Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 204 . mál.


1188. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk um það umsagnir frá Kennarasambandi Íslands, Stígamótum, Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa, Fangavarðafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands, Fangelsismálastofnun ríkisins og fjármálaráðuneytinu.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir breytingum á 2. gr. laga um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988, með síðari breytingum, þannig að meðal lögbundinna verkefna Fangelsismálastofnunar ríkisins verði að veita aðstandendum fanga sérhæfða þjónustu, svo sem félagsráðgjöf og sálfræðiaðstoð.
    Í umfjöllun nefndarinnar kom fram að í dómsmálaráðuneytinu er nú, í samvinnu við Fangelsismálastofnun, unnið að gerð frumvarps til breytinga á lögum um fangelsi og fangavist. Nefndin telur eðlilegt að í þeirri vinnu verði það frumvarp, sem hér liggur fyrir, tekið til skoðunar og leggur því til að því verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Ólafur Þ. Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. maí 1994.



Sólveig Pétursdóttir,

Gísli S. Einarsson.

Anna Ólafsdóttir Björnsson.


form., frsm.



Björn Bjarnason.

Kristinn H. Gunnarsson.

Ingi Björn Albertsson.



Guðni Ágústsson.

Tómas Ingi Olrich.