Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 341 . mál.


854. Breytingartillaga


við frv. til l. um breyt. á l. nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Frá Ragnari Arnalds, Guðna Ágústssyni og Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni.


    Við 3. gr.
    Síðari málsliður 1. efnismgr. orðist svo: Verðjöfnun á unnum og/eða samsettum vörum miðast við þátt allra landbúnaðarhráefna, innlendra og erlendra, í verði viðkomandi vöru.
    Við lið 2.3. í 3. efnismgr. bætist: þar á meðal samkvæmt Úrúgvæ-lotu Gatt-samningsins, ef þeir taka gildi hér á landi.