Ferill 572. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 572 . mál.
887. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Sturla Böðvarsson, Gísli S. Einarsson,
Eggert Haukdal, Guðmundur Hallvarðsson, Guðjón Guðmundsson,
Ingi Björn Albertsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Hermann Níelsson,
Sigbjörn Gunnarsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Petrína Baldursdóttir,
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Jóhann Ársælsson,
Margrét Frímannsdóttir, Pétur Bjarnason.
1. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
I.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga þessara skal aflamark afnumið við veiðar á ufsa, ýsu, skarkola og úthafsrækju frá gildistöku þessa ákvæðis til 31. ágúst 1994.
II.
Frá gildistöku þessa ákvæðis til 31. ágúst 1994 er sérhverju fiskiskipi, sem heimild hefur til botnfiskveiða, heimilt að landa allt að 15% af þorski, karfa og grálúðu sem meðafla annarra botnfisktegunda í þorskígildum talið án þess að sá meðafli reiknist sem aflamark hjá viðkomandi fiskiskipi. Þetta ákvæði gildir ekki fyrir karfaafla sem skráður er sem úthafskarfi í löndunarskýrslum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt nú til þess að taka á þeim gífurlega vanda sem fram undan er vegna mjög takmarkaðra þorskveiðiheimilda sem gerir það að verkum að veiðar á öðrum fisktegundum, sem engin rök eru fyrir að binda í viðjar kvótakerfisins, verða illframkvæmanlegar. Flest bendir til þess að afleiðingin verði sú að afla, sem kemur óhjákvæmilega sem meðafli, t.d. þorski, verði ekki landað til vinnslu. Ástæðan er sú að ekki eru til aflaheimildir af þorski og jafnvel ekki heldur af grálúðu svo að náist að gera þennan meðafla löglegan í núgildandi stjórnkerfi fiskveiða. Til þess að reyna að opna fyrir auðveldari fiskveiðar það sem eftir lifir fiskveiðiársins og draga úr verslun með fiskveiðikvóta á þeim tegundum sem enn fást leigðar og minnka þannig kostnað útgerðar og stuðla jafnframt að aukinni atvinnu á næstu mánuðum er þetta frumvarp fram komið.
Um I.
Í bráðabirgðaákvæði I er lagt til að gefa veiðar frjálsar það sem eftir lifir fiskveiðiársins í ufsa, ýsu, skarkola og úthafsrækju. Þessar fisktegundir og úthafsrækjan hafa ekki verið fullnýttar á undanförnum árum og ekkert bendir til að svo verði á yfirstandandi fiskveiðiári. Þess vegna ber að auka frelsi í þessum veiðum og stuðla þannig að auknum afla og aukinni atvinnu í landi við úrvinnslu aflans.
Um II.
Í bráðabirgðaákvæði II er gerð tillaga um að ekki þurfi veiðiheimildir fyrir meðafla af þorski, karfa og grálúðu ef afli þessara tegunda er innan við 15% af lönduðum heildarafla í þorskígildum talið. Afli umfram 15% af þorski, karfa og grálúðu telst til aflamarks. Sé veiði umfram úthlutað aflamark koma til framkvæmda viðeigandi ákvæði í lögum um stjórn fiskveiða. Þetta ákvæði gildir ekki fyrir veiði úthafskarfa.