Þjóðminjasafns Íslands. Heimilt er þó að fela forstöðumanni byggðasafns að gegna hlutverki minjavarðar á viðkomandi minjasvæði samkvæmt sérstökum starfssamningi.
    

4. gr.


    5. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins. Það er miðstöð þjóðminjavörslu í landinu.
    Við Þjóðminjasafn Íslands skal auk þjóðminjavarðar starfa safnstjóri sem stjórnar daglegri starfsemi safnsins undir yfirumsjón þjóðminjavarðar. Safnstjóri er staðgengill þjóðminjavarðar. Menntamálaráðherra ræður safnstjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum þjóðminjavarðar og þjóðminjaráðs. Safnstjóri skal að öðru jöfnu hafa sérfræðilega menntun í menningarsögu, góða þekkingu á rekstri safna og reynslu af stjórnunarstörfum.
    Heimilt er að skipta safninu í deildir með ákvæðum í reglugerð að fengnum tillögum þjóðminjaráðs. Deildir safnsins geta verið sjálfstæðar rekstrareiningar, haft stöðu sérstakra safna eða stofnana.
    Þjóðminjavörður ræður deildarstjóra og aðra sérfræðinga safnsins með samþykki þjóðminjaráðs. Deildarstjórar skulu ráðnir til fimm ára í senn. Skulu þeir að öðru jöfnu hafa sérfræðimenntun á starfssviði sínu. Þjóðminjavörður annast ráðningu annarra starfsmanna Þjóðminjasafns.
    

5. gr.


    6. gr. laganna orðast svo:
    Til byggðasafna teljast samkvæmt lögum þessum önnur söfn sem sett hafa verið á stofn í þeim tilgangi sem segir í 7. gr. og hlotið hafa viðurkenningu þjóðminjaráðs.
    Þau söfn, sem uppfylla skilyrði þjóðminjaráðs, geta sótt um styrk úr ríkissjóði til starfsemi sinnar.
    Byggðasöfn geta verið sjálfeignarstofnanir eða í eigu sveitarfélaga, stofnana eða félagasamtaka. Setja skal hverju byggðasafni stofnskrá þar sem m.a. skal kveðið á um stjórn safnsins, eignaraðild að því, þátttöku ríkisins í kostnaði við það og ráðningu forstöðumanns. Ríkisstyrkur til byggðasafns er háður því að menntamálaráðuneytið hafi samþykkt stofnskrá þess að fenginni tillögu þjóðminjaráðs.
    Menntamálaráðherra setur reglugerð um byggðasöfn að fenginni tillögu þjóðminjaráðs.
    

6. gr.


    5. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðminjasafn Íslands skal stuðla að rannsóknum á minjum um menningarsögu Íslendinga og útgáfu fræðilegra rita um þær.
    

7. gr.


    11. gr. laganna orðast svo:
    Ekki má nota myndir af gripum safnanna sem vörumerki eða í auglýsingaskyni og ekki heldur gera af þeim myndir eða eftirlíkingar nema með leyfi viðkomandi forstöðumanna.

8. gr.


    12. gr. laganna orðast svo:
    Á hverju minjasvæði, sbr. 3. gr., skal starfa minjaráð sem skipað er forstöðumönnum allra viðurkenndra byggðasafna á svæðinu ásamt minjaverði. Hlutverk þess er að fjalla um og samhæfa starfsemi safnanna.
    

9. gr.


    Lokamálsliður 16. gr. laganna orðast svo: Að jafnaði skal telja minjar 100 ára og eldri til fornleifa, en heimilt er þó að friðlýsa yngri minjar, sbr. 18. gr.
    

10. gr.


    17. gr. laganna orðast svo:
    Fornleifum má enginn, hvorki landeigandi, ábúandi né nokkur annar, spilla, granda né breyta, ekki heldur hylja þær, laga né aflaga né úr stað flytja nema leyfi fornleifanefndar komi til.
    

11. gr.


    18. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðminjasafn Íslands lætur, eftir föngum, skrá allar þekktar fornleifar og gefur út skrá um friðlýstar fornleifar og skal hún endurskoðuð á þriggja ára fresti. Skylt er að fornleifaskráning fari fram á skipulagsskyldum svæðum áður en gengið er frá skipulagi eða endurskoðun þess og skal Þjóðminjasafn eiga samvinnu við skipulagsyfirvöld um það.
    Þjóðminjasafn ákveður í samráði við fornleifanefnd hvaða fornleifar skulu friðlýstar. Friðlýsingu fornleifa skal birta í Stjórnartíðindum og staðurinn tilgreindur svo nákvæmlega sem unnt er á korti eða á annan hátt. Auðkenna skal friðlýstar fornleifar eða minjasvæði með sérstökum merkjum. Tilkynna skal landeiganda og ábúanda með sannanlegum hætti um friðlýsinguna. Þjóðminjasafn gefur út skrá um friðlýstar fornleifar og skal hún endurskoðuð á þriggja ára fresti.
    Friðlýsingu fornleifa skal þinglýsa sem kvöð á landareign þá sem í hlut á. Þeim minjum, sem friðlýstar eru, skal fylgja 20 metra friðhelgað svæði út frá ystu sýnilegu mörkum fornleifa og umhverfis nema kveðið sé á um annað. Um stærra svæði skal leita samþykkis landeiganda. Friðlýstar fornleifar skulu færðar á skipulagskort.
    Fornleifar, sem friðlýstar hafa verið samkvæmt eldri lögum, skulu njóta friðlýsingar áfram.
    

12. gr.


    19. gr. laganna orðast svo:
    Skylt er landeiganda og ábúanda að gera Þjóðminjasafni Íslands viðvart ef fornleifar liggja undir spjöllum af völdum náttúrunnar eða þeim er spillt af manna völdum. Þjóðminjasafn ákveður þá hvaða ráðstafanir skuli gerðar til verndar fornleifunum.
    

13. gr.


    1. málsl. 20. gr. laganna orðast svo: Nú finnast fornleifar sem áður voru ókunnar og skal finnandi þá skýra Þjóðminjasafni Íslands frá fundinum svo fljótt sem unnt er.
    

14. gr.


    1. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:
    Nú telur landeigandi, ábúandi eða einhver annar, þar á meðal sá sem stjórnar opinberum framkvæmdum, svo sem vegagerð, að hann þurfi að gera jarðrask er haggar við fornleifum og skal hann þá skýra Þjóðminjasafni Íslands frá því áður en hafist er handa um verkið. Lýst skal nákvæmlega breytingum þeim er af framkvæmd mundi leiða. Þjóðminjasafn ákveður hvort og hvenær framkvæmd megi hefja og með hvaða skilmálum.
    

15. gr.


    22. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðminjasafn Íslands fer með yfirstjórn og annast eftirlit rannsókna á fornleifum í landinu. Þegar fornleifanefnd veitir leyfi til stað- og tímabundinna rannsókna, sbr. 3. gr., skal þess gætt að stjórnandi þeirra hafi tilskilda menntun í fornleifafræði. Skal leyfi vera skriflegt hverju sinni og sá sem slíkt leyfi fær hlíta þeim reglum sem fornleifanefnd setur þar að lútandi, svo sem um skil á rannsóknarskýrslum og birtingu þeirra, og um skil á gripum sem finnast við rannsóknina. Rannsóknir útlendinga skulu vera undir yfirumsjón Þjóðminjasafns. Beina skal til fornleifanefndar öllum rannsóknarbeiðnum útlendinga er varða fornleifar á einhvern hátt, þar á meðal þeim sem einnig er skylt að beina til Vísindaráðs samkvæmt lögum nr. 48/1987.
    

16. gr.


    23. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðminjasafn Íslands hefur rétt til að láta rannsaka fornleifar með grefti eða á annan hátt og gera það sem þarf til verndar fornleifum, viðhalds eða endurbóta, en gera skal landeiganda eða ábúanda viðvart um það áður.
    

17. gr.


    24. gr. laganna orðast svo:
    Óheimil er öðrum en starfsmönnum Þjóðminjasafns Íslands notkun málmleitartækja eða annars tækjabúnaðar við leit að forngripum í jörðu nema með sérstöku leyfi þjóðminjavarðar.
    

18. gr.


    26. gr. laganna orðast svo:
    Forngripir eru lausar fornminjar, einstakir hlutir, 100 ára og eldri. Þegar forngripir finnast, sem liggja eða legið hafa í jörðu, skal finnandi tilkynna Þjóðminjasafni Íslands fundinn svo fljótt sem við verður komið. Finnandi skal ekki hagga við fundinum nema nauðsynlegt sé að taka hann eða hluta hans þegar til umhirðu með því að ella væri hætta á að munir spilltust eða færu forgörðum.
    Ákvæði 1. mgr. taka til allra muna sem menn hafa notað eða mannaverk eru á og einnig til leifa af líkömum manna og dýra sem finnast í fornum haugum, dysjum eða leiðum.
    Allir munir, sem grein þessi fjallar um, eru eign ríkisins. Skulu þeir varðveittir í Þjóðminjasafni eða í hlutaðeigandi byggða- eða minjasafni. Ef upp kemur ágreiningur um hvar varðveita skuli forngripi sker þjóðminjaráð úr.
    

19. gr.


    Við 2. mgr. 35. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
    

20. gr.


    49. gr. laganna orðast svo:
    Útgjöld vegna starfsemi húsafriðunarnefndar, þar á meðal þóknun til nefndarmanna eftir ákvörðun ráðherra, greiðast úr húsafriðunarsjóði.
    

21. gr.


    52. gr. laganna orðast svo:
    Brot gegn ákvæðum 17. gr., 19.–22. gr., 24. gr., 1. mgr. 26. gr., 28. gr., 30. gr., 2. mgr. 36. gr., 39. gr., 42. gr. og 44. gr. varða sektum til ríkissjóðs nema þyngri refsing liggi við broti skv. 177. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19 12. febrúar 1940.
    

22. gr.


    Ákvæði til bráðabirgða orðast svo:
    Ráðið skal í allar stöður minjavarða, sbr. 4. gr., fyrir árslok 1997.
    

23. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1994.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í þjóðminjalögum, er samþykkt voru á Alþingi vorið 1989 (lög nr. 88/1989), er kveðið á um að lögin skuli endurskoða eigi síðar en að fimm árum liðnum frá gildistöku þeirra. Fljótlega þótti og koma í ljós að sum ákvæði hinna nýju laga gerðu þau torveld í framkvæmd. Einkum reyndist það stjórnkerfi sem lögin gerðu ráð fyrir nokkuð þunglamalegt og valdmörk óskýr í nokkrum tilvikum.
    Í febrúar 1992 fól Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra Guðmundi Magnússyni sagnfræðingi, sem nokkru síðar var settur þjóðminjavörður, að hefja endurskoðun laganna með tilliti til þess að sníða af þeim þá agnúa sem komið höfðu í ljós og styrkja og einfalda yfirstjórn Þjóðminjasafnsins, byggðasafna og minjavörslu almennt. Fyrstu tillögur þjóðminjavarðar voru kynntar menntamálaráðuneytinu haustið 1992. Það var síðan sameiginleg niðurstaða hans og menntamálaráðherra að leita eftir samstöðu innan þjóðminjaráðs um æskilegar breytingar á þjóðminjalögum. Jafnframt átti þjóðminjavörður fundi með safnmönnum og sérfræðingum um minjavörslu og ræddi þjóðminjalögin. Haustið 1993 hélt þjóðminjaráð sex vinnufundi um þjóðminjalögin og komst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur. Þessar tillögur voru kynntar á félagsfundi í Félagi íslenskra safnamanna og á fundi með öllum starfsmönnum Þjóðminjasafns Íslands í október 1993 og sendar menntamálaráðuneytinu skömmu síðar. Frumvarp það sem hér liggur fyrir er að verulegu leyti byggt á umræddum tillögum en þó með nokkrum frávikum.
    Breytingar þær, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, varða einkum I. kafla laganna, um stjórn og skipulag þjóðminjavörslu, svo og II. kafla, um Þjóðminjasafn Íslands og byggðasöfn. Breytingar á öðrum köflum eru flestar minni háttar og sumt orðalagsbreytingar sem leiðir af hinum fyrri. Þjóðminjaráð telur hins vegar æskilegt, að á næstunni verði hlutast til um frekari endurskoðun þeirra kafla laganna sem fjalla um fornminjar og húsafriðun.
    Helstu atriði þeirra breytinga, sem lúta að stjórnkerfi þjóðminjavörslunnar og ætlað er að gera það skýrara og skilvirkara, eru þessi:
    Í gildandi lögum segir að þjóðminjaráð fari „með yfirstjórn þjóðminjavörslu í landinu í umboði menntamálaráðuneytisins“. Stjórnsýsluleg merking þessa ákvæðis þykir óljós. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að kveðið verði skýrt á um að yfirstjórn þjóðminjavörslunnar sé í höndum menntamálaráðherra, en hlutverk þjóðminjaráðs að öðru leyti markað efnislega svipað og í gildandi lögum. Því er eftir sem áður ætlað að fást við stefnumörkun og áætlanagerð, hafa umsjón með fjárhagsframkvæmd og vera stjórnarnefnd Þjóðminjasafns Íslands. Með hliðstæðum hætti er leitast við að taka af tvímæli um stöðu þjóðminjavarðar.
    Afnumin er sú tvískipting á stjórn þjóðminjavörslunnar sem gildandi lög gera ráð fyrir og felst í því að fornleifanefnd „fer með yfirstjórn fornleifavörslu og fornleifarannsókna í landinu í umboði þjóðminjaráðs“. Samkvæmt frumvarpinu verður hlutverk fornleifanefndar að fjalla um leyfisveitingar vegna fornleifarannsókna eins og nú. Að öðru leyti er henni ætlað að annast faglega ráðgjöf en ekki stjórnsýslu.
    Eins og í gildandi lögum er í frumvarpinu gert ráð fyrir að landinu verði skipt í minjasvæði. Hins vegar verði ekki lengur kveðið á um að á hverju minjasvæði starfi einn minjavörður og einn fornleifavörður, heldur verði þessi hlutverk sameinuð í starfi minjavarðar.
    Lagt er til að deildaskipting Þjóðminjasafns Íslands verði ekki bundin í lögum, heldur heimilt að ákveða hana í reglugerð. Af þessu leiðir m.a. að felld eru brott ákvæði sem lúta að núverandi sérstöðu fornleifadeildar, svo og stöðu fornminjavarðar sem stofnað var til með lögum nr. 43/1991.
    Þjóðminjasafn Íslands fær aukið sjálfstæði um ráðningu starfsmanna, m.a. deildarstjóra og annarra sérfræðinga.
    Aðrar helstu breytingar, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, eru sem hér segir:
    Skipan þjóðminjaráðs breytist á þá lund að fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga kemur í stað fulltrúa samkvæmt tilnefningu deildarstjóra Þjóðminjasafns Íslands og minjavarða. Fellt er niður ákvæði um að sá fulltrúi sem ráðherra skipar án tilnefningar skuli vera fornleifafræðingur. Hins vegar er gert ráð fyrir að sá fulltrúi verði formaður þjóðminjaráðs, en í gildandi lögum segir að ráðherra skipi formann úr hópi ráðsmanna. Mælt er fyrir um skipun varamanna. Fulltrúa fastra starfsmanna Þjóðminjasafns er ætluð seta á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétti ásamt þjóðminjaverði og safnstjóra. Skipunartími þjóðminjaráðs verður fjögur ár í stað fimm.
    Fulltrúum í fornleifanefnd fækkar úr fimm í þrjá. Verða þeir tilnefndir af Háskóla Íslands, þjóðminjaráði og Félagi íslenskra fornleifafræðinga, en ráðherra skipar formann úr hópi þeirra. Samkvæmt gildandi lögum eru tilnefningaraðilar Háskóli Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, en janframt sitja í nefndinni ráðherraskipaður fulltrúi í þjóðminjaráði, þjóðminjavörður og fornminjavörður. Hér er lagt til að þjóðminjavörður eða staðgengill hans sitji fundi fornleifanefndar með málfrelsi og tillögurétti. Mælt er fyrir um skipun varamanna í nefndina. Skipunartími styttist úr fimm í fjögur ár.
    Gert er ráð fyrir að fela megi forstöðumanni byggðasafns að gegna hlutverki minjavarðar á viðkomandi minjasvæði samkvæmt sérstökum starfssamningi. Þjóðminjaráði er ætlað að gera tillögur um skiptingu landsins í minjasvæði.
    Ákvæði, sem lúta að reglum um byggðasöfn og forsendum ríkisstyrks til þeirra, eru gerð skýrari.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Vísað er til almennra athugasemda hér að framan um yfirstjórn þjóðminjavörslunnar og hlutverk þjóðminjaráðs. Lagt er til að orðið verði við ósk stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um að samtökin eigi fulltrúa í þjóðminjaráði. Er það talið verða til þess að styrkja samband Þjóðminjasafns Íslands og sveitarfélaganna og greiða fyrir úrlausn ýmissa mála er varða samskipti safnsins og sveitarfélaga. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur í stað fulltrúa sem tilnefndur hefur verið af deildarstjórum Þjóðminjasafns Íslands og minjavörðum, en á það skal bent að þjóðminjavörður og safnstjóri ásamt fulltrúa fastráðinna starfsmanna Þjóðminjasafns Íslands eiga rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétti.
    Staða þjóðminjavarðar er nokkuð styrkt, miðað við gildandi lög. Óbreytt er að þjóðminjavörður er framkvæmdastjóri þjóðminjaráðs, en í greininni er jafnframt áréttað að þjóðminjavörður er forstöðumaður allrar starfsemi Þjóðminjasafns Íslands. Gert er ráð fyrir því að menntamálaráðherra leiti umsagnar þjóðminjaráðs áður en hann gerir tillögu til forseta Íslands um skipun í embættið.
    Um aðrar breytingar vísast til almennra athugasemda hér að framan.
    

Um 2. gr.


    Hér er lagt til að breyta hlutverki og skipan fornleifanefndar auk þess sem skipunartími nefndarinnar er styttur frá því sem nú er. Fornleifanefnd verði þriggja manna fagnefnd er veiti leyfi til rannsókna og sé til ráðuneytis um fornleifavörslu o.fl. en ekki stjórnarnefnd fornleifadeildar eins og nú er, en sú framkvæmd hefur reynst ýmsum vandkvæðum bundin. Tvískipting á stjórn þjóðminjavörslunnar er því afnumin. Að þessu leyti er verksvið nefndarinnar þrengt frá því sem nú er. Til þess að treysta sérfræðilegan grundvöll nefndarinnar er miðað við það að fagfélag fornleifafræðinga, Félag íslenskra fornleifafræðinga, tilnefni einn fulltrúa, þjóðminjaráð einn og Háskóli Íslands einn. Til þess að tryggja örugga framkvæmd ákvarðana nefndarinnar er gert ráð fyrir því að þjóðminjavörður eða staðgengill hans sitji fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétti.
    

Um 3. gr.


    Hér er gert ráð fyrir því að minjaverðir einir fari með sama hlutverk og minjaverðir og fornleifaverðir í gildandi lögum. Minjaverðir, aðrir en borgarminjavörður, verði ráðnir til fimm ára í senn af þjóðminjaverði samkvæmt tillögum þjóðminjaráðs, en vakin er þó athygli á heimild til þess að fela forstöðumönnum byggðasafna að gegna hlutverki minjavarðar á hverju svæði samkvæmt sérstökum samningi. Er í þeim tilvikum gert ráð fyrir því að um hlutastarf verði að ræða.
    

Um 4. gr.


    Fellt er brott ákvæði um deildaskiptingu Þjóðminjasafnsins og gert ráð fyrir því að hún verði ákveðin með reglugerð að fengnum tillögum þjóðminjaráðs. Er það gert til þess að auka sveigjanleika í starfsemi safnsins. Eftir sem áður hefur þjóðminjavörður fullt svigrúm til að fela starfsmönnum einstakra deilda safnsins ný, tímabundin verkefni sem falla utan eða á milli starfssviða deilda eins og þau verða skilgreind í reglugerð.
    Gert er ráð fyrir að þjóðminjaráð geti heimilað sjálfstæðan rekstur ýmissa deilda eftir því sem aðstæður leyfa. Þannig gætu deildir t.d. verið sérsöfn (tækniminjasafn, sjóminjasafn), „sjálfstæð fyrirtæki“ (myndadeild, forvörslustofa) eða stofnanir (örnefnastofnun, rannsóknastofnun í fornleifafræði eða þjóðháttafræði).
    Gert er ráð fyrir því að deildastjórar verði ráðnir af þjóðminjaverði með samþykki þjóðminjaráðs en ekki ráðherra eins og nú er. Ráðning deildarstjóra verði bundin við fimm ár í senn. Einnig er gert ráð fyrir að aðrir sérfræðingar verði ráðnir með sama hætti, en þjóðminjavörður sér að öðru leyti um ráðningar starfsfólks.
    

Um 5. gr.


    Með þeirri breytingu, sem hér er lagt til að gerð verði á 6. gr. núgildandi þjóðminjalaga, er áréttaður sá skilningur að þau byggðasöfn ein, sem uppfylla skilyrði þjóðminjaráðs og sem fengið hafa staðfestingu menntamálaráðuneytisins á stofnskrá sinni, geta sótt um og fengið ríkisstyrk til starfsemi sinnar á grundvelli 13. gr. laganna. Jafnframt er girt fyrir þá túlkun að ráðuneytinu beri að setja reglugerð um hvert safn.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir einni reglugerð um starfsemi allra byggðasafna í landinu.
    

Um 6. gr.


    Hér er um smávægilega lagfæringu að ræða þar sem fellt er brott ákvæði um birtingu starfsskýrslu Þjóðminjasafns Íslands, enda kemur nú ákvæði um það í niðurlagi 2. gr.
    

Um 7. gr.


    Nægilegt þykir að vísa hér til forstöðumanna safna. Orðalag í gildandi lögum skapar óvissu um það hver taki ákvörðun í þessu efni, ekki síst ef um ágreining er að ræða.
    

Um 8. gr.


    Gert er ráð fyrir því að í minjaráð veljist forstöðumenn byggðasafna, en ekki fulltrúar stjórna byggðasafna. Er þetta talið til þess fallið að styrkja starfsemi minjaráða.
    

Um 9. gr.


    Í ljósi 10. gr. frumvarps þessa er hér aðeins um að ræða nauðsynlega leiðréttingu á tilvísun til viðeigandi lagagreinar.
    

Um 10. gr.


    Efnislega er hér um 1. mgr. 18. gr. gildandi laga að ræða sem rökrétt þykir að fylgi í kjölfar 16. gr. þar sem er að finna skilgreiningu á fornleifum. Síðari málsgrein núverandi 18. gr. er felld brott þar sem kveðið er á um sömu efnisatriði í 21. gr. laganna.
    

Um 11., 12., 13., 14., 15. og 16. gr.


    Hér er um orðalagsbreytingar að ræða sem leiðir af því að nöfn deilda Þjóðminjasafns verða ekki í lögunum. Í stað orðanna „fornleifadeild“, „fornleifasvið“, „fornleifavörður“ og „fornminjavörður“ kemur: Þjóðminjasafn Íslands. Samkvæmt 23. gr. laganna geta landeigendur og ábúendur ekki neitað Þjóðminjasafni um rétt til að rannsaka fornleifar eða gera ráðstafanir til verndar þeim. Eftir sem áður þarf Þjóðminjasafn að leita til fornleifanefndar um allar rannsóknir með grefti aðrar en skammtíma vettvangsathuganir.
    

Um 17. gr.


    Hér koma orðin: starfsmönnum Þjóðminjasafns Íslands, í stað orðasambandsins „starfsmönnum þjóðminjavörslunnar“ sem hefur óljósa lagalega merkingu.
    

Um 18. gr.


    Vísað er til athugasemda við 11.–16. gr. frumvarps þessa.
    

Um 19. gr.


    Með hliðsjón af 32. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er sérstaklega tekið fram að skipa skuli varamenn í húsafriðunarnefnd.
    

Um 20. gr.


    Í gildandi lögum er gert ráð fyrir því að ríkissjóður greiði kostnað af starfsemi húsafriðunarnefndar. Eðlilegt er talið að þessi kostnaður greiðist úr húsafriðunarsjóði og hefur verið gert ráð fyrir því í fjárlögum síðan 1993. Hér er lagt til að þessi breytta skipan verði lögfest í þjóðminjalögum.
    

Um 21. gr.


    Greinatilvísanir eru færðar til samræmis við breytta röð samkvæmt frumvarpinu.
    

Um 22. gr.


    Í núgildandi ákvæði þjóðminjalaga til bráðabirgða segir að skipa skuli í allar stöður minjavarða innan fimm ára frá gildistöku laganna, þ.e. fyrir árslok 1994. Enn sem komið er hefur ekki verið veitt fé til þess að stofna stöður minjavarða og því þykir nauðsynlegt að framlengja þennan frest enn um sinn eða til ársloka 1997.
    

Um 23. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringar.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneytið,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989,


sbr. lög nr. 43/1991.



    Megintilgangur þessa frumvarps er að gera stjórnkerfi þjóðminjavörslunnar skýrara og skilvirkara en nú er. Í því skyni eru lagðar til breytingar á ákvæðum er varða þjóðminjaráð, stöðu þjóðminjavarðar, fornleifanefnd o.fl. Í fornleifanefnd er fulltrúum fækkað úr fimm í þrjá. Að mati fjármálaráðuneytis hefur þetta frumvarp óveruleg áhrif á útgjöld ríkissjóðs. Þó skal bent á þrjú ákvæði er snerta kostnað án þess að þau hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs:
    Í 3. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að minjaverðir taki yfir hlutverk fornleifavarða í gildandi lögum. Til þessa hafa hvorki minjaverðir né fornleifaverðir verið ráðnir til starfa þannig að með þessari breytingu er dregið úr fyrirsjáanlegum kostnaði. Í bráðabirgðaákvæði frumvarpsins er kveðið á um að ráða skuli í allar stöður minjavarða fyrir árslok 1997, en í gildandi lögum er þessi frestur til ársloka 1994.
    Í 5. gr. eru ákvæði um ríkisstyrki til byggðasafna gerð skýrari en er í núgildandi lögum. Bætt er við ákvæði sem segir að ríkisstyrkur til byggðasafns sé háður því að menntamálaráðuneytið hafi samþykkt stofnskrá þess.
    Í 20. gr. frumvarpsins er kveðið á um að útgjöld vegna starfsemi húsafriðunarnefndar skuli greiðast úr húsafriðunarsjóði, en samkvæmt núgildandi lögum skulu þau greiðast úr ríkissjóði. Í reynd hafa útgjöld vegna húsafriðunarnefndar verið greidd úr húsafriðunarsjóði frá árinu 1993 og er lagt til að sú skipan verði lögfest.