Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 544 . mál.


1230. Breytingartillaga



við frv. til l. um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    Flutningskostnaður á olíuvörum innan lands skal jafnaður eins og nánar greinir í lögum þessum.
    Jöfnun á flutningskostnaði nær til flutninga á bifreiðabensíni, gasolíu, öðrum olíum og blöndum til brennslu, flugvélabensíni og flugsteinolíu (þotueldsneyti) til innanlandsflugs, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga, millilandaflugs, erlendra skipa og erlendra flugvéla.
    Jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum nær til flutnings á bensíni og öðrum olíuvörum sjóleiðis frá innflutningshöfnum til annarra hafna á landinu sem geta tekið við bensíni og olíuvörum með leiðslu úr tankskipi. Jafnframt nær jöfnun flutningskostnaðar til landflutninga á bensíni með tankbifreið til allra útsölustaða í byggð, þ.e. utan hálendis, frá næstu innflutningshöfn eða næstu höfn sem getur tekið við bensíni frá tankskipi úr olíuleiðslu. Enn fremur nær jöfnun flutningskostnaðar til landflutninga á olíum sem um getur í 2. mgr. frá næstu innflutningshöfn eða höfn sem getur tekið við olíu frá tankskipi úr olíuleiðslu til verslunarstaða þeirra er hér greinir:
    Hveragerði, Selfoss, Laugarvatn, Laugarás, Flúðir, Hella, Hvolsvöllur, Vík í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustur, Fagurhólsmýri, Egilsstaðir, Grímsstaðir á Fjöllum, Ásbyrgi, Reykjahlíð við Mývatn, Laugar í Suður-Þingeyjarsýslu, Varmahlíð, Staðarskáli, Reykjanes við Ísafjarðardjúp, Brjánslækur, Króksfjarðarnes, Skriðuland, Búðardalur, Reykholt í Borgarfirði, Borgarnes.