Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 518 . mál.


798. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um endurbætur á Þjóðminjasafninu.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hversu miklu fé hefur verið varið til endurbóta á Þjóðminjasafninu frá því að viðgerð þess hófst og hvað hefur verið gert?
    Hvaða skýring er á því að samningnum var rift við þær arkitekta- og verkfræðistofur sem undirbjuggu áætlanir um viðgerðir á Þjóðminjasafninu og önnuðust þær?
    Hvað hafði arkitekta- og verkfræðistofunum verið greitt mikið fé áður en samningum var rift og hvað hafa þær fengið miklar skaðabætur hvor um sig?
    Eftir hvaða áætlun er nú unnið að viðgerðum við Þjóðminjasafnið og hvaða aðilar hafa verið ráðnir til að annast þær í stað þeirra sem samningum var rift við?