[13:43]
Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Í 1. gr. frv. er talað um atvinnuköfun í ám og vötnum og síðar er einnig talað um áhugaköfun. Mig langar að spyrja hæstv. samgrh. að því hvort einhverjar takmarkanir séu á því hvar megi kafa eða hvort það sé öllum frjálst að stunda hvar sem er köfun þá sem þetta frv. fjallar um?