Vegáætlun 1995--1998

77. fundur
Fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 17:24:45 (3609)


[17:24]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tel að hæstv. ráðherra hafi ekki svarað spurningu minni. Ég spurði hann að því hvort enn þá væru ógreiddar þær girðingakröfur sem getið er um í þessu frv., um 190 millj. kr., því að það er ekki talað um í greinargerð að það sé hugsað að greiða þær. Ég var að spyrja hann um skýringar á því að þetta skuli vera hér í greinargerð en ekki er getið um það hvernig við því verði orðið. Hvað varðar það að ég muni ekki standa að samþykkt þessarar vegáætlunar, þá nefndi ég það líka að það á mikið eftir að fjalla um þessa vegáætlun og er ekki séð fyrir endann á því enn þá hvort hún kemur til síðari umr.