Forseti (Valgerður Sverrisdóttir)
:
Dagskrá hefur verið útbýtt og á þeirri dagskrá er ekki það frv. sem hv. þingmenn hafa verið að óska eftir að verði tekið fyrir og þar að auki er hæstv. dómsmrh. með fjarvistarleyfi, staddur erlendis eftir því sem forseti best veit. Forseti hyggst því halda áfram umræðu um það mál sem þegar hefur verið tekið á dagskrá og hefur gert hæstv. heilbrrh. viðvart um að hans sé óskað. Það er kunnugt að hæstv. heilbrrh. er í sínu ráðuneyti en hann hlýtur að geta komið innan tíðar.