Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 547 . mál.
858. Frumvarp til laga
um breyting á tollalögum nr. 55/1987, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 115. gr. laganna:Ráðherra er enn fremur heimilt að leggja undirboðs- og jöfnunartolla á erlend þjónustuviðskipti að uppfylltum sömu skilyrðum og gilda um vöruviðskipti samkvæmt ákvæðum þessa kafla.
Ákvarðanir ráðherra um þetta efni gilda frá og með þeim degi sem þær eru birtar í Stjórnartíðindum og skulu ekki gilda lengur en í fimm ár.
Ráðherra getur skipað nefnd til að rannsaka kærur um innflutning vara á undirboðskjörum eða með styrkjum og gera tillögur til ráðherra um álagningu undirboðs-eða jöfnunartolla. Um störf nefndarinnar, réttindi og skyldur, skulu gilda ákvæði laga þessara eftir því sem við á.
2. gr.
Síðari málsliður 2. mgr. 118. gr. laganna orðast svo: Slíka bráðabirgðatolla má þó ekki leggja á til lengri tíma en 12 mánaða.
3. gr.
119. gr. laganna orðast svo:
Undirboðs- og jöfnunartolla skal ekki leggja á með afturvirkum hætti nema:
Undirboðs- eða jöfnunartollar, sem lagðir eru á með afturvirkum hætti, geta náð til innflutnings sem fluttur hefur verið til landsins allt að 90 dögum áður en kæra barst fjármálaráðuneytinu um innflutning sem fellur undir 1.–3. mgr. 115. gr.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með bréfi, dags. 22. desember sl., skipaði fjármálaráðherra nefnd til að semja reglur sem íslensk stjórnvöld gætu farið eftir við athugun á því hvort beita eigi jöfnunartollum og hvernig álagningu þeirra skuli háttað og eftirliti með framkvæmd þeirra. Óskað var eftir því að nefndin hraðaði störfum sínum þannig að unnt væri að taka afstöðu til tillagna nefndarinnar fyrir þinglok vorið 1994.Í erindisbréfi nefndarinnar kom fram að umræddar reglur skyldu taka til eftirfarandi atriða:
— skilyrða fyrir álagningu jöfnunartolla, m.a. sannana á tilvist ríkisstyrkja og tjóni sem af þeim leiðir,
— hvenær rannsókn skuli fara fram, hverjir geti farið fram á hana og hvaða gögn þeir þurfa að leggja fram,
— rannsókna stjórnvalda, gagnaöflunar, réttinda aðila til að koma að upplýsingum o.s.frv.,
— álagningar jöfnunartolla, fjárhæða, tímamarka, tilkynninga o.fl.,
— aðgerða til bráðabirgða og afturvirkra ráðstafana.
Nefndin hefur útbúið drög að reglugerð um undirbúning og framkvæmd álagningar og innheimtu undirboðs- og jöfnunartolla. Í reglugerðinni eru sett ákvæði um hvernig beita eigi þessum aðgerðum. Ef setja á þessar reglur er nauðsynlegt að gera breytingar á tollalögum eins og lagt er til í þessu frumvarpi.
Í frumvarpinu felast fjórar efnisbreytingar. Í fyrsta lagi er lagt til að heimilt verði að beita undirboðs- og jöfnunartollum þegar um er að ræða þjónustuviðskipti. Í öðru lagi er lagt til að heimilt verði að láta ákvörðun um undirboðs- og jöfnunartolla gilda lengur en nú er heimilt. Í þriðja lagi er gerð tillaga um að heimilt sé að leggja undirboðs- og jöfnunartolla á með afturvirkum hætti og í fjórða lagi er gert ráð fyrir því að fjármálaráðherra geti skipað nefnd til að rannsaka kærur um innflutning á vörum eða þjónustu með undirboðskjörum eða með styrkjum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessari grein eru lagðar til þrjár breytingar á lögunum. Í fyrsta lagi er lagt til að heimild til að leggja á undirboðs- og jöfnunartolla taki ekki aðeins til vöru heldur einnig til þjónustuviðskipta. Í öðru lagi er lagt til að sá tími sem heimilt er að beita undirboðs-og verðjöfnunartollum verði lengdur úr sex mánuðum í fimm ár. Í þriðja lagi er lagt til að sett verði ákvæði í lögin sem heimila fjármálaráðherra að skipa sérstaka nefnd sem hafi það hlutverk að rannsaka kærur um innflutning á vörum eða þjónustu á undirboðskjörum eða með styrkjum.Um 2. gr.
Í þessari grein er lagt til að sá tími sem heimilt er að leggja undirboðs- og jöfnunartolla á til bráðabirgða verði lengdur úr einum mánuði í eitt ár.Um 3. gr.
Samkvæmt þessari grein er lagt til að tekið verði upp ákvæði í lögin sem fjalli um við hvaða aðstæður heimilt sé að leggja undirboðs- og jöfnunartolla á með afturvirkum hætti. Nauðsynlegt er að heimilt sé að leggja undirboðs- og jöfnunartolla á afturvirkt, t.d. þegar vara hefur verið flutt inn á undirboðskjörum í miklu magni á stuttum tíma. Þrátt fyrir þetta er talið rétt að takmarka þessa heimild þannig að afturvirkni geti einungis tekið til 90 daga áður en kært er.Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.