Öryggi í samgöngumálum Vestfjarða

91. fundur
Mánudaginn 13. febrúar 1995, kl. 15:26:31 (4160)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hafði verið tilkynnt hefst nú utandagskrárumræða. Fyrst verður umræða sem hv. 6. þm. Vestf., Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, hefur beðið um. Efni umræðunnar er öryggi í samgöngumálum Vestfjarða og er samgrh. til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa.