Vegasamband milli Austurlands og Norðurlands

87. fundur
Mánudaginn 06. febrúar 1995, kl. 18:57:28 (3982)


[18:57]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég held að þessi ræða hafi staðfest það sem er mín skoðun í þessu máli að það sé í sjálfu sér ekki mikill ágreiningur og staðreyndir málsins séu þær að strandleiðin getur aldrei komið í staðinn fyrir Fjöllin og öfugt. Hv. þm. nefndi að að hans mati ætti að byggja upp veg með bundnu slitlagi austur yfir Fjöllin. Það væri hins vegar álitamál hvað ætti að leggja mikið upp úr þeirri uppbyggingu gagnvart snjóalögum.
    Nú kann ég ekki þær tölur en mér segir svo hugur að kostnaðarmunurinn á því hvort sá vegur yrði með bundnu slitlagi, yrði byggður upp með tilliti til þess að halda honum opnum allan veturinn, eða eingöngu sem 7--8 mánaða vegur hlaupi á einhverjum parhundruð milljónum en engum milljörðum. Það er nú bitamunur en ekki fjár held ég í þessu dæmi.
    Þess vegna vil ég nú spyrja hv. þm. að því hvað sé hans mat á tímalengdinni sem það tæki að koma þessum umbótum í framkvæmd. Hvað það tæki miklu skemmri tíma að klára Fjöllin en að snúa því við og geyma þau og fara strandleiðina. Mér segir svo hugur um að þar séum við að tala um tíma sem við

teljum ekki í árum heldur fylli það í það minnsta áratug. Væri pólitískur vilji fyrir því væri hægt að ná stórum áföngum á hinni leiðinni á mjög skömmum tíma því að eftir því sem styttist það sem er ekki með bundnu slitlagi þá breytist það til þess að gera mjög hratt.
    Og að lokum önnur spurning til hv. þm.: Hver telur hann að sé snjóþyngsta leiðin af þessum þrem, annars vegar með ströndinni og út fyrir Sléttu og Tjörnes eins og nú er, Reykjaheiðin/Öxarfjarðarheiðin, eða þá þriðja leiðin þar sem eru Fjöllin?