Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 172 . mál.
1088. Nefndarálit
um till. til þál. um auðlindakönnun í öllum landshlutum.
Frá iðnaðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fékk um hana umsagnir frá Orkustofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og héraðsnefndum Borgarfjarðarsýslu, Suðurnesja, Múlasýslu, Dalasýslu, Skagfirðinga og Ísafjarðarsýslu.
Nefndin telur brýnt að fram fari rækileg auðlindakönnun á Íslandi til þess að skapa grundvöll fyrir mótun auðlindastefnu til framtíðar. Hér er í senn um að ræða atvinnumál og umhverfismál sem snerta allan efnahagsgrundvöll þjóðarinnar. Nefndinni er hins vegar ljóst að slík könnun er kostnaðarsöm. Nefndin telur því heppilegt að á þessu stigi verði stjórnvöldum falið að láta gera áætlun um kostnað við slíka auðlindakönnun og leggur því til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Gísli S. Einarsson, Páll Pétursson, Kristín Einarsdóttir og Guðjón Guðmundsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 27. apríl 1994.
Svavar Gestsson,
Sigríður A. Þórðardóttir.
Finnur Ingólfsson.
form., frsm.
Pálmi Jónsson.
Tómas Ingi Olrich.