Framkvæmd búvörusamningsins

84. fundur
Föstudaginn 03. febrúar 1995, kl. 15:25:18 (3890)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill geta þess það er alllangt síðan þessi umræða var ákveðin af forsætisnefnd. Sú ákvörðun var tilkynnt fulltrúum allra flokka á hv. Alþingi og ekki komu athugasemdir fram. Hv. 4. þm. Norðurl. e., fyrrv. hæstv. landbrh., vissi um þetta eins og aðrir og honum ber að vera hér á fundi eins og öðrum hv. þingmönnum. Kjósi hann að sinna öðrum störfum sem honum kann að vera sjálfrátt, þá er það hans mál, en það hefur verið tekin um það ákvörðun að ljúka þessari umræðu í dag.