[15:13]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Nú kunni ég betur við svipinn á hv. þm. Það var glaðara yfir honum og sársaukinn var að mestu horfinn.
Ég sagði að vísu í morgun það eitt um fyrrv. landbrh., Steingrím J. Sigfússon, að hann hefði verið ráðherrann sem gafst upp. Bændasamtökin gáfust kannski líka upp. Við stóðum að þessum búvörusamningi en það sem ég er að velta fyrir mér og alltaf að reyna að vekja athygli á eru þessi fjögur glötuðu ár með nýjum tækifærum sem er svo sorglegt að við skulum hafa misst af, að eiga ekki landbrh. í þeirri stöðu. Mín ræða hér í morgun var söknuður yfir því að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson skyldi ekki vera hér og ég sakna þess enn að hv. þm. og fyrrv. landbrh. Steingrímur Sigfússon skuli bjóða þinginu upp á það að vera fjarri við þessa umræðu, skuli ekki hafa farið fram á frestun á umræðunni svo að hann gæti verið hér viðstaddur.