Ferill 590. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. –
590
. mál.
942. Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um lyfjaauglýsingar í fjölmiðlum.
Frá Ingibjörgu Pálmadóttur.
Hverju á að ná fram með þeim auglýsingum sem nú birtast í blöðum og ljósvakamiðlum frá heilbrigðisráðuneytinu og Tryggingastofnun ríkisins?
Er ætlast til að sjúklingar hafi áhrif á lækna varðandi hvaða lyfjum er ávísað?
Hvað á auglýsingaherferðin að standa lengi yfir?
Hvað er áætlað að þessi auglýsingaherferð muni kosta?
Í hvaða fjölmiðlum er auglýst?