Forkaupsréttarákvæði fiskveiðistjórnarlaga

83. fundur
Fimmtudaginn 02. febrúar 1995, kl. 13:55:13 (3784)


[13:55]
     Árni Johnsen :
    Virðulegi forseti. Það er ágætismál sem er tekið hér til umræðu utan dagskrár hjá hv. þm. Guðna Ágústssyni þótt heldur halli nú að því að það sé orðið að ,,búmerangmáli`` fyrir hv. þm. því að það skaut dálítið skökku við á fundi í Vestmannaeyjum fyrir skömmu þegar hv. þm. ásamt hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni lýsti því yfir á fundi með Eyjamönnum að menn væru að fara í kringum kerfið. En það var einmitt sá sem mælti það sem hafði sett kerfið á og þeir félagar báðir. Þess vegna er það svolítið ofgert í sakleysi að koma fram með þessum hætti sem hv. þm. Guðni Ágústsson gerir hér.
    Það er auðvitað rétt að það er misræmi í setningu laganna þannig að menn geta, ef menn kalla það svo, spilað á kerfið. Hér er nefnt dæmi um Sigurborgu úr Vestmannaeyjum. Það er engin launung á því að Vestmanneyingar hafa bæði keypt og selt samkvæmt þessu kerfi og hegðað sér samkvæmt því sem kerfið býður upp á. Það þurfa menn að gera ef þeir ætla að halda velli í þessum slag þannig að þetta er ekki á eina bókina lært. Það er líka sagt hér að Vestmanneyingar hafi aukið kvóta sinn um 25% og það er rétt og er ekkert óeðlilegt með stærstu verstöð landsins. En það er hins vegar óeðlilegt að miða í sjálfu sér þá umræðu við kvótaárin sjálf. Það er miklu nær að taka síðustu 30 ár og kanna hvert aflahlutfall var þá í byggðum landsins. Þá er Vestmannaeyjahluturinn ekkert ofætlaður miðað við það sem liggur fyrir í dag.
    Það er því til margs að horfa í þessu, virðulegi forseti, og ágætt að reifa þetta mál en menn verða að hegða sér samkvæmt því sem kerfið býður upp á.