Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 16:40:26 (3596)


[16:40]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Nú virðist það hins vegar koma í minn hlut að leiðrétta ákveðinn misskilning hjá hv. þm. Árna M. Mathiesen því í þál. um vegáætlun fyrir árin 1991--1994 er í lið 2.3 númer 2 Sérstök verkefni og á árinu í fyrra, 1994, voru 372 millj. til þessara sérstöku verkefna. Þannig að þessi liður hefur verið inni í vegáætlun þar til nú.