Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 260 . mál.


1111. Breytingartillögur



við frv. til l. um afnám laga nr. 39 15. maí 1990, um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins.

Frá sjávarútvegsráðherra.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. laganna skal ekki inna af hendi greiðslur til Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins vegna útflutnings frá gildistöku laga þessara. Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. laganna skal ekki inna af hendi greiðslur af verðjöfnunarreikningum sjóðsins vegna útflutnings frá sama tíma. Sjávarútvegsráðherra getur með reglugerð ákveðið að inn- og útgreiðslur hefjist að nýju þegar leyfilegur árlegur heildarafli af þorski fer yfir 250.000 lestir.
    Við fyrirsögn frumvarpsins. Í stað orðanna „um afnám laga“ komi orðin: um viðauka við lög.