Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur ósk um að ræðutími í umræðunni um skýrsluna fyrir talsmenn flokka verði lengdur í 25 mín. í fyrri umferð og byggist það á 48. gr. þingskapa. Ef ekki eru andmæli þá mun forseti haga umræðum þannig og ræðutíminn er þá á þann veg að ráðherra hefur allt að 30 mín. í fyrri umferð en 15 mín. í þeirri síðari. Talsmenn flokkanna hafa allt að 25 mín. í fyrri umferð en 15 mín. í þeirri síðari. Aðrir ræðumenn hafa 15 mín., tvisvar sinnum.