Ferill 589. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
589
. mál.
941. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um þjónustu Ríkisútvarpsins við heyrnarskerta og heyrnarlausa.
Frá Tómasi Inga Olrich.
Hve margir eru þeir Íslendingar sem ekki eru taldir geta nýtt sér þjónustu Ríkisútvarpsins vegna heyrnarleysis eða heyrnarskerðingar?
Á hvern hátt hefur Ríkisútvarpið reynt að koma til móts við þennan hóp?
Hefur verið dregið úr þjónustu Ríkisútvarpsins við heyrnarlausa?
Er áformað að auka þjónustu Ríkisútvarpsins við heyrnarlausa?