Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 275 . mál.


951. Frumvarp til laga



um breytingar á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 15. apríl.)



1. gr.


    4. gr. laganna, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 47/1990, orðast svo:
4.1.    Umhverfisráðuneytið fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum.
4.2.    Landlæknir er ráðgjafi ráðherra og ríkisstjórnar um allt er að hollustuháttum og heilbrigðiseftirliti lýtur.

2. gr.


    Í stað orðanna „heilbrigðisráðherra að því er varðar 2. gr. og umhverfisráðherra að því er varðar 3. gr. staðfesta“ í 3. mgr. 5. gr. laganna, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 47/1990, kemur: umhverfisráðherra staðfestir.

3. gr.


    Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra vegna 2. gr. og umhverfisráðherra vegna 3. gr.“ í 3. málsl. 2. mgr. 4. gr. a, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1993, kemur: umhverfisráðherra.

4. gr.


    5. mgr. 13. gr. orðast svo:
13.5.    Stofnunin er til ráðuneytis yfirstjórn umhverfismála, heilbrigðismála, heilbrigðisnefndum og öðrum sem með opinbert heilbrigðiseftirlit fara.

5. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1994.