Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


117. löggjafarþing 1993–1994.
Nr. 26/117.

Þskj. 1253  —  238. mál.


Þingsályktun

um úrbætur í málum nýbúa og íslenskra barna sem dvalist hafa lengi erlendis.


    Alþingi ályktar að beina því til menntamálaráðherra að:
     1.      Stuðla í auknum mæli að gerð kennsluefnis fyrir námsmenn af erlendum uppruna í sögu, landafræði, náttúrufræði og félagsfræði. Kennsluefnið verði á einföldu en góðu íslensku máli og til þess ætlað að auðvelda nemendum að tileinka sér annað kennsluefni í íslenskum skólum.
     2.      Beita sér fyrir eflingu sérstakrar íslenskukennslu fyrir nýbúa og íslensk börn sem hafa dvalist lengi erlendis.

Samþykkt á Alþingi 6. maí 1994.