Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

90. fundur
Fimmtudaginn 09. febrúar 1995, kl. 17:43:04 (4137)


[17:43]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ítreka tilvitnun mína í Gunnar Dal rithöfund. Ég umgengst þau ummæli ekki af léttúð ég fer þar ekki með rangt mál. Hann sagði orðrétt: ,,Ég vona að Alþb. geri aldrei hreint fyrir sínum dyrum. Það er nógu mikill skítur í heiminum samt.`` Þetta eru hans orð en ekki mín. Þessi orð eru prentuð, ég fer ekki með staðlausa stafi.